Tíminn - 19.10.1967, Síða 14
✓
14
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 19. otí&uw ltffi
EPLIN
Framhald al bls. 16
„Á s. 1. ári fluttu íslendLngar
inn um 2000 lestir af eplum,,en
af því miágni voru aðeins um
146 lestir frá Danmörku eða
um. 7%. Finnst Dönum^ a@
þeir ættu að geta selt íslend
ingum talsvert meira magn,
einkum (þegar á það er litið, að
Danir hafa að ýimsu leyti betri
aðstöðu en margar þjóðir aðr
ar, er hafa þó selt meira magn
til ísiands af þessari vöru.
Danir bjóða til dæmis lægra
verð en aðrir, skipaferðir eru
tdðari milli íslands og Dan-
merkur en nokkurs annars
liands, sem selur íslendingum
epli, flutningsgjöld eru i lág
marki milli landanna, og loks
hefir dönskum eplaræktar-
mönnum tekát aö rækta ýmsar
tegundir, sem áður þekktust
þar ekki, og tekizt það mjög
vel.
fslendingar geta því sparað dýr
mætan gjaldeyri með því að
leggja meiri áherzlu á slík kaup í
Dammörku. En hafa verður fleira
í huga en gjialdeyrissparnað ein-
an, og menn verða einnig að at
huga, hver gæði þeirrar vöru eru
sem keypt er til landsins og síð
an boðin til sölu.
Þær húsmæður, sem lagt hafa
leið sína í Hallveigarstaði að und
anförnu, geta bezt um það dæmt,
að þær eplategumdir, sem þar hafa
verið notaðar við matargerð og
fconum jafnfrámt verið gefinn
toostur á að bragða, eins og ávöxt
urinn kemur af trjánum, eru hin
ar beztu og ódýrustu, sem fást
til matargerðar og áts. Það er
líka staðreynd, að loftslag í Dan
mörku — hæfileg umskiþti skins
og stoúrs — er mjög heppilegt til
eplaræktar. Að vísu fá danskir
eplaræktarmenn ekki eins mikla
uippskeru af hverri einingu lands
og starfsbræður þeirra I ýmsutn
öðrum löndum, en af því að ávöxt
urinm vex hægar í hinni mildu
veðráttu Danmerkur, verður
hann þrungnari enn meiri safa
og bragðgæðum en ella.
Fjölmargir Danir rækta epli til
heimilisneyzlu, en undanfarinn
manmsaldur hefir eplarækt orðið
að sjálfstæðum atvinnuvegi þar
í landi, og fer mikilvægi hans
ört vaxandi. Eru margvislegar á-
stæður fyrir því skjóta gengi, sem
þessi atvinnuvegur hefir átt að
fiagna, svo að hann er orðinn ár,
viss þáttuf í gjaldeyrisöflun þjóð
arinnar. Meðal anmars er sú stað
reynd, að af þvr að danskir epla
ræktendur hafa farið nokkuð seint
og hægt af stað, hafa þeir getað
hagnýtt sér reynslu annarra., til
einkað sér fullkomnar ræktunar
aðferðir og varnir gegn alls kon
ar sjúkdómum og skaðlegum skor
dýrum, sem hrjáð hafa eplarækt
með öðrum þjoðum.
Ávaxtamat er einmig mjög
strangt hjá Dönum, en það hefir
aftur leitt til þess, að þeir hafa
getað unnið sér markaði beggja
vegná jámtj alds — og í báðum
markaðsbandalögum. Hins vegar
er því ekki að leyna, að markaðs
myndunin hefir bakað þeim margs
konar vamda, og þess vegna leit
ast þeir við að auka eplasölu til
þeirra landa, sem standa utan
bandalaganna — svo sem íslands.
Þar við bætist, að ísland þarf
ekki að vernda neina ávaxtarækt
fyrir útlendum aðilum.
í Danmörku gera menn greinar
mun á áteplum og matargerðar-
eplum, þar sem sumar tegundir
eru einkum heppilegar tii áts
eins og þær koma af trjánum,
en aðrar þykja betri til notkun
ar við matargerð. Enn er svo
um að ræða tegundir, sem eru
ágætar, hvor notkunin sem höfð
er í huga.“
Helztu eplategundir þær, sem
Danir framieiða, eru GrSsten, Cox
Orange, Lobo, Ingrid Marie, Belle
de Boskoop og Golden Delicious.
Eru þessi epli til reiðu í sýning
arsölunum í Hallveigarstöðum.
Chr. Thomsen kom hingað til
lands í gærkvöldi og fer utan á
föstudaginn. Hefur hann m. a.
farið í verzlanir í borginni og
eins rætt við framámenn íslenzks
landbúnaðar, svo sem þá Þorstein
á Vatnsleysu, Halldór Pálsson,
búinaðarmálastjóra, og Svein
Tryggvason, f ramkvæmdastj óra
i^ramleiðsluráðs.
