Alþýðublaðið - 05.08.1988, Page 7

Alþýðublaðið - 05.08.1988, Page 7
Föstudagur5. ágúst1988 7 ÚTLÖND Umsjón: Ingibjörg Arnadóttir NJÓSNARI OG VOPNASALI Frá hæöadraginu viö Hotel King David, sjáum viö ekki, aö alsherjarverkfall stendur yfir í arabiska hluta Jerúsa- lem og á Vesturbakkanum. Verslanir eru lokaðar, hlerar fyrir gluggum og jafnvel vixlarabúðirnar viö Damask- us-hliðið eru læstar. Þetta orsakar engar and- vökunætur hjá Nimrodi. HEFÐI ÁTT AÐ FLYTJA FÓLKIÐ Frá því aö Nimrodi kom til Jerúsalem sem kornabarn fyrir 62 árum, hafa gyðingar og palestínumenn barist um réttinn til aö stofna ríki i Palestínu. Nimrodi er á bandi sigurvegaranna, sem er reyndar auöséö á sigri hrós- andi svip hans og holdarfari velmegunar. „Viö heföum átt að flytja arabana úr borginni áriö 1967, þegar viö náðum aust- urhluta Jerúsalem á okkar vald. Þaö heföi getað tekist á einum sólarhring, og þá heföi Israel sloppiö viö erfiðustu baráttu sína. Stríöið hér I Jerúsalem er erfiðara en á hinum svæðunum, I Gaza og á Vesturbakkanum," segir Nimrodi og bendir I áttina aö arabíska borgarhlutanum. NJÓSNARI OG VOPNASALI Ya’akov Nimrodi er oröinn goösögn I lifanda lífi. Hann varerindreki Israel I Teheran á dögum kalda striösins, á árunum kringum 1950. Á þessum tíma aðstoðaði hann Shainn I Iran viö að koma á laggirnar hernaöar-, leyni- og njósnastarfsemi. Því næst var hann gerður að hermála- fulltrúa lands síns I Teheran, og átti persónulegan þátt I hinum viöamiklu vopnasend- ingum Israel til Iran. Aö laun- um fengu israelsmenn aö- gang aö olíu I Iran og voru báöir aðilar ánægöir meö þessi viðskipti. Kórónan á ferli Nimrodi voru gullnu árin kringum 1970. Þá starfaöi hann sem sjálfstæður kaupsýslumaöur I Teheran og seldi írönum allt mögulegt svo sem vopn og alls konar stríðstæki, einnig seldi hann þeim verksmiðju til aö afsalta sjávarvatn. Á þessum tíma flæddi út úr rík- iskassanum því olíupening- arnir hlóðust upp I Iran. Nimrodi naut heldur betur góðs af þessu braski sínu og varö margfaldur milljónamær- ingur. I desember áriö 1978, ein- um mánuði fyrir fall Shains, pakkaði Nimrodi-fjölskyldan niöur föggum sínum og yfir- gáfu Teheran ásamt 34 sam- starfsmönnum af gyðinga- ættum. Khomeini var í start- holunum til að taka viö völd- um, og Teheran var ólgandi suöupottur af hatri gegn Shainum, Israel og Bandaríkj- unum. „IRANGATE" Einmitt af þessum ástæö- um má þaö teljast kald- hæðnislegt, að Nimrodi skyldi áriö 1985 veröa milli- göngumaöur Israel f „Iran- gate“. Það hneyksli var raun- verulega kænsku-áform af „Ég hefi skipt um starf. í staö þess að selja vopn, versla ég meö lóðir og fasteignir. Ég bara læt mig dreyma um íran,“ segir Nimrodi. hendi Israelsmanna þar sem Saudi-Arabia var í hlutverki mangarans. Ætlunin var, að Bandaríkin og Israel seldu ríkisstjórn Khomeini vopn, í þeirri von aö bandarisku gísl- arnir í Beirut yrðu látnir lausir, ásamt því aö reyna aö koma aftur á hernaðarlegri samvinnu milli Teheran, Jerú- salem og Washington. „Þetta byrjaöi allt meö því, aö arabíski vopnasalinn Adnan Khasoggi stakk upp á því viö mig áriö 1985, að viö reyndum í sameiningu að opna „hliöiö" aö Iran. Þetta hljómaði stórkostlega og ég var strax til í tuskið,“ segir Nimrodi um leiö og hann hellir kaffi ( bollana. Hann bætir síöan við: „Israel verður aö reyna að selja vopn, því vopnafram- leiösla okkar er tuttugu sinn- um meiri en viö þurfum aö nota.