Alþýðublaðið - 05.03.1988, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 05.03.1988, Blaðsíða 5
Laugardagur 5. mars 1988 5 FRÉTTIR Jóhanna samþykkti efnahagsaðgerðirnar en sat hjá við afgreiðslu einstakra liða: UNDIRSTRIKAR ANDRUEU SÍN „Ég hef iátið i Ijós i rikis- stjórn og annarsstaðar þá skoöun mína, að ég tel mjög misráðið að skerða framlög til byggingasjóðanna, fresta verkaskiptingu ríkis og sveit- arfélaga og skerða framlög i Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Ég hef látið bóka þessa and- stöðu í ríkisstjórn og þess vegna kaus ég að greiða þessum greinum frumvarps- ins ekki atkvæði mitt,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra við Alþýðu- blaðið. Viö afgreiðslu frumvarps fjármálaráöherra um ráöstaf- anir í ríkisfjármálum og láns- fjármálum 1988, sat Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráö- herra hjá viö atkvæða- greiöslu á 1. og 2. grein frum- varpsins. Félagsmálaráöherra greiddi hins vegar atkævöi meö frumvarpinu í heild. 1. grein frumvarpsins fjallar m.a. um hækkuö framlög i ríkissjóö vegna frestunar á tilflutningi verkefna til sveit- arfélaga og um niöurskurð á framlögum til byggingasjoös ríkisins. 2. grein laganna fjallar m.a. um lækkuö skil til Jöfnunarsjóös sveitarfélaga. Jóhanna segir viö Alþýöu- blaðiö aö þaö heföi komið henni mjög á óvart þegar hún var upplýst að fyrir dyrum stæði að fresta verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga. Jóhanna telur nauðsynlegt aö aflétta 260 milljón króna skerðingu af Jöfnunarsjóöi sveitarfélaganna og undir- strikar að fráfarandi félags- málaráöherra Alexander Stef- ánsson hafi fryst 105 milljón- ir af ráðstöfunarfé lífeyris- sjóöa 1987: „Þaö er miklu skynsamlegri leió gagnvart byggingarsjóöunum aö af- Jóhanna Sigurðardóttir andmælti tveimur greinum trumvarpsins með hjásetu en samþykkti þaö i heild. EYSTEINI VAR B00ID ANNAÐ STARF HJÁ SÍS 7 af 11 forstjórum sölufyrirtœkjanna í Bandaríkjunum hafa hrökklast frá „Pað er rett, að ámálgað var við mig, að ég tæki við öðru starfi á vegum Sam- bandsins á íslandi, ef ég hætti með góðu hjá lceland Seafood Corp. Ég mat stöð- una hinsvegar þannig, að ef ég væri ekki nógu góður fyrir Sambandið í Bandarikjunum, þá væri ég vart nógu góður fyrir það á íslandi,“ sagði Eysteinn Helgason fyrrum forstjóri lceiand Seafood, þegar Alþýðublaðið spurði hvort honum hefði veriö boð- ið annað starf, ef hann hætti með góðu hjá fyrirtækinu. Eysteinn vildi ekki segja hvaöa störf á vegum Sam- bandsins heföu verið nefnd, en Alþýðublaöiö hefur eftir áreiöanlegum heimjldum aö rætt hafi verið um Álafoss, þar sem Jón Sigurðarson er nú forstjóri. Þess má geta, aö frá því aö Islendingar hófu starfsemi sölufyrirtækjanna, Coldwater og lceland Seafood í Banda- ríkjunum, hafa 11 menn gegnt forstjórastörfum þeirra. Af þessum 11 hafa 7 hrökkl- ast frá störfum, þannig aö þeim hefur veriö gefinn kost- ur á að segja upp. Samkvæmt heimildum Alþýöu- blaðsins hefur Eysteini Helgasyni veriö boðið starf á vegum Álafoss. Kjartan Jóhannsson um rœðu Þorsteins Pálssonar í Brussel: „SAMMÁLA FLESTUM HANS SJÓNARMIÐUM" Kjartan Jóhannsson, full- trúi Alþýðuflokksins í Utan- ríkismáianefnd Alþingis segir í samtali við Alþýðublaðið að i flestum atriðum sé hann sammála flestum þeim sjón- armiðum er komu fram i ræðu Þorsteins Pálssonar, forsætisráðherra, er flutt var á leiðtogafundi Nato 2. mars sl. Þó hefði forsætisráðherra, að mati Kjartans, mátt koma meira inn á mannréttindamál og að stefna bandalagsins hefði skilað árangri i niður- skurði í vígbúnaði og minnk- un spennu. „Ég er sammála þeim sjón- armiöum sem koma fram í ræöu Þorsteins Pálssonar um þaö aö Atlantshafsbanda- lagiö þurfi aö sýna meiri frumkvæöi í móþun hug- mynda um afvopnun og minnkun spennu en þaö hef- ur gert að undanförnu. Ég er líka þeirrar skoðunar eins og hann aö stefna bandalagsins hafi raunverulega skilaö ár- angri í niðurskuröi í vígbún- aöi og minnkun spennu,“ sagöi Kjartan. Sagöi hann þetta sanna aö samheldni bandalagsríkjanna skiþti mjög miklu máli en aö Þor- steinn hefði mátt koma betur inn á það, þvi að þetta væri lykilatriði ef halda ætti áfram aö tryggja framhald þeirrar þróunar sem tiafin væri í bættri sambúö. „Á sama hátt tekur hann til umfjöllunar mannréttindamálin og þaö er ágætt en ég heföi kannski kosið aö hann heföi gert það sterklegara heldur en hann gerði,“ sagði Kjartan. Kjartan sagöist mjög ánægður meö aö forsætis- ráöherra hefði ítrekað þá skoóun íslendinga aö sam- dráttur í vígbúnaði á landi mætti ekki veröa til þess að auka hann i höfunum og sagöi aö horfa yröi til fram- fara í Sovétríkjunum. „Það er auðvitað rétt hjá Þorsteini Pálssyni aö viö vilj- um ekki standa frammi fyrir vali á milli Evrópu og Norður- Ameriku í öryggismálum og ég tel heldur ekki aö viö þurf- um þess. Viö verðum ævin- lega aö hafa í huga aö þaö liggur sérstakur styrkur í Atlantshafsbandalaginu. Þaö hefur gefist okkur vel og við eigum aö standa vöró um það.“ létta þessum 105 milljónum og reyndar afráöiö viö fjár- lagaafgreiðsluna 1988. Þaö er miklu skynsamlegra aö gera slíkt en aö ganga í þaö fjár- magn sem á að fara til kaup- leigunnar eins og sumir höföu á orði í umræðunni á þinginu," sagöi félagsmála- ráðherra. Vestmannaeyjar: SNÓT KOHfllN I VERKFALL Verkfall skall á á miönætti í nótt hjá Snótarkonum i Vestmannaeyjum. Vilborg Þorsteinsdóttir formaöur Snótar segir aö lengd verk- fallsins færi eftir því hvort vinnuveitendur væru reiðu- búnir aó semja eöa ekki. Seg- ir hún kröfur félagsins hafa byggst á því hvaö þær teldu aö þær þyrftu aö fá, en ekki á prósentum og boltinn sé nú hjá vinnuveitendum. „Viö komum okkur heim. Þaö er ekki stætt á því aö vera í Fteykjavík þegar svona aðgeröir eru að skella á,“ segir Vilborg vió Alþýðublað- iö. Vilborg segir aö málin hafi verið skoöuö í heild sinni á fundinum í gær. Verkfköll séu aö skella á i Vestmanna- eyjum og allir endar lausir þar. Hugsanlegt væri að vinnuveitendur væru aö athuga þann möguleika að ganga frá þessum málum í einu lagi. Vildi Vilborg engu spá i m hvort líkur væru á löngu vark- fall. Allt byggðist á því hvort menn væru reiðubúnir aö semja vió þær eöa ekki. Ef þeir vildu þaö ekki yröi verk- falliö langt, en einnig væri sá möguleiki að fleiri félög bættust í hópinn, þannig aö þrýstingur ykist. „Menn geta reiknað prós- entur ofan á svona lágar tölur upp í hvaó sem er, og þeir voru reyndar búnir aó gera þaó. Viö höfum ekki látió reikna þetta út hjá okkar mönnum. Það byggist á því aö við erum aö tala um hvaö vió höldum aö viö þurfum að fá og byggjum okkar kröfu- geró á þvi, ekki á þrósentum. Varðandi framhaldiö, þá væri stjórn þessara viöræöna í höndum sáttasemjara, „en viö lítum á að boltinn sé hjá atvinnurekendum," segir Vilborg Þorsteinsdóttir viö Alþýðublaðið. í gærkvöldi funduðu Verka- lýðsfélag Vestmannaeyja og vinnuveitendur, en ekki tókst aö fá fréttir af gangi mála þegar blaóið fór t prentun. Útlánaaukningin meiri Samkvæmt bráðabirgðatölum Seðlabankans *' Útlánaaukning bankastofn- ana, annarra en sparisjóða, var töluvert meiri en innlána- aukningin fyrstu tvo mánuði ársins, samkvæmt bráöa- birgðatölum frá Seölabanka íslands. Eirikur Guónason aðstoðarbankastjóri Seðla- bankans segir að miðað við þessar tölur sé þróunin óhag stæð, þótt ekki sé hægt að meta stöðuna fyrr en síðar. Aukning útlána frá áramót- um var 3.6%, en aukning inn- lána var 0.5%. Ekki eru taldir meö áfallnir vextir innlána í þessari tölu, þar sem þeir hafa ekki veriö reiknaöir enn. Talan á því eftir að hækka eitthvað. Segir Eiríkur þetta vera mjög litla innláaukningu. „Þetta er mjög óhagstæð þróun aö sjá þessar bráða- birgðatölur, þær ber aö taka með fyrirvara, en útláaukning ertalsvert meiri en innlána. Og þaö er ekki góðs viti.“ Segir Eiríkur að skýringar á þessu séu ekki Ijósar ennþá. Kjarasamningur: 11 AF 17 HAFA FELLT Atkvœðagreiðslum lýkur annað kvöld Sautján félög innan Verka- mannasambands íslands hafa greitt atkvæði um kjara- samninginn við Vinnuveit- endasambandið, þar af hafa ellefu félög fellt hann. 37 fé- lög eiga eftir að greiða at- kvæði, en atkvæðagreiðslum iýkur annað kvöld. Samningurinn hefurveriö samþykktur hjá Hlíf í Hafnar- firöi, Stykkishólmi, Keflavík, og hjá Dagsbrún í Reykjavík. Hann var hins vegar felldur hjá Framsókn í Reykjavík, Grundarfiröi, Akureyri, Horna- firói, Vestmannaeyjum, Rang- árvallasýslu, Hellu, Grindavík, Geröahrepþi og hjá Framtíð- inni Hafnarfiröi. Alls eru 54 félög innan VMSÍ, þannig að atkvæöa- greiöslum er ólokið í 37 fé- lögum. Atkvæðagreiðslum um samninginn á aö vera lok- iö fyrir annaö kvöld.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.