Alþýðublaðið - 16.04.1988, Síða 15
Laugardagur 16. apríl 1988
15
FRÉTTASKÝRING
Kristján Þorvaldsson
skrifar
SÍS í hörkuvörn í kaffibaunamálinu:
RANN-
SÓKNAR-
LÖGREGLAN
VÍXLADI
SKEYTUM
Sambandið hefur undirbúið vörn í heilt ár, og fengið umsagnir
ýmissa opinberra stofnana: Ríkisendurskoðunar, tollstjóra, Gjald-
eyriseftirlits, Verslunarráðs, lagadeildar og viðskiptadeildar Háskóla
Islands. Málið tekið fyrir í Hœstarétti 4. maí nœst komandi.
Það hlakkaði i mörgum
fjandmanni SÍS fyrir rúmu ári
síðan, þegar dómur i kaffi-
baunamálinu var kveðinn upp
í Sakadómi Reykjavíkur. Mál-
ið þótti mikill áfellisdómur
yfir Sambandinu og æðstu
mönnum þess þar sem sann-
að var að um fjársvik hafi
verið að ræða. Erlendur Ein-
arsson fyrrum forstjóri var
sýknaður að fullu en talið
ósennilegt að hann hafi ekki
vitað betur.
Hjalti Pálsson, þá fram-
kvæmdastjóri Verslunardeild-
ar SÍS hlaut 12 mánaða fang-
elsisdóm, þar af 9 mánaða
skilorðsbundin. Þrir aðrir
starfsmenn hlutu dóma, þeir
Sigurður Árni Sigurðsson, 7
mánaða dóm, Gísli Theódórs-
son, 3ja mánaða dóm og
Arnór Valgeirsson, 2ja mán-
aöa dóm. Refsing þremenn-
inganna var skilorðsbundin
til tveggja ára. Allir áfrýjuðu
þeir til Hæstaréttar, þar sem
málið verður tekið fyrir 4. mai
næst komandi.
Fjársvik
Eftir að dómurinn var kveð-
inn upp í Sakadómi var að
frumkvæði Guðjóns B. Ólafs-
sonar forstjóra SÍS og Vals
Arnþórssonar stórnarfor-
manns ákveðið að fá utanað-
komandi aðila til þess að
greina viðskipti Sambandsins
Kaffibrennslu Akureyrarog
NAF, Noræna samvinnusam-
bandsins. Til þess að vinna
aö málinu var fenginn Guð-
mundur Einarsson verkfræð-
ingur, og í dag liggur fyrir
256 blaðsíðna skýrsla þar
,..l I* .l.i'jhjist f»* J 'fd *
sem viöskiptin umdeildu eru
rakin og fengnar umsagnir
ýmissa aðila til að varpa Ijósi
á heiðarleika í viðskiptunum.
í niðurstöðum Sakadóms
um sök, þar sem fjallað er
um innflutning sem SÍS ann-
aðist á árunum 1979-1981 á
hrákaffi fyrir KA (Kaffi-
brennslu Akureyrar) er komist
að þeirri meginniðurstöðu að
SÍS hafi gegnt umboðsskyld-
um gagnvart KA, og því hafi
KA borið fulla hlutdeild í af-
slætti.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Alþýðublaðsins
þá hefur þessi ferilgreining
Guðmundar, að fengnum um-
sögnum ýmissa opinberra
aðila og Norræna samvinnu-
sambandsins, leitt í Ijós að
ekki hafi verið um umboðs-
viðskipti að ræða heldur
venjuleg viðskipti. Samband-
ið hafi því keypt kaffi og
endurselt Kaffibrennslunni,
en ekki keypt i umboði Kaffi-
brennslunnar eins og gengið
er út frá í forsendum dóms
Sakadóms Reykjavikur. Eðli
viðskiptanna voru því verls-
unarkaup, en ekki umboðs-
viðskipti, aö mati skýrsluhöf-
undar.
„Fram er komið, að KA
greiddi SÍS umboðslaun
vegna hrákaffi viðskiptanna.
Telst SÍS þvi hafa borið að
gegna umboðsskyldum gagn-
vart KA,“ segir í niðurstöðum
Sakadóms um sök. „Eðli við-
skiptanna breyttist ekki þó
SÍS fjármagnaði hrákaffi-
kaupin, enda gat 3. aðili
annast það að óbreyttu sam-
bandi SÍS og KA. Þáði SÍS
sérstaka þóknun fyrir þessa
þjónustu, og var þessi þjón-
usta SÍS ekki þess eðlis að
nokkru breytti um réttarstöðu
aðila.“
Þá segir orðrétt í niður-
stöðum: „Tengsl fyrirtækj-
anna leystu SIS ekki undan
þeirri skyldu að uppfylla um-
boðssamninga þeirra á milli,
enda hefur SIS með stofnun
hlutafélags umleið undir-
gengist ákvæði laga og
reglugerða um viðskipti
tveggja lögaðila.
