Alþýðublaðið - 01.07.1988, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 01.07.1988, Blaðsíða 7
Föstudagur 1. júlí 1988 7 ÚTLÖND Umsjón: Ingibjörg Árnadóttir Anne-Sophie Muttev; sem talin er mikill fiðlusnillingur; klœðist alltaf kjólum frá Dior, þegar hún kemur fram. Kjólarnir verða að vera flegnir niður fyrir axlir, vegna þess að hún vill geta fundið snertingu viðarins við húð sína. Ekkert kemst upp á milli Anne-Sophie Mutter og Stradivarusar fiölunnar henn- ar. Hreint ekki neitt. Þannig á það líka að vera. Hinn 25 ára gamli, vestur- þýski fiðlusnillingur lætur sauma kjólana sem hún kem- ur fram í, hjá Dior. Allir verða þeir að vera flegnir niður fyrir axlir. Það verður að vera bein snerting húðar og viðar. Þannig hefur þetta verið, síð- an hún var fimmtán ára, þeg- ar hún ýtti niður ermunum á blúndukjól sem hún áfti að koma fram í. „Og,“ segir hún „þannig munu þeir vera, þegar ég er orðin áttræð..." Blaðamaður Det fri Aktuelt spyr: „Heldurðu ekki að þú verðir með hvapkennda upp- handleggi þegar þú er komin á þann aldur?“ „Fiðluleikarar fá ekki hvap- kennda upphandleggi! Ég þarf ekki að fara í líkamsrækt — finndu vöðvana," segir hún og spennir þá. Vöðvarnir virðast reynast henni vel i tónlistinni. „Heimsins besti fiðluleikari" segir Ann Christin Hallander, fulltrúi plötuútgáfu fyrirtæk- is, við hátíðlegt tækifæri á dögunum í Kaupmannahöfn. Þar var henni afhent silfur- plata vegna sölu á 32.000 þús. plötum af „árstíðunum fjórum" eftir Vivaldi, sem hún lék á fiðluna. Lék á als oddi Þegar Anne-Sophie Mutter mætti á sviðið lék hún á als oddi og var klædd níðþröng- um, hnéstuttum Dior-kjól. Hún var kvíðnari vegna þess að hún átti að fara til tann- Iæknis daginn eftir, heldur en fyrir hljómleikunum sem hún átti að leika á um kvöldið. Þá ætlaði hún að leika fiðlu- konsert Sibeliusar i konsert- salnum í Tivoli. Anne-Sophie Mutter þurfti að láta draga úr sér tönn, en segist í rauninni ekki kvíða svo mjög fyrir sjálfri aðgerð- inni, því hún fari til yndislegs tannlæknis, sem geti fengið hana til að gapa og slappa af um leið, en að það hafi nú ekki allir tannlæknar getað. Hún hafði aðallega áhyggjur af því, hvort hún yrði með bólgna kinn á næstu tónleik- um, sem fram áttu að fara í London nokkrum dögum seinna. Undrabarn Herbert Von Karajan uppgötvaði hana, þegar hún var þrettán ára og kallaði hana undrabarn. Nú er hún orðin þroskuð ung kona, sem gleður og heillar tónlistar- unnendur um víða veröld. Hún heldur um það bil 100 hljómleika á ári hverju og tel- ur það vera skyldu sína vegna sinnar eigin kynslóðar, að endurnýja stöðugt lagaval sitt og spila ekki eingöngu „pottþéttar söluvörur", svo sem Beethoven, Mozart, Mendelssohn og Tchaikovski. Vegna þessa spilar hún einnig sígaunatónlist og kammermúsík. Þegar hún spilar kammermúsík, er þaö í góðum félagsskap með sér miklu eldri vinum. Það eru snillingarnir Bruno Giuranna sem leikur á bratsch og Mstislav Rostropovich sem leikur á cello. Samspil Þetta stórkosdega trió var í Kaupmannahöfn í janúar, og bæði áheyrendur og gagnrýn- endur áttu ekki nægilega stór orð til að lýsa hrifningu sinni. „Það er unaöslegt að spila saman," segir Anne-Sophie Mutter, þegar hún er spurð um samvinnuna í trióinu, og leggur mikla áherslu á þann góða félagsskap sem hún var í. „Þaö sem mér finnst eini gallinn á kammermúsík er, að þurfa að sitja svona lengi. Ég kann miklu betur við að standa, þegar ég spila. Það er líka svo skrambi óþægi- legt að vera i jakka! Mér finnst samt ekki passa inni „stílinn“, að vera með berar axlir þegar herrarnir sitja í kjól og hvítt. Þegar ég hef verið að spila kammermúsík, verð ég eftir á eins og samanþjöppuð en samt upptrekt og langar mest til að leggjast i gólfið." Þegar Anne-Sophie Mutter þarf á virkilegri afslöppun að halda, finnst henni japanskt nudd henta sér best, betur en sund eða trimm. „Þetta á sérstaklega við, ef ég hef verið að spila í hljóm- leikasal sem er með loft- ræstikerfi. Þegar ég hef lokiö leik minum í þannig hljóm- leikasölum, verða hálsinn og hnakkinn á mér stifir og stirðir af kulda. Þá er dásam- legt að fájapanskt nudd.“ Blaöamaður spyr hvaða tónskáld sé erfiðast og mest þreytandi að spila? „Beethoven. Það er ekki aðeins mikil líkamleg áreynsla, það er einnig mikil andleg áreynsla. Það er hægt að kalla það fimleika fyrir heilann, maður verður að vera örfljótur að hugsa. Þegar ég hef verið að spila Beethoven er ég eins og klessa á eftir, það er eins og allur kraftur hafi farið úr lík- amanum, hér um bil eins og ég hefði verið í klóm Dracula! (Det fri Aktuelt.) ,,Að ég sé mesti fiðlusnillingur i heimi? Það hlusta ég ekki á. Svo- leiðis er ekki hægt aö segja um tónlist. Maður getur veriö bestur i heimi ef maöur setur heimsmet i hástökki. Það er ekki hægt aö mæla tónlist" segirfiðlu „virtuos- inn“ Anne-Sophie Mutter.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.