Alþýðublaðið - 21.12.1988, Blaðsíða 16
Félag húsgagna- og
innréttingaframleiðenda
Mótmælir
harðlega
frumvarpi
um vörugjald
Fjölmennur félagsfundur
hjá Félagi húsgagna- og inn-
réttingaframleiöenda mót-
mælir harölega þeirri aöför
aö íslenskum húsgagna- og
innréttingaiðnaði, sem felst í
frumvarpi um breytingu á lög-
um um vörugjald, sem rikis-
stjórnin hefur lagt fyrir Al-
þingi.
Félagiö bendir á eftirfar-
andi atriöi:
• íslenskur húsgagna- ög
innréttingaiðnaður hefur
árum saman átt í mjög
haröri samkeppni við er-
lenda aöila. A undanförn-
um misserum hefur sam-
keppnisstaöan versnaö
stórum vegna fastgengis-
stefnu, óhóflegs fjámagns-
kostnaðar og erfiðra starfs-
skilyröa.
• Þrátt fyrir mikið uppbygg-
ingarstarf íslenskra hús-
gagnaframleiðenda, hefur
markaðshlutdeild þeirra sí-
fellt farið minnkandi, allt
frá um 73% á árinu 1977
niður í um 32% á sl. ári. I
innréttingaframleiðslu hef-
ur innlend markaðshlut-
deild einnig minnkað stór-
lega, eða úr um 90% niður
í um 52% á sl. ári.
• Að leggja vörugjald á ís-
lensk húsgögn og innrétt-
ingar og jafnframt á hráefni
til þeirrar framleiðslu er því
forkostanlegt og lýsir
óskiljanlegri vanþekkingu
eða skilningsleysi stjórn-
valda á samkeppnisað-
stöðu þessa iðnaðar.
• Félagið varar sérstaklega
við þeirri fráleitu skoðun,
sem sumir hafa haldið
fram, að vörugjald sé hlut-
laus skattur, sem komi
jafnt við innflutning sem
innlenda framleiðslu.
Hækkun á innlendum hús-
gögnum og innréttingum
vegna vörugjalds gefur er-
lendum keppinautum kjöriö
tækifæri til að ná til sín
ennþá stærri hluta af mark-
aðnum, enda hefur reynsl-
an sýnt, að þeir geta auð-
veldlega í krafti stærðar
sinnar og e.t.v. einnig með
ríkisstyrkjum til útflutn-
ingsátaks, tekið á sig
hækkunina tímabundið.
• Fyrirsjáanlegt er, að vöru-
gjald á hráefni muni veru-
lega íþyngja ýmsum fyrir-
tækjum og jafnvel gera
starfsemi sumra fyrirtækja
vonlausa. Staðreyndin er
sú, að þrátt fyrir undan-
þáguheimildir í tolla- og
vörugjaldslögum, er ógjörn-
ingur í framkvæmd að
koma í veg fyrir aö iðnaöur-
inn þurfi að hluta að greiða
vörugjald af hráefni sinu.
Aðeins þegar iðnfyrirtæki
annast sjálf innflutning
hráefna sinna, er í fram-
kvæmd unnt að koma í veg
fyrir, að þau þurfi að bera
vörugjald, sem lagt yrði á
hráefni. Þegar hráefni eru
keypt af innlendum efnis-
sala, eins og eðlilega er
mjög algengt að fyrirtæki í
húsgagna- og innréttinga-
iðnaði geri, er óhjákvæmi-
legt, að vörugjald hækki
framleiöslukostnað.
Ajólunum veljum við gjaman það sem
okkur þykir best á jólaborðið og
auðvitað helst sem þjóðlegast. íslenska
lambakjötið er hráefni sem á fáa sína líka,
svo meyrt og safaríkt ef það er meðhöndlað
rétt. Spennandi lambastórsteik er tromp á
jólaborðið. Hér er uppskrift af einni
ómótstæðilegri.
Hilmar B. Jónsson valdi þessa gimilegu
jólasteik handa okkur með óskum um
gleðilega hátíð.
Látið lambalærið þiðna í kæliskáp í 3-5
daga, helst í loftþéttum umbúðum.
Skerið mjaðmabeinið frá og hreinsið
leggbeinið. Skerið einnig mest af fítunni frá
ef lærið er of feitt. Stingið um 2 sm djúp göt í
lærið með 3-4 sm millibili. Geymið beinin og
kjötið utan af leggbeininu.
Skerið sellerístilkana og biaðlaukinn í
bita. Hitið olíuna á pönnu, setjið grænmetið
á pönnuna og kraumið þar til það fer aðeins
að taka lit. Bætið þá pipamum,
rósmarínkryddinu, sojasósunni,
sítrónusafanum og líkjömum útí og látið
^þeg&pú
vilt há'
Lambajæri
með Kahlua-sósu
Fyrir6-7.
1 meðalstórtlambalæri
2 msk matarolía
3 sellerístilkar
V2 blaðlaukur (púrrulaukur)
1 tskgræn eða hrít piparkom
1 tskrósmarín (sléttfull)
2 dl Kahlua-kaffilíkjör
2 msk Kikkoman sojasósa
safi úr 1 sítrónu
salt
2 dl Ijóst kjötsoð
dökkursósujafnari
MARKAÐSNEFND
sjóða í 3-5 mín. Kælið blönduna og hellið
henni síðan í sterkan plastpoka. Setjið
lambalærið í pokann og bindið vandlega
fyrir. Látið sem minnst loft vera í pokanum.
Takið utan um legginn á lærinu og sláið
pokanum með lærinu í nokkmm sinnum
þétt niður á borð. Snúið lærinu í hvert sinn.
Þetta er gert til þess að fá safann í pokanum
vel inn í holurnar á kjötinu.
Geymið pokann með lærinu á köldum
stað í um einn sólarhring og snúið honum
öðru hvom og nuddið safanum vel inn í
læriðumleið.
Hitið ofninn í 220°C.
Takið lærið úr pokanum og skafíð
kryddblönduna utan af með bakkanum á
borðhníf. Geymið blönduna. Kryddið lærið
með salti (og meiri pipar ef þurfa þykir).
Höggvið mjaðmabeinið í 4 eða 5 bita og
skerið hækilkjötið í bita. Leggið þetta í
hæfilega stóra steikarskál eða skúffu og
leggið lambalærið ofan á. Steikið kjötið í
ofninum þar tii það er búið að fá á sig
fallegan lit. Minnkið þá hitann á ofninum
niður í 180°C. Eftir um einnar klst. steikingu
er kryddleginum sem eftir var ásamt
kjötsoðinu hellt yfir kjötið og það síðan
steikt í um 15-30 mín. í viðbót.
Færið lærið yfir á fatið sem þið ætlið að
bera það fram á og geymið í heitum og
hálfopnum ofninum á meðan sósan er löguð.
Sigtið soðið úr steikarskálinni yfir í pott
og bragðbætið með salti og pipar eftir
smekk. Látið suðuna koma upp á soðinu og
þykkið það hæfilega með sósujafnara.
Berið kjötið fram með nýju, soðnu
grænmeti og einhverju ljúffengu til þess að
skola því niður.
SPENNANDI