Alþýðublaðið - 13.12.1988, Síða 5
Þriöjudagur 13. desember 1988
5
FRÉTTASKÝRING
Kristján Þorvaldsson
skrifar
Olafur Ragnar:
Ekkert svid sem
fær jafnmikla
raunaukningu
og húsnæöis-
Alþingi
Blómleg verslun með
niðurskurðartillögur
Stjórnarliðar langt komnir í innbyrðisglímu um fjárlög og
fylgifrumvörp þess. Fallist á kröfu krata um minni hœkkun
tekjuskatts. Fjármálaráðherra vill skera niður til Byggingasjóðs,
en jelagsmálaráðherra vill 150 milljónir á móti til
Ólafur Ragnar Grimsson
fjármálaráðherra er enn þeirr-
ar skoðunar að takast eigi að
afgreiða fjárlög og tekju-
öflunarfrumvörp fyrir áramót.
Tekju- og eignaskattsfrum-
varpið kemur fram á Alþingi i
dag og í gærkvöldi var ráð-
gert að fjárveitinganefnd
fjallaði um tillögur fjármála-
ráðherra um niðurskurð á
ýmsum sviðum. Vörugjalds-
frumvörp eru i nefnd, en þar
má búast við einhverjum
breytingum. Að sögn Guð-
rúnar Helgadóttur forseta
Sameinaðs þings á að takast
að afgreiða mál fyrir áramót,
ef vilji er fyrir hendi. Hún
varar við því að hefð komist á
þinghald milli jóla og nýárs,
sérstaklega vegna þing-
manna af landsbyggðinni.
Guðrún benti ennfremur á að
mun færri mál þyrftu af-
greiðslu nú en i fyrra, því
ætti ekkert að vera til fyrir-
stöðu að Ijúka málum á til-
settum tíma.
Að sögn Ólafs Ragnars
fela niðurskurðartillögur m.a.
í sér að lækka all verulega
ferðakostnað, risnu og funda-
kostnað, lækka launakostnað
vegna yfirvinnu svo og kostn-
að vegna sumarafleysinga.
Alls er stefnt að 200 milljóna
króna niðurskurði á þessum
sviðum.
greiðsluerfiðleikalána.
Þá felst í tillögum Ólafs
Ragnars að framlög til Bygg-
ingarsjóðs ríkisins verði skor-
in niður um 150 milljónir.
Ólafur segir engu að síður
um að ræða 25% raunaukn-
ingu til húsnæðismála á
næsta ári. „Það er æriö. Það
er ekkert svið í okkar þjóófé-
lagi sem fær jafnmikla raun-
aukningu," sagði fjármálaráð-
herra.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins eru alþýðu-
flokksmenn ekki reiðubúnir
að kyngja 150 milljóna króna
niðurskurði til Byggingar-
sjóðs. Þeir munu hins vegar
hafauppi hugmyndirum 150
milljóna framlag strax til að
lána íbúðakaupendum í
greiðslúerfiðleikum. Félags-
málaráðherra mun hafa farið
fram á 75 milljónir strax í
desember og sfðan 75 mill-
jónir í janúar.
Frumvarp um tekju- og
eignaskatt verður lagt fram
með 2% hækkun, en alþýðu-
flokksmenn voru ekki reiðu-
búnir að fallast á tillögur fjár-
málaráöherra um a.m.k. 3%
hækkun. í gær var talið lík-
legt að 2% hækkunin yrði
niðurstaðan. „Ég hefði þó
talið eðlilegra að hafa pró-
sentutöluna hærri, þannig að
meiri peningar hefðu verið til
í persónuafslátt og barna-
bætur,“ sagði fjármálaráð-
herra.
