Alþýðublaðið - 16.04.1988, Side 19

Alþýðublaðið - 16.04.1988, Side 19
Láugardagur 16. apríl 198'8 19 Með Tónleikar Stjórnandi: Gilbert Levine, einleikari: Mischa Maisky. Efnisskrá: Leifur Þórarinsson: Haustspil (tileinkað minn- ingu Valdimars Pálssonar). Richard Strauss: Don Quixote, sinfónískt Ijóö. Beethoven: Sinfónía nr. 7 í A- dúr, poco sostenuto-vivace, Allegretto, Presto, Allegro con brio. „Haustspil" sem Leifur Þórarinsson samdi fyrir fimm árum siðan var opnunarverk tónleikanna. Ekki fannst mér þetta vera merkileg tónsmíð, allavega ekki eins og ég bjóst við af Leifi. Hljóðfæra- skipanin var góð en það vant- aði meiri fjölbreytileika í verkið. í Don Qoixote eftir Richard Strauss mátti heyra tvo afbragðs einleikara, þá Mischa Maisky sellóleikara sem túlkaði Don Qoixote og Helgu Þórarinsdóttur víólu- leikara sem túlkaði þjón hans Sancho Panza. Báðir þessir Betur Það væri synd að segja að ekkert væri að gerast í tón- leikabransanum hér á landi um þessar mundir. í hverri viku má berja fjölda hljóm- sveita augum viðsvegar um borgina. Og gildir þá einu hvort um er að ræða innlend- ar eða útlendar hljómsveitir. Fimmtudagskvöldið 7. apríl spilaði hljómsveitin Shark Taboo frá London fyrir gesti og gangandi í veitingahúsinu Lækjartungli. Upphitunarhljómsveit þetta kvöld var Mússólíní sem skipuð er fjórum ungum drengjum héðan úr Reykjavík. Undirritaður varð þeirrar gleði aðnjótandi að sjá þá og heyra á músiktilraunum i fyrra og leist mér þá mjög vel á sveit- ina. En nú var annað uppá teningnum og olli Mússólíní mér sárum vonbrigðum. Spilagleðin og húmorinn sem einkenndi þá í fyrra heyrist mér vera horfinn úr tónlist þeirra. í staðinn hefur myrkur og drungi færst í tónsmíðar þeirra. Tónlistin er vægast sagt tormelt og torskilin. Lögin voru mjög keimlik og það var eins og einhvern neista vantaði í allan flutning sveitarinnar. Einnig mega þeir vanda sig mun betur og allt er það spurning um æf- ingu og samþjálfun. Minnis- stæðasta lagið er John Merrick sem Purrkur Pilnikk sálugi þrykkti svo ógleyman- lega á plast á sinni fyrstu plötu, Tilf. Mússóliní er hljómsveit ung að árum og eiga þeir margt ólært. Þeir eiga líka eftir að taka út tón- listarlegan þroska þannig að ekki er öll von úti enn. Lundúnasveitin Shark Taboo hefur hinsvegar tekið út megnið af tónlistarlegum þroska sínum nú þegar. Þau spila nýbylgjurokk, breskt mjög, og er þaö vel. Hljóm- sveitin er ekki með öllu ‘ ókunnug íslandi því að í ágúst í fyrra kom hún hingað slakara móti Sinfóníuhljómsveitarinnar 14. apríl FORVAL Póst- og símamálastofnunin mun á sumri komanda láta leggja Ijósleiðarastreng frá Akureyri til Sauöár- króks alls u.þ.b. 115 km. Niðurlagning strengsins hefst utan þéttbýlismarka Akureyrar og Sauöár- króks. Þeir sem kynnu að hafa áhuga á aó (gera tilboð í lögnina) vinna verkið sendi stofnuninni upplýsingar um vélakost og einingaverö þeirrafyrir26. apríl 1988. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Tækni- deildar, Landsímahúsinu vió Austurvöll 19. apríl 1988. „Virtist í essinu sínu,“ segir Eirík- ur um bandariska hljómsveitar- stjórann Gilbert Levine. einleikarar skiluðu hlutverk- u.m sínum með stakri prýði sérstaklega þó sellóleikarinn Mischa Maisky, sem lék aðal- hlutverkið ( verkinu. Aftur á móti fannst mér hljómsveitin vera með slakara móti þetta kvöld, og þá sérstakleg í þessu verki. Beethoven blessaðurvar náttúrlega síðastur á dagskrá eins og endra nær, þessi Beethoven sinfónía fannst mér best flutta verkið hjá hljómsveitinni, en þó hefði hún getað gert betur. Það var gaman að fylgjast með stjórnandanum, Gilbert Levine, á þessum tónleikum, sérstaklega ( síðasta verkinu, en þávirtist hann i essinu. Næstu tónleikar