Tíminn - 24.10.1967, Qupperneq 4
TÍMINN
ÞltlÐJUDAGUR 24. október 1967
Stúlkur athugið!
37 ára maður, sem er að taka við mjög góðri
jörð, vill kynnast stúlku í bréfaviðskiptum, með
hjónaband fyrir augum Má eiga barn.
Tilboð sendist blaðinu merkt
Sæmilega afnaður sveitamaður.
BÍLAVIÐGERÐIR
Réttingar, boddýviðge"ðii almenn viðgerðaþ]ón-
usta. — Pantið ■ tíma i íima 37260
Bifreiðaverkstaeði
VAGNS GUNNARSSONAR Síðumúla 13.
Trúin flytur fjöll — Við flytjum allt annað
SENDIBlLASTÖÐIN HF.!
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA
Ásökunum svarað
AUGLÝSING FRA
Námsflokkum Keflavíkur
1967
Námsflokkar Keflavíkur befja starf 30. o'kt. n.k.
Námsgreinar verða þessar ef næg þátttaka fæst
í hverri grein.
1. Enska, kennari Frida Sigurðsson
2. Þýzka, kennari Frida Sigurðsson
3. Franska, kennari Fnda Sigurðsson
4. Danska, kennari Sveinn Sigurðsson
5. Meðferð reikningsstokks, kennari Óskar Jónss.
6. Myndlist, kennari Þorsteinn E^gertsson
7. Bókfærsla, kennari Guðmundur Ingólfsson
8. ' Vélritun, kennari Guðmundur Ingólfsson
(Námsflokkarnir geta teigt nokkrar ritvélar).
Kennsla fer fram í barnaskólahúsinu við Skólaveg
kl. 8—9,30 síðdegis, og stendur yfir í 12 vikur
að jólaleyfi frádregnu 2 stundir í hverri náms-
grein á viku, í sumum greinum eru 2 samfelldir
tímar einu sinni 1 viku Kennslugjald er kr- 400,00
fyrir hvern flokk, sem greiðist við innritun.
Innritun fer fram í Daroaskólahúsinu við Skóla-
veg, dagana 26. til 27 október n.k kl. 8—10
síðdegis. Áríðandi er að íólk láti innrita sig á
ofangreindum tíma, a pvi byggist hvort hægt
er að hefja kennslu í viðkomandi námsgreinum.
STJÓRN NÁMSFLOKKA KEFLAVÍKUR
Miðvikudaginn 18. októ'ber birt-
ist í Mbl. grein eftir dr. 'Finm
Guðmu-ndsson. Grein þessi var
svar við athugas.emd, sem náttúru-
verndarnefnd Hins íslenzka nátt-
úrufræðifélags gerði við ummæli
dr. S. Dillon Ripley, foristjóra
Smithsonian stofnunarinnar í
Washington, sem höfð voru eftir
honutn í hlöðum og útvarpi. Sama
dag birtist í Tímanum samskonar
svargrein eftir dr. Guðmund Sig-
valdaison.
Það var ekki og er ekki ætlun
ökkar að stoína til blaðadeilna,
en í ritsmíðum sínum bera grein-
arhöflundar okkur svo þungum
sökum, að við teljum ofekur skylt
að svara þeim. Þeir reyna jafn-
vel að gera nefndina tortryggilega
í augum almennings, og virðast
ekki telja okkur hafa ,,víðsýni,
reynslu, né aðstöðu" til að gera
atlhugasemdir við umimæli dr.
Ripleys. Finnur telur ástæðu til
„að taka til n'ánari athugunar miál
stað og málflutning“ nefndarinn-
ar. Hann telúr vinnuibrögð henn-
ar „óverjandi og, að þau skapi
nöldurseggjum tilvalið tækifæri
til að gera mönnum upp skoðan-
lr“. Ókurteisi er í augum Finns
einn ljóðurinn á ráði nefndarinn-
ar. „Gesti sem dr. R-ipley, ber
því að taka með tiihlýðilegri
kurteiisi, en e'kki með smásmugu-
legu nöldri um alger aukaatriði".
Greinar þeirna Finns og, Guð-
mundar eru eínislega eins og sam
hljóða um flest. í sumum tilvik-
um er orðalagið jafnvel hið sama.
Það fer því vel 4 því, að fjalla um
greinar þeirra beggja saman.
Þpiv,;Finnuripg Gy^pAaiheW
hjartanlega sammála, ,ui#lfiað (við
ihöfurn ekki vitnað í réttar ,hciip-
ildir í athugaisemdum okkar. Þeir
eru hins vegar ekki sammála um
í hvaða heimiildir við hefðum átt
að vitna. Eins og þegar er komið
BÍLAVE’RKSTÆÐIÐ
FÓLKSVAGN SF.
