Alþýðublaðið - 27.07.1988, Page 3
Miðvikudagur 27. júlí 1988
3
FRÉTTIR
Félagsmálaráðherra og vinnutimanefnd kynntu vinnutimaskýrslu i gær eftir aö ríkisstjórnin haföi tekiö hana til umfjöllunar. Nú sést svart á hvítu
að Islendingar eru yfirvinnufúsari en nokkur önnur sambærileg þjóð.
Félagsmálaráðherra og vinnutímanefnd
LÖGBUNDID ÞAK
Á YFIRVINNU?
Nefndin segir að með þvi að auka vœgi dagvinnulauna megi draga úr yfirvinnu, leggur
til að samið verði um lœkkun yfirvinnukaups og yfirvinna takmörkuð með lögum.
Vinnutímanefnd sú sem
Jóhanna Sigurðardóttir, fé-
lagsmálaráðherra, skipaði á
síðasta ári kynnti niðurstöð-
ur víðtækrar athugunar Fé-
lagsvjsindastofnunar á vinnu-
tíma íslendinga á frétta-
mannafundi í gær. Eins og
Alþýðublaðið greindi frá í
gær sýnir könnunin að ís-
lendingar vinna óhemju
mikla yfirvinnu; við vinnum
meiri yfirvinnu en aðrar þjóð-
ir þar sem sambærilegar
mælingar hafa farið fram,
80% karla vinna einhverja
yfirvinnu og meðalvinnutími
kvenna er um 49 stundir á
viku. Nefndin setur fram hug-
myndir um leiðir til að hafa
áhrif á vinnutíma og hvernig
megi stytta hann.
Leggur nefndin til að í
kjarasamningum verði leitað
leiða til að lækka yfirvinnu-
kaup og jafnframt hækka
dagvinnulaun, skattar af
launagreiðslum fyrirtækja
verði í auknum mæli stað-
greiddir og brýnt sé að fylgja
þessum hugmyndum úr hlaði
með löggjöf, þar sem sett
Bæjarstjórn Húsavíkur er
ekki sátt við þá niðurstöðu
Flugráðs að mæla með Egils-
stöðum sem framtiðarstað
fyrir varaflugvöll í millilanda-
flugi. Bæjaryfirvöld á Húsa-
vík hafa itrekað bent á að
Aðaldalsflugvöllur sé ákjós-
anlegur sem millilandaflug-
völlur og megi auðveldlega
stækka flugbrautina í 2700
metra.
Að sögn Hjördisar Árna-
dóttur, forseta bæjarstjórnar
á Húsavík, sendi bæjarstjórn
bréf til Flugmálastjórnar, fjár-
veitinganefndar Alþingis og
verði þak á hámarksvinnu-
tíma, með svipuðum hætti
og gert hefur verið á Norður-
löndum.
Jóhanna Sigurðardóttir
hyggst senda álit nefndarinn-
ar til umsagnar og umfjöllun-
ar heildarsamtaka aðila
vinnumarkaðarins og óska
Sláturfélag Suðurlands og
Loðskinn hf. hafa samið um
viðtækt samstarf á sviði
gæruverkunar og sútunar.
Samkvæmt samningi þess-
um kaupir Loðskinn hf. allar
sútunarvélar Sláturfélagsins
fyrir kr. 40 milljónir og mun
Sláturfélagið hætta sútun.
Greiðsla fyrir vélarnar er í
formi skuldabréfs að upp-
hæð kr. 16 milljónir og hluta-
bréf í Loðskinn hf. að nafn-
verði kr. 12 milljónir sem met
þingmanna kjördæmisins i
síðasta mánuði þar sem
hvatt var til þess aö Aðaldals-
flugvöllur yrði fyrir valinu
sem varaflugvöllur. Niður-
staða starfshóps um vara-
millilandaflugvöll i april setti
hins vegar Húsavík einungis
fram sem valkost ef slikur
flugvöllur ætti bæði að sinna
áætlunar- og leiguflugi og
svo herflugi. Niðurstaða
Flugráðs í síðustu viku setur
Húsavík í fjórða saeti yfir val-
kosti í þessu efni. Á eftir
Egilsstöðum, Sauðárkrók og
Akureyri.
eftir tillögum um framhald
málsins. I Vinnutímanefnd-
inni sátu: Bolli Þór Bollason,
skrifstofustjóri í fjármála-
ráðuneytinu, formaður nefnd-
arinnar, Jón Agnar Eggerts-
son, formaður Verkalýðsfé-
lags Borgarness og Víglund-
in eru á tvöföldu nafnverði.
Sláturfélagið mun eiga um
17% hlutafjár i Loðskinn hf.
eftir þessa breytingu.
Sláturfélagið mun selja
Loðskinni hf. allar kindagær-
ur sínar næstu 10 ár. Slátur-
félagið mun leggja Loðskinni
til söltunarhús sín i Rangár-
vallasýslu og mun Loðskinn
hf. reka þar söltunar- og
klippistöð til að forvinna
gærur Sláturfélagsins. Miöað
er við að til söltunar- og
„Við erum ákaflega ósátt
við það hvaða stefnu þetta
mál er að taka því við teljum
að margt mæli með því að
Aðaldalsflugvöllur verði fyrir
valinu," segir Hjördís.
„Athuganir hafa sýnt að að-
flugs- og blindflugsskilyröi
eru mjög góð hér og lenging
flugbrautarinnar er ekki mjög
erfið eða dýr framkvæmd.
Hér í kring eru margir eftir-
sóttir ferðamannastaðir
landsins og við höfum líka
bent á að hér eru einhver
bestu skilyrði til fiskiræktar á
ur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri. Ritari nefndar-
innar var Lára V. Júlíusdóttir,
aðstoðarmaður félagsmála-
ráðherra.
