Alþýðublaðið - 19.11.1988, Page 1

Alþýðublaðið - 19.11.1988, Page 1
Jóhanna Sigurðardóttir við setningu 44. flokksþings Alþýðuflokksins ALÞYDUFLOKKURINN VERÐI MEÐ BREYTTUM ÁHERSLUM FORYSTUAFL FÉLAGSHYGGJUNNAR í flórmokstri fyrri stjórnar féll jafnaðar- stefnan í skuggann. „Ég vil aö Alþýðuflokkur- inn í rikisstjórn sé forystuafl félagshyggjunnar. Þar vil ég sjá breyttar áherslur hjá flokknum þvi ég vil aö Al- þýöuflokkurinn veröi í meira mæli þaö afl sem ræðst gegn misrétti í þjóðfélaginu í hvaða mynd sem þaö birtist," sagði Jóhanna Sigurðardóttir varaformaöur Alþýöuflokks- ins viö setningu 44. flokks- þingsins á Hótel íslandi í gær. „Meðan Sjálfstæðisflokk- urinn liggur við stjóra og áhöfnin til kojs verða um- bótaöflin vinstra megin við miðju að efla samstöðu sína, vegna þess að það er þjóðar- nauðsyn," sagði Jón Baldvin Hannibalsson formaður flokksins m.a. í ræðu sinni. Jóhanna vék að þátttöku Alþýðuflokksins í ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar og sagði flokkinn hafa orðið blóra- böggul þar fyrir allar erfið- ustu aðgerðirnar. „Við héld- um því vissulega fram sem í forystu fyrir flokkinn stóðum á þessum erfiða tíma að við værum að búa í haginn fyrir betri framtíð — búa í haginn fyrir þá félagshyggju og jafn- aðarstefnu sem við viljum standa að. En okkur ber að viðurkenna það á þessu flokksþingi að í öllum flór- mokstrinum hafa þær áhersl- ur fallið í skuggann, sem við jafnaðarmenn viljum sjá þeg- ar viö tökum þátt í ríkis- stjórn,1 sagði Jóhanna Sig- urðardóttir. Kaflar úr ræðu formanns Alþýðuflokksins eru birtir á blaðsíðu 7 og 8 Jón Baldvin á 44. flokksþingi Alþýðuflokksins: Meöan Sjálfstæöisflokk- urinn liggur við stjóra og áhöfnin til kojs verða umbótaöflin vinstra meg- in við miðju aö efla samstöðu sína, vegna þess aö það er þjóðarnauð- syn. A-mynd/Magnús Reynir. Hvalamálið Árangursríkar viðræður við Vestur-Þjóðverja íslenska sendinefndin sem átt hefur viöræöur viö þýska aðila á sviði sjávarútvegs greindi í gær frá þvi að góður árangur heföi náöst og aö tækifæri gæfist nú til að kynna málstað íslands í hval- veiðimálinu i Þýskaiandi. Aðstoðarráðherra sjávar- útvegsmála í Þýskalandi sagði í viðræðunum að vest- ur-þýsk stjórnvöld hefðu marglýst yfir andstöðu sinni við viðskiptaþvinganir og ítrekaði hann óskir.Þjóðverja um góða samvinnu viö ís- lendinga. Hefur Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, nú þeg- ið boö um heimsókn til Sam- bandslýðveldisins á næst- unni og jafnframt var aðstoð- arráðherranum boðið að sækja ísland heim næsta sumar. Tillaga á 44. flokksþingi A Iþýðuflokksins Framferði ísraela fordæmt Fyrir 44. flokksþingi Al- þýöuflokksins liggur tillaga um aö hrottaleg framkoma israelskra hermanna við al- menning á svæðum sem þeir hafa hernumiö sé fordæmd og að flokksþingið telji að eðlilegt sé aö sjálfsákvörðun- arréttur Palestinumanna veröi virtur. Einnig aö flokk- urinn fordæmi eindregið of- beldi og kúgun hvar sem er í heiminum og friðarviðleitni Sameinuöu þjóðanna verði studd. Flutningsmenn tillög- unnar eru Haukur Helgason, Hörður Zóphaniasson og Guðmundur Árni Stefánsson. Bronco - betur byggður en gengur og gerist. Bíll sem hefur sýnt og sannað að hann stenst öðrum fremur íslenskar aðstæður. Jafnt á vegi sem vegleysum geturðu gengið að gæðunum vísum. Bronco er kraftmikill, sterkur og öruggur bíll í tor- færum. Og að auki - rúmgóður, lipur og þægilegur fjölskyldubíll. Ford Bronco, - búnaður og þægindi af bestu gerð. mrmimmm jj&UJl M JÍJJJU JÚM j'J'hMM essemm/siA 22.04

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.