Alþýðublaðið - 05.03.1988, Side 10
10
Laugardagur 5. mars 1988
m.»YBiminBH)
Útgefandi: Blaó hf.
Framkvæmdastjóri Valdimar Jóhannesson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson
Umsjónarmaður
helgarblaðs: Þorlákur Helgason
Blaðamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir
og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir.
Dreifingarstjóri: Þórdis Þórisdóttir
Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent hf., Slðumúla 12.
Áskriftarsfminn er 681866.
Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 60
kr. um helgar.
ÞOKUSLÆÐINGUR YFIR
VERKALÝDSHREYFINGUNNI
Eftirmálar kjarasamninga Verkamannasambandsins og
atvinnurekenda eru heldur dapurlegir séð með augum
verkalýðsforingja. Samningamenn höfðu ekki fyrr boðað
til leiðaþinga og atkvæðagreiðslna heima í héraði en það
fór að kvisast út að ýmsir sem höfðu skrifað undir samn-
ingana ætluðu sér ekki að greiða þeim atkvæði sitt. Með
öðrum orðum þeir hugðust ekki styðja það samkomulag
sem þeir sjálfir höfðu undirritað.
Varaformaðurverkalýðsfélagsins áSelfossi og einn undir-
skriftarmanna úr Garðastræti kennir t.d. veðrinu um að
hann geti ekki mælt með samningunum. „Við getum sagt
að það sé lágskýjað" er haft eftir honum í Þjóðviljanum
daginn fyrir atkvæðagreiðsluna á Suðurlandi.
Hætt er við að þokuslæðingur hafi villt mönnum sýn við
samningagerð í Garðastræti. Það er í það minnsta undar-
legt að samningarnir skuli kolfelldir í fjölmörgum verka-
lýðsfélögum. Eitthvað er að. Hvað fór úrskeiðis?. Mátu
menn stöðuna rangt? Er fólk tilbúið að berjast fyrir hærra
kaupi með því að fara í verkfall? Það er sá kostur sem fólk
hefur í stöðunni. Líklegt er að margt nærtækara en veðra-
brigði valdi úrslitunum eins og þau liggja fyrir, Verkalýðs-
foringjum virðist hafa mistekist að kynna samningana
þannig að sú kjarabót sem fólst í þeim hafi komið nægi-
legafram. ÞrösturÓlafsson einn þungavigtarmannahefur
látið í það skína að gamla leiðin að fela kjarabæturnar hafi
verið valin nú sem endranær. Því miður virðist sem tekist
hafi að fela hækkanirnar líka fyrir launafólkinu sjálfu.
Vinnubrögðin kalla líka á andsvar sem aliir vissu að
myndu kynda undir hjá óánægðu fólki. Atkvæðagreiðslan
í Dagsbrún fyllti mælinn.Það var afspyrnuklaufalega stað-
ið að henni.
Verkafólk sem hefur tjáð sig bendir auðvitað á ýmislegt
sem fylgt hefur í kjölfar undirritunar samnings, búvöru-
hækkun, gengisfellingu, hækkun bílatrygginga, umræðu
um há laun forstjóra o.fl. Allt þetta hefur ekki ýtt undir að
samningar yrðu samþykktir. En dómurinn yfir verkalýðs-
hreyfingunni er bitrastur. Staðan hefur verið rangt metin
og hringlandaháttur sumra samningamanna er furðuleg-
ur.
MEIRI ,
HRINGLANDAHATTUR
Sigríður Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins, hefursýnt ásérmargar hlióaraöundanförnu. Hún hef-
ur stutt Davíð og borgarmeirihluta íhaldsins dyggilega í
áformunum um byggingu ráðhúss við Tjörnina. Hún gekk
ekki út með borgarstjórnarminnihluta i fyrrakvöld, þegar
mótmælt var afgreiðslu borgarstjórnar að gangatil samn-
ingaviðverktakaum byggingu ráðhúss viðTjörninaog þar
með Ijóst að framkvæmdir hefjast í aprílbyrjun og borgar-
búar sviptir þeim rétti sínum að hafa áhrif á deiliskipulag-
iðsem þeirhafalögumsamkvæmt.SigríðurMagnúsdóttir
er þó sem fulltrúi Framsóknarflokksins í borgarstjórnar-
andstöðunni. Og hún greiddi atkvæði gegn þessari af-
greiðslu borgarstjórnar. En gekkekki út með félögum sín-
um. Borgarfúlltrúi Framsóknar kveðst nefnilega áhlykta
að útgangan sé vantraust á Jóhönnu Sigurðardóttur fé-
lagsmálaráðherra en ekki Davíð Oddsson. Þessi afstaða
er allfrumleg þótt ekki sé meira sagt. Það er Ijost að
Sigríður Magnúsdóttir verður að gera það upp við sig
hvort hún er með eða á móti byggingu ráðhúss við Tjörn-
ina, hvort hún telur sig tilheyra borgarstjórnarandstöð-
unni eða meirihlutanum. En fyrst og fremst verður hún að
komast til botns í því hvort Davíð sé borgarstjóri Reykja-
víkur, eða Jóhanna Sigurðardóttir.
