Alþýðublaðið - 19.11.1988, Blaðsíða 11
. i l r ' \ « t i > > * ' i • > ' ’
Laugardagur 19. nóvember 1988
11
AUSTURLAND
Úr reikningum sveitarfélaganna 1987
KAUPSTAÐIRNIR Á AUSTURLANDI STANDA MISJAFNLEGA AÐ VÍGI
Fyrir nokkrum vikum kom
út hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga Árbók sveitar-
félaga. í bókinni er meðal
annars að finna upplýsingar
úr efnahagsreikningum kaup-
staða landsins og heildaryfir-
lit tekna og gjalda þeirra fyrir
síðasta ár, 1987. Um svipað
leyti og bókin kom út birti
Pressan grein um stöðu
hinna ýmsu kaupstaða lands-
ins.
I greininni kom meðal ann-
ars fram að sumir kaupstaða
landsins voru á síðasta ári
reknir með umtalsverðum
halla og/eða bjuggu við svim-
andi fjármagnskostnað. Af
kaupstöðunum 4 á Austur-
landi má nefna að miðað við
tekjur eða gjöld á hvern íbúa
kaupstaðanna voru Egilsstað-
ir með fjórðu lægstu rekstrar-
tekjurnar af öllum kaupstöð-
unum 28, en Seyðisfjörður
með þær fjórðu hæstu á
landinu. Seyðisfjöröur var um
leið með fimmta hæsta
tekjuafganginn á landinu.
NORÐFIRÐINGAR SPARA
Af rekstrargjöldum má
nefna að Neskaupstaður var í
næst neðsta sæti í útgjöld-
um til æskulýðs- íþrótta og
útivistarmála og Egilsstaðir í
fimmta neðsta sæti. Eski-
fjörður var í fjórða sæti í út-
gjöldum til gatna, holræsa,
umferðarmannvirkja og
skipulagsmála, Seyðisfjörður
var í fjórða sæti í útgjöldum
til heilbrigðismála, en þarvar
Neskaupstaður í neðsta
sæti. Eskifjörður var aftur á
móti í neðsta sæti í útgjöld-
um til fræðslumála. Egils-
staðir voru í fimmta neðsta
sæti í útgjöldum til menning-
armála, en Seyðisfjörður hins
vegar í öðru sæti.
Neskaupsstaður var í öðru
neðsta sæti í útgjöldum til
framkvæmda og fjárfestingar,
virðist hafa sparað þar við
nögl eins og í heilbrigðismál-
um og æskulýðs/íþrótta/úti-
vistarmálum. Árið 1985 nam
fjármagnskostnaðurinn hjá
Norðfirðingum alls 25% af
tekjum, sem var með allra
hæsta móti, en í fyrra var
hlutfallið komið niður í
13,9%.
GÓÐ GREIÐSLUSTAÐA
SEYÐISFJARÐAR
Efnahagsreikningamir
sýna að staða kaupstaðanna
var mjög mismunandi þeirra
á milli. Veltufjármunir segja
til um hversu mikið fé var
handbært í bæjarsjóðunum
um síðustu áramót, en á móti
því fé koma greiðslur vegna
skammtímaskulda. Á töflunni
sést að skammtímaskuldirn-
ar á Eskifirði og á Neskaup-
stað voru all miklu hærri en
veltufjármunirnir og greiðslu-
staðan því augljóslega erfið.
í öllum tilvikum voru lang-
tímaskuldir mun hærri en
langtímakröfur kaupstaðanna
á hendur öðrum.
HALLI Á ESKIFIRÐI
Eskifjörður var sá eini
þessara kaupstaða sem var
rekinn með halla á síðasta
ári, en ekki var hann þó til-
takanlega mikill miðað við
ýmsa kaupstaði á landinu.
Hallinn var með öðrum orð-
um tæp 2% af rekstrartekj-
um, sem er all miklu betri út-
koma en árið 1985, þegar
hallinn reyndist 12,1% af
rekstrartekjum og var sá
mesti á landinu hlutfallslega.
Allt í rétta áttina á þeim slóð-
um, samt höfðu rekstrartekj-
urnar á Eskifirði aukist mun
minna að raungildi frá 1985
en í flestum öðrum kaup-
stöðum landsins. Seyðis-
fjörður fékk mest í tekjur (og
var með fimmta besta tekju-
afganginn á landinu) en
Egilsstaðir hinar lægstu. Að
öðru leyti geta lesendur lesið
úr töflunum og hvað tekjurn-
ar og gjöldin á hvern íbúa
varðar geta þeir fengið út
hinar raunverulegu krónur
með því að margfalda tölurn-
ar með íbúafjöldanum. Þá er
miöað við íbúafjöldann í
desember 1987. Þá voru 1.713
íbúar á Neskaupsstað, 1.339
á Egilsstöðum, 1.067 á Eski-
firði og 984 á Seyðisfirði.
TEKJUR, GJÖLD OG FRAMKVÆMDIR KAUPSTAÐANNA Á AUSTURLANDI — Mælt í krónum á hvern íbúa bæjanna —
Egils- staðir Seyðis- fjöröur Eski- fjöröur Neskaup- staður
Rekstrartekjur 63.400 81.000 70.390 67.510
— þ.a. útsvar 35.035 41.470 39.750 41.190
— þ.a. aðstöðugjald 7.670 9.860 11.435 9.180
— þ.a. fasteignaskattur 6.835 9.615 8.685 9.180
Rekstrargjöld 55.360 66.325 71.670 58.105
— þ.a. félagshjálp 15.480 15.795 16.340 14.930
— þ.a. götur o.fl 2.300 1.680 4.140 3.670
— þ.a. fjármagnskostnaður 10.350 7.470 11.985 9.385
Afgangur/halli + 8.040 + 14.665 — 1.280 + 9.405
Framkvæmdir/fjárfesting 10.960 17.065 11.735 7.900
Skýringar: Upplýsingarnar úr efnahagsreikningum kaupstaðannaeru fengnar úr árbók sveitarfélaganna. Tölurnar þar eru framreiknaðar samkvæmt framfærsluvísitölu út frá meðaltali ársins 1987 yfir í núgildandi verðlag. Margfeldnis- stuðulinn er 1,325. Tölurnar gefa til kynna hvað kaupstaðirnir hafa aflað mikilla tekna og hvað miklu eytt á hvern ibúa viðkomandi kaupstaða.
HVAÐ VAR í BUDDUNNI OG HVERSU HÁIR REIKNINGAR? — Staða kaupstaðanna um siðustu áramót, milljónir króna —
Egils- staðir Seyðis- fjörður Eski- fjöröur Neskaup- staður
Veltufjármunir 24,9 45,0 18,0 27,1
Skammtímaskuldir 21,1 20,8 50,3 54,0
Mismunur 3,9 24,2 -32,3 —26,9
Langtímakröfur 4,1 2,4 6,5 0,6
Langtímaskuldir 32,1 34,6 38,1 81,7
Mismunur —28,0 —32,2 —31,6 -81,1
Skýringar: Tölur úr árbók sveitarfélaganna. Tölur þaðan framreiknaðar samkvæmt framfærsluvisitölu frá áramótum í núgildandi verðlag. Margfeldnisstuðullinn er 1,2.
ísw*'22
i
Réttarháls 2 S.8ÁOO8 & 8Á009
Skipholt 35 s. 31055