Tíminn - 30.11.1967, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.11.1967, Blaðsíða 1
 Auglýsing í TÍMANUM keœur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. <? mmmm 274. tbl. — Fimmtudagur 30 nóv. 1967. — 51. árg. Gerist áskrifendur að rtMANUM Hringið í síma 12323 Ólafur Jóhannesson, varaformaður Framsóknarfl. í útvarpsumræðunum: Gengisf elling nær ekki til- gangi að óbreyttri stef nu Ólafur Jóhannesson VERÐI EKKI BREYTT UM STEFNU, MUN SÆKJA í SAMA FARIÐ AFTUR, ÞVÍ ÞESSI STEFNA HEFUR LEITT TIL ÞRIGGJA GENGIS FELLINGA, ÞRÁTT FYRIR HAGSTÆÐUSTU SKILYRÐI. TK-Reykjavík, miðvikudag. í útvarpsumræðunum í gærkvoldi sagði Ólafur Jóhannes- son, varaformaður FramsóknarflokKsins, m.a., að fram hjá joví yrði ekki með neinu móti komizt að sú stórfellda gengis- lækkun, sem hér hefði verið gerð. væri í æpandi ósamræmi við allan málflutning stjórnarflokkanna í síðustu kosningum og yfirlýsingar ráðherra að undanfömu. Þess vegna eru engar líkur til, að stjórnin hafi meirihluta þjóðarinnar á bak við sig í dag. Þess vegna ætti hún að segja af sér, eða leita þegar í stað eftir nýju umboði frá kjósendum. Litlar [íkur væru sjálfsagt á að stjórnin gerði það. Hún myndi reyna að sitja og hver veit nema við eigum eftir að lesa það í stjórnai^laðs- leiðara á næstunni, að það sé skylda ráðherra að segja þjóð- inni ósatt, ef það sé gert til að tryggja áframhaldandi setu þeirra í ráðherrastólum. í ú tv a rpsu'mræðun u m í gær- kveldi rakti Ólafur Jóhannesson, hvernig röng stjórnarstefna hefði leitt til sífellt meiri ófarn aðar í efnahagsmáluim og benti rækilega á þann blekkingaiveg, seoi ríkis- stiörn arfl okkarnir hefðu spunn- ið fyrir síðustu kosningar m.a. með verðstöðvunaryíxilunum. sem þjóðin átti að greiða eftár að kosningarnar voru lufckulega af- staðnar. Ólafur benti á afleiðirg- ar þess stjórnleysis og óstiórnar sem ríkt hafði í höfuðþáttum efna hags- og atvinnulífsins og h/ern- ig það hefði leitt tffl síendurtekn- ingar vandræða á mestu uppgripa támahiili þjóðarinnar. í niðurlagi ræðu sinnar sagði Ólafur Jónsson m.a. um áscæð urnar fyrir því að vantraustið væri flutt: ÞRJU RIKI GEGN DE GAULLE NTB—Haag, miðvikudag. Þrjú aðildarríki Efnahagsbanda lags Evrópu, Belgia, Holland og Luxemborg, lýstu því yfir í dag, að þau hyggðust halda áfram samningaumleitunum um aðild Breta að bandalaginu í blóra við þá yfirlýsingu De Gaulles á blaða mannafundi í fyrradag að slíkt kæmi ekki til greina. Utanríkisráðherra Hollands, Joseph Luns, lýsti þessu yfir að afloknum fundi utanríkisráðherra Framhald á 14. síðu Charles de Gaulle „Kjarni þeesa máls er þó sá, og það er höfuðástæðan frá minni hendi fyrir þessari vantrausttil- lögu, að ekkert liggur fyrir um það, að stjórniin ætli að skipta um stefnu. En þessi ríikisstjórn hefur tvisvar áður iefflt gengi krónunnar. Hvernig hafa þær gengisfeiiingar reynzt. Því hefur reynslan svarað. Þær hafa runnið út í sandinn, og þær hafa vissu- lega skapað fleiri og stærri vanda mái en þær hafa leyst. Þær hafa ekki leitt til þess, að atvinnuveg- irnir kæmust á traustan og heil- brigðan grundvöli. Verðbólgan hefur ekki verið stöðvuð heldur