Alþýðublaðið - 16.04.1988, Page 3

Alþýðublaðið - 16.04.1988, Page 3
I.-- ? ^ • . r ( l » r r I r C'í'f I i ‘ 1 > • ' I ) J s _ .. ' J i i J Laugardagur 16-. aprfl-1988 - Gerður G. Ólafsdóttir og dr. Ólafur Proppe eru frummælendur á ráð- stefnu um kennaramenntun sem hófst í Reykjavik í morgun. Ráðstefna um kennaramenntun í kjölfar skýrslu OECD: ..ENGAR FRAMFARIR MEÐAN LAUNIN ERU SVONA LÁG‘‘ í morgun hófst í Reykjavík ráðstefna um kennaramennt- un á íslandi. Frummælendur eru Gerður G. Óskarsdóttir, kennslustjóri i uppeldis- og kennslufræðum i Háskóla Is- lands og dr. Ólafur Proppe, kennslustjóri við Kennarahá- skóla íslands. Á Alþingi hefur verið lagt fram frumvarp um Kennara- háskólann, en ráðstefnan núna er haldin i kjölfar skýrslu OECD um íslenska skóla. í skýrslunni er skóla- kerfið krufið til mergjar, en skólamönnum þykir mörgum fátt nýtt koma fram. „MaOur þóttist vita þetta allt áður,“ segir Gerður Óskarsdóttir, „en það er ágætt að þessu er safnað á einn stað. Að vísu er það slá- andi að skýrsluhöfundar segja það aftur og aftur að það þýði ekkert að tala um framfarir í íslenskum skólum meðan launin eru svona lág.“ í stjórnarfrumvarpinu um Kennaraháskólann er lagt til að kennaramenntun fyrir grunnskólakennara verði lengd I 4 ár, en það er nú 3 ár. Gerður segir að eðlilegt sé að menn velti þvi fyrir sér hvort ekki sé lika eðlilegt að lengja kennaramenntun þeirra sem starfa I framhalds- skólum úr 4 árum I 5 ár sem það er nú. Háskólanemi sem hyggst kenna í framhaldsskóla verö- ur miðað við núverandi ástand að Ijúka BA prófi I Há- skóla íslands (3-4 ára námi) og leggja slðan stund á kennslufræði og annað sem er nauðsynlegt til að hljóta tilskilin réttindi. Gerður Óskarsdóttir telur eðlilegra að flétta það nám inn i há- skólanámið og hverfa frá því fyrirkomulagi sem nú er að Ijúka réttindanáminu sér að loknu fagnámi. Fyrir nokkrum árum var nauðsynlegt há- skólanám til muna lengra í faggreininni, en með samn- ingum ríkisvalds og kennara- samtaka var þvi breytt og fag- nám stytt. Gerði kennslu- stjóra þykir tilhlýðilegt að hverfa að nokkru að því kerfi aftur með því að lengja há- skólanám. En hvers vegna? „Þaö er greinilegt að mörg- um finnst það ekki nóg að Ijúka BA prófi,“ segir Gerður. „Þetta á sérstaklega við um þá sem kenna a efri stigum framhaldsskólans. Að sumu leyti er þetta líka afturför frá því sem var, þegar íslensku- kennari hafði töluvert meiri fagmenntun en krafist er í dag.“ Gerður vill líka að námið verði fjölbreyttara en það er núna. „Námið verður að veita meiri möguleika, því að það eru svo mörg önnur störf í skólunum en kennsla." Nefn- ir hún m.a. námsefnisgerð kennara. Alls kyns námsefni sé á markaðnum sem sé ætl- að til kennslu, en sumt af því reynist óhæft vegna þess að höfundar kunni ekki nægi- lega til verka. „Það er margt annað gert í skólum en kennt. Það er t.d. alveg makalaust að ekki skuli vera hægt að mennta sig til þess að stjórna skólunum." Háskóli Islands hefur lagt tillögur fyrir menntamála- ráðuneyti um endurmenntun framhaldsskólakennara, en kostnaður er að sjálfsögðu ærinn. Ólafur Proppe annar frum- mælenda á ráðstefnunni seg- ir í viðtali við Alþýðublaðið að nauðsynlegt sé að tengja betur rannsóknir og kennslu í uppeldisstofnun eins og Kennaraháskólanum. Um það sé fjallað I stjórnarfrumvarpi um skólann sem liggi fyrir Alþingi. „Kennarháskólinn verður að þjóna betur kennurum af landsbyggðinni og þeim sem eiga ekki auðvelt með að leggja vinnu á hilluna tíma- bundið og demba sér í fullt nám,“ segir Ólafur Proppe. Fyrir stuttu hófu 100 „leið- beinendur" nám í Kennarahá- skólanum. Eru það kennarar sem hafa ekki tilskilin rétt- indi til kennslu I grunnskól- um. Beitt er fjarkennslu að hluta og búist við að náminu Ijúki 1991-1992. Telur Ólafur Proppe að ekki sé ósennilegt að einhverjir þessara kennara vilji þá halda námi áfram til þeirrar prófgráðu sem skól- inn menntarsitt námsfólk eftir að skólanum var breytt í háskóla, sem var fyrir rúmum hálfum öðrum áratug. Stefnt er að því að styðjast við fjar- kennslu í almennu námi skól- ans, sem er 3 ára háskóla- nám. Kæmi það sér vel fyrir þá sem ekki eiga heiman- gengt I dagskóla í Reykjavík. „Fólk tengir Kennarskól- ann gamla almennri fræðslu i landinu," segir Ólafur kennslustjóri, „og það mikil- vægt að skólinn ræki áfram þær skyldur. Þó að skólinn sé orðinn háskóli megum við aldrei gleyma því að almenn- ingsfræðsla og kennara- menntun eru samofin heild í okkar landi.“ SAGAN UMSIGVALDA OG FfÓRHJÓLEÐ! * Þetta er sagan um Sigvalda, sem vann stóra vinninginn í happdrættinu. Hvorki meira né minna en Mercedes Benz. Hann seldi bílinn þegar í stað og keypti sér Kjarabréf í staðinn. Þetta er svo sem ekki óvenjuleg saga, efþað væri ekki staðreynd að Sigvaldi ekur nú, eins og greifi, á Mercedes Benz, konan hans á Toyota Corolla og dóttursonur þeirra var tekinn úr umferð á nýju fjórhjóli í fyrradag. Þetta byrjaði með miða... Þú kannast ábyggilega við hann Sigvalda. Hann er búinn að vinna hjá borginni í fjöldamörg ár. Konan hans, hún María, vinnur á lögmannastofunni austur í bæ. Þú þekkir þau ábyggilega þegar þú sérð þau. Sigvaldi er mikill útilífsmaður. Hann er alltaf í einhverju ferðastússi allan ársins hring. Þess vegna komst hann ekki hjá því að kaupa happdrættismiða á árshátíð ferðaklúbbsins. Hann keypti að vísu ekki nema tvo miða. Vinningur í maí Árshátíðin var í mars, árið 1985. Nokkrum vikum seinna var dregið í-happdrættinu. Það er að segja þann 20. maí 1985. Vinningurinn, Mercedes Benz 190 E árg. 85, kom á númerið hans Sigvalda. Nú voru góð ráð dýr. Venjulegir borgarstarfsmenn eins og Sigvaldi aka ekki um á borgarstjórabílum. Slíkt bara gerist ekki. Happdrættismiði til sölu Það er ekki hægt að segja að hann Sigvaldi sé bjáni. Síður en svo. Að minnsta kosti segir hún María, að hann hefði átt að skella sér í pólitíkina, — í stað þess að vera félagi í SFRB. Það var ekki liðinn dagurinn þegar Sigvaldi var búinn að selja happdrættismiðann. „Ég fór bara og talaði við nokkra bíladellukarla. Einn þeirra borgaði miðann út í hönd,“ sagði Sigvaldi þegar hann kom heim með úttroðið veskið, rúmlega eina milljón í vasanum! Peningarnir á fast... Hún María gat ekki sofið um nóttina. Hún bylti sér á alla enda og kanta í rúminu. Hún sá fýrir sér innbrotsþjófa, gengisfellingar og alls kyns hörmungar. Sigvaldi aftur á móti svaf eins og ungabarn - með veskið undir koddanum. Morguninn eftir fór hann og ræddi við hann Pétur, ráðgjafa hjá Fjárfestingarfélaginu. Pétur ráðlagði honum að kaupa Kjarabréf, og aðstoðaði hann við kaupin. Þremur árum síðar... Laugardagurinn tuttugasti febrúar nítjánhundruð áttatíu og átta var stór dagur í lífi þeirra hjóna, Maríu og Sigvalda. Þau heimsóttu nýju söluskrifstofuna hjá Fjárfestingarfélaginu í Kringlunni strax og opnað var um morguninn. Þar fengu þau kaffisopa hjá Stefáni ráðgjafa og aðstoð við sölu á Kjarabréfunum frá 1985. ... nýr bíll og meira til! Þegar Sigvaldi seldi happdrættisvinninginn árið 1985 fékk hann 1.050.000 krónur fyrir miðann. Hann keypti Kjarabréf fýrir 1.049.580 krónur. Við sölu Kjarabréfanna fékk hann 2.685.422 krónur. Þannig gat hann samdægurs keypt sér 1988 árgerð af Mercedes Benz. Nákvæmlega sama bíl og var í vinning á sínum tíma, en auðvitað spánýjan. Bíllinn kostaði hann 1.360.000 krónur sléttar. Hann keypti þar að auki Toyota Corolla bíl fýrir Maríu. Corollan kostaði 505.000 krónur. Þar af leiðandi átti hann eftir 820.422 krónur, sem nægðu honum til að gefa Jónasi dóttursyni sínum splunkunýtt fjórhjól í fermingargjöf. Þá átti Sigvaldi ennþá eftir 630.422 krónur, sem hann vill ekki segja hvað hann gerði við. Hann Stefán hjá Fjárfestingarfélaginu veit allt um það, þó að hann segi engum frá því. Hann Stefán selur nefnilega Kjarabréf. • Þetta er alveg satt. Sögunni og nöfnum hefur að vísu verið breytt - af augljósum ástæðum! FJÁRFESriNGARFÉlAGIÐ __Kringlunni 123 Reykjavík 0 689700_ ósarfslA

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.