Alþýðublaðið - 15.09.1988, Síða 3

Alþýðublaðið - 15.09.1988, Síða 3
3 Fimmtudagur 15. september 1988 FRÉTTIR Pétur Sigurðsson forseti ASV FORMANNAFUNDURINN VAR TÍMASKEKKJA I skeyti sem barst inn á formannafund ASÍ á mánu- dag komu þau skilaboð frá Pétri Sigurössyni forseta Al- þýðusambands Vestfjaröa, að fundurinn væri timaskekkja. Pétur benti á að miöstjóm ASÍ væri löngu búin að hafna viðræðum við stjórnvöld um efnahagsmál og i fundarboð- um væri ekki minnst á önnur umræðuefni. í útvarpi hefði komið fram að á fundinum ætti að fjalla um hugmyndir forseta sambandsins um at- vinnulýðræði. I skeytinu mælti Pétur hins vegar með því að umræða um atvinnu- lýðræði yrði meginverkefni næsta Alþýðusambands- þings. „III fundarins var boðað til að ræða um viðræður mið- stjórnar við stjórnvöld um efnahagsmál. Ég sá ekki að formannafundur hefði nokk- uð þar til málanna að leggja lengur,“ sagði Pétur i gær þegar Alþýðublaðið spurði hann nánar um ástæður þess, að hann sendi skeytið. „Siðan voru fluttar fréttir í útvarpi og sjónvarpi um að á þessum fundi yrðu reifaðar róttækar tillögur, jafnvel um þjóðfélagsumbyltingu, sem er mjög í þeim anda sem menn hefðu kannski helst viljað vinna eftir fyrr,“ sagði Pétur. „Við hefðum átt að taka þetta upp úr okkar pússi strax og við áttum tækifæri til að ræða við stjórnvöld um efnahagsmál." Pétur sagði að þetta væri stórt mál, sem þyrfti að ræða frekar á Alþýðusambands- þingi. Hann benti á að málið hefði verið skilið eftir hálf- rætt og óafgreitt á þingi sam- bandsins fyrir átta árum síð- an. „Mín skoðun er hins vegar sú að verkalýðssamtökin ættu aldrei að sleppa því tækifæri, að fá að ræöa úr- lausn efnahagsmála við ríkis- stjórnir," sagði Pétur Sig- urðsson. Pétur Sigurðsson: Við hefðum átt að taka þessi mál strax upp úr pussi okkar þegar við áttum tæki- færi til að ræða við stjórnvöld r Ibúðabyggingar 1976—1986 NIIKILL SAMDRÁTTUR Undanfarin ár hefur dregið úr íbúðabyggingum hér á landi, samkvæmt samantekt Húsnæðisstofnunar ríkisins yfir tímabilið 1976-1986. Á tímabilinu frá ’76:86 voru full- gerðar árlega að meðaltali um 2220 íbúðir, en síðast lið- in sex ár var meðaltalið um 1660 íbúðir á ári. Arið 1986 voru íbúðabygg- ingar í algjöru lágmarki, en þá var byrjað á aðeins 1163 íbúðum. Framkvæmdir við nýjar íbúðir höfðu þá ekki verið jafnlitlar síðan 1969. Athygli verkur að þetta sama ár var nýtt húsnæðiskerfi tekið í notkun. Forsvarsmenn Landhelgisgæslunnar kynntu nýju bókina í gær um borð í varðskipinu Tý. A-mynd/Magnús Reynir. í samantekt Húsnæðis- stofnunar kemur fram að það sem einkennir þessa þróun er að samdrátturinn tekur næst eingöngu til lands- byggðarinnar. Dagvistarmálin hjá borginni STJORNARANDSTAÐAN VILL ÚRRÆÐI STRAX Fulltrúar stjórnarandstöð- unnar í borgarstjórn leggja fram sameiginlega tillögu til umfjöllunar í borgarstjórn i dag. Tillagan felur í sér að stjórn Dagvista barna verði falið að leita nú þegar úr- ræða til þess að leysa starfs- mannavanda dagvistar- heimila Reykjavíkurborgar og 35 milijónum verði varið í þessu skyni. Nálægt 500 pláss eru ónotuð i dag vegna starfsmannaskorts og börn á . biðlistum hafa