Alþýðublaðið - 01.07.1988, Blaðsíða 6
6
Föstudagúr 1. júli 1988
SMA FRETTIR *
Talið frá vinstri: Guöm. Helgi Guðjónsson, þjónustustjóri Bilvangs, Þorvaldur Eiriksson, aðstoðarverkstj., H.
Fujikawa, fulltrúi frá Isuzu og Guöbrandur Eliasson, verkstjóri.
Japanskur
tæknimaður
kannaði ástand
ISUZU-bíla
Vikuna 24. 5. til 30. 5. s.l.
var staddur hjá Bílvangi sf,
umboösaðila Isuzu á Islandi,
tæknimaöur frá Isuzu verk-
smiöjunum i Japan.
Tilefni heimsóknarinnar
var að bjóóa eigendum Isuzu
bifreiöa uppá að koma meö
bíla sina til nákvæmrar skoö-
unarog reynsluaksturs,
þeim að kostnaóarlausu.
Öllum eigendum Isuzu bif-
reiöa á íslandi var sent boðs-
bréf og komu til skoðunar
yfir 100 eigendur meö bíla
sína.
Bílarnirvoru nákvæmlega
skoöaöir og þeim reynsluek-
iö, skipt var um olíu og olíu-
síu. Aö þessu loknu fengu
eigendur skýrslu um ástand
bifreiðarinnar og viöurkenn-
ingarskjal um aö bíllinn hafi
fengið þessa skoöun.
Þessi þáttur hjá Isuzu verk-
smiöjunum er liöur í aukinni
þjónustu viö viðskiptavini
sína og er í samvinnu viö við-
komandi umboösaðila í
hverju landi, segir í fréttatil-
kynningu.
Cambridge
gefur út rit
eftir Eyjólf
Kjalar
Út er komin hjá Cambridge
University Press bókin
Plotinus on Sense-Per-
ception: a Philosophical
Study eftir Eyjólf Kjalar
Emilsson, Ph. D. Plótinos var
grískumælandi heimspeking-
ur sem starfaói í Alexandríu
og Rómaborg á 3. öld e.Kr.
Hann er oft nefndur síöasti
mikli heimspekingur fornald-
ar og var upphafsmaður svo-
nefnds nýplatónisma, sem
var áhrifamikil stefna á síö-
fornöld og allt fram á Endur-
reisnartíma. Bókin fjallar um
kenningar hans um skynjun-
ina. Höfundur skoðar efniö í
Ijósi hugmynda grískra fyrir-
rennara Plótinosar, annarra
þátta heimspeki hans og aó
nokkru leyti nútímaheim-
speki. Bókin er 179 bls. aö
stærö. Hún verður fáanleg í
helstu bókaverslunum sem
selja erlendar bækur innan
skamms.
Höfundurinn, Eyjólfur
Kjalar Emilsson, er fæddur í
Reykjavík árið 1953. Hann
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum að Laugar-
vatni áriö 1973 og BA prófi
frá Háskóla Islands árið 1977.
Hann stundaði síöan fram-
haldsnám í heimspeki meö
heimspeki fornaldar sem sér-
sviö viö Princeton háskóla í
Bandaríkjunum og lauk
doktorsprófi þaöan áriö 1984.
Eyjólfur er nú stundakennari
viö Háskóla íslands og
starfsmaöur Heimspekistofn-
unar.
Ný stjórn
Krabbameins-
félagsins
Á aðalfundi Krabbameins-
félags íslands, sem haldinn
var nýlega, var Almar Gríms-
son apótekari kosinn formað-
ur félagsins i staö Gunn-
laugs Snædal prófessors.
Almar hefur setiö í stjórn fé-
lagsins síöan 1985, síöasta
árió sem varaformaður.
Gunnlaugur hefur veriö for-
maður síöan 1979 og gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. Á
aöalfundinum voru honum
þökkuð vel unnin störf í þágu
félagsins.
