Alþýðublaðið - 30.11.1988, Qupperneq 7
Miðvikudagur 30. nóvember 1988
7
UTLOND
Umsjón:
Ingibjörg
Árnadóttir
Hann heitir
Hassanal Bolkiah,
og ef bandaríska
tímaritið Fortune,
sem fjallar um
fjármál, segir satt,
þá er hann
auðugasti maður í
heimi. Hann er
reyndar þekktari
sem soldáninn af
Brunei.
Soldáninn af Brunei er talinn
auóugasti madur i heimi.
- - -
AUÐUGASTUR í HEIHII
Bandaríska fjármálatíma-
ritið „Fortune", telur að sol-
dáninn af Brunei sé 25 millj-
arða dollara „v|rði“. Næstur
honum er Fahd, konungur i
Saudi-Arabiu, sem er „að-
eins“ 18 milljarða dollara
virði svo sóldáninn er nokkuð
öruggur efst á listanum.
Hassanal Bolkiah sóldán,
er búsettur í höfuðstað
Brunei, Bandar Seri Begawan
í glæsihöll, sem telur 1788
herbergi. Hvolfþak hallarinn-
ar er úr skíra gulli. Reyndar
segja skæðar tungur, aö
hann hafi ekki stigið fæti sín-
um inn í fleiri en 180 her-
bergi! Það tekur náttúrlega
tímann sinn að ganga um
1788 herbergi!
OLÍUAUÐUR
Fyrir þá lesendur, sem eru
ekki alltof vel að sér í landa-
fræði, upplýsist hér með að
sóldánsveldið Brunei er í
Asíu — nánar tiltekið á eynni
Borneo. Stærð rikisins er
ekki nema 4.000 ferkílómetrar
og fólksfjöldi aðeins 227.000
manns.
Hvaðan kemur allur þessi
mikli auður soldánsins? Auð-
vitað er þetta olíuauður. Frá
þeim tíma í kringum árið
1960, þegar fyrstu olíulind-
irnar fundust i Brunei, hafa
olíupeningarnir streymt
stanslaust inn í einkapen-
ingaskápa soldánsins. Þegar
rignir á prestinn, drýpur á
djáknann eins og menn vita.
Þessvegna líða ibúar ríkisins
engan sjáanlegan skort.
Skýrslur um fjármál þar í
landi gefa upp, að þjóðar-
framleiðslan á hvern íbúa
(brúttó) er um 17.000 dollarar.
Samanborið við önnur ríki i
Asíu, er aðeins Japan fyrir
ofan Brunei, sem velferðar-
ríki.
SOLDÁN FRÁ ÁRINU 1967
Þegar Ferdinard Magellan
kom á skipi sinu til Brunei,
árið 1521 og lét kasta þar
akkerum, var soldánsríkið
miðpunktur í voldugu keis-
araveldi, sem náði frá Saraw-
ak til suðurhluta Filippseyja.
Smámsaman minnkaði ríkið
vegna ágangs voldugra
keppinauta og um aldamótin
1800, stigu Bretar á land og
innlimuðu landið í breska
heimsveldið.
Það var ekki fyrr en árið
1984, sem Brunei öðlaðist
algjört sjálfstæði og árið
1986 varð landið hluti af
suður-austur-Asíusamtökun-
um ASEAN.
Hassanal Bolkiah var
aðeins 21 árs, árið 1967,
þegar hann var settur inn í
embættið sem 29. soldán í
Brunei. Það var faðir Bolkiah,
sem afsalaði sér völdum af
fúsum og frjálsum vilja til
sonar síns. Faðirinn var Omar
Ali Saifuddin 3. og var hann
ákaflega vinsæll meðal
þegna sinna. Þegar hér var
komið sögu, hafði Hassanal
Bolkiah lokið menntun sinni
við konunglega herskólann í
Sandhurst í Englandi.
Það var þó í nokkur ár, sem
Omar Ali „Pabbi" kippti hér
og þar í stjórnartaumana, og
það var ekki fyrr en hann fór
úr landi árið 1986, sem
Hassanal Bolkiah varð raun-
verulegur stjórnandi ríkisins.
LÉTTÚÐUGUR GLAUMGOSI
Árum saman var það tal
manna, að Hassanal Bolkiah,
væri hálfgerður glaumgosi,
sem tæki lífinu létt. Á götu-
hornum í Bandar Seri Bega-
wan hvísluðu menn um, að
hann hefði meiri áhuga á
Elisabeth Bretadrottning, er
,,aöeins“ fjóröa i rööinni, yfir
auðugasta fólk i heimi!
hraðskreiðu sportbílunum
sínum og innfluttum bresk-
um veðhlaupahestum, en á
krefjandi skyldum sem
fylgdu því að vera æðsti
stjórnandi landsins.
I dag heyrist lítið af þess-
ari gagnrýni, ekki aðeins af
því aö soldáninum er ekki vel
við gagnrýni, heldur einnig
vegna þess, að með árunum
er hann orðinn skyldurækinn
stjórnandi. Nú á hann líka
eiginkonu og þrjú börn, sem
hann er sagður sinna vel.
Sem æðsti stjórnandi
lands sins, hefur Hassanal
Fahd konungur i Saudi-Arabiu er
sagður næst auöugasti maður i
heimi.
Bolkiah algjör völd. Hann
þarf ekki að fara eftir neinum
duttlungum þingmanna því
ekkert þing er í landinu.
Margir æðstu stjórnendur
landa, sem ekki hafa þjóð-
þing, hafa endað sem harð-'
stjórar. Því er ekki þannig
fariö i Brunei, þar vænir eng-
inn Bolkiah um aö vera harð-
stjóri.
„Hassanal Bolkiah soldán,
hefur raunverulegan áhuga á
því, að íbúarnir hafi nóg að
bíta og brenna“, segja erlend-
ir fréttaskýrendur sem dvelja
í Brunei.
í utanríkismálum hefur
soldáninn góð samskipti við
nágranna sína, og sambandið
við fyrrverandi nýlenduherr-
ana í Bretlandi, hefur gengið
prýðilega.
Eins og viö er að búast, af
soldáni sem situr á stærsta
peningapoka í heimi, hefur
hann af og til látið í Ijós
áhyggjur af starfsemi komm-
únista, bæði í Asíu spm og
öðrum heimsálfum. Árið
1986, gekk hann það langt,
að hann gaf Contraliðum í
Nicaragua 10 milljónir doll-
ara. Af einhverjum grunsam-
legum ástæðum gufaði upp-
hæðin upp á leiðinni, eftir að
hafa farið í gegnum banka-
reikning i svissneskan banka.
Þegar Hassanal Bolkiah
fékk vitneskju um hvarf pen-
inganna, yppti hann bara öxl-
um. Hvað er líka 10 milljónir
dollarar fyrir auðugasta mann
í heimi? .
(Arbeiderbladet.)