Tíminn - 24.10.1967, Blaðsíða 3

Tíminn - 24.10.1967, Blaðsíða 3
ÞRIÐJCDAGUR 24. október 1967 TfMINN NORÐMENNtRMIR FUNDN IR NYRIT / ALASKA GI-Reykjavík, mánudagur. Norðmennirnir þrír, sem týnd- ust á freðmýrum Norður-Alaska fyrir skömmu, er flugvél þeirra hlekktist á, eru nú fundnir heilir á húfi. Þeir ætluðu að fljúga frá Anchorage í Alaska, yfir norður- heimsskautið til Osló og voru ckki langt að komnir er samband rofn aði við flugvélina og spurðist síð an ekkert til þeirra fyrr en í dag. Nú eru liðnir níu dagar síðan flug BÁTUR BRENN- UR 06 SEKKUR Eiginkona flugstjórans stígur um borð í leitarflugvél frá kanadiska hernum KB'G-Sby kkishólimi, mánudag. Á 13. timanum á laugardag kom upp eldur í vélbátnum Straumnesi frá Stykkishólmi, sem var á lúðu- veiðum 8 sjómílur úti af Elliðaey. Bátsverjar, sem voru þrír, reyndu að slökkva eldinn, en skömmu síð ar varð sprenging í vélarrúminu, og komu mennirnir sér þá í gúm- bát, og var þeim bjargað til lands. Vélbáturinn sökk nokkrum klukku stundum síðar. Tíðindamaður blaðsins í Stykik- ishólmi hafði tai af bátsiverjum rétt eftir komuna til lands. Sagð- ist þeim svo frá, að þeir hefðu lagt upp í róðiur snemma um morg uninn og hefðu rétt lokið vi® að leggja haukalóðarnar, þegar eld- urinn kom upp. Þeir voru staddir inni í iúfear að snæðingi, þegar iþeir urðu varir við eldglampa og Þrennt slasast í árekstri OOdlcykjavik, mánudag. Tvær konur og einn kai-lmaður slösuðust í bílaárekstri, sem varð í gær. Slysið vildi til á fimmta tímanum á Ánanaustum, rétt sunn an við gatnamót Mýrargötu. Það voru tveir fólksbílar sem óku sam an. Annar bíliinn var á leið að höfninni en hinn var a® koma Ffokksstjórn Sósíalista að þynnast EJ-Reykjaivík, mániuidag. Enn virðist þynnast liðið í Sósíalistaf 1 okknum. Fyrir nokkrun mun Björn Jóns- son á Afeureyri hafa gengið úr flokknum, og nú á dögun- um gerði Jóhann Hermanns- son á Húsaivík slífet hið samia. I Jóhann er í flokksstjórn Sósíaiistaflokksins, og var hann nýlega boðaður á flokksstjórnarfund. Mun hann hafa svarað þvi til, að sér nægði að vera í einum flokki, þ. e. Aiþýðubanda- laginu, og hefði ekkert við Sósíalistaflokkinn að gera. •Jóhann hefur átt sæti í bæjarstjórn Húsavíkur um afflangt skeið fyrir Alþýðu- bandalagið Er hann nú eini fulltrúi Alþýðubanda'l'agsins í bæjarstjórn. \ frá henni. Bfflinn, sem var á leið til hafnarinnar, var að fara fram úr híi og því á hægri vegarhelm- ingi götunnar. 1 sama mund kom bíM á móti og skipti engum tog- um, að þeir óku framan á hvorn annan. í bílnum, sem var að taka fram úr, voru hjón og slösuðust þau bæði, en konan meira. Kast- aðist hún á framrúðu bílsins og var höggið svo mikið, að rúðan brotnaði og fór höfuð konunnar gegnúm hana. Skarst konan ffla aí brotnu glerinu. Ma®ur hennar var minna meiddur eftir árekstur inn. í hinum bílnum meiddist stúlfea á fæti og handlegg. Um klukkan þrjú aðfararnótt sunnudags var bíl ekið á stein- vegg, sem er við húsið nr. 49 við Hólmigarð. Var áreksturinn svo harður að veggurinn brotnaði. Fólk í húsum þarna í grenndinni vaknaði við hávaðann. Rétt á eft- ir kom stúlka inn i næsta hús við það, sem brotni veggurinn er um- hveríis og fékk a® hringja þar eftir aðstoð og sagði fóíki þar, að hún kæmi næsta morgun til að gera upp tjónið á veggnum. En í kvöld, mánudag, hefur enn ekki spurzt til stúlfeunnar eða annarra í sambandi við veggbrot- ið. Er það ósk rannsóknarlögregl- unnar, að stúlfean gefi sig fra-m. Öruigigt má telja að miklar skemmdir hafi orðið á bí-lnum, sem ók á vegginn. HEYBRUNI AÐ GARÐSAUKA OÓ-Reykjavík, mánudag. Eldur k-om upp í stórri hey- hlöðu að Garðsaúka í Hvolhreppi í gær. Brunnu 2—300 hestar af heyinu áður en tókst að slökkva eldinn en í hlöðunni voru ^JOOO hestar af heyi. Þegar Timinn hafði sambanö við Jón Einarsson, bónda í Garðs auka, var hann hinn hressasti og kveðst hafa sloppið vel að mtssa ekki allt heyið. Eldurinn logaði einkum í súgþti rkunarstokki og komst niður með dyra-töfum á gafli hlöðunnar. Eldsins varð fyrst vart um hádegisbi', og kviknaði í heyi sem lá efst i hlöðunni sem hafði hitnað. Slökkviliðið á Hvols velli kom fljótlega á vettvang og einnig drifu að nágran.nar til að $ aðstoða við slökk'/istaríið Sagði Jón, að þarna hafi mestu dugnaðar fantar verið á ferð og hafi þeir þrælast við að bera heyið út og koma í veg fyrir að