Alþýðublaðið - 01.07.1988, Qupperneq 1
STOFNAÐ
1919
Tekjustofnar sveitarfélaga œttu að vera frjálsari x
DÝRARA AD REKA AKUREYRI
EN KAUPSTAÐI FYRIR SUNNAN
segir Sigfús Jónsson bœjarstjóri á Akureyri
Sigfús Jónsson, bæjar-
stjóri á Akureyri, segir tekju-
stofna sem bæjarfélaginu
eru skammtaðir of nauma og
þeir eigi að vera frjálsari.
Hann telur að Akureyri, sem
er að reyna að vera höfuð-
staður Norðurlands, þurfi
meira en staðir eins og Hafn-
arfjörður og Kópavogur.
Hann segir mikið ranglæti
felast i mismunandi aðstöðu-
gjaldi eftir atvinnugreinum,
sem ósjálfrátt mismuni sveit-
arfélögum.
„Ég er ekki að segja aö
Hafnarfjörður og Kópavogs-
bær geti verið alsælir af því
sem þeir hafa, heldur er að
það er dýrara að reka Akur-
eyri en þessi bæjarfélög,"
sagði Sigfús viö Alþýðublað-
ið í gær.
Hann telur eðlilegt að svip-
aðir aðstöðugjaldsstofnar
verði fyrir allar atvinnugrein-
ar. í dag eru stofnanir mjög
mismunandi eftir greinum,
eöa að hámarki 0,33% af
veltu í fiskveiðum, 0,65% í
fiskvinnslu, 1% í iðnaði og
1,3% í verslun. Flest sveitar-
félög nota sér hámarks-
prósenturnar, sem kveðið er
á um í lögum um tekjustofna
sveitarfélaga.
Sigfús benti á að iðnrek-
endur teldu stofninn allt of
mikinn í sinni grein. „Ég er
ekki endilega að taka afstöðu
til þess að allt eigi að hækka
upp í 1,3% eða lækka niður i
0,33%, heldur tel ég að svip-
aður stofn eigi að vera fyrir
allar greinar. Eins og þetta er
í dag leióír þetta til mismun-
ar á milli sveitarfélaga sem
búa við ólíkar atvinnugrein-
ar,“ sagði Sigfús.
I ár þurfa sveitarfélögin að
búa við skammtaða útsvars-
prósentu þar sem i stað-
greiðslulögum var kveðiö á
um að innheimtuhlutfallið
væri ákveðið af félagsmála-
ráðherra. Prósentan var
ákveðin 6,7% og er að mati
sveitarstjórnarmanna allt of
lág.
Að tillögu félagsmálaráð-
herra var þessu breytt þannig
að sveitarfélögin geta á
næsta ári sjálf ákveðið
prósentuna, sem þó er kveð-
ið á um að megi ekki vera
hærri en 7,5%. Samkvæmt
lögunum í dag geta sveitarfé-
lögin sent bakreikninga fyrir
mismun upp í hámarks-
prósentu. Sigfús taldi það
ekki koma til greina. „Það
gengur ekki að vera með bak-
reikninga í staðgreiðslu--,
kerfi,“ sagói Sigfús Jónssön.
FLEIRI SKEMMTIFERÐASKIP EN í FYRRA
Birgir Þorgilsson feröamálastjóri sagöi aö von væri á mun fleiri skemmtiferðaskipum til landsins nú i sumar heldur en i fyrra. Áætlað er að taka
á móti um 30 skipum og er u.þ.b. helmingur þeirra á vegum ferðaskrifstofunnar Atlantik, en Samvinnuferðir, Pólaris og Úrval taka á móti hinum.
Þetta skemmtiferðaskip sem nú liggur við höfn i Reykjavík er á vegum Samvinnuferða.
BORGARAFLOKKUR-
INN VILDI
STYOJA SIGRÚNU
Borgaraflokkurinn œtlaöi aö
styöja Sigrúnu Þorsteinsdótt-
ur í forsetaframboðinu. Þeg-
ar aöstandendur l'lokks
mannsins fóru J'ram á form-
legan stuðning var svariö
hins vegar nei. „Borgara-
flokkurinn var algjörlega
sammála hugmyndum okkar
um forsetann, og um kosn-
ingar um mikilvæg mál. Og
sammála um það lýörœöi
sem við viljum koma á, en
þeim þótti ekki borga sig
fyrir flokkinn að bjóða fram
gegn vinsœlum forseta, “
segir Pétur Guðjónsson,
„maðurinn“ í Flokki manns-
ins í viðtali við Alþýðublað-
ið.
Pétur segir að margir flokks-
menn í Borgaraflokknum
hafi kosið Sigrúnu.
Itarlegt viðtal við Pétur
Guðjónsson um forsetakosn-
ingarnar í helgarblaði
Alþýðublaðsins á morgun.