RÍKI5STJÓRNIN
l,'ralmii » -
A fundi BSRB var ákveðið
að kaila saman aukaþing Banda
lagsins, og mun það væntanlega
koma saman uim miðja næstu
viku. V
J fundi Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja var einn-
ig samþykkt mótmælayfirlýs-
ing, jg fer hún hér á eftir, en
síðan birtast yfirlýsingarnar frá
Einingu á Akureyri, Iðju í
Reykjavík og Trésmiðafélaginu.
í frétt frá BSRB um ákvarð
anir stjórnarfundarlns segir
svo:
„Á fundi stjórnar BSRB í dag
var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt með öllum atkvæðum:
Stjórn Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja mótmælir harðlega
þeim ráðstöfunum í efnahags-
máium, sem boðaðar eru í fjár-
lagafrumivarpi og fram koma í
frumvarpi til laga um efnaihagis-
aðgerðir.
Kaupmáttur launa opinberra
starfsmanna hefur ekki aukizt á
undanfömum árum í hJutfalli við
auknar þjóðartekjur. Ailar þær
verðhækkanir, sem af þessum ráð
stöfunum leiða, munu valda
beinni, stórfelldri kjaraskerðingu
launiþega, þar sem þær fást ekki
bættar í kaupgjaldsvísitölu, en
meginþorri hinna nýju álaga eru
verðhækkanir á brýnustu neyzlu-
vörum og nefekaltar og koma því
þyngst niður á þeim lægst laun-
uðu og fjölmennum fjölskyldum.
Þeirri tekjuöfiun ríkissjóðs sem
nauðsynleg er vegna ríkjandi á-
stands í efnahags- og atvinnumál-
um þjóðarinnar ,ber að mœta með
öðrum ráðum.
Á sama fundi stjórnarinnar var
ákveðið að kalla saman aukaþing
bandalagsin.s um miðja næstu
viku til að fjalla um kjaramálin
með fcliðsjón af nýjum viðhorf-
um. ‘
Stjórn Einingar á Akureyri sam
þykkti einróma eftirfarandi yfir-
lýsingu 16, okt. s.l.:
..Stjórn Verkalýðsfélagsins Ein
ingar mótmælir harðlega þeim
rniklu verðhækkunum á nauðsynja
vörun. sem nýlega hafa orðið
fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar
og fordæmir frumvarp það, sem
nú liggur fyrir Alþingi og gerir
ráð fyrir stóraukinni skattheimtu,
hækkui. vöruverðs, en stöðvun
dýrHfiaruppbóta á laun.
Stjörnin vill benda á, að með
þessum ráðstöfunum eru núgild-
and' kjarasamningar verkafólks
að engu gerðar og að verkalýðs-
samtókin nljóta að snúast til varn
ar nn þegar Vill stjórnin í því
sambandi taka undir ályktun mið
stjórnai 4SÍ um þessi mál og
skorar á stjórn heildarsamtak-
anna að skipuleagja aðgerðir til
að hrinda árás þessari.
S-iái ríkisstjórnin ekki önnur
úrræði til að mæta fjárþörf ríkis
sjoð1 en pau að þrýsta lífskjörum
hiniio lægst launuðu niður á al-
gert hungursstig. ber henni að
segj? -af sér tafarlaust"
Áfc’ktun Iðju er svohljóðandi:
..Fundur haldinn í stjórn Iðju,
félags verksmiðjufólks í Reykja-
vík, miðvikudaginn 18. okt. 1967,
mólmælir þeim efnahagsráðstöf-
unum. sem hæstvirt ríkisstjóm
hefur boðað. en þær valda m.a.
miklum verðhækkunum á brýn-
ustu íífsnauðsynjum láglaunaðs
iðnvnkafólks.
Iðnverkafólk hefur í ár búið
við skertar atvinnutekjur og á nú
yfirvoiandi atvinnuley.si vegna lé-
legrai afkomu iðnfyrirtækja, en
það má aftur rekja til skefja-
lausrar innflutnings á fullkomn-
um íðnaðarvörum.
Fyrir þvi vill fundurinn benda
á, aö hæsti' ríkisstjórn og Alþingi
æt.tu 'yrst og fremst að draga úr
þjóðhagslega óskynsamlegum
framkvæmdum og gæta sparnaðar
í hvívetna tii þess að afgreiða
greiðsiuhallalaus fjárlög Fundur-
inn vili beina þeim tilmælum til
hæstv. ríkisstjórnar, að teknar séu
upp viðræður við verkalýðshreyf-
inguna um þær efnahagsráðstaif-
anir sem verkalýðshreyfingin
gæ’’ sætt sig við.
