Tíminn - 10.10.1967, Qupperneq 3

Tíminn - 10.10.1967, Qupperneq 3
MtlÐJUDAGUR 10. október 1967. TÍMINN íbúðarhúsiB að ífri-Hömrum / * Asahreppi brann sl iaugardag SR-Berustöðum, mánudag. Á laugardagskvöld s. I. kom upp eldur í íbúðarhúsinu að Efri-Hömr um í Ásahreppi. Fór húsið, sem var járnvarið timburhús, mjög illa í brunanum og er talið nær ónýtt. Eldsins varð vart um kl. 20. Var þá svo mikill reykur í íbúðinni að ekki var hægt að komast að sím anum til að hringja á hjálp. Var ekið á næsta bæ og hringt í slökkviliðið. Fjöldi manna úr ná- grenninu kom fljótlega á vettvang og litlu síðar slökkvilið frá Hvols velli O'g Selfossi. Var gerð stýfla í bæjarlækinn og vatni dælt þaðan á eldinn. Slökkvistarfið gekk seint þvi Fjórir nýir umferða- málaklúbbar stofnaðir í s.l. viku stofnaði Baldvin p. Kristjánsson á vegum Samvinnu- trygginga fjóra nýja umferðar máiaklúbba, sem kallast Örugg- ur akstur — til viðbótar þeim 25 víðsvegar á landinu, er áður höfðu verið myndaðir af sömu aðilum. Sá fyrsti _þessara fjögurra sfð- ustu — Klúbburinn öruggur akst- ur á Siglufirði — var stofnaður þar á Hótel Höfn mánudaginn 2. okt. s.l. Fundarstjóri stofnfundar S ins var Jóhann Þorvaldsson k^nn ari, formaður Kaupfélags Sigl- firðinga, en fundarritari Hjálmar Stefánsson gjaldkeri. Stjórn .Siglufjarðarklúbbsins skipa þess ir bifreiðastjórar: Sigurjón Steins son, formaður, Jón Þorsteinsson ritari, Jóhannes Jósefsson, með- stjórnandi. í varastjórn klúbbsins eru: Eg- ill Stefánsson kaupmaður, Anton V. Jóhannsson kennari. Árni Magnússon bifreiðarstj. Annar í röðinni — Klúbburinn Öruggur akstur á Ólafsfirði — var stofnaður þar í Félagsheimilinu Tjarnarborg, þriðjudaginn 3. okt. Fundarstjóri stofnfundarins var Ármann Þórðarson kaupfélags- stjóri, en fundarritari Stefán B. ÓLafsson, múrari. Stjórn klúbbsins skipa þessir menn: Guðmundur Gíslason, kranastjóri, Ólafsfirði, form. Ár- Framhald á bls 14. Jón Árnason skoðar sild á Rauf- arhöfn. Tímamynd—Kári. Síldin er komin á Rauða torgið OÓ—Reykjavík, mánudag. Síldargangan norðaustan úr hafi er nú komin svo nærri íslandsströndum að Iitlum erf iðleikum er bundið að ná til síldarinnar og koma henni ferskri í land og vel söltunar hæfri án þess að þurfa að ísa hana eða geyma í saltpækli. Síldin er yfirleitt stór og feit og góð til söltunar. Mikið barst á land af söltun arsíld fyrir og um helgina og var saltað á öllum söltunar- stöðvum á Austurlandi og flest öllum á Norðurlandi. í dag var hins vegar ekki mikið saltað, en mörg síldarskip voru búin að tilkynna að þau væru á leið til lands með afla, bæði áhafnir á Norðurlandi og Austurlandi, og var tekið til við söltun aftur I kvöld. í morgun var síldin um 100 mílur frá landi og stefndi á veiðisvæði það sem kallað er „Rauða torgið“ og hefur reynzt mjög fengsælt undanfarin haust. Er sjómenn og síldar- saltendur mjög bjartsýnir á að síldveiðin standi yfir í allt að tvo mánuði enn, en um þetta Ieyti í fyrra var mjög farið að draga úr síldveiði, ag sumar söltunarstöðvarnar hættar starf semi. En þá kom síldin líka nær tveim mánuðum fyrr upp að landinu. Geta má þess að á undanförnum tveim vikum hef ur verið saltað jafnmikið á Siglufirði og í allt fyrrasumar, eða nær 10 þús. tunnur. Það háir mjög söltuninni að ekki er hægt að fá nógu marg ar síldarstúlkur á söltunarstöðv arnar. í þessum efnum er ástandið sérlega slæmt á Aust urlandi og á Raufarhöfn. Þótt helzt vanti síldarstúlkur til Seyðisfjarðar, er einnig mikill hörgull á þeim á öðrum síldar plássum á Austfjörðum. Tals- vert hefur komið af