ÖNNUR SJÓNARMIÐ
HARALDURHannesson,
formaður starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar lætur í Ijós
áhugaverð viðhorf varðandi
hugsanlegar úrsagnir og
stofnunar nýrra félaga í nýj-
asta fréttablaði BSRB. Með
breytingum á samningsréttar-
lögunum skapast nýjar að-
stæður sem geta haft í för
með sér töluverða röskun á
starfi félagana innan BSRB.
Sem dæmi nefnir Haraldur
að ef t.d. fóstrur, meinatækn-
ar og sjúkraliðar stofna
landsfélög, sem síðan fara
með samningsrétt myndu fé-
lagsmenn ganga úr gömlu fé-
lögunum sínum. Það þýðir
m.a. að þessi væntanlegu
nýju félög byrja eiginlega á
núlli, nema brotin verði fé-
lagsleg hefð hér á landi og á
Norðurlöndunum.
En gefum Haraldi orðið:
— Samningsréttarlögin
gera ráð fyrir að hver ein-
staklingur gangi út úr sínu
félagi. Það eru til fagfélög,
t.d. fóstra og sjúkraliða og
þessi félög hafa innan sinn
vébanda nógu marga félaga
til að stofna sjálfstætt stétt-
arfélag, en það á að gerast á
þann veg að hver og einn
segi fyrir sig hvort hann vill
ganga í þetta nýja stéttarfé-
lag. Það er misskilningur
þegar talað er um að heilir
hópar fari — það gerist ekki
þannig. Það er ákvörðun
hvers og eins hvort hann
gengur út úr sínu stéttarfé-
lagi yfir í annað stéttarfélag.
Samningsréttur fyrir þá sem
vilja vera i sínu gamla félagi
verður ávallt fyrir hendi.
Þessvegna er talið um eigna-
skipti byggt meira og minn á
misskilningi.
Haraldur er spurður að því
í viðtalinu hvort hópur sem
verður nýtt félag, geti verið
áfram í sínu gamla félagi
meö sérstöku samkomulagi
með tilliti ti félagslegra
þarfa. Hann svarar:
— Það er ekki gert ráö
fyrir þvi í samningsréttarlög-
unum að félagsmenn, sem
fara úr sínu gamla félagi og
stofna nýtt stéttarfélag með
sjálfstæðum samningsrétti,
geti veriö áfram í sínum
gömlu félögum. Við höfum
reyndar reynt að fá þetta í
gegn. Fóstrur eru dæmigerð-
ur hópur af þessu tagi. Viö
höfum spurt hvort þær gætu
ekki gert sinn kjarasamning
sjálfar en þær yrðu eftir sem
áður í sínu gamla félagi,
fóstrur á Akureyri í sínu fé-
lagi o.s.frv. Þetta virðist tor-
sótt. Ég leyni því ekki að mér
finnst miklu eðlilegra að gera
samstarfssamning milli
gömlu félagann og þeirra
sem eru að gannga út um af-
not af eignum. Mér finnst
eignauppskiptahugmyndin
alveg fáránleg. Það dettur
engum einstaklingi í hug að
gera kröfu um endurgreiðslu
frá sínu félagi ef hann fer t.d.
í einkarekstur eða flyst af
landi brott. í okkar 60 ára
gamla félagi hefur verið innt
af hendi gífurieg sjálfboða-
liðsvinna við rekstur félags-
ins, byggingu sumarhúsa
o.s.frv. Við eigum mjög mörg-
um einstaklingum að þakka
að við eigum i dag vel rekið
félag, sem á miklar eignir.
Þeir sem ætla að kveðja
okkur gera það væntanlega í
þeirri trú að þeir séu að
skapa sér betri samningsað-
stöðu og þá væntanlega
betri rétt. Eftir sitja þá hinir
sem munu hafa minna milli
handanna og þeim veitir
sannarlega ekki af því að
geta búið betur að sinu.
Og síðan segir Haraldur:
— Ég hef grun um að hin
nýju félög, verði þau stofnuð,
eigi eftir að reka sig á
óvænta hluti. Ég hugsa að nú
haldi til dæmis fóstra eða
sjúkraliði að samningur muni
fara fram í heimabyggð t.d.
Reykjavík, Akureyri eða Nes-
kaupstað. Ég hef aftur á móti
grun um að nú muni ríki,
borg og sveitarfélög ganga í
eina sæng og koma fram
sem einn samningsaðili —
geri samninginn í Reykjavík
og sendi taxta út um allt
land.
