Alþýðublaðið - 12.04.1988, Side 3
Þriðjudagur 12. apríl 1988
3
FRÉTTnt
Framsóknarþingmenn afgreiða dómsstólafrumvarpið:
FRUMVARPIÐ VERDI KYNNT
EN EKKI AFGREITT í VOR
Framsóknarmenn gera margar athugasemdir og vilja m.a. tvo héraðsdómstóla á
Norðurlandi í stað eins.
Þingflokkur framsóknar-
manna samþykkti á fundi sín-
um i gær ad frumvarp Jóns
Sigurðssonar dómsmálaráð-
herra um aðskilnað dóms-
valds og framkvæmdavalds
verði lagt fram í nafni ríkis-
stjórnarinnar á þessu þingi
til kynningar. Framsóknar-
menn munu þó standa fastir
gegn því aö frumvarpið verði
afgreitt sem lög fyrir þinglok.
Þingmenn Framsóknar-
flokksins gera athugasemdir
við mörg atriði frumvarpsins.
„Skrá yfir fyrirvara okkar fylla
heila síðu,“ sagði einn fram-
sóknarmaður í samtali við
Alþýðublaðið eftir fundinn í
gær. Munu þeir m.a. gera þá
breytingakröfu að á Norður-
Iandi verði staðsettir tveir
héraðsdómarar i stað eins
eins og í frumvarpi ráðherra.
Samkvæmt frumvarpinu er
ætlunin að héraðsdómstóll
Norðurlands verði staðsettur
á Akureyri og nái lögsagnar-
umdæmi hans frá vestur-
mörkum Húnavatnssýslu að
austurmörkum Þingeyjar-
sýslu. A þetta geta framsókn-
armenn ekki fallist.
Þingflokkur sjálfstæðis-
manna samþykkti á þing-
flokksfundi á föstudag að
frumvarpið verði lagt fram en
með sömu fyrirvörum og
framsóknarmenn, þ.e. að það
verði ekki samþykkt á þessu
þingi. Hefur Þorsteinn Páls-
son forsætisráðherra lýst því
yfir nýlega á fundi með sjálf-
stæðismönnum í Kópavogi
að mikið vatn muni rennna til
sjávar áður en sjálfstæöis-
menn samþykki að svipta
baejarfélög varnarþingi sínu.
i starfsáætlun ríkisstjórn-
arinnar segir „að ríkisstjórnin
muni beita sér fyrir heildar-
enduskoðun dómsmálaskip-
unar, er feli í sér aðskilnað
dómsstarfa og stjórnsýslu-
starfa."
Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra mælir lik-
lega á morgun fyrir frumvarpi
um virðisaukaskatt sem lagt
var fram á Alþingi í gær.
Gildistöku þess hefur verið
frestað fram á mitt ár 1989.
Gert er ráð fyrir aö skatthlut-
fallið verði 22%
Eftir umfjöllun í þingflokk-
um stjórnarflokkanna voru
gerða nokkrar breytingar á
frumvarpinu m.a. vegna inn-
heimtu skatts í landbúnaði
sérstaklega vegna sölu til
vinnslustöðva, vegna endur-
greiðslu virðisaukaskatts af
vinnu á byggingarstað íbúð-
arhúsnæðis, og vegna skatt-
lagningar á sölu dagblaða.
Áætlað hafði verið að
frumvarpið tæki gildi um
næstu áramót, en gildistök-
unni hefur verið frestaö til 1.
júlí 1989. Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráð-
herra mun að öllum líkindum
mæla fyrir frumvarpinu á
morgun.
segir Kjartan Gunnarsson formaður
Útvarpsréttarnefndar.
Biskup íslands mun ekki
kæra Útvarpsstöðina Rót
fyrir útvarpsréttarnefnd
vegna aprílgabbs eins og út-
varpsstjóri Rótarinnar Þór-
oddur Bjarnason, sagöist
búast viö í ræðu er hann hélt
i Útvarpi sínu þann 9. april sl.
í aprllgabbi Rótar var full-
yrt að gálgar myndu leysa
krossa af hólmi sem tákn
kristinna manna, vegna nýrra
uppgötvana fornleyfafræð-
inga. Vegna þessa lét biskup
Islands þau orð falla að þetta
væri mikið óhæfuverk.