SÍMI 42285
Önnumst allar viðgerðir a bifreið yðar, t.d. mótor
— gearkassa — rafmagn — bremsur o.fl. Einnig
réttingar og ryðbætingar. Getum sótt bifreiðina
ef óskað er.
BÍLAVERKSTÆÐIÐ FOLKSVAGN s.f.
Borgarholtsbraut 69. Sími 42285.
HlaSrúm henta aUstaSar: I bamaher-
bergiS, unglingaherbergið,' hjinaher-
bergill, sumarbústabinn, veiðihúsiS,
bamaheimili, heimavistarskðla, hiteL
Helztu kojtir Maðrúmanna eru:
■ Rúmin mi nota eitt og eitt sér eða
hlaða þeim upp í tvxc eða þrjir
hæðir.
■ Hægt er að & auialega: Nittborð,
stiga eða hliðarborð.
■ Innaiimil rúmanna er 73x184 sm.
Haegt er að £1 rúmin með baðmúll-
ar og gúmmidýnum eða in dýna.
■ Rúmin hafa þrefalt notagildi þ. e.
kojur.einstaklingsrúmog'hjónarám.
■ Rúmin eru úr tekki eða úr brénni
(brennirúmin eru minni og ódýrari).
■ Rúmin era öll i pörtum og tekur
aðeins um tvær minútur að setja
þau saman cða taka í sundur.
HÚSGAGNAVERZLUN |
REYKJAVÍKUR
BRAUTARHOLTI 2 - SÍMI 11940
frarn gerðum við aithugasemd við
ummæli, er höfð voru eftir dr.
Ripley i blöðum og útvarpi. Finn-
ur heldur því fram, að það sé
ekki unnt að taka mark á slíkum
heimiidum.
„Þessi vinnubrögð nefndarinn-
ar eru út af fyrír sig með öllu
óverjandi", segir Finnur, „að hafa
ekkert annað fyrir sér en það,
sem fréttamenn segja að dr. Rip-
ley hafi sagzt ætla að seg.ia við
tiitekið tækifæri“. Hér á Finnur
við ræðu, sem dr. Ripley hé'lt í
hófi a@ Hótel Sögu, „en hún var
og er eina örugga heimildin um
það, sem dr. Ripley kom til ís-
landis til að segja“. Um þetta at-
riði segir Guðmundur: „Hæpið
er að unnt sé, að gera sömu kröfu
til borðræðu og til vísindalegs
fyrirlesturs".
Er við gerðum athugasemdir
við þau ummæili dr. Ripleys „að
, hér hefði haldizt náttúruilegt jafn
vægi svo undrun sætti vegna
skilnings íslendinga á því fyrr og
si;5ar“, vakti það fyrir okkur að
fyrirbyggja, að ummæli þessi yrðu
skilin á þann veg, að ástandið í
þessum málum væri betra en það
er í raun og veru. Einniig verður
að hafa i hugia, að tiil eru þeir
hagsmunaaði'lar á íslandi, sem
sýna of lítinn skilning á verndun
náttúruauðsefa og telja slíbt skerð
ingu á hagsmunum sínum. Við
óttuðumst, að slikir aðilar kynnu
að henda ummæli dr. Ripileys á
lofti og nota þau sér til framdrátt
ar. Það er eitt af meginverkefn-
um nefndarinna'r, að vinna að
fræðslu almennings um þessi
mál, og þv-í töldum við það skyldu
Okkar1 áð geí-á athhgasemd við þau
umm'æli! dr. Ripl'eys, sem birtust
almenningi, en ekki það, sem
hann sagði í þröngum hópi úti í
bæ.
Finnur getur þess réttilega, að
dr. Ripley sé ví'ðföruU maður.
„Það er því ekki ólíklegt að hann
hafi betri aðstöðu ti'l að gera sam
anburð á ástandinu í þessum efn-
um í ninum ýmsu hlutum heims
en sumir af hinum mætu (sic)
mörinum, sem eiga sæti í náttúru
verndarnef.nd Hins íslenzka nátit-
úrufræðiféla:gs“. Guðmundur þræð
ir 'sömu slóð, en gengur þó mun
lengra. „Dr. Ripley er maður,
sem sennilegia hefur yíðari sjónar
hring en þorri íslenzkra náttúru-
fræðinga og ummæli hans um ís-
land hljóta að mótast af þeim
samamburði, sem hann er fær um
að gera á íslenzkri náttúru, og
náttúru þeirra landa, sem hann
þekkir".
í grein Finns stendur: „dr. Rip-
ley kom til landsins föstudaginn
6. þ. m. og kl. 16.00 sama dag
átti hann viðtal við frétitamenn
blaða og útvarps“. En _dr. Ripley
hafði aldrei komið til íslands áð-
ur.
