Alþýðublaðið - 19.11.1988, Síða 16

Alþýðublaðið - 19.11.1988, Síða 16
16 Laugardagur 19. nóvember 1988 Montreal-samningsins til þess að unnt reynist að byggja upp aftur ósón- hjúpinn yfir Suður- skautslandinu; • að koma á fót sameigin- legri vísindaáætlun EB og EFTA til að efla rann- sóknir í Evrópu á ósón- hjúpnum í heiðhvolfinu; • mengun andrúmslofts- ins: að draga úr loft- mengun af völdum brennisteinstvísýrings og saltpéturssýru sem berast frá stórum verk- smiðjum sem brenna eldsneyti; að draga úr út- blæstri fólksbifreiöa og vörubifreiða; að hafa blý- laust bensín víðar til sölu; • verndun lífkeðju úthaf- anna; • verndun vatns fyrir mengun og ráðstafanir til að draga úr tjóni í sjónum, t.d. algert bann við að fleygja og brenna úrgangi á hafi úti, svo og ráðstafanir til að draga verulega úr því á næsta áratug að hvers konar eiturefni séu látin renna til sjávar frá landi, þ.m.t. eftirlit með og samdrátt- ur í notkun tilbúins áburðar; • slys sem snerta náttúr- una: að setja sameigin- legar öryggisreglur; að koma á fót viðvörunar- kerfi; • öflugar rannsóknir og þróun í tækni sem kem- ur heim og saman við miklar kröfur í umhverfis- vernd og kemur í veg fyr- ir frekari mengun; • að stuðla kappsamlega að endurnotkun eða end- urvinnslu úrgangs; • ráðstafanir til að koma í veg fyrir og berjast gegn hættum þeim sem eru samfara gróðureyðingu í mörgum löndum Evrópu af völdum veðrunar og skógarelda. SAMVINNA STOFNANA MEÐ ÝMSUM HÆTTI Samvinna EB og EFTA í framtíðinni ætti hins veg- ar að miðast við eftirtaldar meginreglur: • Evrópubandalagið og EFTA-rikin halda áfram að taka sjálfstæðar ákvarðanir; • Evrópubandalagið er staðráðið í því að halda áfram án tafar með áætl- anir sínar um samruna; • forsenda samvinnu verð- ur að vera jöfnuður hags- bóta og skyldna af beggja hálfu; 2. Flokksleiðtogunum er Ijóst að eitt EB-ríki og all- mörg EFTA-riki fylgja hlut- leysisstefnu. Þetta getur takmarkað svigrúm þeirra til samvinnu í öryggismál- um. Pólitisk markmið lokaskjals ráðstefnunnar í Helsinki um öryggi og samvinnu í Evrópu, svo og sú yfirlýsta stefna sósíal- demókrata að viðhalda og efla frið í Evrópu, hindrar ekki á neinn hátt sam- vinnu á þessu sviöi. 3. Stór vandamál á sviði um- hverfisverndar blasa við í allri Evrópu; landamæri skipta engu máli í því sambandi. Riki Evrópu eru æ betur að gera sér Ijósa sameiginlega ábyrgö sína á sameiginlegu umhverfi. Flokksleiötogarnir eru þeirrar skoðunar, hvað við- kemur ríkjum Austur- Evrópu, að miklu máli skipti að samvinna á sviði umhverfisverndarmála fari fram jafnt á vegum EB, EFTA, COMENCONS sem ECE (efnahagsnefndar S.Þ. fyrir Evrópu), ýmist tvíhliða eða marghliða. Umhverfisvandamál eru nú orðin ofar á baugi en áður i ríkjum Austur- Evrópu og skilningur manna fer vaxandi á því aö taka verði þessi mál föstum tökum án tafar svo að finna megi raunhæfa lausn jafnt fyrir Austur- sem Vestur-Evrópu. í þessu sambandi er nauð- synlegt að flytja tækni frá ríkjum Vestur-Evrópu til rikja Austur-Evrópu og því verður að eiga sér stað þróun í þessum málum frá því ástandi sem nú ríkir. Stefna ætti að þvi aö lok- um að fella niður tiltekna hluta af bannlistum COCOMS (nefndar um út- flutning hernaðarlega mik- ilvægra vara og tækja til Austur-Evrópu), ef nauð- syn krefur, í því skyni að flytja út til rlkja Austur- Evrópu bestu tæki sem nauðsynleg eru til að verj- ast gegn vandamálum á sviöi umhverfisverndar. 4. Nauðsynlegt er að öllum ráðum sé beitt til að tryggja að þær ráðstafanir, sem voru forsenda full- gildingar Vínarsáttmálans um verndun ósónlagsins, svo og Montreal-bókunin um efni sem eyða ósón- laginu, séu gerðar í tíma til þess að tryggja að ákvæði þessara bókana geti gengið í gildi 1. janú- ar 1989 eins og ráðgert er. Hafa ber i huga aö Montreal-bókunin gengur ekki í gildi fyrren aðildar- ríki EB hafa fullgilt hana. Jafnframt því ætti að sam- þykkja áætlun um að hætta notkun klóróflúóró- kolefna og freons fyrir ár- ið 2000. Einnig er mikil- vægt að öll ríki sem tóku þátt í ráðstefnunni um verndun Norðursjávar, fundi Helsinkinefndarinn- ar og voru aðilar að Barce- lona-samþykktinni verði við þessum kröfum eins fljótt og á eins virkan hátt og mögulegt er. Þessi mál verður að taka miklu fast- ari tökum I framtíðinni. NORRÆNA Stöðugt fleiri hafa komist að því hve ánœgjulegur ferðamáti það er að sigla og hveþægilegt og hagkvœmtþað er að ferðast á eigin bíl í útlöndum. Eins og fyrr mun glœsiskipið NORRÖNA veita íslendingum þá þjónustu, sem felst í reglubundnum ferjusigling- um milli íslands og annarra landa, með vikulegum brottförum alla fimmtudaga frá Seyðisfirði sumarið 1989. Verðið svíkur engan, t.a.m. kostar það 4ra manna fjölskyldu aðeins 91.680.- kr. aðsigla til Danmerkur og heim fráNoregi íþœgilegum 4ra manna klefa og með fjölskyldubílinn með, og athugið þetta er verðið á dýrasta siglingartímabili, utan þess er verðið enn lægra. Við viljum einnig nota tækifœrið og kynna nýja umboðsskrif- stofu NORRÖNA á íslandi: NORRÆNA FERÐASKRIFSTOF- AN, Laugavegi 3, Reykjavík, sími 91-626362. Leitið nánari upp- lýsinga þar eða hjá AUSTFAR hf, Seyðisfirði, sími 97-21111. NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN, SMYRIL LINE-ÍSLAND AUSTFAR HF. 1

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.