Alþýðublaðið - 21.04.1988, Qupperneq 1
Framleiðslustýring í kartöfluframleiðslu:
STRÍDSYFIRLÝSING VIÐ NEYTENDUR
Segir Jónas Bjarnason hjá Neytendasamtökunum. Páll Guðbrandsson hjá kartöflufram-
leiðendum segir einhug um að til stýringar þurfi að koma.
Landssamband kartöflu-
framleiðenda ræðir nú um að
koma á framleiðslustýringu i
kartöfluframleiðslu, og miðar
þeim viðræðum vel. Ekki hef-
ur verið ákveðið nákvæmlega
hvernig fyrirkomulag verður á
stýringunni. Jónas Bjarnason
hjá Neytendasamtökunum
segir að aldrei muni ganga
að skipta upp framleiðslu- og
sölurétti gagnvart íslenskum
neytendum, og það sé móög-
un við þá að hlusta á megnið
af því sem framieiðendur
hafa borið á borð fyrir fólk.
Segir hann að skv. stjórnar-
skránni megi ekki takmarka
atvinnufrelsi fólks nema
almenningsheill krefjist, og
hann mótmæli því að
almenningsheill krefjist þess
að réttur til að framleiða
kartöflur verði takmarkaður.
Ef taka eigi upp það kerfi
sem var hér áður, sé það
nánast striðsyfirlýsing við ís-
lenska neytendur.
í fyrradag stóð til aö halda
fund hjá Landssambandi
kartöfluframleiöenda, en hon-
um var frestað þar til í næstu
viku.
„Viö erum aö ræða fram-
leiöslustýringu af fullri alvöru
okkar í milli. Viö bændur er-
um aö reyna að komast aö
samkomulagi um fram-
leiðslustýringu og þaö geng-
ur mjög vel þaö sem af er,“
segir Páll Guðbrandsson for-
maöur Landssambands
kartöfluframleiðenda í sam-
tali viö Alþýðublaðið. Segir
hann aö ekki sé búiö að
ákveöa endanlega hvernig
fyrirkomulag veröi á fram-
leiðslustýringunni. „Þaö eru
allir mjög á því aö þetta þurfi
aö koma,“ segir Páll.
Jónas Bjarnason hjá Neyt-
endasamtökunum segir í
samtali viö blaðiö að þetta
myndi enda meö afturhvarfi
til sama ástands og áöur
ríkti, og er búið aö fara í
vaskinn einu sinni.
„Það getur aldrei gengiö
aö þeir ætli aö skipta upp á
milli sín framleióslu- og sölu-
rétti gagnvart íslenskum
neytendum, þaö getur aldrei
gengiö. Vegna þess aó þeir
ráöa ekki yfir neinu kerfi, og
geta aldrei gert þaö sem
hagsmunasamtök, sem skilur
sauöina frá höfrunum sér-
staklega á þeim tímum þegar
framleiöendurnir eru senni-
lega orönir alltof margir í
greininni. Þetta er þaö aug-
Ijósasta sem til er, og þaö er
móögun viö íslenska neyt-
endur aö hlusta á megniö af
þessu sem þeir hafa verið aö
setja á borö fyrir fólk.“
Segir Jónas, að ef fram-
leiðendur ætla að mynda
samtök um að skipta fram-
leiðslurétti á milli sín og
halda uppi lágmarksverði, án
þess að átta sig á því hvernig
fjölda framleiðenda á aö
stjórnast, og hvernig eigi aö
veita framleiðsluleyfi, sé það
dæmt til að mistakast. Það
standi í stjórnarskrá Islands,
aö takmörkun á atvinnufrelsi
sé ekki heimil á íslandi,
nema almenningsheill krefj-
ist þess, og skuli þaö þá gert
með lögum. „Ég mótmæli þvl
að almenningsheill krefjist
þess aö réttur manna til aö
framleiða kartöflur á íslandi
veröi takmarkaður, og fram-
leiösluhópnum lokaö af nú-
verandi hagsmunasamtök-
um.“
Aö sögn Jónasar hafa
Neytendasamtökin haft
spurnir af þessum aðgerðum,
og minntist hann á fyrir-
komulagió eins og þaö var
hér áöur fyrr, er aö hans
sögn, kartöflubændur
skömmtuöu kartöflur inn í
Grænmetisverslun ríkisins.
