Alþýðublaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 21. júní 1988 7 UTLÖND Umsjón: ingibjörg Árnadóttir RENGIST BÚI Aðeins sjö ár eru liðin, frá því að olíutekjur Saudi- Arabíu námu 100 milljörðum dollara, sem hægt var að nota til að gera lífið þægi- legra í þessu volduga en mannfáa ríki. Valdamenn i Riyadh reikna meö að tekj- urnar i ár verði um 28 mill- jarðar dollara, svo nú fer að harðna í ári. Fyrsta hátekjuárið í Saudi- Arabíu var 1974, þegar olíu- verðið fjórfaldaðist. Árið 1983 voru Saudi-Arabar farnir að takmarka olíuframleiðsluna til að halda háu olíuverði. Olíuverð hélt þó áfram að lækka, jafnvel þó framleiðsl- an væri takmörkuð. Tilraunir Saudi-Arabíu og OPEC-land- anna til þess að fá olíufram- leiðendur utan OPEC, til að minnka framleiðsluna fór út um þúfur og verðið hélt áfram að falla. Nýir tímar Árið 1985 breyttu Saudi- Arabar um stefnu. Nú var framleiðslan aukin, til þess að lækka verðið í því skyni, að það yrði hreinlega óarð- bært að vinna olíuna, og að olíuframleiðendur utan OPEC, væru tilneyddir að komast að samningum við Þeir voru tímar að Saudi-Arabía óð í olíu og dollurum. „Nú verðum við að sýna, að við höfum kunnað að nýta tíu ára góðœri“, segir ungur Saudi-Arabi, sem nú sér fram á atvinnuleysi og það sem því fylgir. Ennþá eru til miklir fjármunir í Saudi-Arabiu. Myndin er tekin hjá verðbréfasala í höfuðborginni Riyadh. aðila bæði innan og utan OPEC, til þess að ná tökum á olíuveröinu. Þannig var allavega opin- bera útskýringin. Orðrómur var þó um, að þessi breyting á stefnu Saudi-Araba í verði á olíu, væri einfaldlega vegna þess að þeir þyrftu á pening- um að halda. Tekjur Saudi-Arabíu, voru í tíu ár ótrúlega miklar og hlutu að breyta siðum og lífs- stíl þjóðarinnar. Þetta pen- ingaflæði skapaði þarfir, sem erfitt var og er að venja sig af. Yfirvöld réðust í allskonar stórframkvæmdir, sem urðu svo yfirgripsmiklar að undrun sætti. Ný vegakerfi voru byggð um landið þvert og endilangt, sem tengdu þetta eyðimerkurland við umheim- inn. Nýtískulegar borgir voru reistar. Byggð voru allskonar ný iðnaðarmannvirki, skólar, há- skólar og risastórar her- stöðvar. Eyðimörkin varð að frjósömu ræktunarlandi, þeg- ar menn fóru að bora djúpt í jörðu niður þar sem miklar vatnsbirgðir leyndust undir yfirborði jarðar. í dag er ástandið annað. í árlegri ræðu sinni um efna- hagsástandið, sagði Fahd konungur, að olíutekjunum sem hafa minnkað um 80 prósent á fáum árum, yrði framvegis varið til þróunar- verkefna og til þess að bæta lífskjörin i landinu. Þrátt fyrir þetta eru þjóðartekjur þar í landi ennþá með þeim hæstu í heimi. Ríkisstjórnin vill gera þjóð- inni Ijóst, að hún verði að að- laga sig nýjum tíma og að hinn gífurlegi olíugróði sé liðin tíð. Fahd konungur, gaf á dög- unum út yfirlýsingu, þar sem hann sagði meðal annars: „Ef einhver misnotar góða að- stöðu sína, mun ríkisstjórnin hiklaust grípa inn i“, hann varaði atvinnurekendur við því að hækka verð á fram- leiðsluvörum. Verðfall Eins og er, hefur olíuverð í Saudi-Arabíu hækkað smá- vegis. Dollarinn, sem Saudi- Arabía er mjög háð hefur fall- ið. Aðalástæðan fyrir þessum breytingum þarna um slóðir er þó vegna félagslegs og pólitísks ástands í landinu sjálfu. „Við höfum byggt upp land okkar, nú verðum við að byggja upp samfélag okkar“, segir ungur námsmaður frá Saudi-Arabíu, sem er nýkom- inn heim frá námi í Banda- ríkjunum. „Við verðum að læra af reynslu góðu áranna og sætta okkur við minni tekjur, kannski höfum við gott af þessu.“ Lokað samfélag Saudi-Arabar eru hlýlegir og gestrisnir við þá sem ber að garði — en útlendingar eru taldir ill nauðsyn! Fjölskyldubönd eru mjög sterk í Saudi-Arabíu og þaö er erfitt fyrir utanaðkomandi að komast inn í saudi-arab- ískt samfélag. Þjóðin hefur árum saman búið með íbúum af erlendu bergi brotnum, og voru jafnvel jafnmargir og Saudi-Arabarnir sjálfir. Trúin er stór þáttur í daglegu lífi og vinnudagurinn er rofinn mörgum sinnum á dag vegna bænaiðkana. Þetta sýnir þá áherslu sem Saudi-Arabar leggja á stranga Islamtrú og hve nákvæmlega er farið eftir kenningum Kóransins. Á árunum áður en olíu- framleiðslan hófst var það til siðs, að allir beduinahöfð- ingjar buðu gestum sínum upp á kaffi og gestir voru jafnvel leystir út með smá- gjöfum. Olíutekjurnar hafa komið af stað einskonar „verðbólgu" í hefðbundinni gjafmildi Saud-Araba. Nú er svo komið að flugfarseðill er næstum dagleg þörf fyrir hinn almenna borgara og ef hann hefur sjálfur ekki efni á að kaupa hann, er allt eins víst að gjafmildur ættingi hleypur undir bagga. Það er ekki auðvelt að samræma nútíma lífsstíl, við þann, sem á rætur sínar að rekja í ströngum trúarlegum kenningum. Andstaðan gegn skólagöngu stúlkna hefur þó verið yfirunnin. Ríkið Saudi- Arabía er aðeins 60 ára gamalt og hugsast getur að með tíð og tlma komi meira frjálslyndi til sögunnar. (Det fri Aktuelt)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.