Sinfóní- unnar verða 21. apríl. Stjórn- andinn verður Páll P. Pálsson og einleikararnir verða Ursula og Ketill Ingólfsson ásamt dætrum þeirra, Judith 13 ára og Mirjam 12 ára. Á efnis- skránni verða A-dúr fiðlu- konsert Mozarts, Rococco til- brigði Tsjækovskys og Sprengidagur dýranna eftir Saint Saéns. E.S. má ef duga skal til lands og spilaði í Reykja- vík og á Akranesi. Shark Taboo byrjaði dagskrána á kröftugu og þrælgóðu lagi sem kallast Catch me en því- næst var keyrt í I cry for you. Titillag dvergbreiðskífunnar (Mini LP) Ev’ry one’s a Freak var næst á dagskrá. Þetta er hið allra skemmtilegasta lag þar sem mest ber á hráum Bresk nýbylgja, skemmtilegur söngur en vantar meiri sér- einkenni. gítarleik sem reyndar er aðalsmerki Shark Taboo eins og svo margra annarra ný- bylgjusveita. Greinilegt var að heyra á viðstöddum að þeir þekktu vel áðurnefnt lag og klöppuðu þeir hressilega i lok þess. Sumir voru jafnvel byrjaðir að dansa af miklum móð enda lagið vel dans- hæft. í næsta lagi, Game, var hægt á ferðinni. Ekki var ég nú allskostar sáttur við það lag og fór frekar blæbrigða- laus hljómborðsleikur í taug- arnar á mér. Minnti mig á Baraflokkinn af þeirra fyrstu plötu. Næstu tvö lög, Disputed words og Touch & Glow, fannst mér ég hafa heyrt bæði áður og oftar en einu sinni. Þetta geröi þao ao verkum að þau runnu mér fljótt úr minni. Kuldalagið, Coming from the Cold vakti hinsvegar athygli mína sök- um ágætrar laglinu og skemmtilegs söngs söng- konu sveitarinnar, Gill Dwyer. Shark Taboo spilaði tvö lög til viðbótar og var svo klöpp- uð upp. Varð þó nokkur bið á þvi að uppklappslögin yrðu spiluð því bassaleikarinn sleit streng í hljóðfærinu og hafði gleymt aukastrengjun- um heima. En allt reddaðist þetta fyrir horn og flutti sveitin fjögur aukalög enda var hún klöppuð upp í annað sinn. Tónlist Shark Taboo er eins og áður hefur verið minnst á, bresk nýbylgja. Það er ekki hægt að segja að hún færi fram nýjungar í tónsmíð- um sínum og eru þær undir sterkum áhrifum frá hljóm- sveitum eins og Comsat Angels, Siouxie & the Banshees og jafnvel Ultravox. Shark Taboo er alls ekki slæm hljómsveit en að mínu mati vantar meiri séreinkenni og persónulegri stil til þess að hún eigi von um að skapa sér nafn i hinum stóra heimi breskrar dægurtónlistar. Póst- og símamálastofnunin AUGLÝSING frá Tilraunastöðinni á Keldum um breyttan opnunartíma. Tilraunastöö háskólans í meinafræði verðuropin frá 1. maí n.k., mánudaga - föstudaga kl. 8-12 og 13-16. KRATAKOMPAN Alþýöuflokksfélag Garðabæjar og Bessastaöahrepps Aöalfundur og bæjarmálaráðsfundur veröur haldinn að Goðatúni 2, Garðabæ mánudaginn 18. apríl kl. 20.30. Stjórnin SUJ í líkamsrœkt Hittumst í sturtunni í Engihjalla! Ungkratar eru þeirrar skoðunar að heilbrigð sál þrifist best í hraustum líkama. Þess vegna hefur verið ákveðið að hittast reglulega i Æfingamiðstöðinni í Engihjalla, klukkan 12 á laugardögum. (I sama húsi og Kaupgarður). Bjarni P. Magnússon, borgarfull- trúi, verður sérstakur heiðursgarpur á fyrstu æfingunni á laugardaginn kemur. Opinn fundur um umhverfismál í Alþyðuhúsinu í Hafnarfirði laugardaginn 16. apríl kl. 14.00. Frummælendur: Garðyrkjustjóri Hafnarfjarðar, formaður heilbrigðis- ráðs Hafnarfjarðar, formaður Náttúruverndarnefnd- ar Hafnarfjarðar og fulltrúi Skógræktarfélags Hafn- arfjarðar og Garðabæjar. Alþýðuflokksfélögin í Hafnarfiröi. Vorfagnaður hjá Alþýðuflokksfélögum í Kópavogi verður í Félagsheimili Kópavogs Fannborg 2, laugar- daginn 23. apríl. Samkoman hefst með borðhaldi kl. 20.00. Miðaverð 2.300.00 Vinsamlegast látið vita um þátttöku í síma 42429 eða 45051. Kær kveðja Skemmtinefndin.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.