Alþýðublaðið - 16.07.1988, Blaðsíða 21
U^gar,d ag^r 1,?,v $§8 i
27k’
MENN EIGA AÐ
SPARA STÓRU ORÐIN
segir Guðmundur Magnússon aðstoðarmaður menntamálaráðherra.
Haft var samband við Guð-
mund Magnússon, aöstoðar-
mann menntamálaráðherra,
og hann spurður af hverju
ekki hefðu verið gerðar
athugasemdir um vanhæfni
dómnefndar eftir að gerðar
voru breytingar á henni fyrr
en eftir að dómnefndarálitið
lá fyrir.
„Þaö var ritað bréf til deild-
arinnar og kvartaö yfir því aö
nefndin sé vanhæf vegna
þeirra þriggja manna sem
skipaöir voru í upphafi. Svar
deildarinnar var að vísa
þessu á bug og málinu var
þar með lokið. Síöan var ekk-
ert samband haft viö Hannes
Hólmstein né lögmann hans
í þessu máli. Allt annaö í
málinu fréttir hann utan að
sér. Hann var ekki spurður
um það hvort Siguröur Líndal
eða Jónatan Þórmundsson
ættu aö fara í nefndina.
Rektor skipaöi mann í hana
án nokkurs samkomulags viö
Hannes,“ sagöi Guömundur.
— Hefði það ekki verið
óeðlilegt að gera samkomu-
iag við einn umsækjanda
hverjir skyldu vera í dóm-
nefnd?
„Ég er alls ekkert aö tala
um það hvort þaö sé eðlilegt
eöa ekki. Þetta er honum
algerlega óviðkomandi. Eina
sem hann hefur í höndunum
er það aö deildin hafnaði
algerlega hans málflutningi
og lögmanns hans og vísaði
því á bug.“
— Nú telja þeir Sigurður
Líndal og Jón Þórmundsson
lagaprófessorar að þeir hafi
hnekkt með lagalegum for-
sendum þessum málflutningi
lögmanns Hannesar ?
„Vió teljum aö rök þeirra
séu ekki fullnægjandi og vís-
um til fyrri greinagerða um
tengsl þessara manna. Viö
sjáum ekki ástæöu til aó fara
út í karp um þessi einstöku
atriði að svo stöddu. Viö vilj-
um bara siá hvernig málin
þróast. Ég held að menn eigi
að spara stóru orðin i þessu
máli.“ _
—■ Úr því að þið leituöuð
álits utanaðkomandi aðila,
þvi lögðuð þið ekki fram verk
allra umsækjenda?
„Þaö var leitað álits fyrst
og fremst á því atriði hvort
doktorspróf Hannesar frá
Oxford háskóla og menntun
hans fæli í sér hæfni til aö
kenna byrjendum almenn-
ustu undirstööugreinar í
stjórnmálafræöi. Þaö var því
ekki verið aó skipa nýja dóm-
nefnd heldur eingöngu leitað
álits um þetta atriöi.“
— Þetta ál i t sker þá ekki
úr um hvort Hannes er hæf-
astur til að gegna stöðunni?
„Ju, því hann er sá eini
doktorinn í hópi umsækj-
enda. Þaö var ekki veriö að
leita álits um hæfni hinna til
að gegna þessari stööu,
heldur einungis veriö aö leita
úrskurðar um eitt atriöi sem
varðaði Hannes sérstaklega
vegna þessarar furöulegu
niöurstöðu um aö hann væri
hæfur aö hluta sem ég hygg
aö sé einsdæmi í dómnefnd-
aráliti.“
— Er úrskurður fyrrverandi
kennara Hannesar hlutlaus,
þegar þeir hafa sjálfir hags-
muna að gæta í málinu?
„Við höfum ekki á neinn
hátt reynt aö leyna því aö
þetta er kennari Hannesar,
það var leitaö til hans þess
vegna en ekki þrátt fyrir þaö.