„Ef þeir halda aö þeir geti
tekiö upp gamla kerfiö þá er
þaö nánast stríösyfirlýsing
viö íslenska neytendur," segir
Jónas Bjarnason.
Grandi:
FIMMTÍU MANNS
MISSA VINNUNA
Um hálfþrjúleytiö í gær var
starfsfólki Granda í frystihús-
inu i Noröurgaröi, tilkynnt
um breytingar á rekstrinum
sem leiöa til þess aö 50
manns verður sagt upp störf-
um. Starfsfólkið var boðað á
sérstakan fund í matsalnum
þar sem ákvöröunin var til-
kynnt. Uppsagnir veröa ekki
sendar út fyrr en um helgina.
Eftir fundinn meö starfs-
fólkinu boöaöi Brynjólfur
Bjarnason forstjóri til fundar
meö blaöamönnum, þar sem
tjáö var að uppsagnirnar
kæmu til vegna verulegra
skipulagsþreytinga og endur-
bóta á starfsemi frystihúss-
ins, versnandi afkomu fisk-
vinnslu vegna aukinnar sam-
keppni erlendra fiskframleiö-
enda og fyrirsjáanlegs tap-
reksturs á starfsemi fyrirtæk-
isins.
í frystihúsinu í Norðurgaröi
starfa um 120 manns en meö
tilkomu nýrrar vinnslulínu
veröur ekki þörf fyrir nema
um 70 manns. Alls vinna 373
hjá Granda. Vinnslulínan sem
sett verður upp í Noröurgaröi
hefur aö sögn forsvarsmanna
fyrirtækisins veriö notuð
undanfarin tvö ár í Granda-
garói meö góöum árangri.
Þar hefur einnig veriö unniö i
hóplaunakerfi og hafa launa-
greiðslur starfsfólks og
afköst vinnslunnar sannað
ágæti sitt, aö sögn forsvars-
manna Granda.
Aö vonum var þungt hljóó í
starfsfólki sem Alþýðublaðið
ræddi við í gær. Fámennt var
i húsinu þar sem ekki var
boðað til blaðamannafundar-
ins fyrr en aö ioknum starfs-
degi. Ákvörðunin virtist koma
fólki algjörlega í opna
skjöldu.
Á dyrunum viö innganginn
í matsalinn hékk auglýsing
þar sem stóð: „Tryggið ykkur
sumarfrí á réttum tíma og
auðveldið okkur ráöningu
afleysingarfólks."
Audur salur í frystihúsi Granda i gær. A-mynd/Þ.H.
Þórhallur Helgason
EKKI ORÐIÐ VAR
VIÐ ERFIDLEIKA
„Nei. Ég hef ekki oröió var viö erfiðleika í
rekstrinum," sagöi Þórhallur Helgason starfs-
maöur í Norðurgarði við Alþýðublaðið eftir
fundinn meö forstjóra Granda í gær.
Þórhallur sagöi aö fólk hefði tekið þessu
þungt, og tilkynningin heföi virst koma því í
opna skjöldu. „Þaö er mikið hér af eldri konum,
sem hrýs hugur við að fara aö leita eftir annarri
vinnu," sagöi Þórhallur.
Anna Norris
ALGJÖR
ÓVISSA
„Það veit enginn hvaö tekur viö því uppsagnar-
bréf eiga aö berast ööru hvoru megin viö helg-
ina. Þaö ríkir algjör óvissa hjá fólki þangað til,“
sagði Anna Norris verkakona í Norðurgarði viö
Alþýðublaöið i gær. Anna hefur unniö í frysti-
húsinu í 10 ár.
„Þaö fóru allir heim eftir fundinn, þannig aö
fólk hefur ekki náð aö tala saman,“ sagöi
Anna. „Þaö veit enginn hver lendir í þessu.“