Alþýðublaðið - 21.12.1988, Page 4
4
Miðvikudagur21. desember 1988
VIÐTALIÐ
Sólveig Ólafsdóttir
Sigurður Bragason óperusöngvari
ÞYRFTI 3-4 ÓPERUR Á ÁRI
Sigurður Bragason óperu-
söngvari hefur nú nýlega
sent frá sér plötu þar sem
hann syngur islensk lög,
þýskan Ijóðsöng og ítölsk
iög og ariur við undirleik
Þóru Fríöu Sæmundsdótur.
Alþýðublaðið hafði samband
við Sigurð að þessu tilefni,
og spurði hann fyrst að því
hvernig tilfinning það væri að
vera búinn að syngja inn á
sína fyrstu plötu?
„Þetta er mjög góö tilfinn-
ing. Það er gaman aö því aö
hafa gert þessa plötu. Ég hef
verið mjög lengi að vinna að
henni; það var reynt að vanda
til hennar eins og hægt hefur
verið, og nú er hún loks kom-
in út.“
— Nú ert þú bariton-
söngvari. Er það rétt að þú
hafir byrjað feril þinn sem
tenór?
„Blessuð farðu ekki að tala
neitt um það. Veistu, það hef-
ur hinn ótrúlegasti misskiln-
ingur komið út úr þessu.
Þetta var bara rétt þegar ég
var að byrja að syngja i kór-
um. Ég minntist á þetta ein-
hvern tíma í viðtali, og það
varð alveg að hinum óhugn-
anlegasta misskilningi. Meira
að segja gekk það svo langt
að það var farið að biðja mig
um að syngja tenórhlutverk
hér og þar um bæinn, því það
var eins og það hefði snúist i
fólki að ég væri tenör. Ég
ætla bara að biðja þig að
segja ekki frá þessu svo að
ég fari ekki að lenda aftur í
þessu. Aftur á móti er það
rétt að ég byrjaði hér heima
að læra söng, bæði í Söng-
skólanum í Reykjavik og Tón-
listarskólanum í Reykjavík,
en það var fyrst á Ítalíu sem
ég fann mig sem söngvari."
— Þar hlýtur kennarinn að
eiga mjög mikinn hlut að
máli. Hver var kennari þinn á
ítaliu?
„Á Ítalíu fór ég til mjög
þekkts kennara sem heitir
Pier Miranda Ferraro. Hann er
mjög þekktur söngvari og
kennari við Verdi-tónlistarhá-
skólann í Milanó. Hann söng
m.a. með Mariu Callas á
Scala. Þar fyrst má segja að
ég hafi raunverulega fundið
mig sem söngvari, og þar var
ég farinn að syngja svolítið,
t.d. söng ég á tónIistarhátíö í
Milanó. Það var meira
vandræði með atvinnuleyfi
sem varö þess valdandi að
ég kom heim.“
— Hvað varstu lengi við
nám?
„Ég var þrjú ár á Ítalíu, en
áður var ég búinn að vera
fjögur ár hér heima. Þá var ég
líka að læra að verða tón-
listakennari, en ég er mennt-
aður sem slíkur, og söng-
námið var alltaf með því.“
— Hvað tók við hjá þér
eftir að þú komst heim frá
námi?
„Það eru tvö ár siðan ég
kom heim. Ég hef sungið í
óperunni Tosca, og svo á hin-
um ýmsu tónleikum í Reykja-
vík og víða um land. Nú er
búið að ráða mig hjá ís-
lensku hljómsveitinni, og ég
mun syngja með henni í vet-
ur.“
— Finnst þér vera nóg að
gera fyrir söngvara hér-
lendis?
„Ég hef haft mjög mikið að
gera, það er víst alveg óhætt
að segja það. Ef við tökum
nú síðustu viku þá var ég að
syngja á einum fimm
skemmtunum. En það er
meira tónleikar og skemmt-
anir sem söngvarar á íslandi
fá aö syngja á í dag, þvi mið-
ur. Það þyrfti að vera fleiri
óperur í gangi á hverjum
vetri.”
— Hvernig er þaö með
baritona, eru fleiri eða færri
hlutverk i óperum fyrir þá?
„Yfirleitt eru í hverri óperu
tvö eða þrjú hlutverk fyrir
baritona, þannig að það eru
yfirleitt fleiri hlutverk fyrir
baritona og bassa en fyrir
tenór og sópran. Ég er mjög
bjartsýnn á það að tónlistar-
lífið fari að komast í fastari
skorður hérlendis, að það sé
að verða svolítið þróaðra.
Tónlistarlífið er „byrjað” en
það er ekki nóg að það sé
flutt hér ein ópera á ári, þær
þyrftu helst að vera þrjár eða
fjórar.”
— „Nú veröur þú að
syngja með islensku hljóm-
sveitinni í vetur. Hefur þú
eitthvað annað á prjónunum?
„Já, ásamt því sem nú er
ákveðið að ég eigi að syngja
með íslensku hljómsveitinni I
vetur, er nú í bígerð að ég
verði með tónleika þar sem
ég mun flytja sönglög eftir
Verdi, Donizetti og Bellini. Þá
hefur plötunni minni verið
mjög vel tekið, svo ég lít
björtum augum til framtíðar-
innar.”
GJALDÞROT OG
ATVINNULEYSI
AUKIN
Skattanefnd atvinnuveg-
anna telur að þær hugmyndir
um skattahækkanir sem nú
eru til umfjöllunar á alþingi
muni leiða af sér aukna erfið-
leika í atvinnulifinu ef þær
komast í framkvæmd.
