Alþýðublaðið - 23.03.1988, Page 4

Alþýðublaðið - 23.03.1988, Page 4
4 Miðvikudagur 23. mars 1988 SMÁFRÉTTIR Amnesty Fangar mánaðarins Mannréttindasamtökin Amnesty International vilja vekja athygli almennings á máli eftirfarandi samvisku- fanga í mars. Jafnframt von- ast samtökin til að fólk sjái sér fært að skrifa bréf til hjálpar þessum föngum og sýna þannig [ verki andstöðu sína gegn því að slík mann- réttindabrot séu framin. ís- landsdeild Amnesty gefur einnig út póstkort til stuðn- ings föngum mánaðarins og fást áskriftir á skrifstofu samtakanna. Ungverjaland: Zsolt Keszt- helyi er 24 ára gamall ritstjóri óháðs tímarits. Hann var handtekinn í febrúar 1987 og dæmdur ( 3 ára fangelsi fyrir að neita að gegna herþjón- ustu. Zsolt neitaði að gegna herþjónustu af pólitískum ástæðum. Amnesty telur að allir menn eigi að eiga rétt á að þjóna landi sínu á annan hátt en með herþjónustu. Sýrland: Riad al-Turk er 58 ára gamall lögfræðingur. Hann var aðalritari hjá komm- únistaflokknum, en sá flokk- ur er bannaður. Hann var handtekinn í október 1980 og hefurverið haldið í einangrun síðan, án þess aö hafa hlotið ákæru eða dóm. Hann hefur verið lagður fjórum sinnum inn á sjúkrahús vegna mis- þyrminga. Hann er nú alvar- lega veikur. Hann þjáist af illa meðhöndlaðri sykursýki og var m.a. meðvitundarlaus í 25 daga í desember s.l. Chad: Mardié Ibrahim og Mabrouka Houni Rahil eru mæðgur. Mardié var á tán- ingsaldri þegar hún var hand- tekin einhvern tímann á árun- um 1983-1985. Hún var hand- tekin vegna aðgerða móður sinnar, sem sá um að útvega matarbirgðir handa hernum á árunum milli 1979 og 1982. Herinn átti á þeim tíma í úti- stöðum við vopnaða and- spyrnuhreyfingu. Forystu- maður þeirrar hreyfingar er nú við völd. Þegar hann komst til valda 1982 fór móð- urin, Mabrouka, úr landi. Dóttirin var þá sökuð um að flytja upplýsingar til and- stæðinga stjórnarinnar og hún handtekin. í júli 1987 snéri Mabrouka aftur til Chad eftir að hafa fengið loforð um að dótturinni yröi þá sleppt. Svo varð þó ekki og nokkru seinna var Mabrouka hand- tekin ásamt öðrum fjöl- skyldumeðlimum. Mardié og móðir hennar eru ennþá í haldi án þess að hafa hlotið ákæru eða dóm. Þeir sem vilja leggja mál- um þessara fanga lið, og þá um leið mannréttindabaráttu almennt, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu íslandsdeildar Amnesty, Hafnarstræti 15, Reykjavík, sími 16940. Skrif- stofan er opin frá 16-18 alla virka daga. Þar fást nánari upplýsingar sem og heimilis- föng þeirra aðila sem skrifa skal til. Einnig erveitt aðstoð við bréfaskriftir ef óskað er. Sameinast um leitaraðgerðir og fjáröflun Þrjár stærstu björgunar- sveitir landsins, Slysavarnar- félag íslands, Landssamband hjálparsveita skáta og Lands- samband flugbjörgunar- sveita, hafa nú komið sér saman um sameiginlega fjár- öflunarleið, og eru farnir að gefa út saman „Lukkutríó“. Fyrsti vottur af samvinnu þessara þriggja aðila var þeg- ar sameinast var um skipu- lagðar leitaraðgerðir. Það'var fyrir tæpum tveimur árum og var þá skipuð landsstjórn. Fulltrúum frá þessum þremur aðilum kom siðan saman um að í hverri einustu aðgerð sem einhver af þessum þrem- ur tækju þátt í þá kæmu nú alltaf fulltrúar frá þeim öllum. Að sögn Birgis Ómarsson- ar, hjá Landsambandi hjálpar- sveita skáta, hefur þetta sam- starf brotið blað i sögunni og gefist mjög vel en á sam- starfið hefur reynt í öllum þeim leitum sem gerðar hafa verið sl. 2 ár. Samstarf um fjáröflun hófst upp úr áramótum og komu fyrstu „Lukkutríómið- arnir“ út um miðjan febrúar. „Þetta hefur gefist mjög vel og er greinilega framtíðin í þessu“ sagði Birgir Ómars- son. Vinnuhópur um sifjaspell Vinnuhópur um sifjaspella- mál hefur opnaö skrifstofu að Vesturgötu 3, Reykjavík. Sara