Alþýðublaðið - 16.04.1988, Síða 20

Alþýðublaðið - 16.04.1988, Síða 20
20 Laugardagur 16. apríl 1988 IN MEMORIAM: Frú Gerður Björgmundsdóttir frá Kirkjubóli í Valþjófsdal. Fædd 25. maí 1945 — dáin 7. apríl 1988 „Hvert mannsbrjóst áein- hvern innsta róm, sem orð ekki fann að segja“. Lífshlaupið er sem sólar- gangurinn. Þar skiptist á skin og skuggi, enginn okkar kemst hjá því að myrkvun sorgarinnar sæki á sálu og skapi skammdegi í okkar innsta umhverfi, í okkar innsta sjálfi. En Skugginn verður skelfi- legur, dimmur, kaldur og van- máttarkenndin kæfir allar hlýjar tilfinningar til tilver- unnar, þegar samferðamaður á miðjum starfsdegi — móðir ungra barna og stálpaðra sem eru að hefja starfsdag sinn — eiginkona og félagi er kölluð burt og hverfur bak móðunnar miklu. Skugginn sem skapaðist og varð að niðamyrkri varð ekki numinn burt — sjúk- dómurinn ógnvægilegi hafði sigrað. Hver láir okkur þótt spurt sé og efast um tilgang alls þessa, þótt vitundin um bjart- ari lífsvang sé huggun í harmi — eru ómar efans í huga og heyrn sárir. En skáldið heldur áfram: „En þögn vora meistarinn dregur i dóm en dauðann knýr sér að hneigja. Allt býr hann i liti, Ijós og hljóm. Lífsríkið hugirnir eygja. En jörðin öll er í eyði og tóm, er ómarnir síðustu deyja.“ Gerður Björgmundsdóttir var fædd að Kirkjubóli í Val- þjófsdal Önundarfirði, dóttir Ágústínu Bernharðsdóttur og Björgmundar Guðmundsson- ar, bónda þar. Á Kirkjubóli ólst hún upp í hópi systkina sinna við hefð- bundin sveitastörf og leik. Skólagangan hófst í Ön- undarfirði en framhaldsnám sótti hún í Reykjanesskóla við ísafjarðardjúp. Þar kynnt- ist hún Kristjáni Grétari Jónssyni frá Stöðvarfirði, sem upp frá því var hennar samferðamaður. Gerður fór ung frá fööur- garði með sínum samferða- manni og síðar eiginmanni og stofnaði sitt heimili á Stöðvarfirði, sem alla tíö bar merki hug og handar vest- firskrar ættar og uppruna, sem Gerður var stolt af. Geröur og Grétar byggðu stórt á Stöðvarfirði og var ánægjulegt að sjá hversu samtaka þau voru viö þær framkvæmdir, en stærst var þó barnalán (oeirra, en þau eiga fimm börn:, Ágústa Björg, f. 1967, Drífa Jóna f. 1969, Jón Valdimar f. 1978, Steinunn Gerður f. 1982 og Anna Sigríður f. 1985. Heimili þeirra var oft fjöl- mennt af ættingjum og vin- um, það virtist alltaf vera pláss hjá Gerði og Grétari. Gáski og glaðværð réði þar löngum en festa húsmóður- innar brást þó aldrei börnum og búi. Hjá þeim var gott að vera hvort sem stormur stæði í fang eða tilveran björt og blíö. Þegar Grétar gerðist starfs- maður Rarik árið 1971 sem rafveitustjóri á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Breiðdalsvík varð Gerður ólaunaður stað- gengill hans við símavörslu, skilaboðsstjóri, svo nútíma- hugtak sé notað. Skrifstofa Rarik var löngum á heimili þeirra með öllu því ónæði og átroðningi sem það olli. Heimili þeirra var ávallt op- ið starfsmönnum Rarik, kaffi á könnu eða máltíð á diski var til reiðu dag og nótt. Ég bar virðingu fyrir Gerði Björgmundsdóttur, hún var sönn dóttir Vestfjarða, skap- gerð og viðmót hennar einarölegt en hlýtt, dugur og djarfhugur lýstu sér í orði og athöfn — greind og skoðana- föst var Geröur en lét aðra um sinar skoðanir. Rafmagnsveitur ríkisins og starfsmenn á Austurlandi vilja þakka allar bjartar stundir, gestrisni og vináttu- þel, sem Gerðurveitti fyrir- tækinu og starfsmönnum þess. Sjálfur vil ég kveðja með oróum skáldsins: „En þar brástu vængjum á fagnandi flug, sem frostnætur blómin heygja. Þar stráðirðu orku og ævidug sem örlög hvern vilja beygja. — Mér brann ekkert sárar í sjón og hug en sjá þinar vonir deyja.“ Kærar þakkir Gerður. Grétari vini mínum, börn- um, foreldrum og systkinum, sendi ég hugheilar samúðar- kveðjur, megi góðurGuð styrkja ykkur og víkja burt dimmum skuggum sorgarinn- ar með björtum minningum samferðatímans. Guð blessi minningu Gerðar Björgmundsdóttur. Erling Garðar Jónasson VERÐLA UNAKROSSGÁTA NR. 23 Stafirnir 1-23 mynda máls- hátt sem er lausn krossgát- unnar. Sendið lausnir á Al- þýöublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík. Merkið umslagiö vinsam- legast: Krossgáta nr. 23. Verðlaun eru að þessu sinni bók Kristjáns Jóhanns Jónssonar, Undir húfu tollar- ans. Iðunn gefur bókina út. Skilafrestur fyrir þessa krossgátu er 5. maí. Dregið var úr réttum lausn- um viö 20. krossgátu. Réttur málsháttur var: Ekki er alit gull sem glóir. Verðlaunahafi reyndist vera Svanhildur Þengilsdóttir, Kriuhólum 2, 111 Reykjavík. Fær Svanhildur senda Ijóða- bókina hennar Steinunnar Sigurðardóttur, Kartöfluprins- essuna. Við þökkum þátttökuna og minnum á skilafresti. Sendandi: Verðlaunabókrn aó þessu sinni. 5 10 15 I I 20

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.