í þessari nefnd eiga sæti
fulltrúar frá Verslunarráði,
VSÍ, Félagi Isl. iðnrekenda,
Sambandi fiskvinnslustöðv-
anna, LÍÚ, Kaupmannasam-
tökunum og fleiri samtökum
vinnuveitenda. Telur nefndin í
ályktun sem hún hefur sent
frá sér að gjaldþrotum fyrir-
tækja muni fjölga á næst-
unni og atvinnu þúsundaein-
staklinga sé teflt í tvísýnu.
Nefndin telur að hækkun á
tekju- og eignarskatti fyrir-
tækja muni valda 1% hækk-
un verðlags. Þá telja þessir
fulltrúar atvinnulífsins að
áform um lækkun á fyrning-
arhlutföllum og framlagi í
fjárfestingarsjóði eyðileggi
möguleika fyrirtækja til að
mynda varasjóði til þess að
mæta áföllum.
Nefndin telur að hækkun
skatts á skrifstofu- og versl-
unarhúsnæði mismuni frek-
lega milli atvinnugreina og
hljóti að koma fyrr eða síðar
fram í verði þeirrar vöru og
þjónustu sem hann leggst á.
„Húsaleiga mun hækka um
allt að 20% þegar skoðuð
eru saman áhrif af hækkun á
þessum skatti ásamt hækk-
un á tekju- og eignarskatti.
Það getur þýtt yfir 0,5% (
vöruverði," segir í ályktun
skattanefndar atvinnuveg-
anna. „Þegar allt er talið eiga
nýjar álögur að gefa ríkis-
sjóði tæpar 4200 milljónir kr.
í auknar tekjur á næsta ári.
Þetta eru tæpar 67.000 kr. á
hverja fjögurra manna fjöl-
Utvarpsréttarnefnd hefur
veitt 13 aðilum leyfi til út-
varps og 6 til sjónvarpsút-
sendinga frá því hún tók til
starfa i janúar 1986. Nefndin
hefur ekki fengið neinar kær-
ur til sín frá aðilum sem telja
að misgert hafi verið við sig í
útsendingu né hefur hún séð
ástæðu til að afturkalla út-
varpsleyfi.
A blaðamannafundi sem
Kjartan Gunnarsson formað-
ur nefndarinnar, Þórunn J.
Hafstein ritari hennar, Bessí
Jóhannsdóttir, Helgi Guð-
mundsson og Sigrún Sturlu-
skyldu. Þessar skattahækk-
anir lenda á heimilunum í
landinu með einum eða öðr-
um hætti. Bein áhrif þessara
hækkana þýða 2,4% lækkun
á kaupmætti ráðstöfunar-
tekna. En þegar tekið er tillit
til atvinnusamdráttar og ann-
arra afleiðinga fyrir atvinnu-
lifið er Ijóst að óbein áhrif
skattahækkananna geta verið
allt að því annað eins,“ segir
skattanefndin.
dóttir héldu kom fram, að
gott samstarf hafi verið i
nefndinni allan tímann, þrátt
fyrir að um væri að ræða afar
viðkvæman málaflokk.
I skýrslu yfir störf nefndar-
innar frá því hún tók til starfa
kemur fram, að á tímabilinu
1. janúar 1986 til 1. október
1988 hefur útvarpsréttarnefnd
veitt 13 aðilum leyfi til hljóð-
varps og 6 aðilum til sjón-
varps. Þá hefur 35 aðilum ver-
ið veitt leyfi til skólaútvarps
og 26 aðilum til tækifæris-
útvarps. Nefndin hefurekki
hafnað neinni umsókn, en þó
hefur hún ekki afgreitt um-
Skattanefnd at-
vinnuveganna telur
að skattaáform
stjórnvalda muni
lenda illilega á heim-
ilunum í landinu og
valda alvarlegum at-
vinnusamdrœtti.
sóknir um útvarp í gegnum
þráð, þar sem afstaða Pósts
og síma sem umsagnaraöila
vegna tæknilegra eiginleika
slikra útvarpsstöðva liggur
ekki fyrir. Nefndinni barst þó
ein umsókn frá húsfélagi í
fjölbýlishúsi, sem sótti um
að fá leyfi til að starfrækja
iarðstöð til móttöku á sjón-
varpsefni um gervihnött. Þvi
erindi var svarað á þann veg
að í þvi tilfelli væri um
útvarpsrekstur að ræða, þar
sem 123 íbúðir væru í hús-
inu. Það kom fram að nefnd-
inni hafa ekki borist neinar
kærur á grundvelli 3. mgr.
I gærmorgun hélt Verslun-
arráð morgunverðarfund með
forystumönnum fyrirtækja
þar sem skattaáform stjórn-
valda voru til umræðu. Var
þar máluð upp svört mynd af
afleiðingum skattastefnu rík-
isstjórnarinnar fyrir atvinnu-
lífið sem ræðumenn töldu að
myndi leiða til aukinna gjald-
þrota fyrirtækja og víðtæks
atvinnuleysis á næsta ári.
3 gr. útvarpslaga frá aðilum
sem telja að útvarpsstöð hafi
misgert við þá í útsendingu.
Hún hefur heldur ekki séð
ástæðu til að endurkalla
leyfi.
Nokkrar umræður urðu á
fundinum um skýrari reglur á
fyrirkomulagi auglýsinga í
sjónvarpi. Kjartan Gunnars-
son sagði aö Ijóst væri sam-
kvæmt útvarpslögum mætti
skjóta auglýsingum inn í ann-
að efni. Þó kom fram að þær
skuli vera skýrt afmarkaðar
og þær falli á eðlilegan hátt
inn f það efni.
Útvarpsréttarnefnd
ENGAR KÆRUR NE ENDURKÖLLUD LEYFI