N'áist ekki samkomulag milli
ríkisstjórnarinnar og verkalýðs-
hreyfingarinnar, skorar stjórn
Iðju a verkalýðssamtökin að beita
ölluni tiltækum ráðum tii að koma
í vee fyru að kjaraskerðingin
nái iram afc ganga“
Trésmiðafélagið samþykkti eft-
irfarandi ályktun:
,Félagsfundur í Trésmiðafélagi
Reykjavíkur haildinn 17. okt. 1967
mótnnælir harðle.ga þeirri vald-
níðsiu ríkisstjórnarinnar að rifta
einhliða grundvallaratriði kjara-
samninga verkalýðshreyfingarinn
ar. er ríkisstjórnin sjálf stóð að,
um greiðslu vísitöluuppbótar á
kaup
Kjaraskerðingu þeirri sem ríkis
stjórnin hefur boðað og kemur
þyngst niður á efnaminnstu þegn
um Ojóðfélagsins, mótmælir fund
urinn eindregið, sem ranglátri og
ástæöulausri ráðstöfun, sem frá-
leitt. sé að verkalýðshreyfingin
uní.
Þá iýsir fundurinn furðu sinni
á markleysi yfirlýsinga ríkis-
stjórnarinnar um svokallaða „verð
stöðvun‘“, sem augljóslega hafi
haft þann helzta tilgang að koma
í veg fyrir kauphækkanir til laun
þega.
Funaurinn hvetur eindregið sam
tök verkalýðsins til samráðis og
einhuga samstöðu til varnar því
að rikisvaidið brjóti þannig gerða
samninga við verkaíýðshreyfing-
una og til sóknar fyrir því að dag
vinnutekjur einar nægi til menn
ingarMfs“
HVAÐ LÍÐUR ....
Framhald at Ols 3.
framan, er þegar kominn til
framkvæmda og hve um-
fangsmikil er hún?
B. Á hvaða stigi er undir-
búningur skv. 2. og 3. lið?
C. Hefur verið ákveðið að
hve mikfcu leyti húsnæði
Heilsuverndarstöðvarinnar
verði nýtt fyrir aldraða
sjúklinga, þegar Borgar-
sjúkrahúsið kemst í notk-
un?“
STEFÁN JÓHANN
Framhald af bls. 16
indi m.d. með afstöðu í utan-
ríkismálum í forsætisráðherra-
tíð Stefáns. Verður ekki ann-
að skilið af frásögninni, en
mönnum ha.fi jafnvel komið í
hug að víkja dr. Gylfa úr Al-
þýðuflokknum fyrir „vinstri
villu“.
Þetta kemur fram í frásögn
af miðstjórnarfundi sem hald-
inn var 2$. maí 1949. Kom
fram tillaga, þar sem Iíannihal
var gert að ákvanða hvort
hann vildi heldur vera í Þjóð-
vörn eða Alþýðuflokknum. Um
þetta segir Stefán, að
hann hafi 'eftir þennan ' fund
ákveðið að láfa mál þeirfca
Hannibais og Gylfa liggja í
þagnargildi, í von um að þeir
sæju sig um hönd. En síðan
segir, að vera megi að hann
(Stefán) hafi sýnt meira um-
burðarlyndi en rétt hefði ver-
iið.
Það var svo Hannibal, sem
felldi Stefán við fdrmannskjör
ið 1952, og nú 19W eru horf-
ur á því að dr. Jöylfi verði
næsti formaður Atþýðuflokks-
ins. Það má því segjia að
helztu andstæðingar Stefáns Jó
hanns á árunum 1947—1949,
bafi komizt til nokkurra virð-
inga innan Tlnkksins, og varla
verður dr. Gylfi sakaður um
„vinstri viUu“ í dag, þótt
Hannihal virðist ólæknandi.
Fjölmörg atri'ði önnur eru í
þessu fróðlega verki. sem les-
endum munu þykja tíðindi,
þótt ekki sé kurteist að rekja
þau hér. Og Minningar Stefáns
Jóhanns hafa vegna sjálfra sin
aukið veg hans í íslenzkum
stjórnmálum og þær hafa fært
okkur alveg að þröskuldi þeirr
ar oninskáu frásagnar, sem eft
irlaunamenn stjórnmála vetða
að temja sér til að sannleik-
urinn megi bjargast í bækur.
SPARISKIRTEINI
F’-amhalo aí bls. 3
upipbót, sem miðast við hækkun
byggingarvísitölu frá útgáfudegi
tií hlutaðeigandi innlausnargjald-
dtaga. Þetta gefur sfcírteinoinum
sarna öryggi gegn hugsanlegum
verðhækkunum og um fasteign
væri að ræða. Hins vegar hljóta
spariskírteinin í mörgum tilfell
um að v©ra miklu hieppilegri fjár
festing, þar sem þeim fylgja
hvorki fyrirhöfn né áhyggjur og
eru skatt- og framtalsfsjáls. Eins
og stendur eru spariskírteinin
eina verðtryggða sparnaðarform-
ið, sem fyrir hendi er.
