Alþýðublaðið - 12.01.1988, Síða 5
Þriöjudagur 12. januar 1988 .
5
TÖLVUR OG FÓLK
Axel Nielsen
skrifar
VEGUR NJÁLA Ein GRAMM?
Nú er enn eitt áriö liðió. Mennirnir
eldast um eitt ár en tölvugreyin um
hundrað ár. Oft er tölvutæknin nefnd
upplýsingatæknin vegna þess að
aðalhlutverk tölva er að geyma og
miðla upplýsingum. Til að geyma upp-
lýsingar þarf hirslur. Hirsla tölvunnar
eru disklingar (diskettur). Við þær
kannast flestir. Nú hillir undir nýja
tíma í þessum efnum.
Geisladiskar eru að koma til sög-
unnar. Geisladiskar eru tækni
morgundagsins. Við vitum öll að hægt
er að nota geisladiska til að flytja
okkur hljóðbetri tónlist en nokkru
sinni fyrr. Þessi tegund geisladiska er
oft nefnd hljómdiskar. Færri vita að
geisladiska má einnig nota til að
geyma gögn á sama hátt og disklingár
og harðir diskar eru notaðir. En af
hverju geisladiskar? Svarið er einfalt.
Á einum venjulegum geisladiski sem
lýtur nákvæmlega eins út og hljóm-
diskur er hægt aö geyma allt að
800Mb sem jafngildir 500 skáldsögum
i fullri lengd. Þetta verður enn ótrú-
legra þegar stærð þeirra er skoðuð.
Geisladiskur er 12 cm í þvermál og
vegur um 20 grömm og ég endurtek á
aðeins einum geisladisk. Enn ótrú-
legra er að ef búinn væri til ferhyrntur
geisladiskur sem væri 6 fet á kant þá
væri hægt að geyma á honum sér-
hvert orð í sérhverri bók sem skrifuð
hefur veriö! Allir sem kynnst hafa
tölvum kannast við venjulega disk-
linga oft nefndir seguldiskar. Hvað
geyma þeir? 360Kb er algengt en það
er um fjórðungur úr skáldsögu. Harð-
ur diskur geymir kannski 30Mb eða 18
skáldsögur. Kostir geisladiskanna eru
augljósir. Eru til 500 skáldsögur á
þfnu heimili?
Mikið vit í háifu grammi. Þessar bækur fylta
aðeins 3% disksins.
Hvernig má þetta vera, hvaða tækni
liggur hér að baki. í stuttu máli þá
geymir geisladiskur mun meira magn
upplýsinga á hverjum fersentimetra
en seguldiskur. Á yfirborði beggja
diskanna eru endalausar raðir tölu-
stafanna 0 og 1, en samsetning þeirra
mynda þau gögn sem við viljum
geyma. Það eru 16000 spíralar á hverri
tommu og gögnin eru geymd sem
raðir á þessum spirulum. Þessir
spíralar eru samfelldir og samanlagt
eru þeir um fimm og hálfur kílómetri
að lengd. Geisladiskar geyma mun
meiri gögn heldur en seguldiskar af
þeirri einföldu ástæðu að raðir geisla-
disksins eru miklum mun smærri en
seguldisksins. Svo mikill er munurinn
að í stað fjórðungs úr skáldsögu er
hægt að geyma 500 skáldsögur. Horn-
steinn þessarar nýju tækni er notkun
leisergeisla en þeir eru notaðir til að
lesa gögn af geisladisknum. Þessi
geisli er örgrannur eða um einn
billjónasti úr metra. Lítið rykkorn yrði
fjall og mannslikaminn veröldin öll við
hlið slíks geisla.
Saga geisladiskanna er ekki löng,
aðeins örfá ár. Það voru reyndar stór-
fyrirtækin Philips og Sony sem
mörkuðu leiðina þegar þau kynntu
fyrsta geislaspilarann. Það er í sjálfu
sér lítill munur milli geislaspilara fyrir
tölvu og geislaspilara fyrir hljóm-
flutningstæki. Hljómflutningstækið
getur ekki enn notað raðirnar af 0 og
1 óbreyttar og því er þeim breytt í
form sem það skilur. Tölvan notar
þessar raðir aftur á móti óbreyttar.
Með það í huga hversu kostir geisla-
diskanna eru augljósir er von að sú
spurning vakni. Hvers vegna í ósköp-
unum notast ekki allar tölvur við
geisladiska? Staðreyndin er nefnilega
sú að þessi tækni hefur verið til nú í
nokkur ár en notin eru lítil sem engin.
Sá er einn galli við geisladiska að ekki
er hægt að geyma sín eigin gögn á
þeim, það er, kaupandi fær tilbúinn
disk með upplýsingum og getur
ekkert hreyft við þeim aðeins lesið
þær. Forstjórinn getur grafið draum-
inn um að geta loksins sett alla við-
skiptamenn á einn lítinn disk. Nú þá
er aðeins að finna einhver þau gögn
sem breytast hægt og eru auk þess
yfirgripsmikil. Ah-ha, lausnin fundin!