hefur hún margnazt við hverja gengisfeilingu. Gengislækkan- irnar hafa reynzt henni sannkaill- aður fjörgjafi. Framihald á bls. 3. Skiptir McNamara um stól í Washington og fer UR LANDVÖRNf ALÞJÓDABANKA? NTB-Washington, miðvikudag. Talsmaður Hvíta Hússins lýsti því yfir í dag að það væri upp- spuni einn að McNamara, vamar- málaráðherra Bandaríkjanna kynni að láta af embætti, sakir ágreinings við Johnson forseta um rekstur Vietnanjstyrjaldarinnar. Enn hefur því ekki veríð lýst opinberlega yfir að McNamara muni láta af embætti sínu og taka við stöðu framkvæmdastjóra Al- þjóðabankans, en það er þó talið fullvíst. Vitað er, að hann hcfur verið timefndur, sem einn þeirra sem til greina koma í það embætti. Stjórn Aliþjóðabankans Kom saman til fundar í Washington í kvöid, en ekki var enn ljóst þegar síðast fréttisx hivort ákvörðun um, hver taki við framkvæmdastjóra- embættinu, verði tekin í kvöld. Framkvæmdastjóri Alþjóðabank- ans, sem nú lætur af störfum, er Bandaríkjamaðurinn George Woods. í Washington eru stjórn málasérfræðingar á einu máli um það, að McNamara muni taka við stöðu hans. Blaðafulltrúi Johnsons forseta, George Ohristian, vildi ekki gefa neina skýringu á því, hvers vegna McNamara léti af embætti, en lét þó að þvi Uggja, að orsökm væri misklíð og ágreiningur Johnsons og McNamara um rekstur Vietnam styrjaldarinnar. Stjórnmálafrétta- ritarar telja, að Johnson sé ó- ánægður með frammistöðu Mc Namara þar, og telji hann ekki sýna næga hörku. Talið er að brottför McNamara muni leiða til þess, að hershöfð ingjar Bandaríkjahers muni nú fá aukin áhrif og völd í Hvíta Hús inu og verði þá tekin upp harðari Framihald á 14. síðu Robert McNamara Áfleiðing gengisfall sterlingspundsíns Bretar fá nýjan fjármálaráðherra NTB-London, miðvikudag. Brezka stjórnin tilkynnti í dag að James Callaghan, fjármálaráð herra sá maður, sem stóð að baki gengisfellingu sterlingspundsins nú fyrir skemmstu, hafi nú látið af embætti. Callaghan sitnr þó áfram f stjórninni, en skiptir á embætti við innanríkisráðherrann Roy Jenkis, sagði í tilkynning- unni. Öruggar heimildir herma, að engra fleiri breytinga sé að vænta i oraé a skipur. stjórnarinnar. Nú eru aðeins 11 dagar síðan gengið var fellt og síðan hefur verið þrálátur orðrómur á kreiki í London, þess efnis að Callaghan hyggðist segja af sér embætti fjár málaráðherra. Callaghan, sem er 55 ára að aldri, hefur haft það embætti með höndum allt síðan stjórn Verkamannafloksins komst ti! valda haustið 1964. Roy .lemkins sem nú tekur við embætti fjármálaráðherra, er 46 ára að aldri. , Vitað er að hann var einn þeirra stjórnarmeðlima, sem voru hvað ákafastir í að geng ið yrði fellt, og er því varla að vænta breyttrar stefnu í efnahags málum Breta, vegna þessarar breytingar. Jenkins er sagður vera ein hinna upprennandi „stjarna“ Verkamannaflokksins, og jafnvel er gizkað á að hann sé hinn verð andi leiðtogi flokksins. Að því er segir í hinni opinfoeru tilkynningu brezku stjórnarinnar, var Callaghan þegar búinn að leggja inn lausnarbeiðni sína er Framihald á 14. síðu James Callaghan

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.