Alþýðublaðið - 12.04.1988, Side 5
Þriðjudagur 12. apríl 1988
5
r r
FRETTASKYRING
Sigriöur Þ. Stefánsdóttir skrifar : 11
Innan veggja þessa húss er ýmislegt að gerast og um þessar mundir eiga starfsmenn og yfirmenn stofnunar-
innar í deilu um hvort og hve hagkvæmt það sé að úthluta einkaaðilum verkefni til vinnslu.
Af innanhúsmálum sjónvarpsins:
HVER
VINNUR
FYRIR
HVERN?
Starfsmannafélag sjónvarps og forráða-
menn stofnunarinnar greinir á um hvort og
í hvað miklum mœli eigi að úthluta verk-
efnum til einkaaðila.
Ýmis innanhusvandamál
hafa herjað á starfsmenn rík-
issjónavarpsíns að undan-
förnu, bæði hið svo kallaða
Ingva Hrafns mál. og svo nú
siðast yfirlýst stefna foráða-
manna sjónvarpsins að deila
æ oftar verkefnum til aðila
utan sjónvarpsins. Hefur
þessi ákvörðun farið mjög
svo fyrir brjóstið á starfs-
mönnum og varð það til að
setja punktinn yfir i-ið þegar
sú hugmynd kom upp um að
fela íslenska myndverinu,
sem er samtvinnuð Stöð 2,
vinnslu á leikritinu Nætur-
ganga. Ákvörðun um þetta
mál hefur hins vegar verið
frestað og verður ekki tekin
fyrir fyrr en í seinni hluta
þessarar viku.
Starfsmenn telja þessa
stefnu yfirmanna sinna mjög
varasama en yfirmennirnir
segja þetta nauðsynlegt og
komi betur fyrir sjónvarpið á
flestan hátt. Ástæðan fyrir
þessu er, að að mati yfir-
manna sjónvarpsins annar
tæknideild sjónvarpsins ekki
öllum þessum verkefnum en
það sem kemur starfsmönn-
um þá spánskt fyrir sjónir er
að á sama tima er verið að
segja upp starfsfólki í tækni-
deild. Þeir telja stefnu þessa
mjög varasama, en forráða-
menn sjónvarpsins segja
nauðsynlegt að kaupa þjón-
ustu utan úr bæ og segja
það betra fyrir stofnunina.
Meðal þeirra þátta sem hér
um ræðir er Maður vikunnar,
Dagskrá næstu viku, Helgi-
stundin, Landið þitt o.fl. Þau
fyrirtæki sem einkum hafa
unnið fyrir ríkissjónvarpið eru
t.a.m. ís-film, Saga-film, Þum-
all, Plús-film og Myndbanda-
gerð Reykjavíkur.
Aðalfundur starfsmannafé-
lags sjónvarpsins sendi frá
sér ályktun fyrir skömmu þar
sem segir í aðalatriðum að
sú stefna forráðamanna sjón-
varpsins að úthluta I sífellt
ríkara mæli verkefnum til
vinnslu hjá einkaaðilum sé
alls óhæf, og að sú ákvörðun
aö fela íslenska myndverinu,
er rekur Stöð 2, tæknivinnslu
á leikritinu Næturganga hafi
fyllt mælinn. Telja starfs-
menn það heldur þversagna-
kennt að fara með verkefni út
úr stofnuninni vegna þess að
tæknideild anni ekki eftir-
spurn og á sama tlma sé ver-
ið að fækka fólki í tækni-
deild. „Það er ekkert laun-
ungarmál að ýmsir yfirmenn í
sjónvarpinu telja þetta og
hafa sagt heppilegan kost.
Viö teljum þetta hins vegar
slæman kost og bendum á
að fáránleikinn í þessari
stefnu hafi komið best I Ijós
þegar íslenska myndverinu,
sem er samtvinnað Stöð 2,
helsta keppinaut sjónvarps-
ins, er falið að vinna fyrir
sjónvarpið." sagði Ögmundur
Jónasson, formaður starfs-
mannafélags sjónvarpsins, í
samtali við Alþýðublaðið.
Sagði hann jafnframt að það
hefði verið hringt frá Stöð 2
til starfsmanna sjónvarpsins
og þeim boðin vinna við
þetta tiltekna verkefni. „Þetta
er fráleitt og ég held að allir
séu sammála um að hér hafi
veriö gengið of langt“ sagði
Ögmundur.
Ingimar Ingimarsson að-
stoðarframkvæmdastjóri
sjónvarpsins, sagði málið
einfaldlega vera þannig að
sjónvarpið réði ekki við að
vinna sjáltt allt það innlenda
efni sem það þyrfti að sýna.
Sagði hann að þegar kostn-
aðaráætlanir fyrir deildirnar
hefðu verið gerðar, í lok síð-
asta árs, hefði komið í Ijós að
það fé sem ætlað var til dag-
skrárgerðar nægði engan
veginn til að útvega öllu
tækniliði sjónvarpsins vinnu.
