Alþýðublaðið - 21.06.1988, Side 6
» •* -
'6
f ( r. * i.it
Þriðjudagur 21. júní 1988
SMÁFRÉTTIR
Nýlega var undirritaður samstarfssamningur milli Þjóðleikhússins og
íslensku óperunnar, og er myndin tekin við undirritun. Á myndinni eru
Gisii Alfreðsson, Þjóðleikhússtjóri, Garöar Cortes, stjórnarformaður
íslensku óperunnar og Þuríður Pálsdóttir, formaður Þjóðleikhúsráðs.
Háskóla-
fyrirlestur
Prófessor emeritus Peter
Hallberg frá háskólanum í
Gautaborg flytur opinberan
fyrirlestur i boði heimspeki-
deildar Háskóla íslands og
Stofnunar Sigurðar Nordals
miðvikudaginn 22. júní 1988
kl. 17.15 í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn nefnist
„Hugmyndir Steblin-Kam-
enskijs um heim íslendinga-
sagna“. Fjallar hann um bók-
ina Mir sagi eftir rússneska
fræðimanninn M. I. Steblin-
Kamenskij. Bók þessi hefur
komið út í íslenskri þýðingu
Helga Haraldssonar lektors
undir heitinu Heimur íslend-
ingasagna.
Peter Hallberg er kunnur
hér á landi fyrir rannsóknir
sínar á íslenskum bókmennt-
um og þýðingar margra ís-
lenskra skáldverka á sænsku
Fyrirlesturinn verður flutt-
ur á íslensku og er ölum
opinn.
18 sæmdir
fálkaorðunni
Forseti íslands hefur
samkvæmt tillögu orðunefnd-
ar sæmt eftirtalda íslendinga
heiðursmerki hinnar íslensku
fálkaorðu:
Björgu Einarsdóttur, rithöf-
und, Reykjavík, riddarakrossi
fyrir ritstörf um málefni
kvenna.
Friðrik Jónsson, söngstjóra,
Húsavík, riddarakrossi fyrir
störf að félags- og tónlistar-
málum.
Gísla Ólafsson, forstjóra, Sel-
tjarnarnesi, riddarakrossi fyr-
ir störf að tryggingamálum.
Gunnar B. Guðmundsson,
hafnarstjóra, Reykjavík, ridd-
arakross fyrir störf að hafnar-
málum.
Gyðu Sigvaldadóttur, fóstru,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf í þágu barna.
Harald Henrýsson, forseta
Slysavarnafélags íslands,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf að slysavarnamálum.
Hjalta Gestsson, ráðunaut,
Selfossi, riddarakrossi fyrir
störf að landbúnaðarmálum.
Indriða Pálsson, forstjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf að atvinnumálum.
Karl Eiríksson, formann flug-
slysanefndar, Reykjavik, ridd-
arakrossi fyrir störf að flug-
málum.
Maríu Pétursdóttur, skóla-
stjóra, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf að hjúkrun-
armálum.
Pálma Jónsson, fyrrum ráð-
herra, Akri, Torfulækjar-
hreppi, Austur-Húnavatns-
sýslu, riddarakrossi fyrir störf
í opinbera þágu.
Ragnar Stefánsson, bónda,
Skaftafelli, riddarakrossi fyrir
störf að náttúruvernd.
Sigrúnu Þ. Mathiesen, frú,
Hafnarfirði, riddarakrossi fyr-
ir störf í opinbera þágu.
Séra Sigurð Helga Guð-
mundsson, sóknarprest,
Hafnarfirði, riddarakrossi fyr-
ir störf að félagsmálum og
málefnum aldraóra.
Sigurð Magnússon, fv. blaða-
fulltrúa, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf að ferðamál-
um.
Sigurleifu Hallgrímsdóttur,
sjúkraþjálfara, Reykjavík,
riddarakrossi fyrir störf í
þágu sjúkra.
Stefán Björnsson, fv. for-
stjóra, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf í málefnum
mjólkuriðnaðarins.