Það heföi ekki verið hægt aó
leita til neins annars manns
um þetta atriði vegna þeirrar
einstæöu þekkingar sem
hann hefur á umsækjanda.“
— Er ekki um vanhæfni að
ræða í þessu tilviki eins og i
tilviki dómnefndarinnar?
„Vanhæfnisatriöi dóm-
nefndarinnar er af öðru tagi.
Hún var fengin til að meta
umsækjendur algjörlega á
allan hátt, en hérerein-
göngu veriö aö spyrja um eitt
atriði malsins. bpurningar ar
því tagi sem dómnefndin hef-
ur komið meö bendir til þess
að hún er aö átta sig á þvi að
þaö geta skapast vanhæfnis-
ástæöur inna Háskólans
vegna tengsla. Þaö er ekki
verið aö áfellast dómnefndar-
menn hvorki sem fræóimenn
eða einstaklinga, heldur aö
benda á tengsl þeirra í þessu
máli. í okkar þjóðfélagi búum
við við það að menn verða aö
víkja úr dómarasæti vegna
„Við teljum að rök (agaprófessor-
anna séu ekki fullnægjandi."
Guðmundur Magnússon, aðstoð-
armaður menntamálaráðherra.
tengsla. Viö þessu er ekkert
aö gera því aö deilurnar um
Hannes eru um garö gengn-
ar.“
— I bréfi sinu til háskóla-1
ráðs vitnaði menntamálaráð-
herra í predikun Jóns Vidalín
um reiðina. Er það tilviljun að
Hannes Hólmsteinn vitnaði í
þennan sama kafla i útvarpi
um svipaö leyti?
„Ég heyrói þetta einmitt i
útvarpi aö þaö var verió aö
bera þetta saman aö Hannes
haföi nefnt þetta og síðan
ráöherra einnig, og mér
finnst þetta satt að segja
ekki til marks um annaö en
hlutdrægni íréttamanna aö
halda að þaö hljóti aö vera
'einhver orsakatengsl þar á
milli. Ég kannast ekki einu
sinni viö aö nokkur samtöl
milli ráöherra og Hannesar
hafi átt sér staö eftir að skip-
að var í lektorsstöðuna. Þetta
er því hrein tilviljun. Hannes
Hólmsteinn er vel aö sér í ís-
lenskum bókmenntum og
þaö er ráöhera líka, og þetta
er einn frægasti texti um
reiðina og ekki skrýtiö þó aö
báóir vitni í hann.“
FREKARI VIÐRROGÐ
KOMA f LJÓS f HAUST
segir Þórólfur Þórlindsson forseti Félagsvísindadeildar
Dómnefndarmenn sem
fjölluðu um veitingu lektors-
embættisins hafa sent frá '
sér greinargerð þar sem
gerðar eru athugasemdir við
bréf menntamálaráðherra til
háskólaráðs, þar sem ráö-
herra reynir að hrekja rök
dómnefndarinnar fyrir van-
hæfni Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar i stöðu
lektors. Alþýðublaðið hafði
samband viö Þórólf Þórlinds-
son deildarforseta félags-
vísindadeildar og spurði
hann i hverju þessi greinar-
gerð væri fólgin?
„Ráðuneytiö hefur alltaf
lagt megináherslu á forms-
atriöi þessa máls. í þessari
greinargerð er sýnt fram á að
ekkert er athugavert við skip-
un dómnefndarinnar lagalega
séö. Álitiö hefur nú verið lagt
fram og ég held aö þaö sýni
svart á hvítu aö ekki var um
neina hlutdræga dóma aö
ræða, þaö eru efnisleg atriði
sem þar eru dregin fram um
vinnubrögö umsækjenda.
Ákvöröun Félagsvisindadeild-
ar var því byggð á efnislegum
rökum. Hver og einn sem
hefur dómnefndarálitiö í
höndum, sér aö þar var kom-
ist aö rökstuddri niðurstöðu
sem stenst efnislega."
