Tíminn - 30.11.1967, Blaðsíða 8

Tíminn - 30.11.1967, Blaðsíða 8
/ jMgggsgg ■■■■-.•■ ■ ■■ ■ ;.■ :-y : mmmm ■:■■::: :::>, : /' /..yV. •• >•' illli :>:•: ' :•■ ;.■.; : :.•>>.:>::>■■:>.• ■: • .; ,: . TÍMINN FIMMTUDAGUR 30. nóvember 1967. Svartir, brúnir og gulir innflytjendur frá samveldislöndunum eiga flestir erfiða daga, en þó tekur síð- ur en svo fyrir strauminn til Englands. Þeir eru álitnir nokkurs konar hornrekur í hinu gamla góða ef ég seldi lituðum manmi húsið mitt, ... — viðskiptavinir mínir mundu taka það illa upp, ef litað fólk væri að gramsa í matvörunni ..., — verkamennrnr hér kæra sig ekki um að hafa náin samskipti af lituðu fólki. . . og þar fram eftir götunum. Það er vafasamt, hvort þessar afsakanir bæta nokkuð úr skák. Maxgl ungt fólk frá Vestur-Indí- um, hefyr .-a^t að það kunni bet- ur þeim tökum sem bað sé tekið í Sandaríkjunum. Ef návistar þeirrar sé ekki óskað, fái þau spark í afturendann, og skipun um að hypja sig á brott, — eng- ar vífillengjur eða vælur séu til að villa þeim sýn inn í veröld þá, scm hvítu mennirnir vilji hafa einir og án þeirra afskipta. En kynþáttaágreiningurinn í Bretlandi eykst fremur en dvínar, það er staðreynd, þótt sorgleg sé. Nvir innflytjendur virðast sætta sig bysna vel við aðskilnaðinn, en þeir gæta þess ekki, að þeir eiga sér vart viðreisnar von, enda þótt þeir geti komig sér og börnum sín- ) um til mennta. Mergurinn málsins er nefnilega sá, að þeim mun bet- ur sem hinir lituðu eru menntir, þvi sárar finna þeir fyrir aðskiln aðinum. Verkaniannavinnu'ri‘ geta þeir fengið en þegar þéir hafa fullnumað sig í einhverri iðngrein, er alveg undir hælinn lagt, hvort þeir fá eitthivað að gera, sem svarar til menntunar þeirra. í stuttu máli: lífið verður þeim þungb-ærara þeim mun meira sem þeir kunna. Tugir þúsunda litaðra barna út- skrifast árlega úr almennum skól um í Englandi og leita út í at- vinnulífið. Þeim finnst hvítu fé- lagar sínir á engan hátt rétthærri en þau sjálf, og þau skilja .ekki| hvers vegna þau eru nokkurs kon ar hornrekur i landinu, þar sem þau eru fædd og upp alin. Þau verða bitur og sár, þegar þau komast að raun um, hvernig allt er í pottinn búið, og þau láta gremju sína bitna á hivitum fé- lögum sínum. Hvít börn og lituð ganga saman i skóla og leika sér saman, en eftir því sem þau eld ast myndast breiðara bil á milli þeirra, og leiðir skilja oft alveg um 13 ára aldur. Formaður kynþáttasamtakanna, Mark Bontoam, sagði fyrri skömmu í ræðu. Við bjóðum innflytjendun um beztu menntun sem völ er á, en okkur hefur láðst að gefa þeim tækifæri til að nýta hana. Það mun áreiðanlega spjóða upp úr Það er ekki svo fjarri lagi að ætla að hann hafi rétt fyrir sér það getur soðið upp úr, og það mjög bráðlega- Orð „spámannsins“ Stokely Carmichel hafa mikinn hljómgrunn meðál blökku innflytj endanna í Englandi. Einkum ungt fólk hlýðir sem dáleitt á ræður hans um hatur og valdbeitingu. og hann fcefúr eígnazt lærisvein í Englandi, sem kallar sig Michel X og hann svííst einskis við að predika innflytjendunum „fagnað 7 arerindið". Reyndar '‘ur hann nú í fangelsi, hann var dæmdur fyrir þau glfuryrði, sem hann hefur haft í frammi, áeggjanir um hryðjuverk og morð. En hann á marga vildarvlni og marga áhang í hinum fræga garði