Alþýðublaðið - 23.03.1988, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 23.03.1988, Blaðsíða 6
6 Miðvikudagur 23. mars 1988 SMÁFRÉTTIR 5 milljóna tap hjá Flugfélagi Norðurlands Aðalfundur Flugfélags Norðurlands hf. var haldinn föstudaginn 18. mars s.l. Heildarveltan 1987 nam kr. 105.485.795,00 og var hagnað- ur af reglulegri starfsemi. Vegna sölutaps af Mitsu- bishiflugvél, sem seld var á árinu varð hins vegar tap á rekstrinum, sem nemur kr. 5.267.231,00. Á árinu voru fluttir samtals 24.490 farþegar, 620 tonn af vörum og 190 tonn af pósti. Vélar félagsins flugu samtals 5.093 flugstundir og voru flugtök og lendingar samtals 14.608. Félagið stundar alla venju- Iega flugstarfsemi, þ.m.t. áætlunarflug til 11 ákvörðun- arstaða með bækistöð á Akureyri. Grænlandsflug var sem fyrr stór liður í rekstr- inum eða sem svarar 28% af heildarveltunni 1987. 101 sjúkraflug voru flogin á árinu, en auk þess var fjöldi sjúkl- inga fluttur með áætlunar- flugi. Flugfélag Norðurlands hf. á 8 flugvélar: 3 19 sæta, Twin Otter — 2 9 sæta, Chieftain, 1 5 sæta Aztec og 2 Toma- hawk kennsluflugvélar. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Félagsfundur Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur félagsfund í veitingahúsinu Glæsibæ kl. 20.30 fimmtudaginn 24. mars. Fundarefni: Ný gerðir kjarasamningar. Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða BRÉFBERA hjá póst- og símstöðvunum í Garðabæ og Hafnarfirði Laun eftir starfsaldri fyrir fullt starf með álagi frá kr. 33.726.00 til kr. 43.916.00. Upplýsingar hjá stöðvarstjórum, í Garðabæ í síma 656770 og í Hafnarfirði í símum 50555 og 50933. FÉLAGSFUNDUR Félagsfundur hjá Iðju, félagi verksmiðjufólks verður haldinn í Sóknarsalnum, Skipholti 50A, fimmtudaginn 24. mars n.k. kl. 5 síðdegis. Fundarefni: Kjarasamningarnir. Iðjufélagar fjölmennið. Stjórn Iðju. SÖLUSKATTUR Viðurlög falla á söluskatt fyrir febrúarmánuð 1988, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaóan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir tii viðbótarfyrirhvern byrjaðan mánuó, talið fráog með 16. apríl. Fjármálaráðuneytið. Félagið annast sjálft allt viðhald flugvéla sinna og reyndar margra annarra í 1863m2 flugskýlum sinum á Akureyrarflugvelli. Hjá félaginu vinna 23 starfsmenn í fullu starfi, þ.a. 10 flugmenn, 6 flugvirkjar. Kvennalisti enn á uppleið Samkvæmt skoöanakönn- un sem DV birti á mánudag hefur Kvennlistinn enn á ný unniö mikið fylgi. Samkvæmt könnuninni hefur Kvennalist- inn mest fylgi í dag, ívið meira en Sjálfstæðisflokkur- inn. Af þeim sem afstöðu tóku fékk Kvennalistinn 29.7%, Sjálfstæðisflokkurinn 28,4%, Framsókn 17,6%, Alþýðu- flokkurinn 9,3%, Alþýðu- bandalagið 7,8% og Borgara-. flokkurinn 4,7%. Önnur fram- boð fá minna, en fram kemur að Þjóðarflokkurinn bætirvið sig frá könnun I janúar fékk nú 1,6% en fékk 0,6% í janú- ar. Samtök verslunarinnar andmæla skattlagningu Nokkur samtök verslunar- innar skrifuðu forsætisráð- herra bréf þann 21. mars s.l. varðandi skattlagningu á verslun. Bréfið er eftirfarandi: „Við undirritaðir samnings- aðilar að kjarasamningum