Alþýðublaðið - 19.11.1988, Síða 17
Laugardagur 19. nóvember 1988
17
Jón Öskar Hafsteinsson sýnir þessa dagana í Gallerí Svörtu á hvítu.
Verk hans, sem öil eru í svart/hvitu eru tröllsleg og kraftmikil og halda
áhorfandanum föngnum.
Jón Óskar í
Svart á hvítu
Á undanförnum árum höf-
um viö verið aö kynnast hug-
arheimi og veruleikasýn Jóns
Óskars æ betur. Tröllsleg og
kraftmikil tjáning hans heldur
áhorfandanum föngnum og
leitast við aö dáleiða hann
eöa undiroka meö yfirþyrm-
andi hætti. Sumpart minnir
persónutúlkun hans á þann
magnaða og fjarræna svip
sem stafar af andliti risa-
líkneskja Forn-Egypta; þeirra
sem standa vörö um inn-
göngudyr hofanna. Þó er
munur þar á og liggur hann í
sálrænum og tilfinningaleg-
um áherslum sem Jón Óskar
gæöir andlit sín. í þeim
speglast angist líöandi
stundar, andstætt hinni tíma-
lausu ró sem umlykur stytt-
urnar af konungunum við Níl-
arfljót.
Andlitsmyndir Jóns Óskars
eru fallvaltar þegar betur er
aö gáð: Þær hafa tilhneig-
ingu til að gliðna fyrir augum
okkar þegar viö stöndum
nógu lengi frammi fyrir þeim.
Ástæöurnar eru fólgnar í sér-
stæðum miðli, sem byggöur
er á vaxmálningu og kröftugri
pensiltækni. Með hjálp þess-
ara persónulegu aóferöa gerir
listamaðurinn hvort tveggja í
senn; hann skapar tröllslegar
og upphafnar verur en tætir
jafnharðan sundur sterklega
ímynd þeirra. Það sem í fljótu
bragði virðist vera dýrkun á
valdi, er í raun afhjúpun þess.
Það er augljóst þegar betur
er að gáð. Bak við mikilúðleg-
an svip þessara rismiklu
andlitsmynda skín í kviða-
blandna óvissu og öryggis-
leysi; innri ásýnd hins sjálf-
umglaða valds.
Jón Óskarereini íslenski
listamaðurinn sem skyggnist
bak við Pótemkín-tjöld „stóra
bróður“ í þjóðfélagi samtím-
ans. Þannig lætur hann sig
varða þann hluta menningar
okkar sem fáir listamenn
treysta sér til að glíma við.
En hann þarfnast ekki ódýrra
loddarabragða pólitískrar list-
ar til að fletta ofan af sálar-
kreppunni sem herjar á „hina
sterku“. Honum nægir eins
og rómverskum portrettistum
fyrri alda, að skyggnast undir
kuldalegan hrokann og laða
fram sannleikann um hina
guðdómlega hetjuímynd. Og
líkt og verk þeirra búa myndir
hans yfir höggmyndrænni til-
finningu sem gerir óhóflega
litagleöi óþarfa.
Bragi Asgeirs-
son í Nýhöln
Bragi Ásgeirsson opnar
sýningu í Listasalnum Ný-
höfn, Hafnarstræti 18, laugar-
daginn 19. nóvember kl. 14.
Á sýningunni verða teikn-
ingar frá árunum 1950-60,
aðallega modelteikningar og
tíu steinþrykk, sem Bragi
gerði í Kaupmannahöfn nú í
sumar. Myndefni þeirra er
sótt í IjóðJóns Helgasonar
„Áfanga" og „Sálma á atóm-
öld“ eftir Mattíðas Jóhannes-
sen.
Bragi er löngu þjóðkunnur
bæði sem listamaður, kenn-
ari við Myndlista og handíða-
skóla íslands og sem gagn-
rýnandi Morgunblaðsins i
fjölda ára. Hann stundaði
nám við Myndlista og Hand-
íðaskóla íslands á árunum
1947-50, í Kaupmannahöfn í
þrjú ár, eitt ár í Osló, tvö ár í
Munchen og-eitt ár í Róm og
Flórens.