eldurinn næði að breiðast medra út. Að fjórum klukkutímum ’.iðnim var búið að ráða niðurlögum eldsins og fóru þá allir þeir sent að slökkvistarfinu unnu í kaffiboð að Hvolsvelli. Jón sagði að það hefði verið mikið lán að eldurinn skyldi hafa kviknað að degi til og hve snemma hans varð vart. Áfast við hloðuna er 40 kúa fjós, og var byrjað að hleypa þeim út áður en tekið var til við slökkvistarfið. Einnig náði Jón dráttarvél og blásat;a ú' ú. hlöðunni en h-voru tveggja var geymt í þeim enda sem eldurinn logaði. héldu því tafarlaust niður í vélar- rúm. Þar var alelda, en þeir reyndu að s-lökkva eldinn., Mjög skömmu síðar varð mifeil spren-g- in-g í vélarrúminu, og biðu þeir þá ekfei boðanna heldur komu s-ér í gúmfoát og forðuöu sér. Trfflu- bátinn Felix bar þar brátt að, og tók hann mennina um borð, en vélbáturinn HjaManes, sem einnig var þarna skammt frá kom á vett- -vang, tófe mennina og flutti tii Stykkishólms. Síðar kom varðskipið Aib-ert að brennandi bátnum og var leitazt við að slökfeva eldinn, en án ár- angurs. Báturinn sökk skömmu síð ar og segir sjónarvottur, að senni lega hafi orðið önnur sprenging, þvi að rétt áður en skipið sökk í sj'óinn hafi stýrishúsið lyfzt af. Straumnesið var 36 tonna eikar- bátur rúmlega 20 ára g-amall, smíð aður í Danmörku. Hanin var í eigu Frosta s.f. í Stykkiishólmi, og meða.1 eigenda voru ailir bátsiyerj ar, Ólafur Si-ghvatsson skipstjóri, Einar Magnússon og Erl-ingur Viggósson. Báturinn hafði um skeið stundað veiðar á haukalóð- um. Ekfei er vitað, hver u.pptök elds ins hafa verið, en talið er, a® sprengingin hafi stafað frá því, að gasfeútur í vólarrúminu hafi ofihitnað og sprungið. DAGS S.Þ. MiNNZT f tilcfni dags Sameinuðu Þjóð- anna sem er í dag, hefur orðið samkomulag milli Félags Sam- einuðu Þióðanna á íslandi og Her ferðar gegn hungri að síðarnefnd ur aðili annizt kynningu í skólum, blöðum, útvarpi og sjónvarpi þenn an dag. Aðalræðuefni dagsins verður vandamál þróunarlandanna og aðstoðin við þau. Kynning þessi á hungurvanda- málinu er sú fyrsta s-em Herferð gegn hungri efnir til í skólum landsins og jafnframt ein mesta fræðslustarfsemi um einstakt mál, sem haldin hefur verið hér á landi. Með þessari kynnincu hefst fyrir alvöru annar megimþáttur i starfi Herferðar gegn hungri. sem er upplýsingastarfsemi Sérstök skólanefnd hefur starf að á vegum HGH, að undirbúningi á bæklingum þeim sem sendir hafa verið í skólana Fjórir mis- munandi flokkar hafa verið gerð ir og fara tveir flokkar í barnaskól ana og tveir flokkar eru ætlaðir Framhaic á 15 síðu mennirnir týndust. Þeir voru aldrei taldir af, og Ieitinni var haldið áfram af kappi, því að svo framarlega, sem þeir hefðu ekki farizt í lendingu, var von til að þeir væru enn á Iífi, þar eð þeir voru vel undir heimsskautavist búnir, höfðu nokkrar vistir, hitun artæki og skjólföt ætluð fyrir slíkar aðstæður. Flugvélin fannst í Richardson fjöllunum, um 600 kílómetra suð vestur af Inuvik, sem er nyrzt í Alaska. Mannabyggð er engin á mörg hundruð kílómetra svæði þar í kring, og öll aðstaða til björg unar mjög erfið. Ekki bætir það úr, að illviðri geysar nú þarna á norðurslóðum, og urðu flugvélar þær sem sendar voru í dag til bjargar Norðmönnumim að snúa við, vegna veðurs, og verður því að fresta frekari björgunartilraun um til morguns. Framsóknarmenn, Mýrarsýslu Aðalfundur Framsóknarfélag- 'anna í Mýrarsýsl'U verður haldinn í fundarsal KB í Borgarnesi, n. k. laugardag kl. 2 e. h. Að aðalfundarstörfum loknum verður almennur stjórnihálafund ur, frummælendur verða Jónas Jónsson ráðunautur og Halldór E. Sigurðsson, alþingismaður. Jónas Halldór FELAG FRAMSOKN- ARKVENNAí REYKJAVÍK heldur aðalfund sinn miðvikudag inn 25. október n.k. í samkomusal Hallveigarstaða (kjallara). kl. 8.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundar störf. Rætt um fundarstað fyrir vetrarstarfið o. fl. Stjórnin. FundurFUF * Revkjavík Félag ungra Framsóknarmanna í Reykjavík gengst íyrir almennum fundi fimmtudaginn 26. okt n. k. Fundarefni er tillögur rík- isstjórnarinnar í efnahagsmál um. Frummælandi er Einar Ag ústsson alþingismaður og mun hann jafnframt svara fyrirspurn Um en einnig verða almennar um ræður á eftir. Fundurinn hefst kl. 8.30 síðd. í Framsóknarhúsinu við Fríkirkju veg, uppi. Stjórn FUF.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.