Tillaga um sérstakan skatt
á happdrætti er út af borðinu
vegna mikillar óánægju fram-
sóknarmanna. Vörugjalds-
frumvarpið hefur mætt
mikilli andstöðu i Alþýðu-
flokknum, en í síðustu ríkis-
stjórn fylgdu alþýðuflokks-
menn eftir umtalsverðri
breytingu sem fól i sér mikla
breytingu á kerfinu. Alþýðu-
flokksmenn telja frumvarpið
vera skref afturábak.
Ólafur segir flest benda til
þess að önnur umræða um
fjárlögin verði seinnipart vik-
unnar. Síðan verði fjallað um
tekjuöflunarfrumvörpin hvert
af öðru í deildunum. Ólafur
segir eðlilegt að hafa þing-
fundi á milli hátlða ef á þarf
að halda.
í frétt I Alþýðublaðinu um
helgina var talað um að litlar
líkur væru á því að fjárlaga-
frumvarpið yrði afgreitt fyrir
áramót. Sú staða virtist enn
uppi I gær, þrátt fyrir orð fjár-
málaráðherra. Staðreyndin er
sú að ríkisstjórnin hefur ekki
tryggan meirihluta á bak við
sig I báðum deildum. Við-
ræður við stjórnarandstöðu
eru enn ekki komnar á það
stig sem nauðsynlegt er talið
svo ýmis tekjuöflunarfrum-
vörp hljóti afgreióslu.
Þorsteinn Pálsson formáð-
ur Sjálfstæðisflokksins sagði
í samtali við blaðið, að sjálf-
stæðismenn hefðu strax gert
grein fyrir því að þeir væru
tilbúnir til að styðja sumt og
semja um annað. „Við erum
auðvitað í andstöðu viö vöru-
gjaldsfrumvarpið og tekju-
skattinn. Við værum í meira
lagi ósamkvæmir sjálfum
okkur ef við værum það ekki.
Við erum ekki reiðbúnir að
taka sömu kollsteypuna i
þeim efnum og Alþýðuflokk-
urinn. í ýmsum öðrum málum
höfum við hins vegar verið
reiðbúnir að styðja eða
semja. Viðbrögð rikisstjórnar-
innar eru engin í þeim efn-
um. Hún hefur ekki gert
minnstu tilraun til að ræða
um hvernig standa eigi að af-
greiðslu mála né semja efnis-
lega.“
Þorsteinn sagði ennfremur
aó sjálfstæðismenn hefðu
lýst sig reiðbúna til að ræða
forsendur fjárlaga frá grunni,
sem byggist á breyttri efna-
hagsstefnu og viðurkenningu
á því að gengi krónunnar sé
rangt skráð. „Ríkisstjórnin
tekur viðræðutilboðum okkar
heldur fálega," sagði Þor-
steinn Pálsson.
Beinar samningaviðræður
við aðra stjórnarandstöðu-
flokka hafa heldur ekki átt
sérstað. Ríkisstjórnin virðist
treysta á stuðning einstakra
þingmanna við einstök mál.
Kannski gildir það sama
varðandi stjórnarflokkanna
sjálfa, því þar er einnig að
finna þingmenn sem eru
tregir í taumi. Engu að síður
má búast við að innbyrðis-
glímu stjórnarflokkana sé að
Ijúka, þannig að hægt verði
að stunda verslun með önnur
mál við þingmenn stjórnar-
andstöðu.
Tvöfaldur
næsta laugardag!
Vinningstölurnar 10. des. 1988
HEILDARVINNINGSUPPHÆÐ: kr. 2.793.812,-
Þar sem enginn var með 5 réttar tölur á laugardaginn var, færist 1.
vinningur sem var kr. 2.381.596,- yfir á 1. vinning á laugardaginn
kemur.
BÓNUSTALA + fjórar tölur réttarkr. 413.990,-skiptast á5 vinnings-
hafa, kr. 82.798,- á mann.
Fjórar tölur réttar kr. 714.015,- skiptast á 135 vinningshafa, kr.
5.289,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.665.807,- skiptast á 4.589 vinningshafa, kr.
363,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685 1