fólki þang að frá Héraði, en hvergi nærri nóg. Liggur nærri að stöðvarn ar þurfi helmingi fleiri sildar stúlkur en nú starfa við sölt un. Verður fólkseklan enn til- finnanlegri þegar á haustið líð ur, en á næstunni er búist \áð mikilli síldarhrotu, ef veður versnar ekki til muna. Nokkuð er misjafnt hve mik ið söltunarstúlkur fá fyrir að salta í hverja tunnu, fer það eftir stærð síldarinnar og hvort þær þunfa sjálfar að haus- skera og slógdraga síldina, en að jafnaði fá þær um 70 kr. fyrir hverja tunnu. Á Siglufirði eru nú brettán söltunarstöðvar. Ekki hefur borið mikið á fólksskorti þar, en mgrgt hefur komið úr nær- sveitum til að vinna við síld ina, nú eftir að hún fór að berast að svo nokkru nemi VILJA NÝJAN ENDURTRYGG- INGA SAMNING Getur kostað borgarbúa hundruð þúsunda EJ—Reykjavík, mánudag. Brunabótafélag íslands hefur ritað borgarstjórn bréf, þar sem tilkynnt er uppsögn á endurtrygg ingarsamningi við Húsatryggingar Reykjavíkur — en sá samningur er gerður við Storebrand í Noregi. Hefur Storebrand farið fram á algjöra endurskoðun samningsins — sem síðast var framlengdur án breytinga —vegna þeirra miklu bruna, sem orðið hafa í Reykja vík á árinu — þ. e. brunarnir í Lækjargötu og í Borgarskálum Eimskipaféiags fslands. Mál þetta var tekið fyrir á síð- asta fundi borgarráðs og forstöðu manni Húsatrygginga og ráðuneyti þeirra í tryggingamálum falið að taka upp viðræður um nýjan samning. Má búast við, að hinn nýi samningur feli í sér hækkuð gjöld fyrir borgina, sem kunna að nema hundruðum þúsunda eða milljónum. eldurinn var aðallega í einangrun hússins. Þegar loks tóks að ráða niðurlögum eldsins var húsið að hálfu brunnið og allt mikið skemmt af vatni og reyk. Eins varð að rífa mikið af þiljum húss ins til að komast að eldinum. Nokkru tókst að bjarga af inn- anstokksmunum, en húsgögn öll urðu fyrir miklum skemmdum. Fyrst í stað var haldið að kviknað hefði í út frá kolaofni, en þegar búið var að slökkva eldinn og far ið að rannsaka eldsupptökin nánar var jafnvel haldið að kviknað hafi í út frá rafmagni, þó ekki vitað með fullri vissu hvað olli brun anum. Bóndi á Efri-Hömrum er Óskar Magnússon og hefur hann orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Stal 22 þúsundum KJ-Reykjavík, mánudag. Ungur maður hefur verið hand tekin í Reykjavík fyrir að stela 22 þúsund krónum frá gömlum manni í Stykkishólmi. Þeir höfðu verið við skál samaní vestur í Stykkishólmi, og ungi maðurinn stungið af með flugvél til Reykja víkur með fenginn. 12 þúsund krónur af fengnum fundust á manninum, þar af 9 þúsund sem hann hafði falið í sokkunum. FUNDU 25 KINDUR ÚR FLUGVÉL GS-lsafirði, mánudag. Þorsteinn Ólafsson, bóndi, fór f flugvél að leita kinda nú á dögun um. Með honum var, auk flug- mannsins, Bragi Ragnarsson, for- stjóri á ísafirði. Fundu þeir 25 kindur fyrir utan Flæðareyri í minni Leirufjarðar. Vélbáturinn Stígandi fór í gær til að ná í kind urnar. Er þetta í fyrsta sinn hér um slóðir, að flugvél er notuð til fjár leitar. Framsóknarmenn Bolungarvík Aðalfundur Framsóknarfélags Bolungarvíkur verður haldinn n. k. sunnudag og liefst kl. 4 e. h. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfund- arstörf. 2. Ræða; Steingrímur Hermannsson, framkvæmdastjóri. — Páll Þorgeirsson, erindreki, mætir á fundinum Nánar auglýst í götuauglýsingum. — Stjórnin. Freyjukonur Kópavogi Freyja, félag framsóknarkvenna í Kópavogi, heldur aðalfund í félags- heimilinu Neðstutröð 4. fimmtudaginn 12. október kl. 8,30 síðdegis. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.