Aörar breytingar á stjórn
Krabbameinsfélags Islands
voru þær aö Guörún Agnars-
dóttir alþingismaður, Jón
Þorgeir Hallgrímsson yfir-
læknir og Ragnar Pálsson
forstööumaöur voru kosin í
stjórn en úr henni gengu, auk
Gunnlaugs, þau Lilja Ólafs-
dóttir framkvæmdastjóri og
Ólafur Örn Arnarson yfir-
læknir. Fyrir í stjórninni voru
Auöur Guðjónsdóttir hús-
móöir, Björgvin Lúthersson
stöðvarstjóri, Erlendur Ein-
arsson fyrrverandi forstjóri,
Gunnar M. Hansson forstjóri,
Matthías Johannessen rit-
stjóri, Siguróur Björnsson
læknir, Sigursteinn Guö-
mundsson yfirlæknir, Tómas
Árni Jónasson læknir og
Vigdís Magnúsdóttir hjúkrun-
arfgrstjóri.
Á ársþingi Norræna
krabbameinssambandsins,
sem var í Reykjavik í byrjun
mánaðarins, var úthlutaö
ferðastyrk sem árlega er
veittur efnilegum vísinda-
manni frá því landi sem þing-
iö er haldið. Styrkurinn er að
andvirði 20 þúsund sænskar
krónur (um 145 þús. ísl. kr.)
og er ætlaður til aö viðkom-
andi vísindamaöur geti kynnt
sér nýjungar á sínu sviöi í
öörum löndum. Norræni
ferðastyrkurinn var að þessu
sinni veitturdr. Helgu M.
Ögmundsdóttur lækni, en
hún er forstööumaður
Rannsóknastofu í sameinda-
og frumulíffræði.
Leiðrétting
í frásögn af iþróttamóti fatl-
aðra í helgarblaöi um næst liðna
helgi urðu á mistök við mynd-
birtingu. Björgvin Kristbergsson
hét þessi piltur sem hafði unnið
til þriggja gullverðlauna. Nafnið
Magnús sem fylgdi fréttinni var
á misskilningi byggt og er beð-
ist velviröingar.
□ 1 2 3 q 4
5
6 □ 7
S 9
10 □ 11
□ 12 _
13 □ —1 □
• Krossgátan
Lárétt: 1 afl, 5 heióarleg, 6 sé,
7 borðhald, 8 tíðast, 10 íþrótta-
félag, 11 fataefni. 12 myrk, 13
glöggt.
Lóörétt: 1 hreinsa, 2 kyrrt, 3
tón, 4 pinnum, 5 hóps, 7 meö, 9
kámir, 12 fen.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 maula, 5 fálm, 6 áli,
7 dd, 8 lundin, 10 kg, 11 agi, 12
elur, 13 rakar.
Lóðrétt: 1 málug, 2 alin, 3
um, 4 aldnir, 5 fálkar, 7 digur, 9
dala, 12 ek.
• 6engi8
Gengisskráning 120 - 29. juní 1988
Kaup Sala
Bandaríkjadollar 45,660 45,780
Sterlingspund 78,072 78,277
Kanadadollar 37,576 37,674
Dönsk króna 6,6069 6,6242
Norsk króna 6,9303 6,9485
Sænsk króna 7,2951 7,3143
Finnskt mark 10,5670 10,5948
Franskur franki 7,4498 7,4694
Belgiskur franki 1.1980 1,2012
Svissn. franki 30,3530 30,4328
Holl. gyllini 22,2406 22,2991
Vesturþýskt mark 25,1017 25,1677
ítðlsk lira 0,03383 0,03392
Austurr. sch. 3,5665 3,5759
Portúg. escudo 0,3074 0,3082
Spanskur peseti 0,3790 0,3800
Japanskt yen 0,34317 0,34407
Irskt pund 67.415 67,592
SDR 24.11 59,8991 60,0565
ECU - Evrópumynt 52,0958 52,2327
• Ljósvakapunktar
• RUV
20.35 Basl er bókaútgáfa.
Breskur gamanmynda-
flokkur um hjón sem starfa
viö sama útgáfufyrirtæki.
21.50 Viö landamærin.
Bandarísk bíómynd frá
árinu 1980. Charles Bron-
son og Bruno Kirby í aóal-
hlutverkum.
