Alþýðublaðið - 27.07.1988, Síða 1
Gervitunglasjónvarp
UM 250 DISKAR SELDIR
EN AÐEINS 40 ERU Á SKRÁ
Diskum til móttöku á gervitunglasjónvarpi hefur fjölgað ört að undanförnu.
Um áramót munu nást 26 erlendar sfónvarpsstöðvar.
Samkvæmt upplýsingum
verslana sem selja móttöku-
búnaö fyrir gervihnattasend-
ingar hafa þegar verið seldir
a.m.k. 250 móttökudiskar hér
á landi en skv. upplýsingum
samgönguráðuneytisins eru
aðeins 40 diskar á skrá i
ráöuneytinu.
Diskum til móttöku á gervi-
hnattasendingum erlendra
sjónvarpsstöðva fjölgar ört í
landinu og oftast í trássi við
lög. Diskarnir munu þýða
gjörbyltingu á sjónvarps-
menningu íslendinga. Þegar
nást 8 erlendar sjónvarps-
stöðvar með góðu móti og
um áramótin mun þeim
fjölga í 26 með tilkomu Astra
gervihnattarins. Eftir tvö til
þrjú ár verða þær líklega um
50. Er 6 þúsund króna leyfis-
gjaid ráðuneytisins annað
hvert ár i raun dulbúiö af-
notagjald móttökudiska?
Tólfti hluti þjóðarinnar hefur
þegar aðgang að gervihantta-
sendingum. Hver verða við-
brögð íslenskra sjónvarps-
stöðva? Fréttaskýring á bak-
síðu.
Ungir sem aldnir eru farnir að setja sig i stellingar fyrir verslunarmannahelgina og útihátíðir verða haldnar á fimm stöðum að þessu sinni. Krakkar
eiga þó úr vöndu að ráða þvi nú hefur verið sett 16 ára aldurstakmark á nokkrar hátiðir. Sjá frétt bls. 3.
Borgin snýr
við blaðinu
Borgarráð samþykkir að
sœkja um lán til
byggingar kaupleigu-
íbúða
Stefnubreyting viröist nú
hafa orðið hjá borgaryfirvöld-
um gagnvart kaupleiguíbúð-
arkerfinu þvi i gærdag sam-
þykkti borgarráð aö sækja
um lán hjá Húsnæðisstofnun
rikisins til byggingar kaup-
leiguibúða.
Það var minnihlutinn í
borgarstjórn sem hafði gert
j tillögu um að borgin tæki
þátt í byggingu kaupleigu-
ibúða og gengur samþykkt
borgarráös út á það aö
Reykjavíkurborg geti nýtt sér
þann rétt sem lög veita um
lán úr byggingarsjóði til
byggingar kaupleiguíbúða.
I fjárlögum í ár er gert ráó
fyrir 273 milljónum á útlána-
áætlun Húsnæðisstofnunar
ríkisins sérstaklega vegna
kaupleiguíbúða.
Skoðanakönnun Stövar 2 og SKÁÍS
KVENNALISTINN DALAR
Alþýðuflokksráðherramir meðal sjö vinsœlustu stjórnmálamanna þjóðarinnar. Borgara-
flokkurinn týndur og tröllum gefinn.
Sjálfstæðisflokkurinn er
stærsti flokkurinn í landinu,
Kvennalistinn nýtur næst-
mesta fylgis kjósenda, þá
Framsóknarflokkur og Al-
þýðuflokkur. Borgaraflokkur-
inn hefur gjörsamlega þurrk-
ast út. Fylgi Alþýðubanda-
lagsins byggist á rosknu
fólki og fylgi Alþýðuflokksins
á ungu og miðaldra kjósend-
um. Steingrimur er vinsæl-
asti stjórnmálamaður þjóðar-
innar sem fyrri daginn, en
ráðherrar Alþýðuflokksins
eru einnig vinsælir og í hópi
þeirra sjö stjórnmálamanna
sem þjóðin treystir best til
að fara með ráðherra-
embætti.
Þetta eru nokkrar niður-
stöður úr skoðanakönnun á
fylgi stjórnmálaflokkana, og
vinsældum stjórnmálamanna
sem SKÁÍS hefur framkvæmt
fyrir Stöð 2 og birtust i frétt-
um sjónvarpsstöðvarinnar í
gærkvöldi.
Sjálfstæðisflokkurinn hlýt-
ur 32,8% fylgi þeirra sem af-
stöðu tóku, Kvennalistinn
23,3%, Framsóknarflokkurinn
20,3%, Alþýðuflokkurinn
10,9% og Alþýðubandalagið
9%. Borgaraflokkurinn þurrk-
ast nær alveg út og hlýtur
aðeins 0,9% fylgi samkvæmt
skoðanakönnuninni. Öðrum
smáflokkum vegnar skár;
Flokkur mannsins fær 1,6%
en Þjóðarflokkurinn 1,2%.
Skoðanakönnunin var tekin
ídagana 23. og 24. júlí sl. og
var haft samband við 700
einstaklinga. Af þeim svör-
uöu 656 en 433 tóku afstöðu.
Skoðanakönnunin sýnir
ennfremur yfirburðavinsældir
Steingríms Hermannssonar
sem stjórnmálamanns en
næstur honum í vinsældum
koma Halldór Ásgrímsson,
Þorsteinn Pálsson og Jón
Baldvin Hannibalsson.
Þá vekur það athygli að
meðal sjö vinsælustu stjórn-
málamanna landsins og
þeirra sem þjóðin styður ein-
dregið til setu í rikisstjórn
eru allir þrír ráðherrar Alþýðu-
flokksins.
Kyn- og aldursgreining
fylgir einnig könnuninni og
sýnir m.a. að helmingur fylg-
ismanna Framsóknar eru 50
ára og eldri og sömu sögu er
að segja um Alþýðubandalag-
ið. Hins vegar er fylgishópur
Alþýðuflokksins stærstur
meðal ungs fólks og mið-
aldra.