Svein Runólfsson, land-
græðslustjóra, Gunnarsholti,
Rangárvöllum, riddarakrossi
fyrir störf að landgræðslu-
málum.
Áning - nýtt
sumarhótel
Þann 2. júni sl. hóf nýtt
sumarhótel á Sauðárkróki,
Hótel Áning, starfsemi sína
en það er til húsa í heimavist
Fjölbrautaskólans. Það er
hlutafélagið Áning — ferða-
þjónusta hf., sem rekur hótel-
ið en það er í eigu fimm fjöl-
skyldna á Sauðárkróki og
nágrenni.
Alls eru 25 vistleg herbergi
í hótelinu og matsalur, sem
rúmar um 140 manns í mat.
Matreiðslumeistari er Einar
Bragi og yfirþjónn Kristján
Örn.
Undir borðhaldi á kvöldin
verður lögð áhersla á ýmsar
uppákomur. Þannig verður
Jóhann Már Jóhannsson
bóndi og söngvari í Keflavík
tíður gestur, svo og Sólveig
Anna Jónsdóttir píanóleikari,
en hún sér jafnframt um mót-
töku hótelsins. í anddyri
verður rekin upplýsingamiðl-
un fyrir ferðafólk.
Þá er í hótelinu góð að-
staða til ýmiss konar afþrey-
ingar, s.s. til að tefla, spila
borðtennis og horfa á sjón-
varp. Ennfremur er sérstakt
barnahorn.
í tengslum við hótelið
verður ennfremur ýmislegt
um að vera utandyra. Þannig
er hægt með skömmum fyrir-
vara að fara í 2ja klukku-
stunda reiðtúr eftir kvöldmat,
veiða í fjörunni, bregða sér í
golf, sund eða göngutúr.
Ennfremur verður boðið öðru
hverju upp á kvöldferðir heim
að Hólum.
Áning ferðaþjónusta rekur
auk hótelsins, svefnpokagist-
ingu i Grunnskóla Sauðár-
króks. Þar er gist í tveimur
kennslustofum sem hafa
verið hólfaðar niður í tveggja
manna einingar með léttum
skilveggjum. Þar er ennfrem-
ur rúmgóð aðstaða til að
snæða nesti. Þá sér Áning
um rekstur á tjaldsvæði bæj-
arins, sem er norðan við
sundlaugina.
í tengslum við rekstur
hótelsins býður Áning félaga-
samtökum og starfsmannafé-
lögum upp á svokallaða
„sæluviku Áningar", sem er
eins til tveggja sólarhringa
dvöl í Skagafirði. Er þar
boðið upp á kvöldvöku og
leiðsögn um Skagafjörð auk
fæðis og gistingar. Hafa nú
þegar ýmsir hópar notfært
sér þetta tilboð.
Allar nánari upplýsingar
um starfsemi Áningareru
veittar i síma 95-6717.
Forverðir á
ráðstefnu
Dagana 20.-24. júni er hald-
in í Reykjavík XI ráðstefna
Félags norænna forvarða
(Nordisk Konservator-
forbund). Félagið var stofnað
sem sérdeild innan alþjóða-
samtaka forvarða árið 1950
og gerðust íslendingar aðilar
að því árið 1971.
Tilgangur félagsins er að
efla samstarf Norðurland-
anna á sviói viögerða og
varðveizlu meinningarminja,
og efla menntun og þekkingu
norrænna sérfræðinga á
þessu sviði.
Ráðstefnur félagsins eru
haldnar þriðja hvert ár, en
ráðstefnan er nú haldin á is-
landi í fyrsta skipti.
Á ráðstefnunni eru alls
haldnir 25 fyrirlestrar, flestir
um „Viðgerð menningarminja
— siðfræðileg viðhorf". Verð-
ur þar rætt um viðgerðir á
m.a. handritum, málverkum
og forngripum. Fyrirlestarnir
hafa verið gefnir út.