aldrei verið fleiri. Vandinn hefur aldrei veriö meiri, aö mati borgar- fulltrúanna. í greinargerð með tillög- unni segir að biðlistar eftir dagheimilis- eða leikskóla- plássi hafi aldrei verið lengri. Á þeim eru nú um 2068 börn. Þá er bent á aó fækkun dag- vistarplássa skapi mikinn þrýsting á dagmæðrakerfið, en dagmæðrum hafi hins vegar fækkað, sérstaklega þeim sem visti börn allan daginn. Stjórnarandstaðan minnir ennfremur á að enn hafi ekki veriö farið að tillögun nefnd- ar á vegum borgarráðs, sem komst að þeirri niðurstöðu að bætt launakjör hefðu mesta þýðingu fyrir starfs- mannahaldið. Erfiðleikarnir hjá Verslunardeild Kaupfélögin sameinast um í gær voru stofnuð Samtök samvinnuverslana. Á stofn- fundinum, sem haldinn var i Holtagörðum í Reykjavík voru mættir á fimmta tug forsvars- manna kaupfélaga og Versl- unardeildar SÍS. Megintil- gangur samtakanna er sagö- ur að koma á skipulögðu samstarfi innan samvinnu- hreyfingarinnar á sviði smá- söluverslunarinnar með það fyrir augum að nýta enn frek ar samtakamátt hreyfingar- innar og stuðla þannig að samkeppnishæfari verslun. Þessi ákvörðun er tekin í kjölfar gífurlegs tapreksturs hjá verslunardeildinni. Hug- myndin var komin fram fyrir aðalfund Sambandsins í vor. Með stofnun samtakanna gera sambandsmenn sér von- ir til að kaupfélögin auki enn frekar viðskipti sín við heild- sölu Sambandsins, verslunar- deildina. í stjórn félagsins voru kosnir; Sigurður Kristjáns- aðgerðir son, en hann var formaður undirbúningsnefndar, Björn Baldursson, Jörundur Ftagnarsson, Snævar Guð- mundsson og Ólafur St. Sveinsson. Varamenn í stjórn voru kosnir Þórir Páll Guðjónsson og Guöjón Stefánsson. LANDHELGIS- GÆSLAN í RÓKAÚTGÁFU Landhelgisgæslan hefur látið þýða og gefið út á ís- lensku handbók alþjóðasigl- ingamálastofnunarinnar um leit og björgun skipa. For- svarsmenn Gæslunnar kynntu framtakið í gær og kom fram að bókin væri m.a. gefin út vegna þess hve varð- skip eru fá og dreifð og af þeim sökum oft nauðsynlegt að leita til annarra skipa við leitar- og björgunarstörf. Þess er vænst að bókin verði innan tíöar tiltæk í sér- hverju íslensku skipi, svo aö leitar- og björgunaraðgerðir verði markvissari, „hvort sem þær eru unnar undir stjórn Landhelgisgæslunnar eða ekki,“ eins og segir í kynn- ingartexta sem dreift var á blaðamannafundi í gær. Þá verður bókin einnig notuð við kennslu í Stýrimannaskólan- um. Nánast óbreytt atvinnuástand Atvinnuleysi i ágúst svarar til 0,4% af áætluðum mann- afla á vinnumarkaði sam- kvæmt spá Þjóðhagsstofnun- ar, sem er svipað og mánuð- inn á undan. Samkvæmt yfirliti Vinnu- málaskrifstofu félagsmála- ráðuneytisins voru 10.200 atvinnuleysisdagar skráðir á landinu öllu I ágúst sem er um 1100 dögum færra en ( júlímánuði. Þessi fjöldi at- vinnuleysisdaga jafngildir því að 470 manns hafi að meöal- tali verið á atvinnuleysisskrá i mánuðinum. Skráðum at- vinnuleysisdögum fækkaöi frá mánuðinum á undan á höfuðborgarsvæðinu, Vestur- landi, Norðurlandi vestra, Austurlandi og Suðurlandi, en fjölgaði óverulega á Vest- fjörðum, Norðurlandi eystra og Suðurnesjum.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.