— Er vilji fyrir hendi af
hálfu háskólamanna að
leggja þetta mál aftur fyrir
dóm?
„Ég skal ekkert um það
segja, ég hef ekki hugleitt
þaö. En persónulega finnst
mér aö viö höfum staðiö
þannig aö málinu aö viö höf-
um ekkert að óttast, og ætt-
um því óhræddir aö geta lagt
þetta mál undir dóm hvers og
eins sem er tilbúin aö kynna
sér þetta mál.“
— Er einhver tilbúinn til
að vera i dómnefnd af hálfu
Háskólans ef að ráðherra
virðist geta tekiö geðþótta-
ákvarðanir óháð dómi þeirra?
„Margir hafa velt þessu
fyrir sér í framhaldi af þessu
máli, hvort það sé þess virði
aö gefa sig út í dómnefndar-
störf. Þetta eru vandasöm
störf og alveg sérstaklega
vanþakklát. Eg vona aö þetta
verði eina tilfellið af þessu
tagi og aö aldrei aftur verði
gengiö fram hjá faglegu áliti
dómnefndar á þennan hátt.
Þetta hefur fyrst og fremst
snúist upp í árás á þá menn
sem í dómnefndinni störf-
uðu, en þeir hafa sinnt þess-
um störfum sínum aödáunar-
lega vel.“
— Hvaða afieiðingu getur
þetta haft fyrir deildina?
„Þaö er ennþá spurning
um hvaö Hannes kemur til
meö að kenna. Nemendur í
stjórnmálafræöi hafa fariö
fram á aö þeir yrðu ekki
skyldaðir aö sækja námskeiö
í stjórnmálafræði hjá Hann-
esi þar sem hann hefur ekki
fengið hæfnisdóm til aö
kenna á þessu sviði. Deildin
hefur fallist á þessi sjónar-
miö nemenda. Deildin hefur
úr litlu fé aö spila og þaö
hefur vantaö upp á aö viö
gætum komiö til fulls til
móts viö þarfir nemenda. Nú
þegar okkur er úthlutuö ein
staða sem veröur okkur
gagnslítil þá er óhjákvæmi-
legt aö sú vinna lendi á öör-
um, og eykur álag á þeim.
Okkur munar um hvern kenn-
ara sem kemur til starfa við
Háskólann og vinnur þar
þarft starf. Frekari viðbrögö
af hálfu deildarinnar munu
koma í Ijós í haust.“
— Hvað finnst þér um af-
stöðu fjölmiöla i þessu máli?
„Frá upphafi var þaö Ijóst
að við ættum mikið undir
starfi fjölmiðla í bessu máli
„Dómnefndarálitið sýnir svart á
hvítu að ekki var um hlutdræga
dóma að ræða.“ Þórólfur Þór-
lindsson, prófessor.
Ég hef aldrei efast um aö viö
hefðum góöan málstaö en ég
óttaðist þaö að vió gætum
orðið undir í fjölmiölastriöi.
Þetta er flókió mál fyrir þá
sem utan Háskólann standa
og erfitt aö brjóta þaö til
mergjar. En eftir því sem á
málið hefur lióió hef ég áttaö
mig á því aö íslensk blaða-
mannastétt fylgir fyrstu grein
í háskólalögunum eins og
við, um aö leita sannleikans.
Þetta mál hefur snúist mikið
um frelsi Háskólans til aö
stunda rannsóknir og
kennslu sé grundvallaratriði í
vestrænu lýóræöisþjóöfélagi.
Frelsi til rannsókna og
kennslu, og til aö velja sér
hæfustu starfsmennina á að
setja á bekk með málfrelsi,
þrískiptingu valdsins, og síó-
ast en ekki síst með frjálsri
fjölmiölun."
Kjörbók Landsbankans
Fyrirmynd annarra bóka.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna