Alþýðublaðið - 19.11.1988, Side 19

Alþýðublaðið - 19.11.1988, Side 19
Laugardagur 19. nóvember 1988 19 UTLÖND Umsjón: Ingibjörg j Árnadóttir 1 OTTINN „I hvert skipti og ég sé gos- brunn, hugsa ég til hinna deyjandi, sem hrópuðu á vatn, “ segir kona sem lifði af Hiroshima. „Við, sem liföum af árás- ina, eigum okkur eina ósk, að annað eins viti verði aldrei aftur á jörðunni," ir Machiyo Kurokawa. Machiyo Kurokawa, 59 ára gömul prófessorsfrú frá Yokohama gæti verið venju- legur japanskur ferðamaður, sem er að skoða Kaupmanna- höfn. Hún er snotur, klædd látlausri prjónadragt og stillir sér upp fyrir Ijósmyndarann með feimnislegt bros á vör. Hún er umkringd frétta- mönnum og Ijósmyndurum. Hún hefur síðastliöin 10 ár verið á ferðalagi um heiminn til þess að minna á og kynna ógnir atómsprengjunnar. Nú nýverið var hún í Danmörku í boði friðarsamtakanna „Nej til Atomváben". Frásögn hennar af ósköp- unum af mannavöldum, sem áttu sér stað i Hiroshima og Nagasaki fyrir 43 árum hlýtur að verkja þá til umhugsunar, sem ekki eru á móti kjarna- vopnum. Það má undarlegt teljast, að Kurokawa segir fólk utan Japan vera meira meðvitað um fórnarlömbin i Hiroshima og Nakasaki. GLEYMD í JAPAN „Japanska pressan skrifar um okkur á „afmælisdögum" atburðanna, en aðra daga er- um við gleymd og grafin. í japönskum skólum er lítið sem ekkert um þetta mál. Þetta stafar trúlega af þv(, að ef skrifa á um heimsstyrjöld- ina síðari, komast menn ekki hjá því að minnast á þá ábyrgð sem Japanir bera á heimsstyrjöldinni siðari, vegna árásarinnar á Pearl Harbour. Menntamálaráðu- neytið í Japna kærir sig ekki um, að á þetta sé minnst. Vegna þessa erum við — fórnarlömb atómsprengjunn- ar ekki til í menntakerfinu," segir Machio Kurokawa við blaðamann Det fri Aktuelt. BANDARÍSKIR VINIR „Ég held að hið vinsam- lega samband milli Japan og Bandaríkjanna eftir styrjöld- ina, eigi hér hlut að máli. Japanir sýna vinum sínum mikla kurteisi, það er hefð i Japan. Menn vilja ekki minn- ast á óþægilega hluti, við fólk sem manni er hlýtt til. Við, fórnarlömb atómsprengj- unnar eigum okkar eigin málshátt: „Góður vinur er skyldugur til að segja sann- leikann, jafnvel þó hann sé A þessari óhugnanlegu mynd er Yamaguchi Senji, sem var 14 ára þegar atomsprengjan féll á Hiroshima — þegar myndin var tekin var hann 25 ára. '5ár.“ Atómsprengjurnar i Naga- saki og Hiroshima, drápu 300.000 manns á stundinni. Síðan hafa um 100.000 manns látist úr krabbameini, sem orsakaðist af geislun- inni. Núna eru 370.000 manns opinberlega skráðir sem fórnarlömb atóm- sprengjunnar, flestir þeirra lifa ömurlegu lífi sem öryrkj- ar. „Á fyrstu 10 árunum eftir sprengjuna, vildu japönsk yfirvöld ekki viðurkenna að veikindi okkar væru sprengj- unni að kenna. Yfirvöld tóku þá afstöðu, að þeir sem lifðu af, heföu veikst af öðrum orsökum. Það var ekki fyrr en eftir tilraunasprengingu Bandaríkjamanna á Bikini- eyjunum, að við vorum viður- kennd sem fórnarlömb atóm- sprengjunnar. Nokkrir jap- anskir fiskimenn, sem höfðu verið að veiðum á svæðinu, uröu fyrir geislavirkni og þeir fengu sömu einkenni og við,“ segir Machio Kurokawa. ÖMURLEGAR ÖRORKUBÆTUR Eftir þetta urðu miklar og heitar umræður um þetta í Japan, sem leiddu til þess, að sett voru lög um sérstak- an örorkustyrk til fórnar- lamba sprengjunnar, en þess- ar bætur eru mjög lágar og tiltölulega fáir sem fá þær. Af þeim 370.000 þús. sem eru skráðir, fá 4.000 hámarksupp- hæðina sem svarar til eins þriðja af launum japanskra verkamanna. Aðrir fá ennþá minna. Kurokawa er spurð um hvernig hún hafi upplifað atómsprengjuna. Hún lýsir þeim hörmungum, sem hún uppliföi sem 16 ára skóla- stúlka. Brennandi borgin, fólkiö sem afskræmdist, lík, brunnin til ösku, deyjandi fólk sem grátbað um hjálp, hundruð særðra sem brugðu á það ráð, til að kæla sárin, að kasta sér i Hiroshima- fljótið og drukknuðu, geisla- virka svarta regnið sem drap þúsundir. Sektarkennd Machio Kurokawa hefur sagt frá þessum atburði oft og mörgum sinnum. Það er eins og hún fletti blaðsíðum minninganna, vélrænt. Eitt augnablik virðist sem hún sé langt í burtu, hún virðist gleyma fréttamönnunum en áttar sig þó fljótlega og held- ur áfram: „Enn þann dag í dag er ég haldin sektarkennd, þó langt sé síðan þetta gerðist. Við komum upp neyðarsjúkra- skýli á rústum skólans sem ég hafði verið í. Hinir deyj- andi grátbáðu um vatn, en við gátum ekkert gefið þeim. Ef þið komið til Hiroshima, munuð þið sjá mikið af gos- brunnum. Við, sem lifðum hörmungarnar af, söfnuðum inn fé, til þess að láta gera þessa gosbrunna til minning- ar um þá sem dóu. Ég hugsa ósjálfrátt alltaf til hinna dánu þegar ég sé gosbrunn, alveg sama í hvaða landi sem er. Við söfnuðum saman lík- unum og brenndum þau, eins og þau væru úrgangur. Ég á erfitt með að sætta mig við þá tilhugsun. Því miður voru aðstæður þannig, að við gát- um ekki sýnt hinum látnu meiri virðingu." (Det fri Aktuelt.)

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.