verslunarmanna skorum á ríkisstjórn íslands að hún beiti sér nú þegar fyrir þvi að skattlagning á verslun verið samræmd því sem gerist um aðra atvinnuvegi. Einkum er hér átt við launaskatt og sérstakan skatt á verslunar- og skrif- stofuhúsnæði. Ljóst er að ofsköttun versl- unarinnar vinnur gegn kjör- um þeirra sem við verslun starfa og rýrír samkeppnis- hæfni hennar gagnvart iðnaði og erlendri verslun. Þess er fastlega vænst að viðeigandi ráðstafanir verði gerðar á yfirstandandi Al- þingi og geti komiö til fram- kvæmda eigi síðar en í byrj- un árs 1989. Óskað er skriflegs svars svo fljótt sem auðið er.“ Undir bréfiö rituðu fulltrúar eftirfarandi samtaka: Lands- samband íslenskra verslunar- manna, Verslunarmannafélag Reykjavíkur, Vinnumálasam- band samvinnufélaganna, Samstarfsráð verslunarinnar, Félag verslunar- og skrif- stofufólks á Akureyri. Skelltu hvorki skuld á hálku eða myrkur. Þaö ert fití sem situr við stýriö. UMFEROAR RÁÐ Lyfsöluleyfi er forseti íslands veitir. Lyfsöluleyfi Vesturbæjar Apóteks í Reykjavík er auglýst laust til umsóknar. Fráfarandi lyfsalaerheimilað að neytaákvæða 11. gr. laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982, varðandi húsnæði lyfjabúðarinnar og íbúðar lyfsala (húseignin Mel- hagi 20-22). Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðarinnar 1. janúar 1986. Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi sendist heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fyrir 18. apríl 1988. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 17. mars 1988 Hafnarfjarðarbær — Áhaldahús Oskum að ráða vélvirkja eða bifvélavirkja. Góður vinnutími, góð vinnuaðstaða, mötuneyti á staðnum. Upplýsingar gefnar í síma 652244. Yfirverkstjóri KRATAKOMPAN Fundur á Akureyri Opinn fundur með Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- málaráðherra og Árna Gunnarssyni, alþingismanni verður haldinn miðvikudaginn 23. mars n.k. kl. 20.30 á Hótel KEA. Alþýðuflokkurinn Reykvíkingar Jón Baldvin Hannibalsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson verðaáopnum fundi áHótel Loft- leiðum fimmtudaginn 24. mars n.k. kl. 20.30. Alþýðuflokkurinn Kratakaffi í Reykjavík Næsta Kratakaffi verður miðvikudagskvöldið 13. apríl n.k. Nánar auglýst síðar. Alþýðuflokkurinn Alþýðuflokksfélögin í Hafnarfirði Opið hús í Alþýðuhúsinu öll mánudagskvöld og fimmtudaga frá kl. 17.30-19.30. Næstkomandi fimmtudag verða bæjarfulltrúarnir Valgerður Guðmundsdóttir og Jóna Osk Guðjóns- dóttir að taka á móti gestum og gangandi. Allir velkomnir. Alþýðuflokksfélögin í Hafnarfirði Flokksstjórn — Sveitarstjórnarmenn Laugardaginn 26. marz n.k. verður haldinn sameigin- legur fundur Flokksstjórnar og sveitarstjórnarmanna Alþýðuflokksins. Fundurinn verður á Hótel Loftleiðum frá kl. 11-16. Dagskrá: Kl. 11-12, Stjórnmálin í dag - næstu verkefni. Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráð- herra. Kl. 12-13, Léttur hádegisverður. Kl. 13-16, Samskiþti ríkis og sveitarfélaga. Freyr Ófeigsson, bæjarfulltrúi. Almennar umræður. Alþýðuflokkurinn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.