• Stöð 2
18.15 Föstudagsbitinn.
Tónlistarþáttur meö viótöl-
um við hljómlistarfólk,
kvikmyndaumfjöllun og
fréttum úr poppheiminum.
21.20 í sumarskapi. Jör-
undurerkominn í frf. Bjarni
Dagur ætlar aö aðstoða
Sögu. Þetta verður eitthvað
sögulegt.
• Rás 1
10.30 Lífiö vió höfnina.
ÞátturfráAkureyri í umsjón
Birgis Sveinbjörnssonar.
• Rás 2
18.00 Sumarsveifla.
Gunnar Salvarsson ætlar
aö sveifla sumrinu.
• RÓT
19.30 Barnatími. Þaö er
allt svo ofsalega eölilegt á
Rótinni, þess vegna sjá
börn um þáttinn.
1^1
'Kf S\*
Til sölu fasteignir á Siglufirði og
í Borgarnesi
Tilboð óskast i eftirtaldar húseignir:
Hvanneyrarbraut 27, Siglufirði. Stærö hússins er
1254 m3. Húsið verður til sýnis í samráði við Erling
Óskarsson, sýslumann, sími (96) 71150.
Brákarbraut 13, Borgarnesi. Stærð hússins er 2489
m3.
Húsiö verður til sýnis í samráöi við Rúnar Guðjóns-
son, sýslumann, sími (93) 71209.
Tilboðseyðublöð liggja frammi í húseignunum og á
skrifstofu vorri. Kauptilboðum sé skilað á skrifstofu
vora, Borgartúni 7, Reykjavík, fyrir kl. 14.00 f.h. þriðju-
daginn 12. júlí n.k., en þá veröa þau opnuð í viðurvist
viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS'
Borgartuni 7, sími 26844
KRATAKOMPAN
Sumarferð Alþýduflokksins
Alþýöuflokksfélögin í Reykjavik og á Reykjanesi fara í
sameiginlega sumarferð laugardaginn 2. júlí n.k. og aö
þessu sinni verður haldið í austur.
Ferðaáætlun:
1. Lagt af staö frá BSÍ kl. 9.30.
2. Komið viö í Hveragerði og á Selfossi, þar bætast í hóp-
inn hressir félagar af Suöurlandí.
3. Ekið sem leiö liggur í Þjórsárdal, þarveróursnætt nesti.
Viö skoðum þjóðveldisbæinn og rústirnar aö Stöng.
Farið verður í sund (hafiö meö ykkur sundföt).
4. Þessu næst verður haldiö upp á hálendiö. Virkjanirnar
viö Hrauneyjarfoss og Sigöldu heimscitar.
5. Næsti áfangastaöurerSkíöaskálinn í hveradölum meö
viökomu í Hveragerði. Þar veröur tekið á móti hópnum
með veglegri víkingaveislu. Ef vel viðrar veröur grillaó
úti.
Áætlaöur komutími til Reykjavíkur er kl. 23.00. Reyndir
fararstjórar og leiösögumenn veröa meó hópnum. Verð
fyrir fullorðna kr. 1.800,- og verö fyrir börn yngri en 12 ára
kr. 800.-.
Skráning þátttöku er á skrifstofu Alþýðuflokksins Hverfis-
götu 8-10 frá kl. 10-16 alla virka daga sími 91-29244. Athugið
greiðslukortaþjónusta.
Alþýðuflokkurinn.
Stjórn Verkamannabústaöa í Garðabæ
Umsókn um íbúö:
Stjórn verkamannabústaða í Garðabæ, óskar eftir
umsóknum um eina eldri íbúð í Krókamýri. Um ráð-
stöfun, verð og greiðsluskilmála þessarar íbúðar
gilda lög nr. 60/1984, nr. 77/1985, nr. 54/1986 og nr.
27/1987.
Umsóknareyðublöð verða afhent á bæjarskrif-
stofum Garðabæjar, Sveinatungu frá 1. júlí 1988.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 21. júlí 1988.
Stjórn verkamannabústada i Garðabæ.