Alþýðublaðið - 19.11.1988, Side 21

Alþýðublaðið - 19.11.1988, Side 21
Laugardagur 19. nóvember 1988 AUSTURLAND 21 SILD Aö sögn þeirra manna sem rætt var við á Austfjörðum hefur síldarsöltun víðast gengið mjög vel. Á Fáskrúðs- firði hafa verið saltaðar milli 12 og 13.000 tunnur sem er ákaflega svipað og venjulega en menn vonast til þess að það geti orðið meira ef samn- ingar nást við Rússana um frekari kauþ. Það er fyrirtæk- ið Pólarsíld sem saltar á Fá- skrúðsfirði. Á Eskifirði er hinsvegar saltað hjá 6 fyrir- tækjum og þar hafa verið saltaðar 32.000 tunnur auk allmikllar frystingar. Á Eski- firði vonast menn eftir þvi að síldarafkoman verði góð í ár. Á Vopnafirði hefur veriö salt- að í nálega 8.000 tunnur en þar vonast menn eftir að ná að salta í 12.000 áður en yfir lýkur. í fyrra náðist að salta í 13.000 tunnur sem er reyndar nokkuð yfir meðalári sem hefur hingað til gefið u.þ.b. 10.000 tunnur. Hinsvegar hafa Vopnfirðingar ekki verið nógu ánægðir með þá síld sem borist hefur á land því þeir hafa ekki getað fryst það magn sem þeirvildu hafa gert. Ástæðan er einkum sú að síldin hefur ekki verið nógu stór í frystingu og svo það að í henni hefur verið mikil áta. Á Seyðisfirði hefur söltunin gengið vel, þar er allt á fljúgandi fart um þess- ar mundir og menn vonast til að endar náist saman í sölt- uninni og að Japanssíldar- sala gefi einhvern hagnað. Hinsvegar hafa Eskfirðingar ekki frekar en Vopnfirðingar verið nógu heppnir með þá síld sem hefur átt að frysta, hún hefur ekki skilað sér á land sem skyldi. Síldarsöltun á Hornafirði var rekin með tapi síðastliðið ár en í ár von- ast menn eftir að betri út- koma verði. ÁTAKSVERKEFNI Átaksverkefni er afar merkilegt fyrirbæri og er eitt slíkt nú í gangi á Austurlandi, hið fyrsta sinnar tegundar á íslandi. Þetta verkefni sem heyrirtil byggðaþróunarmála er unnið í samvinnu Seyðfirð- inga og Egilsstaðarbúa og er fyrirmyndin norsk. Markmið þessa verkefnis er að virkja íbúana til að takast á við ákveðin verkefni sem þeir telja að séu stöðunum til góða og atvinnu, menningar- og félagslifi til framdráttar. í upphafi var haldin svokölluð leitarráðstefna þar sem menn vildu fá fram hvað væri rétt að gera og skoða. í framhaldi af þessari ráðstefnu urðu til starfshópar sem hafa unnið að ýmsum verkefnum sem eru þá, þegar hafist er handa við þau orðin nokkuð afmörk- uð og ekki bundin við ein- vörðungu hugmyndir heldur áþreifanleg úrlausnarefni. Síðan hafa menn haldið ráð- stefnur, jprisvar til fjórum sinnum á ári, þar sem menn bera saman bækur sínar. Síð- an er það auðvitað stóra spurningin. Hváð hefur raun- verulega gerst? Jú, það sem m.a. hefur komið út úr þessu er félags- skaþurinn Frú Lára, nýtt byggingarfélag, hópur manna sem hefur safnað upplýsing- um varðandi hugsanlega Austurlandsferju o.fl. Einnig hafa komið úr þessum átaks- verkefnum hópar sem hafa stofnað fyrirtæki til að kaupa skip inn á svæðið og sömu- leiðis hafa hópar innan verk- efnisins skoðaö möguleikann á fiskeldi. Sem hefur reyndar orðið að veruleika því fiskeldi er að þróast út í að verða viðamikil atvinnugrein á Austurlandi og binda menn nokkrar vonir við það, einkum laxeldi sem stendur. I samtali við Axel Beck, iðnráðgjafa, en átaksverkefnið er unnið á vegum Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands, kom fram að við upphaf þessa verkefnis þá lögðu menn áherslu á að gleyma öllu um Alþingi, Byggöastofnun og sambæri- leg fyrirbæri og vinna verk- efnið frá grunni upp á eigin spýtur. Ekki síst til að efla áhuga og hugmyndir um ný- sköpun sem væri afar mikil- væg. Með þessum hætti hefði tekist að fá fram marg- ar hugmyndir, umræður um þær og væntanlega á þetta merkilega framtak eftir að skila Austfirðingum miklu þegar fram í sækir. FARSKÓLI Hugmyndin um þetta fyrir- bæri, Farskóla, byggist á hreyfingu. Og kannski ekki síður að færa fræðslu frá Reykjavík til Austfjarðanna. Farskólinn, sem eins og nafnið gefur til kynna, starfar ekki á einum stað, heldur ferðast á milli, er ekki mikil stofnun, enda sagði Axel Beck það andstætt tilgangi hans. Einfalt og fljótvirkt skal það vera. í Farskólanum er boðið upþ á margs konar námskeið sem tengjast at- vinnulífi með einum eða öðrum hætti, verkstjórnar- fræðslu, verslunarnámskeið, námskeiö í suðutækni, bók- haldsnámskeið, námskeið fyrir konur í rekstri og stofn- un lítilla fyrirtækja. Reynt er að fá fyrirtæki á svæðinu til samstarfs við skólann og að ' auki vinnur hann mikið í sam- vinnu við Verkmenntaskóla Austurlands. Námsefnið kem- ur víða að, menn velja það sem þeim þykir henta best fyrir hvert námskeið, hvort sem það er innlent eða er- lent, sumt af námsefninu hef- ur verið heimasmíðað, annað fengið frá ýmsum stofnunum og samtökum. Hugmyndin að baki þessum skóla er einnig að bjóða upp á námskeið sem ekki hafa verið til á Austurlandi fyrr en menn telja að séu nauðsynleg fyrir ýmsar stéttir og starfshópa. Námskeið skólans hafa verið nokkuð vel sótt til þessa og i heildina taldi Axel Beck að þessi skóli hefði heppnast og gengið nokkuð vel. VIÐ BÆTUM ÞJÓNUSTUNA OG FÆRUM AMERÍKU NÆR! Með siglingum vestur um haf á 10 daga fresti í stað 14 daga áður styttum við bilið milli íslands og Ameríku um 30%. Nú höfum við Reykjafoss og Skógafoss í stöðugum beinum siglingum til New York, Portsmouth og Halifax. Nýja siglingakerfið er stórbætt þjónusta við alla inn- og útflyjendur sem eiga viðskipti í Vesturheimi. HAUFAX NEWYORK/ PORTSMOUTH F.K. Warren Ltd. EIMSKIP USA P.O.Box 1117 Wheat Building - Suite 710 2000 Barington SL P.O.Box 3589 Suite 920 Cogsweli Towers Norfolk, Virginia, 23514 U.SA Haiifax, N.S.B3J 2X1 Sími: 804-627-4444 Sími: 902-423-8136 Gjaldfrjáls sími: 800-446-8317 Telex: 019-21693 Telex: 684411 Telefax: 902-429-1326 Telefax: 804-627-9367 FLUTNINGUR ER OKKAR FAG EIMSKIP

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.