Hyde Park i London er ekki óalgengt, að innflytj endur frá samveldislöndunum láti gremju sína í Ijós. Þarna sjáum við svertingja í ræðustól á „Speakers Corner". endur, og þeir hafa fengið yfir- tökin í félagsskap sem berst gegn jafnrétti kynþáttanna. Þet‘a eiu samiök róttækra vinstri afln, öfga- fullra baráttumanna, hryðjuverka manna, o. fl. Þeir hafa náð völd unum af hægfara hugsjór.amönn um, og hyggjast láta til skarar Æ meira ber nú á „iituðu" fólki í heimsborginni London. Hér sést ung svertingjamóðir með barn sitt á járnbrautarstöð. skríða innan táðar til að tryggja réttindi og m'öguleika hinna lituðu. Hvað þeir hyggjast fyrir, er óvíst en telja má öruggt, að þeir fari ekki samningaleiðina, heldur brjóti sér braut með báli og brandi, en auðvitað vona flestir að til þess komi ekki. Hatrið magnast og beizkjan sýð- ur í fólkinu, og fái hún útrás, er ekki að vita, hvað verður. Að sjálfsögðu hefur fjölmargt verið gert til að leysa vandamál hinna innfluttu, mörg fyrirtæki og ein- staklingai gera sitt ýtrasta til að gera þeim Hfið lóttara og styðja þá a ýtnsa lund. Flestum innflytj- endum finnst þeim vera troðið um tær, og vilja ekki láta við svo búið standa. Þeir eru hraktir út úr samíélag inu, sem þeir vilja búa í. Þeir vilja fá uppreisn, og svo virðist sem margir þeirra fái hana á eintovern hátt með þátttöku í öfgahreyfingum gegn hvítum. Talið er, að hert verði á lögun um um samneyti kynþáttanna, inn- flytjendunum í vil. Á hinn bóg- inn er ekki svo hlaupið að því að breyta hugsunarhætti fólkis og siðferðiskennd. Mótaðgerðum verð ur varla afstýrt, ef fólk tekur ekki skynsamlega á vandamálun- um, eins og þau blasa við, og reynir að leysa þau með breyttri hegðan og afstöðu gagnvart inn- flytjendunum. En það tekur sjálf sagt þó nokkurn tíma, og kannski sýður upp úr, áður en þvi marki er náð, og hvað er þá hægt að gera? Ýmsir þingmenn íhaldsflokksins hafa lagt til, að stöðvaður verði algjörlega innflutningur fólks frá samveldisiöndunum í nokkur ár, og tíminn nýttur til að bæta að- stöðu þeirra sem fyrir eru. Leið- togi stjórnarandstöðunnar Edward Heath hefur jafnvel lagt til, að óánægðum innflytjendum verði veitt fjárhagsleg aðstoð til að halda til 'heimahaganna og byrja nýtt líf. Flest önnur Evrópulönd hafa ekki átt við nein teljandi kynþátta vandamál að etja. í Frakklandi eru nú um 800 þúsund innflytjend ur frá Norður-Afríku og sambúð þeirra og hinna hvítu hefur geng ið ágætlega. Sama má segja um Hollendinga, og þær 200 þúsundir Indónesa sem í landi þeirra búa. Brezki innanríkisráðnerrann Roy Jenkins benti nýlega á, að hundruð þúsundir Asíubúa, sem lengst af hafa dvalið í Austur- Afríkuríkjunum muni sennilega leita tíl Bretlands vegna aðkasts sem þeir hafa orðið fyrir frá stjómvöldum í heimalöndunum. Þeir hafa fullan rétt á því, þar eð þeir hafa brezkt vegabréf. Straum urinn er þegar hafinn. Um 400 nýir innflytjendur koma viku- lega. Við skulum enda þessa grein með orðum, sem hinn kunni blökkumannaleiðtogi, dr. Martin Luther King viðhafði fvrir skömmu í London. — Kynþáttavandamálin í Eng- landi geta orðið fullt eins ö’-ðug viðfangs og í Bandaríkjur.um. Hættan er mikil! (Þýtt og endursagt). Hlliilillllll iHiai sii

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.