Bragi hefur haldið níu stór-
ar sýningar og fjölda smærri
sýninga og tekið þátt í sam-
sýningum hér heima og er-
lendis.
Sýningin, sem ersölusýn-
ing, er opin virka daga frá kl.
10.00-18.00 og um helgar frá
kl. 14.00-18.00. Henni lýkur 30.
nóvember.
Bragi Ásgeirsson opnar sýningu i
dag á verkum sinum sem eru
teikningar frá árunum 1950-1960.
Nýlistasafnið
Laugardaginn 19. nóvem-
ber, klukkan 16.00, opnar
Kristinn Guðbrandur Harðar-
son sýningu í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b. Þar sýnir hann
skúlptúr, útsaum og lág-
myndir. Verkin eru unnin í
margvísleg efni og sett sam-
an úr fjölda ólíkra hluta, svo
sem: viði, gifsi, rusli úr ryk-
sugupokum, kaffikorg, mold,
vatnsmálningu, herði, lýsis-
pillum, lyklum, Ijósmyndum,
tindátum, bronshesti, rak-
vélablöðum, steinsteypu,
teikningum, rabbabarasultu,
gleri, sandi, vatnsrörum, líf-
rænum efnum, járni, erma-
hnöppum, barmmerki, penna-
skafti, tyggigúmíi, rafmagns-
öryggi ofl.
Sýningin stendur til 4.
desember og er opin virka
daga frá 16.00-20.00 en um
helgar frá 14.00-20.00.
Uppstilling á gangstétt i Amster-
dam
Margrét Jónsdóttir er með sýningu á verkum sinum, sem eru vatnslita-
og oliuverk unnin á pappir, i Galleri Gangskör.
Gallerí
Gangskör
Laugardaginn 19. nóvem-
ber kl. 15.00 opnar Margrét
Jónsdóttir sýningu á verkum
sínum, sem eru vatnslita- og
olíuverk unnin á pappír, í
Gallerí Gangskör.
Þessi verk Margrétar eru
unnin á árunum 1983-1985 og
hafa fæst sést opinberlega
áður.
Þetta er þriðja einkasýning
Margrétar á íslandi, en að
auki hefur hún haldið tvær
einkasýningar í London og
tekið þátt í fjölda samsýn-
inga hér og erlendis, m.a. á
öllum Norðurlöndunum.
Að loknu námi í Myndlista-
og Handíðaskóla íslands
stundaði Margrét framhalds-
nám í St. Martin’s School of
Arts í London 1984-1986. Hún
var einn af stofnendum Gall-
erí Suðurgötu 7 og starfaði
við það á árunum 1977-1981.
Tilefni sýningarinnar er að
Margrét er nýr félagi í Galleri
Gangskör og er þá vel við
hæfi að kynna smá brot af
verkum hennar þar. Öll verkin
eru til sölu.
Sýningin stendur yfir frá
19. nóvember til 4. desember
og er opin virka daga frá kl.
12.00-18.00 og um helgar frá
kl. 14.00-18.00. Lokað á mánu-
dögum.
Kristján Davíösson myndlistamaður er með sýningu á verkum sinum i
Galleri Borg.
Kristján
Davíðsson í
Gallerí Borg
Kristján Davíðsson opnar
sýningu áverkum sínum í
GALLERÍ BORG, Pósthús-
stræti 9 fimmtudaginn 17.
nóvember, kl. 17.00.
Kristján Davíðsson er
fæddur í Reykjavík 1917,
hann hefur haldið fjölda
einkasýninga hér heima og i
erlendis. 1981 var yfirlitssýn'-
ing á verkurrr Kristjáns á \
Listasafni íslands og 1984
var haldin sýning á verkum
hans í Alvar Aalto húsinu í
Feneyjum.
Kristján hefur tekið þátt í
samsýningum á öllum Norð-
urlöndum, Englandi, megin-
landi Evrópu og Norður- og
Suður-Ameríku, með innlend-
um og erlendum listamönn-
um.
Á sýningu Kristjáns nú eru
nýjar oliumyndir sem allar
eru til sölu.
Sýningin eropin virka
daga frá kl. 10.00-18.00 og um
helgar frá kl. 14.00-18.00. Sýn-
ingunni lýkur þriðjudaginn
29. nóvember.