Tveir nefndarmanna í náttúru-
verndiarnefnd Hins íslenzka nátt-
úrufræðifélags höfðu þá ánægju
að kynnast dr. Ripley iítillega á
meðan á dvöl hans stóð hér. Fram
korma hans einkenndist af ljúf-
mennsku og hógværð hins sann-
Hemlaviðgerðir
Rennum bremsuskálar. —
s'ípum bremsudælur — lím
um á bremsuborða, og
aðrar almennar viðgerðir.
Hemlastilling h. f.
Súðarvogi 14. Sími 30135.
menntaða vísindam'anns. Við leyf
um okkur að draga í efa, að hon-
um sé þægð í því, að hann sé tal-
inn færari um að dæma ástand
íslenzkrar náittúru en íslenzkir
náttúrufræðimgar, sem margir
hverjir hafa starfað hér árum
saman.
Finnur segir það skoðun dr.
Ripleys, „að íslendingiar hafi öðr
um þj'óðum fremur sýnt sikilning
á nauðsyn þess að varðveita jafn-
vægi náttúrunnar. Þessu er ég
sammála og ég sé ekki, að þessu
verði andmælt með rökum“.
Guðmundur fyLgir enn í fót-
spor Finns og segir: „Hann (dr.
Ripley) sýnir með mörgum dæm-
um, að skilningur feðra okkar á
nauðsyn þess að viðhalda jafn-
'vægi í náttúrunni sé sögulegt
einsdæmi, og hann bendir á, að
enn þann dag í dag er að finna
jáínvægi í ísienzkri náttúru, sem
óvíða sé fyrir hendi annars stað-
ar‘_‘.,
f einni m'álsgrein eftir ofan-
greind ummæli í grein Finns
stendur: „en því verður ekki á
móti mælt, að náttúra fslands er
enn tiiltölulega óspjöliluð. það sé
ekki nema að litlu leyti okkur
sjálfum að þakka“. Hivað varð um
'Skilninginn á jafnvæginu?
Finnur telur, að með athuga-
semdum okkar séum við að bregða
fæti fyrir stofnun allþjóðlegrar
rannsóknarstöðvar i náttúruivi'S-
indum á fslandi. Guðmundur er
auðvitað á sama máli. Þetta er
fjarstæða ag ekki svaraverð. Við
höfum að sjálísögðu fuHan áhuga
á, að slíkt samstarf megi takast,
en í þeini tilgangi er þarffeu'st að
rangtúl'ka eða breiða yfir stað-
reyndir um hið raunverulega
ástand. Slíkt samstarf þarf að
byg'gjast á réttum forsendum og
skilningi þeirra, sem að því
standa.
Finnur ávítar nefndina fyrir að
sý.na dr. Ripley ekki tilblýðilega
kurteisi. Guðmundur tekur auð-
vitað í sama streng. ÞaS hvarflar
hins vegar ekki að okkur, að dr.
Riplay misvirði athugasemdir okk
ar, sem við höfum þegar þýtt og
sent honum. Við teljum það ekki
heldur neina ókurteisi að leið-
rétta ummæli, sem að okkar dónii
kynnu að leiða tól misski'lnings
eða rangtú'lkunar, hvort sem að
þeim standa íslendingar eða er-
lendir menn.
Eikki þarf að taka fram, að það
er fjara-i náttúruverndarnefnd
Hiiu íslnzka náttúrufræðifélags,
„að andmæla lofsamlegum um-
mælum um ísland og íslendinga"
eins og Finnur vill vena láta, svo
fremi, sem lofið er verðskuldað.
Þa@ virðist ótrúlegt, að til
skulu vera þeir íslenzkir nábtúru-
fræðingar. sem gera sér ebki
grein fyrir þeim geysilegu spjöll-
um, sem orðið hafa á náttúru
landsins m. a. vegna handahófs-
legrar meðferðar. Á síðustu árum
hefur miikið verið gert til þess að
reyna að glæða skiilning manna á
þessári öfugþróun. Hafi þeir Finn
ur og Guðmundur talið þann áróð
ur rangan, hefur sú skoðun þeirra
aldrei komið fram áður. Þó er
þessi skoðanamunur hvorki „ai-
ger aukaatriði“ né „smávægileg
ónákvæmni". eins og þeir segja.
Skrif Finns og Guðmundar gegn
athugasemdum okkar við utnmæl-
um dr. Ripleys hljóta því að stafa
af því, að þeir hafa misskilið til-
gang okkar með þeim. Ef þeir
telja þörf á frekari umræðum um
þetta mál, erum við reiðulbúnir
að ræöa við þá á nefndarfundi,
en blaðaskrifum hér með lokið af
okkar hiálfu.
\ áttúru verndarnef nd
Hins íslenzka náttúrufræðifélags.
Jón B. Sigurðsson.
Bjöm Guðbrandsson.
Eiður Guðnason.
Gestur Guðfinnsson.
Ingvi Þorsteinsson.
Tómas Helgason.