Það er þvi að mati dóms-
ins að sannað sé, að um hafi
verið að ræöa umboðsviö-
skipti, sem SÍS hafi innt af
hendi fyrir KA. Fyrir þetta
reiknaði SÍS sér umboðslaun.
Ekki voru hrákaffikaupin
færð í bækur SÍS sem inn-
kaup og síðan sem bein sala
til KA.“
Síðan segir, að miðað við
gang þessara mála sé það
mat dómsins, að KA hafi
borið allur afslátturinn. Þá
þykir notkun tveggja vöru-
reikningaog sú leynd, sem
hvíldi yfir viðskiptunum sýna
að þeim sem stóðu að þess-
um gerðum, hafi verið Ijóst,
að SIS ætti ekki óskorað til-
kall til afsláttarins.
Eðlileg viðskipti
Það sem Guðmundur Ein-
arsson átti að gera var að
svara hvernig þessi viðskipti
hefóu átt að fara fram, fyrst
þau voru dæmd ólögleg.
Hann kemst að þeirri niður-
stöðu samkvæmt staðfest-
ingu NAF, að viðskiptin
hefðu ekki getað átt sér stað
nema a milli Sambandsins
og Norræna samvinnusam-
bandsins. Samkvæmt reglum
NAF verður það að semja
beint við eigendur sína. Kaffi-
brennslan hefði því ekki
getað verið samningsaðili við
NAF.
Málið verður auðvitað
býsna flókið vegna þess að
Sambandið er aðili að NAF
auk þess að eiga 49% í Kaffi-
brennslu Akureyrar. Aðrir eig-
endur kaffibrennslunnar eru
KEA með 49% og síðan tvö
prósent sem skiptast á milli
Vals Anrþórssonar, stjórnar-
formanns SÍS, Jakobs Frí-
mannssonar, Guðmundar
Guðlaugssonar og kaffi-
brennslunnar sjálfrar.
Þó Ijóst sé að Sambandið
er þarna stór aðili, þá er sam-
kvæmt skýrslunni talið aö
Kaffibrennslan geti ekki verið
viðskiptaaðili við NAF, vegna
reglna þess um beina við-
skiptaaðild.
Til að fá svör við ýmsum
spurningum leitaði Guð-
mundur til ýmissa opinberra
aðila eftir umsögnum. Þannig
eru í skýrslunni umsagnir
aðilaeins og Ríkisendur-
skoðunar, gjaldeyriseftirlits
Seðlabankans, Tollstjóra,
Verslunarráðs, laga- og við-
skiptadeilda Háskóla Islands.
Skeytum ruglað
Þá hefur Alþýðublaðið eftir
áreiðanlegum heimildum að í
skýrslunni komi fram, að mál-
ið hafi í upphafi fengið mis-
skilda meðferð hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins vegna
þess að skeytum hafi veriö
ruglað í tímaröö. A þessu
atriði er talið að dómurinn
hafi gengið út frá röngum
forsendum í veigamiklu
atriði. Þetta mun NAF stað-
festa, samkvæmt skýrslu
Guðmundar.
Þannig mun Rannsóknar-
lögregla ríkisins hafa ruglað
saman tilboöi NAF til SIS og
hins vegar svari SIS við til-
boðinu. Svar SÍS lítur því út
sem fyrirmæli um það að
hækka verð á ákveðinni hrá-
kaffisendingu.
Rétta tímaröð skeytanna
hefur NAF staðfest. Skeytið
sem kom frá NAF var klukku-
stimplað, hitt skeytið ekki, en
NAF treystir sér til að stað-
festa vegna þess að það var
móttökustimplað. Þessi
skeyti gengu á milli sama
dag, en skeytið frá SÍS barst
eftir lokun og var ekki mót-
tökustimplað fyrr en næsta
vinnudag.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins mun skýrslu-
höfundur einnig hafa fengið
það staðfest hjá löggiltum
skjalaþýðanda, að viö rann-
sókn málsins.hafi ekki Itr-
ustu nákvæmni verið beitt
við þýðingu skeytanna. Þann-
ig mun allt skeyti SÍS hafa
verið þýtt, en aðeins ein
setning úr skeyti NAF.
í vitnaleiðslum telja Sam-
bandsmenn málin hafa verið
flækt og hið rétta hafi ekki
komist upp á yfirborðið. Þá
er ennfremur bent á að breyt-
ingar hafi verið á mannavali
og ýmsir starfsmenn sem
hiut áttu að máli hafi i raun
inni ekki skilió eðli viðskipt-
anna.