Alþýðublaðið - 30.04.1988, Page 15
Laugardagur 30. apríl 1988
15
Guörún var stórvel gefin,
og auk þess svo fallega
skapi farin, aö ég man hana
varla ööruvísi en brosandi.
Ég læröi margt af henni í eld-
húsinu eöa stofunni, og alltaf
skein í gegn bjargföst trú
hennar á jafnaöarstefnu og
flokknum okkar. Hún var já-
kvæð í öllum viöhorfum, og
baráttugleöi hennar kom ekki
fram í illmælum um and-
stæðinga. Þannig eru bestu
stuðningsmennirnir, sem
pólitísk stefna getur átt.
Ásgeir bóndi hennar er aö
þessu leyti eins, svo aö þessi
samhentu hjón voru máttar-
stólpar í flokki jafnt sem hér-
aösmálum. Eru þau trúnaðar-
störf mörg, sem þeim hafa
verið falin, og jafnan hafa ver-
ið unnin af takmarkalausri
fórnfýsi og vilja til aó láta
gott af sér leiða.
Jafnaöarstefnan er ekki að-
eins pólitísk kenning, heldur
einnig lífsskoöun. Aö berjast
fyrir aöstoð við þá, sem
standa höllum fæti, gegn fá-
tækt, fyrir öryggi gegn sjúk-
dómum og rétti til menntun-
ar, endurspeglar innri mann
áöuren það mótar löggjöf
þjóðfélagsins. Persónuleiki
Guðrúnar bar allur vott um
þetta. Þess vegna var alltaf
hughreysting og ánægja að
eiga þessa brosmildu og
fögru konu að.
Þegar heimilishagir breytt-
ust og dæturnar sóttu til
framhaldsnáms, fluttu þau
Guörún og Ásgeirtil Reykja-
vikur. Hiö fagra heimili var
sett upp viö Stóragerði. Kom
fljótt í Ijós, aö þau þóttu ekki
síður liötæk í hinu pólitiska
félagsstarfi hér en heima í
Hólminum.
UR BILL - TÆKNILEGA VEL BUINN ■HAGKVÆMURIREK
Rafdrifnar hurðaruður
Alfelgur 3Vi x 14"
Litað rúðugler
Samlæsing á huxdum
Vélin frá PORSCHE I hyskalandi
étting hönnuð af þjóöverjanum Karman
t MINNING +
Minningarorð
Guðrún Lilia Kristmannsdóttir
Alþingismenn feröast mik-
iö um víölend kjördæmi sín
og eru oft hvfldarþurfi eftir
síðasta fund aö kvöldi. Til
skamms tíma hefur þaó verið
hefö — og er ef til vill enn —
aö áhugasamir flokksmenn
bjóöa þingmönnum gistingu.
Þannig atvikaöist þaö í
Stykkishólmi fyrir mörgum
árum aö hjónin Guðrún Lilja
Kristmannsdóttir og Ásgeir
Ágústsson skutu skjólshúsi
yfir undirritaöan. Þau áttu
fagurt menningarheimili, sem
húsfreyjan stýröi af frábær-
um myndarskap. Fjölskyldan
var samhent sómafólk. Þá var
Kristmann faöir Guörúnar
enn á lífi, aldraöur frumherji í
rööum jafnaðarstefnu og al-
þýöubaráttu. Hjónin áhuga-
söm og fróð um landsmál og
héraðshætti. Dæturnar stór-
efnilegar.
Þátttaka í þjóömálum er
sjaldan nema einn þáttur i lífi
og starfi fólks. Ég kynntist
Guörúnu heitinni og fjöl-
skyldu hennar á þessu sviöi
og geri þaö þvi aö umræðu-
efni. En aö sjálfsögöu átti
hún mörg önnur áhugamál
og gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum, enda félagslynd og
hverjum málstað trygg, sem
hún lagöi hug á.
Þaö er erfitt aö skilja eða
sætta sig viö þá fregn, að
Guörún sé látin langt um ald-
ur fram. Mestur er þó harmur
Ásgeirs og dætranna tveggja,
Maríu og Guöbjargar. Til
þeirra beinist nú hugur hinna
mörgu vina meö einlægri
samúö.
En Guörún mun lifa bros-
andi í minningum okkar.
Benedikt Gröndal
Utboð
''//V/M
Sm
VEGAGERÐIN 1988.
Súgandafjörður 1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum
í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 3,2
km, fylling 31.500 nr og burðarlag
11,500 m3.
Verki skal að fullu lokið 20. september
Útboðsgögn verða afhent hjá
Vegagerð ríkisins áísafirði og í Reykja-
vík (aðalgjaldkera) frá og með 3. maí
n.k. Skila skal tilboðum á sömu
stöðum fyrir kl.-14.00 þann 16. mai
1988.
Vegamálastjóri
rj rJ
SJSJ
h)
\
ii Ji
r<
r-»
y
.■■■ .