„Þá voru ekki nema tveir
kostir fyrir hendi“, sagði
Ingimar, annað hvort að
tæknideildin leitaði út fyrir
stofnunina eftir verkefnum
eða að fækka fólki, sem var
og gert. „Við það að segja
upþ fólki sparast fé og það
var ákveðið að það fé yrði
notað í framleiðslu á inn-
lendu efni. En það hefur allt-
af legið fyrir að það þyrfti að
bjóða ákveðin verkefni út.“
sagði Ingimar. „Sú ákvörðun,
um að fækka fólki verður
hins vegar endurskoðuð um
mitt árið, hér var einungis um
sex mánaða tímabil að
ræða.“
Ingimar sagði ennfremur
að það væri alls ekki frá-
gengiö hver ynni leikritið
Næturganga. Útboðið hafi
verið lokað og að mati
Hrafns Gunnlaugssonar og
Baldurs Hermannssonar
hefði tilboð íslenska mynd-
versins verið hagstæðast.
„Þetta mál er hins vegar ófrá-
gengið. Tæknideildin hefur
haldið því fram að þeir hafi
getu til að vinna þetta verk
og það er regla hér að engin
verk eru send úr húsi nema
það liggi alveg fyrir að þau
sé ekki hægt að vinna innan-
húss og það er verið að at-
huga það nánar“ sagði Ingi-
mar. Lagði hann jafnframt á
það ríka áherslu að þó hér
ætti í hlut fyrirtæki sem væri
í meirihlutaeign Stöövar 2
væri hér ekki um Stöð 2 að
ræða.
Odýrara utanhúss
Aó mati bæði starfsmanna
og stjórnanda sjónvarpsins
hefur það aukist mjög að
undanförnu að rikissjónvarp-
ið leiti út fyrir stofnunina
meö verkefni og geta áhorf-
endur sjálfir séö hver annað-
ist vinnsluna í lok hvers þátt-
ar. Ýmsir yfirmenn sjónvarps-
ins hafa líka sagt það að þeir
telji þetta heppilega leið. Þar
eru starfsmennirnir hins veg-
ar ekki á sama máli og hafa
þeir varað við því að þessi
braut verði farin. „Við teljum
að sjónvarpið þurfi jafnan á
hæfu og krefjandi fólki að
halda og ef farið er með öll
krefjandi verkefni út f bæ,
helst stofnuninni ekki á
hæfu fólki“ sagöi Ögmundur,
formaður starfsmannafélags-
ins. Einnig telja starfsmenn
að með þessu sé fjármunum
stofnunarinnar ekki skynsam-
lega varið og vilja því að horf-
ið sé af þessari braut.
Ingimar Ingimarsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri,
sagðist þessu all ósammála
og taldi að hér væri þvert á
móti sparað timi og peningar.
Sagði hann t.d. að um þaö
væri engin spurning að Mað-
ur vikunar og Dagskrá næstu
viku væru unnin mun ódýrari
utanhúss. „Ástæðan erein-
faldlega sú“, sagði Ingimar,
„að það gilda reglur um
vinnutíma hjá opinberum
starfsmönnum sem eru ekki
það sveigjanlegar að þær
henti þessum verkefnum.
Auk þess eru sumir þessir
þættir unnir á hvaða tíma
sólarhrings sem er og vegna
ákvæða um yfirvinnu gæti
það margfaldað kostnaðinn
að hafa starfsfólk sjónvarps-
ins þar inni.“ „Við teljum það
hins vegar heppilegra að
festa þessa peninga innnn
veggja sjónvarpsins og segj-
um það koma stofnuninni
mun betur" sagði Ögmundur.
Hvað segir
tœknideildin?
Yfirmenn sjónvarpsins
segja hessa leið nauðsyn-
lega þar sem tæknideildin
anni ekki öllum þessum verk-
efnum. Starfsmannafélagið
finnur ekkert við það aö at-
huga ef að stórum hluta
starfsmanna tæknideildar
hefði ekki verið sagt upp nú
fyrr i vetur. Að sögn Eyjólfs
Valdemarssonar yfirmanns
tæknideildar sjónvarpsins
hefur tæknideildin verið á
kafi í verkefnum i vetur þann-
ig að hjá því hafi ekki verið
komist að leita út fyrir stofn-
unina. Vegna uppsagna
starfsfólks væri vissulega
meira að gera en þó einkum
hjá einstaka aðilum. „Hins
vegar tel ég það eðlilegt að
það sé keypt þjónusta úti i
bæ til þess að taka eðlilega
álagstoppa af okkur t.a.m.
fyrir jól og páska.“
Eyjólfur sagði jafnframt að
þau fyrirtæki er ynnu fyrir
sjónvarpið væru aðilar er
gætu gert hluti sem sjón-
varpið gæti ekki gert. „Mér
finnst það einnig mjög eöli-
legt að þegar við rúmum ekki
verkefni í okkar bókunarkerfi,
sé leitaó til annarra aðila.“
sagði Eyjólfur.