Alþýðublaðið - 16.04.1988, Qupperneq 7
Laugardagur 16. apríl 1988
Alþýðuflokkurinn hamast viö að svara spurningum, en gleymir að spyrja...
Guömundur Einarsson er
framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins. Frami hans á
stjórnmálavettvangi var skjót-
ur. Háskólakennarinn í l(f-
fræði, varð á einni nóttu að
loknum kosningum 1983
þingmaður fyrir Bandalag
jafnaðarmanna, og sat á
þingi þar til í fyrra. Guð-
mundur færði sig yfir í
Alþýðuflokkinn skömmu fyrir
lok siðasta kjörtimabils og
var í framboði fyrir flokkinn í
Austurlandskjördæmi 1987
en átti erfitt uppdráttar aust-
ur þar eins og fleiri kratar
fyrrum.
Hvers vegna kaus Guð-
mundur að gera út á Alþýðu-
flokk eftir fjöruga en róstur-
sama dvöl í BJ?
Er hljómgrunnur fyrir rót-
tæka stefnu í anda BJ í sós-
íaldemókratískum flokki?
Hvaða augum lítur Guð-
mundur á stjórnarsamstarf-
ið? Hvernig er sambúðin
innan garðs í Alþýðuflokki og
hvaö gerir framkvæmdastjóri
gamals og gróins flokks
dags daglega?
Mig langaði einfaldlega að
fá svör við áleitnum spurn-
ingum og bankaði þess
vegna upp á hjá Guðmundi,
þar sem hann býr á miðjum
Laugaveginum.
Stjórnmálaflokkur velur
sér ekki tíma til að
vakna á morgnana
— Er þetta ekki bévítans
vandræðagangur i dag í Al-
þýðuflokknum að vera i hlut-
verki viðgerðarmannsins?
„Stjórnmálaflokkur getur
ekkert valið sér tímann þegar
hann vill vakna á morgnana.
Alþýðuflokkurinn er firna
ábyrgur. Hugsaðu þér hvað
flokkurinn hefur lagt til.
Hugsaðu þér, Gylfi Þ. Gísla-
son leggur til auðlindaskatt
löngu áður nokkrum manni
datt í hug að peningum eöa
auðlindum væru takmörk
sett og Gylfi varar við offram-
leiðsu í landbúnaði á hárrétt-
um tíma. í atkvæðasnatti
dagsins í dag geturðu ekki
sagt að tillögur Alþýðu-
flokksins í dag um aðgeröir í
skattamálum, húsnæðismál-
um, dómsmálum, bankamál-
um o.s.frv. séu til að gæta
stundarhagsmuna.“
— Hafa menn tima til að
skilgreina jafnaðarstefnuna
um leið og hamast er i að
leiðrétta kúrsinn i þjóðfélag-
inu og stokka upp í stjórn-
kerfinu? Hvernig i ósköpun-
um á fólk að skynja að þetta
sé jafnframt i anda jafnaðar-
stefnu?
„Viö erum sammála um að
eitt hafi brugðist hjá Alþýðu-
flokknum í vetur, að hann
hefurekki útskýrt nægilega
fyrir sjálfum sér og öðrum
hvað hann er í raun að gera:
Hvers vegna er gengið
svona hart fram í skattkerf-
inu? Það er vegna þess að
viljum við hækka laun hjúkr-
unarfólks og kennara, þurfum
við peninga til þess. Við þurf-
um að efla réttlæti í skatt-
kerfi m.a. með þvi að koma í
veg fyrir skattsvik — og til
þess aö stemma stigu við
skattsvikum þurfum við að
einfalda skattkerfiö. Þetta
hafa forystumenn flokksins
sagt, en alls ekki nógu oft og
víða. Alþýðuflokkurinn er að
tala um enduruppskiptingu,
og þú getur það ekki nema
hafa einfalt, réttlátt og skil-
virkt tekjuöflunarkerfi. Það er
verið að reyna að koma
þessu að meðal fólks en nú
er bara því miður fjöldi fólks
búinn að gera upp hug sinn.
Þetta sé eitthvað ójafnaðar-
legt. Staðreyndin er sú að
breytingarnar nú stefna að
miklu meiri jöfnuði.
Alþýðuflokkurinn hamast
við að svara spurningum, en
gleymir að spyrja spurning-
anna sem fólkið kýs að
heyra. Hann leikur ekki hlut-
verk fréttamannsins að
spyrja en svara ekki eins og
fulltrúar Kvennalistans kom-
ast upþ með æ og sí.“
— Er nógu sannfærandi
/