Alþýðublaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 1
Bráðabirgðalögin út í hött. „Við uppfylltum þœr kröfur sem gerðar voru til okkar; en það er ekki hœgt að segja um stjórnvöld, “ segir Pétur Pétur Sigurðsson forseti Alþýðusambands Vestfjarða segist vona í lengstu lög að rikisstjórnin kippi til baka ákvæðum bráðabirgðalaga sem gera græn strik óvirk í kjarasamningum á Vestfjörð- um. „Við treystum á að þaö komi ekki tii átaka og við fá- um endurskoöun á okkar samningi. Annars verðum við bara að sýna hvers við erum megnum, til að berjast fyrir réttlátum hlut,“ sagöi Pétur við Alþýðublaðið í gær. Seðlabankinn INNLÁN VERD- TRYGGÐ Bankastjórn Seðlabankans hefur ákveðið að heimila verötryggingu á sparifé sem er með innan við 2 ára bindi- tima, er þetta gert með sam- þykki viðskiptaráðherra og taka þessar reglur gildi 1. júlí n.k. Á þetta við um skiptikjara- reikninga bundna og óbundna, þar sem kjör ráðast af samanburði milli ávöxtun- ar með vísitölubindingu annarsvegar og nafnvöxtum hins vegar á ákveðnu tíma- bili. Frá og með næstu ára- mótum skal samanburðar- tímabilið ná yfir minnst 6 mánuði i senn. Þetta á einnig viö um verðtryggða reikninga með minnst 6 mánaða bind- ingu. Innistæður sem eru á verð- tryggðum sparireikningum nú með skemmri binditíma en 6 mánuði, verða áfram verð- tryggðar þar til innistæðan hefur verið tekin út, en ekki veröur tekið við fé inn á slíka reikninga frá og með 1. júlí. Orlofsreikningar verða verð- tryggðir svo og skyldusparn- aðarreikningar. Kaupmáttur var meiri fram að 1. júní en samið var um á Vestfjörðum, þannig að ekki kemur til endurskoðunar samningsins nú. Allt bendir hins vegar til að gengisfell- ingin geri að verkum að kaupmáttur fari niður á við fram að næstu endurskoðun sem á að vera i október. „Þá fyrst er búið að brjóta á okkur,“ sagði Pétur, „en við komum bara engum vörnum við. Erum vopnlaus. Ég álít að þessi bráðabirgðalög séu algjörlega út i hött, vegna þess að þau binda ekki neitt nema þá aðila sem búnir voru að gera kjarasamninga og sýndu ríkisstjórninni það traust aö hún myndi standa við sitt.“ Pétur sagði að Vestfiróing- ar hefðu gert kjarasamning, hógværan mjög, á undan öll- um öðrum í trausti þess að kaupmáttur samningsins stæðist út árið. Það hafi einnig verið gefið út af ríkis- stjórninni að launahækkanir mættu ekki vera nema þetta litlar ef takast ætti að sigla skútunni framhjá öllum boð- um. „Við vissum reyndar að gera þyrfti eitthvað meira. Að það þyrfti líka að stöðva fjár- magnseigendur í sinni iðju við að féfletta almenning. Við uppfylltum þær kröfur sem gerðar voru til okkar, en það er ekki hægt að segja það sama um stjórnvöld." Pétur sagði að hvergi hafi verið að sjá neinn sparnað í ríkis- rekstrinum. Þvert á móti hafi hækkanir hjá opinberum aðil um verið leyfðar trekk i trekk og vaxtamálin fengið að þró- ast án nokkurs eftirlits. „Það er ekkert gert i mál- inu og það er grátlegt, að það skuli vera Alþýðuflokks- ráðherrar sem þarna halda um stýrið. Ég verð að segja að ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með viöskiþta- ráðherra, þá ofurtrú hans að frelsi í vaxtamálum lækki vextina,“ sagði PéturSig- urðsson. Á laugardagskvöldið sæmdi Vigdis Finnbogadótlir forseti íslands VladimirAshkenazy stórriddarakrossi hinnarislensku lálkaorðu. Listamaðurinn héit tónleika á laugardag á Listahátið 1988, en hann er einn af frumkvöðlum hátiðarinnar og hlaut orðuna fyrir störf sin að menningarmálum. A- mynd G.T.K. FÓLKSFJÖLDI OG HEILBRIGDI ÁRID 2010 „íraun má segja að helsta verkefnið á sviði heilbrigðismála nú og í nœstu framtíð œtti að vera að bœta lífið við árin fremur en árum við lífið... Það er ein af mótsögnum samtímans að auk- inni hagsœld fylgi ekki bœtt heilsufar nema að ákveðnu marki, “ segir Jón Sigurðsson, ráð- herra, íumræðugrein sinni um mannfjölda og heilbrigðismál sem birt er íopnu Alþýðublaðs- ins í dag.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.