2. Innleysanleg eftir þrjú ár.
Eigandi skírteina getur hvenær
sem er, að þremur árum liðnum
frá útgáfu fengið sklrteini sín inn
leyst að fullu. Það fé, sem í skír
teinin er lagt, verður þvf aðeiþs
bundið til skamms tíma, ef eig-
andi skyldi þurfa á andvirði
þeirra að halda. Skírteini eru ekki
innleyst að hluta. Hins vegar
skiptir Seðlahan'kinn stærri bréfa
stænðum í minni bréf, sem getur
verið hentugt, þegar þörf er inn
lausnar að hluta biréfaeigniar. Eig
andi á hins vegar val á því, að
hialda bréfunum allan lánstíma.nn
og njóta þar með fullra vaxta og
verðtryggingar allt tím'ahilið.
Vaxtakjör.
Vextir og vaxtavextir leggjast
við höfuðstól skírteina, þar til
inmlausn fer fram. Tvöfaldast höf
uðstóll þeirra á 12 árum, en það
þýðir 6% meðalvexti allt láns-
tímaibilið. Ofam á innlausnarfjár
hæð skírteinis, sem er höfuöstóll,
vextir og vaxtavextir, bætast full
ar verðbætur skv. vísitölu bygg-
mgarkostniaðar.
4. Skattfrelsi.
Spariskírteiní njóta alveg sömu
fríðinda og sparifé við banka og
sparisjóði og eru þannig undan-
þegin öllum tekju- og eignar-
sköttum og tekju- og eignaút-
svari, svo og framtalsskyldu.
5. Bréfastærðir.
Þær eru hentugar. Yfirleitt 500,
1000 og 10.000. Nú eru til sölu
sérstök gjafastoírtcini, 500 krón-
ur, í fallegum umibúðum, sem
henta til tækifærisgjafa til barna
og unglinga.
Ástæða er til að benda stjórn-
endum sjóða og félaga sérstaklega
á það, að spariskírteini ríkissjóðs
henta þeim mjög vel til ávöxtunar
á slíkum sjéðum.
Sala spariskírteinanna fer fram
við banfca, sparisjóði, hjá nokkr
um verðbréfasölum og hjá Seðla-
bankanum, Ingólfshvoli, Hafnar-
stræti 14. Innlausn þeirra á sin-
um tíma verður hjá Seðlabankan
um og hjá bönkum og sparisjóð
um.
Spariskírteini eru gefin út til
handhafa. í því sambandi ber
þess að geta, að eigendur, gegn
framlagningu kaupnótu og skír-
teina, geta fengið þau skráð á
sín nöfn hjá Seðlabankainum. Einn
ig er vert að geta þess, a® bamk
ar og sparisjóðir taka að sér
geymslu og innheimtu hvers kon
ar verðbréfa, þ. m. t. spariskír-
teina, gegn vægu gjaldi.
Sérprentaðir útboðsskilmálar
liggja frammi hjá söluaðilum. Út
boðsskilmálar verða einnig póst
lagðir til þeirra, sem þess óstoa, ef
hringt er í sáma 20500, inmanhús
sími nr. 53.
Sérstök upplýsingaþjónusta um
spariskírteinin verður látin í té
í Seðlabankanum fyrst um sinn.
Verður lögfræðingur til viiðtaiis
í bankahúsinu, Austurstræti 11.
3. hæð, á afgreiðslutímum, sími
16312.
19. október 1967.
Seðlabanki íslands.
ÞAKKARÁVÖRP
A'lúðarþakkir fyrir hlýjar kveðjur, gjafir og vinarhug á
áttatíuára afmælisdegi mínum.
Árni Tómasson, Stokkseyri.
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi,
Bergþór Bergþórsson,
fyrrverandi bóndi frá ÖlvaldsstöSum, Borgarhreppi,
lézt i Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 17. október.
Ásgerður Þ. Skjaldberg, börn,
tengdabörn og barnabörn.
MóSir okkar,
Anna Þórðardóttir,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 20. október, kl.
1.30. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir
Kristín Ingvarsdóttir, Steinþór Ingvarsson.
Útför eiginkonu minnar
- Jónasínu Sveinsdóttur,
Holtakotum,
sem lézt á Sjúkrahúsi Selfoss 13. þ.m., fer fram að Torfastöðum,
Biskupstungum laugardaginn 21. október n. k. kl. 2 e. h.
Bifreið verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11 f.h.
Einar J Hetgason,
Holtakotum.
i