Alþýðublaðið - 19.11.1988, Síða 6
6
Laugardagur 19. nóvember 1988
Bjarni l\ Magnússon
Vill fresta
byggingu
Mlklubraut-
arbrúar
Bjarni P. Magnússon borg-
arfulltrúi Alþýöflokksins
lagöi fram tillögu á fundi
borgarstjórnar í fyrradag um
frestun á framkvæmdum
byggingar brúar yfir Miklu-
braut, þar tii fyrir lægi ná-
kvæm útfærsla á mannvirk-
inu og umhverfi þess. Full-
trúar Alþýðubandalags,
Framsóknarflokks og
Kvennalista lögðu sameigin-
lega fram tillögu, sem felur í
sér aörar áherslur en tillaga
Bjarna.
„Ástæða þess að ég flyt
þess tillögu er að Gissur
Símonarson, fulltrúi Alþýðu-
flokksins í byggingarnefnd,
tjáði mér hver vinnubrögð
hefðu verið viðhöfð við bygg-
ingu Höfðabakkabrúarinnar á
þeim tíma er við vorum i
meirihluta," sagði Bjarni í
samtali við Alþýðublaðið í
gær. „Mér finnst sjálfsagt að
hverfa ekki frá þeim vönduðu
vinnubrögðum sem þar voru
viðhöfð og freista þessa að
fá meirihlutann til að viður-
kenna þau. Þá var byggingar-
leyfi ekki gefið út fyrr en fyrir
lá nákvæm útfærsla á hesta-
götunum, lýsingu, gróðri og
öllu öðru.“
Tillaga Bjarna gengur að
því leyti skemur en tillaga
hinna í minnihlutanum, að
ekki er farið fram á neitt ann-
að en þessum atriðum verði
fullnægt. „Síðar gæti bygg-
ingarnefnd óskað eftir
grenndarkynningu. Ég vil
bara að þessi vinnubrögð
verði viöhöfð og ég veit að
fulltrúi okkar í byggingar-
nefnd er sama sinnisi Meiri-
hlutinn vill greinilega kasta
stríðshanskanum, enda alltaf
i einhvers konar stríðsæöing-
arleik.“ Bjarni sagði ennfrem-
ur að þetta mál sýndi glögg-
lega að borgarbúar þyrftu að
vera gagnrýnir á verk borgar-
skipulags og borgarverkfræð-
ings.
Glæsileg hótel, góðar
strendur og frábær úti■
vistaraðstaða.
VEDRIÐ?
- Betra en gott íslenskt sumar.
Meðalhitinn yfir jólin er 22-25 gráður.
MANNLÍFID?
- Þúsundir ferðamanna frá Norðurlöndunum og
Evrópu í bland við spænskt mannlíf.
HVAÐ MED BÖRNIN?
- Tívolíið er opið, sundlaugin, ströndin,
tennisvöllurinn og dýragarðurinn.
15.000 kr. barnaafsláttur að auki.
EKKERT AD GERA?
- Sameiginlegir veislukvöldverðir á aðfangadags-
kvöld og gamlárskvöld, sólbað á ströndinni, ferðir með
íslenskum fararstjóra til Granada, Gíbraltar, Afríku ...
það er ekki hægt annað
en að láta sér líða vel.
- Vegna áratuga viðskiptasambanda á Costa del
Sol bjóðum við frábært verð á frábærum gisti-
stöðum, Santa Clara og Benal Beach.
N4 AAA m it * Verð miðað við 2 fullorðna og
Frá kr. Mr I iwUUi 2 böm í íbúð á Benal Beach.
.. . og koma heim hlaðinn
sólarorku.
Brottför: 17. desember,
18 daga.
Flogið í beinu leiguflugi
UTSYN
JkjL HhV
Ferðaskrifstofan Otsýn hf
Álfabakka 16, 109 Reykjavík, sími: 91-603060 • Austurstræti 17, 101 Reykjavík, sími: 91-26611
Ráðhústorgi 3, 600 Akureyri, sími: 96-25000 • Bæjarhrauni 16, 220 Hafnarfirði, sími: 91-652366 • Stillholti 16, 300 Akranesi, sími: 93-11799