“ Nimrodi kveikir í gríöarleg- um vindli um leiö og hann biður bílstjóra sinn og kokk, um aöra kaffikönnu. BANDARÍKIN RÍTA Á AGNIÐ „Ríkisstjórn Israel hefur aldrei neitaö því aö viö seld- um írönum israelsk vopn,“ segir hann meö meinfýsnu glotti. „Umdeilda spurningin er, hvort Bandaríkjamenn hafi veitt okkur leyfi til að selja þeim bandarísk vopn!“ Nimrodi lætur á sér skilja aö Washington hafi gefiö Hádegissólin skín lóðrétt á húsin. Blaðamaður Arbeiderbladet er staddur á svölum ríkmannlegrar íbúðar Ya ’akov Nimrodi og horfir ásamt Nimrodi yfir elsta hluta Jerúsalem. Hinn gullni turn Omar- moskunnar blasir við eins og islamskur hnefi, innrammaður af Getsemane-garðinum og kirkjunni á Olíufjallinu. bönd til aö notfæra sér þegar friður kæmist á. Hinar gífur- legu olíutekjur Iran myndu gera landið að einum besta markaði í Mið-Austurlöndum. REIÐUR ÓT í PERES Nimrodi er ekki ánægöur meö meðferðina á sér og Schwimmeren Shimon Peres tók fyrir stjórn þeirra á vopnasendingum til Iran, um áramótin 1985-1986. Hann setti Amiran Nir ráögjafa sinn í hermdarverkum, yfir stjórn vopnasendinganna. „Vopnaviöskiptin við Iran heföu komið pólitískt til góöa fyrir okkur og einnig fyrir Bandaríkjamenn. Þetta voru pottþétt viðskipti og þaö heföi ekki verið nauösyn- legt að þau kæmust upp,“ sagöi Nimrodi og beit fast í vindilinn. SKIPT UM STÖRF Ya’akov Nimrodi er ekki íranskur gyöingur, eins og margir halda. Hann fæddist í Bagdad áriö 1926. Þegar hann var 10 daga gamall, fluttu foreldrar hans meö börn sín til Palestínu. Frá Bagdad yfir Aleppo í Sýrlandi, komst fjölskyldan til Jerúsalem. Móöir Nimrodi býr enn í Jerúsalem, 94 ára gömul og 75 afkomendur. Hún haföi aldrei látiö sig dreyma um, aö sonur hennar gæti rifið sig svo upp úr fá- tæktinni aö hann yrði einn af auðugustu mönnum í Israel. Margir gyðingar fæddir í Irak hafa gert þaö gott í Israel, en Nimrodi slær þó öll met. Nú situr Nimrodi í rík- mannlegri íbúö sinni í Jerú- salem, dýr málverk prýða veggi og fágætir fornmunir sem hann hefur fengiö í Te- heran eru margir. Blaðamaður spyr Nimrodi hvort framhald verði á vopna- sölu til Iran? Nimrodi hvessir brúnu kuldalegu augun og urrar meö vindilinn í munninum: „Hvernig á ég aö vita þaö? Eg er búinn aö skipta um at- vinnu. Nú er ég að versla með fasteignir og lóðir. Ef þú vilt kaupa hótel og átt pen- inga skaltu tala við mig. Um Iran læt ég mig bara dreyma." (Arbeiderbladet.) Israel grænt Ijós í sambandi við þessi viöskipti, sem reyndar var staöfest meö skýrslunni sem bandaríska þingiö lagöi fram i nóvember í fyrra. „Ef það, aö opna „hliðiö" aö Iran var af hinu góöa fyrir Bandaríkjamenn væri þaó sömuleiðis af hinu góöa fyrir Israel. Þú verður að athuga það aö 25.000 gyðingar búa í Iran og viö vildum hafa góö sambönd fyrir hendi þegar Khomeini væri ekki lengur viö völd,“ segir Nimrodi og er ergilegur yfir því aö áform þeirra félaga náðu ekki fram aö ganga. Khashoggi, Nimrodi og meðbraskari þeirra Al Schwimmer, ætluðu sem sé aö tryggja sér viðskiptasam-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.