Alþýðublaðið - 21.12.1988, Síða 8
8
Miðvikudagur21. desember 1988
Rafbúð Sambandsins
Ný og betri búð við Holtagarða
Rafbúð Sambandsins flutti
i nýtt og glæsilegt 300 m2
húsnæði í Holtagörðum,
sama húsi og Mikligarður,
þann 26. nóvember sl. Fyrst
um sinn mun verslunin einn-
ig vera starfrækt í Ármúla 3
eins og áður, en að sögn Sig-
urðar Jónssonar, markaðs-
stjóra verslunardeildar Sam-
bandsins, munu Holtagarðar
verða framtiðarhúsnæði Raf-
búðarinnar. Þar eru næg bíla-
stæði, þægileg aðkoma og
hagræði af nálægðinni við
Miklagarð.
Opnunartími til 6.30 má-fi,
7.30 fö lau.
„Með flutningunum ná-
um við einnig aukinni hag-
ræðingu i rekstrinum, nú er
verslunin, heildsalan og lag-
erinn í sama húsi og auðveld-
ara að fylgjast með og sam-
hæfa reksturinn," sagði Sig-
urður Jónsson. Verslunar-
stjóri Rafbúöarinnar er Þor-
kell Ingimarsson, en auk
hans vinna þrír starfsmenn í
versluninni.
Rafbúð Sambandsins er
með mörg þekkt vörumerki á
boðstólum, eins og Kitchen
Aid, Westinghouse, Baukn-
echt og Zerowatt. Auk allra
raftækja til heimilisnota fást
einnig ýmis iðnaðarraftæki í
versluninni fyrir hótel, veit-
ingahús, þvottahús og ýmis
önnur fyrirtæki og stofnanir.
American Dryers þvottavélar
og þurrkarar, Stoelting ísvélar
og tæki frá Manitowoc og
Primus eru meðal þeirra sem
seld eru til fyrirtækja og
stofnana.
FJÖLBREITT ÚRVAL
RAFTÆKJA
„Við leggum metnaö okkar
í að bjóða upp á mjög breiða
línu í raftækjum," sagði Sig-
uröur. „Allt frá vörum fyrir þá
sem gera mjög miklar kröfur,
eins og Westinghouse is-
skápar og Thomson sjón-
varpstæki, yfir í ódýrari tæki
eins og Mark sjónvarpstæki
og Zerowatt kæliskápa, svo
einhver dæmi séu tekin.
Eldhústækin frá Baukn-
echt eru okkar stolt. Þar er
um að ræða mjög vandaða v-
þýska vöru sem hefur fengið
mjög góða dóma í þarlendum
neytendablöðum og er eigin-
lega uppáhald v-þýsku neyt-
endasamtakanna. í Baukn-
echt bjóðum við eldavélar,
þvottavélar, ísskápa, upp-
þvottavélar, gufugleypa og
fleira."
Af öðrum vörumerkjum má
nefna Frigor frystikistur,
MBO reiknivélar og Melissa.
Melissa heimilistækin eru á
mjög hagstæðu verði og býð-
ur Rafbúðin m.a. upp á Mel-
issa örbylgjuofna, kaffivélar
og ryksugur. í ódýrari flokkn-
um eru einnig Zerowatt heim-
ilistækin, en þó þau séu ódýr
er ekki þar með sagt að gæð-
unum sé fórnað og nefndi
Sigurður dæmi um Zerowatt
þvottavél sem kölluð var
„töfravélin" vegna þess hve
langur tími leið frá því að
fyrstu vélarnar voru seldar
þar til þær komu í viðgerð í
fyrsta sinn. Zerowatt hefur
reynst mjög vel hérlendis að
sögn Sigurðar og hefur verið
á markaðnum í áraraðir og
likað vel.
HUÓMTÆKI OG KÍNVERSK
SJÓNVÖRP
Það eru ekki eingöngu öll
raftæki til heimilisins í Raf-
búðinni, heldureinnig útvörp,
sjónvörp og myndbandstæki
frá japanska fyrirtækinu
Thomson og kóreanska fyrir-
tækinu Mark. Frá Mark fást
einnig hljómtæki, en það
sem mesta forvitni vekur eru
kannski kínversk sjónvörp
sem framleidd eru undir
vörumerkinu Prima og eru
sennilega fyrstu kínversku
sjónvarpstækin á markaðn-
um hérlendis. Þau eru á mjög
hagstæðu verði og sagði Sig-
urður að þetta væru snotur
tæki sem væru með ágætis
mynd. Frá Mark eru einnig
sjónvörp á hagstæðu verði,
þar á meðal sambyggt 5”
sjónvarp, útvarp og vekjari.
Af minni tækjum má nefna
smáútvörp, kaffivélar, strau-
járn, og djúpsteikingapotta.
Einnig er nokkuð úrval af raf-
magnsverkfærum. Reiknivél-
ar eru til af öllum stærðum
og gerðum frá MBO, allt frá
minnstu tölvum upp í reikni-
vélar með strimli. Afgreiðslu-
kassar, sem nýlega fengu
nafnið sjóðvélar hjá formanni
Alþýðuflokksins, grá General
eru einnig á boöstólum.
Tl LBOÐ
Hýasintur eru ómissandi um j ólin.
I Blómavali færðu úrvals hýasintur
á ótrúlegu verði.
EEV HÝASLIVTA KR.
TVÆR HYASEVTUR KR,
Jólahi'asmtur