Skýrslan var tekin til um-
fjöllunar á ríkisstjórnarfundi í
gær. Sjá fréttaskýringu bls. 5.
klippistöðvar þessarar þurfi
sem svarar 10 ársverk. Samn-
ingur þessi skapar því um 6
ný atvinnutækifæri í Rangár-
vallasýslu til viðbótar þeim 4
ársverkum sem hafa verið við
söltun Sláturfélagsins.
„Ofangreind samvinna
styrkir rekstur beggja fyrir-
tækja og möguleika þeirra til
traustrar atvinnustarfsemi til
lengri tima litið,“ segja for-
svarsmenn.
landinu og því gæti komið
sér vel að hafa hér stóran
flugvöll fyrir útflutning svo
nokkuð sé nefnt," segir Hjör-
dís.
Að sögn hennar hafa bæj-
aryfirvöld enn ekki fengiö
viðbrögð við bréfinu „en við
munum herja á okkar þing-
menn í þessu máli, enda á
Alþingi eftir að fjalla um
þetta,“ segir Hjördís. Sagði
hún jafnframt aö bæjaryfir-
völd heföu ekkert rætt um
hugsanlegan herflugvöll í
sambandi við þetta mál.
Söluskattur
á útihátíðum
MIDA-
VERÐID
HÆKKAR
Útihátíðir um Verslunar-
mannahelgina verða haldnar
á fimm stöðum á landinu í ár.
Að baki flestra þessa'ra há-
tíöa standa félagasamtök
sem nota þessi mót sem fjár-
öflunadeiö fyrir félagsstörf
þeirra. I ár hafa verið settar
ýmsar takmarkanir á þessar
útihátíðir, í fyrsta skipti er 16
ára aldurstakmark inn á þær
og meðferð áfengis er bann-
að á þessum stöðum. Þá
veröur greiddur söluskattur
af þessum skemmtunum
sem setur stórt strik i reikn-
inginn hvað varðar beinan
hagnað af þeim, og bera for-
svarsmenn þeirra við að að-
gangseyrir hafi verið hækk-
aöur af þeim sökum.
Unnar Vilhjálmsson einn
aðstandandi Atlavikurhátiðar-
innar sagði að lögreglan
hefði umsjón með því aö ekki
kæmi of ungt fólk inn á
svæðið með áfengi. Aðstand-
endur Atlavikurhátíðarinnar
sömdu upp á ákveðnar pró-
sentur af aðgangseyrinum
við skemmtikrafta sína svo
að áhætta fyrir þá er ekki
mikil. Unnar kvaðst ekki viss
um hvort greiða þyrfti sölu-
skatt af skemmtuninni, þeir
þyrftu þá kannski að auglýsa
íþróttakeppni á svæðinu til
að komast hjá honum.
Ómar Pétursson forsvars-
maður Fjörs hf. sem heldur
útihátið á Melgerðismelum
sagði að aldurstakmarkið og
áfengisbannið væri fyrst og
fremst til að koma í veg fyrir
aö mjög ungir krakkar yrðu
þarna ofurövli, og mun lög-
reglan sjá um aö þvi verði
framfylgt. Það er fyrirtækið
Fjör hf. sem stendur fyrir
hátíðinni en ýmis félagasam-
tök starfa fyrir þá á mótinu
og þeim veröa tryggðar tekj-
ur. þar sem um fyrirtæki er
að ræða hafa þeir enga
möguleika til að komast hjá
söluskatti en hinsvegar losna
þeir viö skemmtanaskatt þvi
hátíðin er haldin í hrepp þar
sem færri en 1500 manns
búa. Skattheimtan væri hins-
vegar margföld og miðaverð-
ið réðist ekki síst af því.
Arnar Andersen i þjóð-
hátíðarnefnd Vestmannaeyja
sagði að ekki væri hægt að
setja aldurstakmark hjá þeim
þar sem þjóðhátíðin væri
skemmtun fyrir alla Eyjabúa.
Gæslan á svæðinu mun sjá
um aö áfengisbanni verði
framfylgt. Hann sagði að
söluskattur yrði á hátíðinni
og væri miðaverð sett í sam-
ræmi við það.
Bindindismótið í Galta-
lækjarskógi og hátíðin í Vík í
Mýrdal eru hugsaðar sem
fjölskylduhátíðir og því er
ekki um eiginlegt aldurstak-
mark að ræða á þeim. Guðni
Björnsson forsvarsmaður
mótsins í Galtalæk sagöi að
söluskatturinn hefði sett
stórt strik í reikninginn hvað
varðaði hagnað af mótinu og
hefði miðaverð hækkað til
muna frá þvi í fyrra vegna
þessa. í Vík í Mýrdal erekki
selt inn á svæðið en þar eru
tjaldstæði þar sem aðstaða
er fyrir fólkið sem þangað
kemur. Páll Pétursson bjóst
við því að það yrði lítið
afgangs af hagnaðinum ef
söluskattur yrði settur á
hátíðina hjá þeim.
Varaflugvöllur
VIÐ NIUNUM HERJA Á 0KKAR ÞINGMENN
segir Hjördís Árnadóttir, forseti bœjarstjórnar á Húsavík, um staðsetningu varaflugvall-
ar. Bœjarstjórn Húsavíkur hefur sent Flugmálastjórn og þingmönnum bréf þar sem þess
er krafist að Aðaldalsflugvöllur verði fyrir valinu.
SAMSTARF UM GÆRUVERKUN
Sláturfélag Suðurlands selur Loðskinni hf. sútunarvélar fyrir 40
milljónir og eignast hlut í fyrirtœkinu.