Þar sem þessi mál eru
taisvert flókin og viðkvæm
finnst mér aðalatriði að þeir
sem hugsa sér tii hreyfings
geri það að vel athuguðu
máli og við sem eftir sjtjum
lokum engum dyrum. Ég er
ekki sannfærður um að ný og
mannfá félög haldi lengi út
ein á báti.
Við viljum ekki halda í
neinn, en spyrjum: Vitiði
hvert þið eruö að fara?
Leiöari Alþýöublaösins í
gær fjallaði aö hluta til
um aðgerðir þingnefndar-
innar til bjargar refabænd-
um, en eins og fram hefur
komið í fréttum eru uppi
þær hugmyndir að breyta
refabændum í minka-
bændur. Með öðrum orð-
um breyta refi í mink.
Áhugasamur lesandi
hringdi til ritstjórnar í gær
og sagðist vera búinn að
finna lausnina hvernig
breyta ætti refi í mink.
Nefnilega: Að minnka
refinn.
Alpýðnblaðið
ÚTVARPIÐ
9.45 Morguntónleikar: Brahms:
Kvintett, Op. 34 (plötur). 11.00
Messa í dómkirkjunni (séra Frið-
rik Hallgrímsson). 12.15 Hádegis-
útvarp. 15.30 Miðdegistónleikar frá
Hótel ísland. 17.40 Útvarp til út-
landa (24.52m). 18.30 Barnatími.
19.20 Erindi Búnaðarfélagsins: Til-
raunastarfsemi landbúnaðarins
(Pálmi Einarsson ráðunautur).
19.50 Fréttir. 20.15 Norræn kvöld,
III: Noregur: a) Ávarp (Jón Ey-
þórsson . b) Ræða: Aðalræðismað-
ur Norðmanna, H. Bay. c) (20.30)
Norsk tónlist. d) (21.00) Erindi:
Sigurður Nordal prófessor. e) Upp-
lestur (Árni Pálsson prófessor, o.
fl.). g) Norsk tónlist. 22.15 Dans-
lög.
Nei, góði Teitur.
Hestinum mínum llður ekki vel.
Það er að segja sterturinn er ol-
ræt, en klárinn er að veslast upp
af einhverri innrl meinsemd, ég
heid að það sé af því að ég beitti
honum.ium daginn á nýtt Iand.
Það verður mörgum bumbult nú á
dögum af slíku fóðri. En meðal
annara orða. Ég er ekki, hvað sem
hver segir, einn af þeim mönnum,
sem neita náunganum um vatn að
drekka, þó ég sé á annari póli-
tískri skoðun en hann.
Upplestur Þórbergs Þórbarsonar.
Enginn, sem langar til afi veita
sér gó&a skemtun, getur neitaö
sér um að hlýöa á upplestur Þór-
bergs Þóröarsonar klukkan hálf-
tvö í Nýja Bíó á morgun. Þess
vegna er vissara aö tryggja sér
aögöngumiöa i tima.
Jafnaðarmannafélag
ið í Vestmannaejfjum
lýsir trausti ð Jóni
Baldvinssyni og meiri
hi. sambandsstjórnar
JAFNAÐARMANNAFÉLAG-
IÐ í Vestmannaeyjum hélt
aðalfund sinn í gærkveldi og
samþykti á honum með öllum
greiddum atkvæðum traustsyf-
irlýsingu til meirihluta sam-
bandsstjórnar og forseta flokks-
ins, Jóns Baldvinssonar.
Stjórn félagsins var endur-
kosin, og skipa hana nú Elías
Sigfússon formaður, Guðmund-
ur Sigurðsson varaformaður,
Jónas Lúðvígson ritari, Guð-
laugur Gíslason og Guðjón
Karlsson.
SKEMDIR AF ÓVEÐRINU
(Frh. af 1. síðu.)
Ölfusá. Mestar virðast skemd-
irnar þar hafa orðið, þaðan sem
frézt hefir úr sveitunum í Árnei
sýslu, í Flóa og upp á Skeiðum.
Þegar Alþýðublaðið hafði tal af
fréttaritara sínum að Ölfusá í
morgun voru að berast fréttir
um skemdir á húsum upp um
allar sveitir. Sagði fréttaritar-
inn að svo liti út sem meiri og
minni skemdir hefðu orðið í
veðrinu á hverjum bæ í ná-
grannasveitunum.
Voru skemdirnar aðallega á'
útihúsum og með þeim hætti að
þök rifnuðu af. A Húsatóftum
fauk t. d. bæði fjós og hlaða og
eins á Sóleyjarbakka.
Telja bændur eystra að slíkt
veður hafi ekki komið eystra í
manna minnum. Ekkert hefir
frézt frá Þorlákshöfn, því að
sími er bilaður þangað.
í Arnarbæli fauk refabú og
sluppu 4 refir; hefir einn refur
fundist dauður í morgun.
Brúarland: Úr Kjós og Mos-
fellssveit hefir lítið frézt. Að
Laxnesi fuku plötur af þaki og
að Mosbakka skektist hlaða á
grunnni.