Bara að markaðsetja alfræðiorða-
bækur og aðrar orðabækur og pen-
ingarnir streyma inn svo undirtekur i
kassanum. Rangt! Venjulegur notandi
myndi aldrei kaupa geislaspilara fyrir
það eitt að geta flett upp í orða-
bókum. Til þess eru þeir alltof dýrir.
Bókasöfn höfðu auk þess engan
áhuga enda verðið hátt. Markaðsetn-
ingin mistókst. Kaupandinn hafði
engan áhuga!
A siðustu mánuöum hafa verið
kynntar nýrri gerðir geislaspilara. Nú
getur notandinn skrifaö að minnsta
kosti einu sinni á diskinn en lesið
eins oft og hann vill. Þegar er verið að
þróa þá tækni að notandinn geti
skrifað oft og lesið oft. Þegar að því
kemur er brautin að fullu rudd. Þá
munu geisladiskar koma í stað segul-
diska en fyrr ekki. Geisladiskar munu
leysa núverandi geymslur af hólmi.
Yfirburðirnir eru slíkir. Tíminn einn
mun segja hvenær.
Upplýsingamagnið verður griðarlegt
og risastórir gagnabankar koma til
sögunnar. Sérhver notandi mun tengja
sína eigin tölvu við þá i gegnum
símakerfið en einnig hafa smærri
banka, sem þó verða feikna stórir, á
geisladiski heima hjá sér. Við
Islendingar munum kynnast þessu
innan örfárra ára. Ég get nefnt dæmi.
Oddur Benediktsson, prófessor í
tölvunarfræði við Háskóla íslands,
taldi að árið 2000 yrði búið að kort-
leggja landgrunn Islands í heilu lagi,
hvert gil og hverja festu. Hann yrði
allur til á geisladiski sem tengdist
tölvunni um borð. Landgrunnurinn
kæmi síðan fram á tölvuskjá í öllum
regnbogans litum og í þrívidd. Nú-
verandi kynslóð tölva, upplýsinga-
tölvan, er komin á leiðarenda. Geisla-
spilarar eru aðeins framþróun þeirrar
kynslóðar. Vel má hins vegar vera að
þeir fylgi nýrri kynslóð sem um það
bil er að taka við, að minnsta kosti
eitthvað áleiðis. Kaupandinn hreyfir
sig í það minnsta ekki fyrr en notin
verða augljós og verðið sanngjarnt. En
tæknin heldur áfram og það eitt víst
að Njála léttist stöðugt.
FJÖLDI ÖRM'PA
Umferðar-
óhöppum
fjölgaði
Skráðum umferöaróhöpp-
um hjá tryggingafélögunum
fjölgaði töluvert á árinu 1987,
frá árinu á undan. Jafnmargir
létust i umferðarslysum og
árið á undan.
Fararheill ’87 hefur fylgst
með þróun skráðra umferðar-
óhappa hjá bifreiðatrygginga-
félögunum á árinu 1987.
Fjöldi þeirra hefur síðan ver-
ið borinn saman við sam-
bærilega skráningu frá árinu
á undan.
Árið 1987 voru skráð 13.
327 umferðaróhöþp hjá bif-
reiðatryggingafélögunum, en
þau urðu 12. 015 árið 1986.
Flest uröu þau ( mars eða
1275, en fæst 1004 í maí.
Fjölgun óhappa er því 10,9
prósent milli ára.
Árið 1987 voru 1038 skráðir
slasaðir, en voru 942 árið á
undan. Fjölgun slasaðra er
10,2 prósent.
Á árinu 1987 létust 24 í
umferðarslysum á íslandi, og
voru jafnmargir árið á undan.
Við samanburð milli þess-
ara ára verður að taka tillit til
talsverðrar umferðaraukning-
ar og samkvæmt nýlegum
upplýsingum frá olíufélögun-
um var bensínsala um 13 pró-
sent meiri á síðasta ári en á
árinu 1986.
Mest fjölgun óhappa varð
á fyrsta ársfjórðungi 1987
miðað við sama ársfjórðung
1986, en mest aukning milli
ársfjórðunga varð frá þriðja
til fjórða ársfjórðungs 1986
eða um 27,5%.
Athygli vekur hversu mikil
fækkun er frá desember 1986
til sama mánaöar 1987, eða
14,3%. Þá er ekki tekið tillit
til aukinnar umferðar.
Fjölgun slasaðra var lang-
mest f tveimur mánuðum, júlí
og ágúst. í þeim mánuðum
1986 slösuðust 167 manns en
í ár urðu þeir 75 fleiri eða
242.
Njóttu ferðarinnar!
Aktu eins og þú vilt að aðrir aki
Góða ferð!
yUMFERÐAR
RÁÐ
flhlllllílflllll
0 68 18 66
DJÚÐVILJINN
0 68 13 33
Tíminn
0 68 63 00
Blaðburður er
og borgar sig
LAUS HVERFI
NÚ ÞEGAR:
Brekkutún Birkigrund
Álfatún Lyngbrekka
Þinghólsbraut 1—46
Sunnubraut
Mánabraut
Kársnesbraut 53 og út
Kársnesbraut 58 og út
Ármúla 38
(£> 68 18 66
Grenimelur
Hagamelur
Hagatorg
Reynimelur til 69
Hafðu samband við okki