Alls eru um 100 aðilar frá
öllum Norðurlöndunum auk
Englands sem sitja ráðstefn-
una.
Helstu styrktaraöilar ráð-
stefnunnar eru:
Búnaöarbanki íslands
Clara Lachmans fond Sverige
Flugleiðir
Letterstedska foreningen
Finnlandi
Letterstedska foreningen
Noregi
Letterstedska foreningen
Svíþjóð
Menntamálaráðuneytið
Nordisk kulturfond Kaup-
mannahöfn
Þjóðhátíðarsjóóur
Þjóðskjalasafn íslands.
Ættfræði
námskeið
Ættfræðiþjónustan ráðger-
ir að halda nokkur byrjenda-
námskeið í ættfræði í sumar,
flest þeirra úti á landi. Hvert
námskeið stendur yfir í 3-6
daga. Stefnt er að því að
halda slík námskeið í Borgar-
nesi, Stykkishólmi, á ísafirði,
Dalvík, Ákureyri, Egilsstöð-
um, Eskifirði, Selfossi og í
Keflavík, auk eins námskeiðs
í Reykjavik. Skráning þátttak-
enda er aö hefjast hjá Ætt-
fræðiþjónustunni i síma
91-27101.
Á þessum námskeiðum
verður veitt fræðsla um ætt-
fræði heimildir, leitaraðferðir
og vinnubrögð við gerð
ættartölu og niðjatals. Jafn-
framt gefst þáttakendum
tækifæri og aðstaða til að
æfa sig í verki og rekja ættir
sínar, svo langt sem þess er
kostur, í frumheimildum jafnt
sem síðari tíma verkum.
AUGLYSING
varðandi kjörskrá við forsetakjör
25. júní 1988.
Athygli kjósenda er vakin á því að þeir eru skráðir
á kjörskrá þar sem lögheimili þeirra var 1.
desember 1987 og er kjörstaður þar sem þeir geta
greitt atkvæði við kosningu á kjördegi í samræmi
við það.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 15. júní 1988.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Umsóknarfrestur á áður auglýstum stundakennara-
stöðum við Fjölbrautaskólann í Breiðholti í rafeinda-
tækni og handmenntum (fatahönnuður eða handa-
vinnukennari) framlengist til 27. júní næstkomandi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist skólameistara Fjölbrautaskólans í
Breiðholti.
Menntamálaráðuneytið
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Við Menntaskólann í Kópavogi er laus til umsóknar
staða jarðfræðikennara.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík fyrir 1. júlí næstkomandi.
Þá er umsóknarfrestur á áður auglýstum kennara-
stöðum við eftirtalda skóla framlengdur til 27. júní
næstkomandi:
Við Menntaskólann við Hamrahlíð vantar kennara í
efnafræði, lögfræði, stærðfræði og tölvufræði. Við
Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum eru lausar
kennarastöður í raungreinum, dönsku, viðskipta-
greinum, stærðfræði, tölvufræði og eðlisfræði.
Menntamálaráðuneytið
ÚTBOÐ
Nesjavallavirkjun • ryöfrí tæki.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hita-
veitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verk sem
felst í efnisútvegun og smíði tveggja afloftara, eins
gufuháls og eins loftinntaks, alls 40 tonn.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 25.000,- skilatrygg-
ingu. Tilboðin verðaopnuð ásama stað miðvikudag-
inn 20. júlí kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Póstholf 878 — 101 Reykj’avik
ÚTBOÐ
Súðavíkurhlíð 1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum
í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 3,1
km, bergskeringar 15.000 m3, skering-
ar 58.800 m3 og rofvarnir 8.000 m3.
yerki skal lokið 20. nóvember 1988.
Útboósgögn verða afhent hjá Vega-
gerð ríkisins á ísafirði og I Reykjavík
(aðalgjaldkera) frá og með 21. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum
fyrir kl. 14.00 þann 4. júlí 1988.
Vegamálastjóri
V
J