Alþýðublaðið - 16.04.1988, Side 18

Alþýðublaðið - 16.04.1988, Side 18
18 Laugardagur 16. apríl 1988 TÓNLIST Eiríkur Stephensen og Gunnar Ársælsson skrifa ...Fengið prýðisgóða rödd i vöggugjöf Tekið að birta... Þaö verður ávallt mikiö havarí og læti þegar útlendar poppstjörnur koma hingað til lands. Fjölmiölar keppast viö aö auglýsa viökomandi upp og alltaf fær maður aö vita „allt“ eða „sannleikann" um hlutaðeigandi. Engin undan- tekning var á þessu þegar strákgreyiö hann Boy George kom hingaö I kuldann I siö- ustu viku til þess aö syngja fyrir okkur laugardagskvöldiö 9. apríl I Laugardalshöll. Núna veit ég líka allt um George Alan O’Dowd, alias Boy George. Hvað hann var óþekkur í skóla þegar hann var minni og meö appelsínu- gult hár í þokkabót. Herma fregnir aö skólameistarinn hafi orðið brældur yfir háralit piltsins og sparkað honum heim „med det samme“. En viö lifum í nútímanum og síö- an þetta gerðist hefur mikið vatn runnið til sjávar hjá/frá Boy George. Hann lenti í arnarklóm fikniefnanna meö hræðilegum afleiöingum sem ekki veröa tíundaðar hér enda komið nóg af slíku. Stráksi slapp meö skrekkinn og er nú aftur mættur til leiks, reynslunni ríkari eftir aö hafa gengið i gegn um helvíti á jörö. Og allt í einu var kappinn kominn til íslands. Efnt var til keppni áðuren hann kom um þaö hver liktist honum mest. Og þaö vann víst einhver þá keppni þótt sumir liktust meira Fjalla-Eyvindi en Boy George. Sigurvegarinn fékk meira að segja að kynna nýj- asta myndbandið með goð- inu f íslenska listanum á könnuðust áheyrendur litið við þau lög. Hinsvegar könn- uðust þeir betur við ballöð- una Victims, slagarana Do you really want to hurt me, I would do anything og Miss me sem var lokalag tónleik- anna. Þegar þessi lög voru flutt tók mannskapurinn hressilega við sér. Nýju lögin hans Boy eru líka hin ágæt- ustu og mætti nefna Do you deal in black money og Sold sem dæmi. Það eru sterk soul áhrif í þeim og ekki laust við aö nafninu Simply Red skjóti upp í huga manns. Það kemur mér reyndar ekki á óvart því um helmingur hljómsveitarinnar eru svert- ingjar. Þetta er firnagott band sem hann Boy hefur nælt sér í og þótti mér mest koma til gítar og bassaleikarans (báðir svartir) sem voru með Boy í framlínunni. Þeir voru í mikiu fjöri út allan þann tíma sem tónleikarnir stóðu yfir og reyndar Boy lika sem lék við hvern sinn fingur. Aðrir meðlimir hljómsveitarinnar stóðu sig einnig með mikilli prýði og allir lögðust á eitt með það að gera þessa tón- leika að hinni bestu sam- komu. Frammistaða Boy George þetta kvöld var líka eins og best var á kosið. Það er deginum Ijósara að hann hefur fengið prýðisgóða rödd í vöggugjöf. Hann getur sungið vel og það gerði hann svo sannarlega. Ég held að það sé tekið að birta yfir lífi Boy George að nýju. Hvort hann nær sömu frægð og áður, það er svo aftur annað mál. G.H.Á. Stöð 2. Váá!!! Svo rann stóra stundin upp. Dyr boltahallar- innar voru opnaðar uppá gátt og nýríkur fermingalýðurinn ruddist inn með alla vasa fulla af fermingarseðlum frá hinu og þessu fólki héðan og þaðan. En áður en að strákn- um kom þurfti þessi sami lýður (ekki í niðrandi merk- ingu) aö hlýða á Geira Sæm og hljómsveit hans Hunangs- tunglið. í stuttu máli sagt var unun að heyra Geíra og félaga. Þeir spiluðu öll sín bestu og þekktustu lög s.s. Hasarinn og Rauður bíll og létu áhorfendur vel I sér heyra þegar það byrjaði að hljóma. Einnig voru ný lög á lagalistanum og mætti nefna Alex og Aftur til fortíðar sem bæði eru þrælgóð og situr það síðara þó heldur meira í mér en hið fyrra. Hunangstunglið er einstök hljómsveit hér á landi. Hún spilar framsækið rokk undir áhrifum frá hljómsveitum eins og King Crimson, Japan og e.t.v. fleiri sem ekki tekur aö nefna hér. Tónlist Hun- angstunglsins er þó ekki þung og tormelt heldur mjög áheyrileg. Pottþétt sveit bæði hvað varðar lagasmíðar og hljóðfæraleik enda ungir og metnaðarfullir menn (hér) á ferð. Þegar Geiri Sæm og félagar höfðu lokið sér af kom allangt hlé. Þá var rótað mikið til á sviðinu og fram- koma Boy George undirbúin af mikilli kostgæfni. Pétur Steinn Bylgjutappi hamaðist við að þeyta skífum fremst í hægra horni sviðsins og var i feikna stuði enda fær hann borgað fyrir það. Seinni hálfleikur tónleik- anna var leikinn undir stjórn írans Boy George. Öskur og píkuskrækir kváðu við þegar strákur stökk á svið. Áður hafði hljómsveitin, The Review, komið sér fyrir með miklu minni hávaða. Boy söng vel á annan tug laga en þess má geta að bakraddar- söngkonan söng einnig eitt lag undursamlega á meðan stjarnan skipti um galla. Meginuppistaðan í dagskrá Boy George var nýtt efni sem er væntanlegt á plötu frá honum á þessu ári. Eðlilega

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.