Karlsdóttir er þar við frá kl. 13.00 -17.00 alla virka daga og einnig svararhún í síma21260. Þær konur sem vilja komast í sjálfshjálparhóp geta annað hvort hringt skrifað eða komið á skrifstofuna. í tilkynningu frá vinnuhópn- um segirað þarséu konursem hafa áhuga á að vinna gegn sifjaspelli og styðja þær sem sárt eiga um að binda af þeim sökum. Hvern hóp leiða fé- lagsráðgjafar og kona með reynslu. Úrslit hjá Bridsfélagi Sigiufjarðar Sveit Þorsteins Jóhanns- sonar sigraði í hraðsveitar- keppni Bridsfélags Siglu- fjaröar, og hlaut 1799 stig, í öðru sæti varð sveit Valtýs Jónassonar meö 1798 stig og í þriðja sæti varð sveit Bjark- ar Jónsdóttur með 1786 stig. í sigursveitinni voru auk Þorsteins Jóhannssonar, Rögnvaldur Þórðarson, Jón Sigurbjörnsson og Ásgrímur Sigurbjörnsson. Boranir fjarri Bockall Vegna frétta i íslenskum fjölmiðlum að undanförnu um að olíuleit BP félagsins náigist Hatton-Rockall svæðið vill utanrikisráðu- neytið taka fram eftirfarandi: Samkvæmt upplýsingum breskra stjórnvalda hafa Bretar ekki framkvæmt neinar boranir né veitt leyfi til slíks á svæðum sem eru umdeijd milli þeirra annars vegar ísiendinga og Dana hins vegar. Þær boranir, sem nefndar hafa verið í fréttum, fara fram á svæði norðvestan Skotlands, sem engir aðrir en Bretar gera tilkall til og liggur fjarri Hatton-Rockall svæð- inu. Erlingur Kristens, „EKKI GIRNILE STARFIMED I Erlingur Kristensson, 34 ára Hafnfirðingur, var kosinn formaður Sambands ungra jafnaðarmanna á sérstöku aukaþingi í haust. Erlingur hefur síðustu ár verið virkur félagi í FUJ í Hafnarfirði og tekið þátt í öflugu starfi í bœjarmálum. Hann er fyrsti varamaður í bœjarstjórn og formaður byggingarnefndar sundlaugar. Árið 1986 gegndi hann formennsku í FUJ í Hafnarfirði. Það er reyndar ekki bara pólitíkin sem heillar hann því eins og margir aðrir Hafnfirð- ingar hefur hann brennandi áhuga fyrir íþróttamálunum og þjálfar m.a. tvo flokka í handboltanum hjá FH. Erlingur er kvœntur Gyðu Ulfarsdóttur og eiga þau tvo syni, Elfar 11 ára og Ulfar 8 ára. „Ég er fæddur Hafnfirðing- ur. Foreldrar mínir eru báðir Vestfirðingar, bjuggu á ísa- firði, en fluttu til Hafnarfjarð- ar á fimmta áratugnum. — Ég er reyndar svo frægur að vera skyldur honum Jóni.“ — Ef allt væri eðiilegt, ættir þú sem sagt að vera krati í bak og fyrir. Ég hef hins vegar heyrt að þú hafir verið hallur undir íhaldið á unglingsárunum? „Það byggðist kannski frekar á persónudýrkun held- ur en stefnu. Maður leit upp til Bjarna Ben. Eftir að hann féll frá fór maður kannski fyrst að hugsa um pólitik." — Er kannski draumsýnin viðreisn, eins og sagt er um suma krata? „Nei, hún er það ekki í dag, þó að þetta fari vissu- lega mikið eftir þeim mönn- um sem starfa innan flokk- anna. Eins og íhaldið hefur hagað sér á undanförnum ár- um, þá finnst mér alls ekki girnilegt að vera i samstarfi með þeim né Framsókn." — Það hefur stundum komið í Ijós að ungliðar í Al- þýðuflokknum lendi í and- stöðu við fiokksforystuna. Þetta hefur veriö mest áber- andi varðandi afstöðunni til Nato og veru herliðsins í Keflavík. Hvernig getur þetta komið heim og saman? „Ég held að það séu ef til vill frekar kynslóðaskipti varðandi afstöðu til hermála og stríðsreksturs. Þegar ís- land gekk j hernaðarbanda- lag þá voru allt önnur viðhorf til hermálanna, en eru i dag. Það voru ekki þessi vopn, sem eru fyrir hendi í dag. Við skulum gera okkur grein fyrir því að unga fólkið krefst þess að friður sé í heiminum. Okkar afstaða markast meira af friðsemi. Við viljum ekki hernaðarbandalag, heldur byggja upp heim án kjarn- orkuvopna. Þannig teljum við að öll viðleitni í þá átt, séu skref sem eigi hiklaust að taka. Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd er t.a.m. skref sem sýna vilja í þessa átt. Það má þvi segja aö þeir sem eru hlynntir hernaðarbanda- lögum í dag, séu dálítið á eft- ir timanum. Okkar stefna er alls ekki öfgakennd eins og t.d. Al- þýðubandalagsins, sem end- urspeglast í þvi að vera bara móti vestrænni samvinnu og öllu sem heitir amerískt. Ég held að okkar stefna sé öllu mildari og manneskjulegri. Við viljum bara frið og erum á móti hernaðarbandalögum. Það má hins vegar ekki gleyma að innan okkar raða eru nokkuð skiptar skoðanir um útfærslu á þessum meg- insjónarmiðum." — Þú kynntir þér starf- semi Samtaka herstööva- andstæðinga um tíma, áttir sæti í miöstjórn. Hvers vegna starfar þú ekki einnig á þeim vettvangi? „Þessi samtök, eins og þau eru í dag, eru ekki starfs- vettvangur fyrir okkur jafnað- armenn. Þó aö það sé margt gott fólk þarna inni, þá eru öfgarnar svo yfirgnæfandi. Ég sá engan tilgang i þessu og tel að það væri betra aö, við jafnaðarmenn hefðum okkar eigin friðarhreyfingu. Ég starfaði reyndar ekki mik- ið í miðstjórninni, var þarna í smá tíma eftir landsfund.“ — Hvaö finnst formanni SUJ um þátttöku Alþýðu- flokksins i þessari ríkis- stjórn? „Við verðum fyrst að gera okkur grein fyrir því sem á undan fór. Það var reynt ann- að stjórnarmynstur, sem ekki tókst. Bæði Kvennalistinn og Alþýðubandalagið voru þar inni, en því miður tókst ekki að mynda stjórn með þess- um félagshyggjuflokkum. Varðandi samstarf við ihald- ið, þá fannst mér það ekki hægt nema yrði uppstokkun á ráðherraliði flokksins. Það má segja að það hafi nokk- urn veginn orðið. Hins vegar sitjum við uppi með menn eins og Jón Helgason, sem mér finnst að hefði mátt fá frí. Okkar staða innan stjórnar- innar er sterk. Þessar aðgerð- ir eins og söluskatturinn á matvæli er auðvitað óvinsæl aðgerð, en fyrst og fremst vegna þess að þetta mál var illa kynnt. Stjórnarandstaðan hefur reynt að gera þetta tor- tryggilegt í augum almenn- ings og orðið ágengt vegna þess að ekki hefur verið nægilega kynnt hvert stefnt sé rneð slíkum ráðstöfunum. Á meðan skattlagningin er tæki til tekjujöfnunar, þá er allt í sómanum að mínu mati. Það kanna að vera að ein- hverjir verði verr fyrir barðinu en ætlast er til, en þá er líka sá möguleiki fyrir hendi að lagfæra og endurskoða. Þó að þessi skattur hafi verið nefndur matarskattur og fengið nýtt nafn, þá er þetta ekkert nýtt. Það var söluskattur áður á þessum matvælum fyrir nokkrum ár- um síðan, þó það væri ekki kallað matarskattur þá. Það hefur einnig gleymst að minnast á að í þá daga fór skatturinn ekki til tekjujafn- andi aðgerða eins og nú.“ — Engu aö síður eru ýms- ir til í aö gagnrýna flokkinn og áherslurnar i stjórnarsam- starfinu, að félagslegu áherslurnar vanti? „Að það vanti mannlega þáttinn? Já, ég myndi segja að ýmislegt væri til í því. Við vitum aö jafnaðarstefnan er mannúðarstefna, en við vit- um líka að við breytum engu með einu pennastriki. Því miður eru hins vegar okkar stefnumál, sem við komum með inn í þessa ríkisstjórn meira og minna sundurtætt. Það eru partar hér og hvar og meðan ekki er hægt að fram- fylgja heilsteyptri jafnaðar- stefnu, þá er ekki von til að við verðum fyllilega sátt. í svona samsteypustjórn er ekki við miklu að búast, sér- staklega ekki þegar um er að ræða svona samstarf með hægrimönnum." — Er einhver von til þess aö vinstrimenn og jafnaöar- menn geti unnið saman á raunsæjan og heiöarlegan hátt í landsstjórninni? „Það hefur sýnt sig, a.m.k. hér í Hafnarfirði að Alþýðu- bandalag og Alþýðuflokkur- inn geta unnið saman. Það eru margir ágætir jafnaðar- menn í Alþýðubandalaginu. Því tel ég t.d. ekki rétt, þegar menn eru að tala um að byggja upp öflugan vinstri flokk, mér finnst nær að tala um að byggja upp öflugan

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.