Þóroddur Bjarnason, út-
varpsstjóri Útvarps Rótar
flutti ræðu í útvarpi sínu á
laugardaginn og sagði þá
m.a. að eftir því sem hann
kæmist næst ætlaöi biskup
(slands aö kæra stöðina fyrir
útvarpsréttarnefnd. í samtali
við Alþýðublaðið sagöi
Kjartan Gunnarsson, formað-
ur útvarpsréttarnefndar að
það stæði ekki til. „Ég talaði
sjálfur við biskup í dag og ég
á ekki von á kæru frá honum,
né neinum öðrum“ sagði
Kjartan.
í ræðu Þórodds á laugar-
daginn sa^ði hann m.a.:
„Skensið á fyrsta apríl byggó-
ist ávangaveltum um kross-
inn sem bæði er trúartákn og
fornt aftökutæki og saman-
burði á honum og nýmóðins
aftökutæki sem engan helgi-
blæ hefur yfir sér; gálgan-
um.“ Sagði jafnframt að Út-
varp Rót væri grasrótarútvarp
þar sem orðið væri frjálst og
útvarpsmenn því þeim einum
skuldbundnir er hlýddu á
dagksrána. „Ákúrur frá aug-
lýsendum, þjóðkirkjunni eða
öörum utanaðkomandi aðil-
um eru einfaldlega ekki
teknar til greina.“
Starfsfólk Utvegsbankans viö Lækjartorg unnu vió þad aö flytja nú um
páskana
Útvegsbankinn:
AÐALBANKA BREYTT I UTIBU
Aöalbanka Útvegsbanka Is-
lands, við Lækjartorg hefur
nú veriö breytt i útibú og er
útibússtjóri þar Reynir
Jónasson. Breytingar þessar
uröu þann 1. apríl sl. og hafa
þær i för meö sér aö yfir-
stjórn bankans hættir aö
sinna afgreiðslumálum eins
ákveðins útibús og setur þao
í hendur útibússtjóra.
Forráðamenn bankans
telja að með þessu muni
létta á bankastjórninni þann-
ig að hún getur sinnt starf-
semi allra útibúanna jafnt
þannig að allir viðskiptavinir
hvar á landi sem er fái sömu
þjónustu.
i kjölfar breytinganna hafa
verið gerðar ýmsar endur-
bætur á afgreiðslu bankans,
deildir hafa veriö fluttar til og
meðal annars er öll gjaldeyr-
isafgreiðsla á einum staó (
neðri afgreiðslusal bankans.
Alþingi:
VIRÐISAUKINN
LAGÐUR FRANI
Aprílgabb Rótarinnar:
BISKUP KÆRIR EKKI
HAF-
BEITAR-
OG
ALI-
FISKAR
UNDIR
EFTIR-
LIT
Ríkisstjórnin hefur nýveriö
samþykkt aö leggja fyrir Al-
þingi frumvarp sem veitir ráö-
herra rétt til aö setja reglur
um eftirlit meö ali- og haf-
beitarfiski sem settur er á
markað hér innanlands eða
erlendis.
Frumvarpið felur í sér
breytingu á lögum um lax- og
silungsveiði og segir í 1.
grein að ráðherra sé rétt eftir
tillögum fisksjúkdómanefnd-
ar að setja reglugerð um heil-
brigöiseftirlit í klak- og eldis-
stöðvum, um töku sýnis-
horna, um sóttvarnaraðgerðir,
um slátrun, mat og meðferð
á sláturafurðum hafbeitar- og
alifiska." I greinargerð kemur
fram að á þessu ári er áætl-
uð framleiðsla af laxi og
silungi 1800 tonn og 12
milljónum seiöa og talið er
að hún fari mjög vaxandi á
næstu árum. Til þessa hefur
ekkert eftirlit opinberra aðila
verið með fiskeldis- og haf-
beitarstöðvum. Hafa hags-
munaaðilar lýst yfir að þörf
sé á reglum á þessu sviði
ekki sist vegna harðnandi
samkeppni í greininni.
Meginmarkmiöið er að
tryggja vöruvöndun á við-
kvæmum markaði.