Alþýðublaðið - 21.12.1988, Blaðsíða 13
Miövikudagur 21. desember 1988
13
Bjartmar
Bjartmar
stendur sig
Ein af söluhæstu plötunum
fyrir síðustu jól var plata Bjart-
mars, í fylgd með fullorðnum.
Þetta var þriðja sólóplata hans
en sú nýjasta, sem kom út um
daginn heitir Með vottorð í
leikfimi, eftir fyrsta lagi A-hlið-
arinnar. Mér finnst þetta lag al-
veg fyrirtaks smellur, grlpandi,
með fyndnum texta og ekki
síst frábærri útsetningu á
blásturshljóðfærinu, básún-
unni. Það er Diddi fiðla sem
sérum útsetningarnarog leys-
ir það verk vel af hendi, útsetn-
ingarnarfallavel aðeinföldum
lagasmíðum Bjartmars. Ann-
ars felst styrkur Bjartmars að-
allega í hnyttnum textum
hans: „Tólftommutöffarinn í
útvarpinu talar/ oni lagið sem
minnir mig á þig / Ég ætlaði að
segja eitthvað reglulega rómó
/ en hamborgaratilboðið trufl-
aði mig.“ (Tólftommutöffar-
inn). Þetta er ansi meitlað og í
raun má líta á þetta í víðu sam-
hengi. í rauninni er þetta lítil
saga í fjórum setningum.
Það sem ég vil kalla Bjart-
mar er þjóðfélagsskáld því
hann sækir yrkisefni sin út í
þjóðfélagið og fylgist greini-
lega vel með því sem er að ger-
ast i kring um sig.
Frammistaða Bjartmars er i
góðu lagi á plötunni. Hann er
fyrirtaks raulari sem hefur náð
langt með frekar hrjúfri rödd
sinni en hann beitir henni
þannig að hann reynir ekki að
gera hluti sem hann ræður
ekki við. Ekki má gleyma hlut
upptökusnillingsins Didda
fiðlu sem eflaust hefur.leið-
beint Bjartmari vel.
Að mínu mati er Bjartmar
fyrst og fremst skemmtilegur
textahöfundur sem getur sam-
ið nettar laglínur við textana
og gerir úr þessu tvennu, með
aðstoð góðra manna, popþ-
smelli sem falla fólki vel í geð,
um tíma, því að sjálfsögðu
koma aðrir í staðinn.
Með vottorð í leikfimi er vel
„matreidd" plata. Hún er eins
og ýsan, smjörið og kartöflurn-
ar, manni þykir það alltaf gott
en langar stundum í eitthvað
annað, t.d. tólftommu pítsu.
Valgeir
Valgeir á
réttum nótum
Eftir öll þessi ár — Stuö-
menn, Spilverk þjóðanna,
Strax, svo aftur Stuðmenn og
nú einn, án allra hafta (ég er
ekki með þessum orðum að
segja að áðurnefndar hljóm-
sveitir hafi verið höft!) — er
ValgeirGuðjónsson, brandara-
banasinn mikli (sumum stelp-
um finnst hann svo bangsa-
legur!) búinn að gefa út sina
fyrstu sólóplötu í samvinnu
við Björgvin Gíslason (gítar og
hljómborð), Ásgeir Óskarsson
(trommur og hljómborð) og
Mike Sheppard (bassi og upp-
tökustjórn). Platan heitirGóðir
íslendingar (vísar til 17. júnl,
en það má sjá þennan titil í
miklu vlðara samhengi) og á
henni eru 11 lög: „Útvarp frá Al-
þingi / aldin kempa I pontunni
/ alin upp við þetta gamla góða
/ það er af sem áður var / með
allar mannmörgu sveitirnar /
engin furða þó menn setji
hljóöa/ billjónir þarna/ billjón-
ir hér/ smábrauö handa hungr-
uðum / en hvað sem að gerist
/og hvernig sem fer/vitum við
samt að við erum / svo góðir /
svo góðir/ íslendingar." (Góðir
íslendingar.)
Hér kemur Valgeir víða við I
textagerð sinni, enda maður
víðsýnn að eðlisfari. Margar
myndir í þessu erindi og í þvl
felst háðsk ádeila á lands-
menn og stjórnmálamennina
okkar, vesalings greyin. Þegar
Valgeir hefur ekki verið að
skemmtafólki, hreint og beint,
hefur hann verið að deila á
ýmsa hluti: „Borgin við sundin
/ sem bannaði hundinn", svona
línur minna mig á gamla Sþil-
verkið og þann léttpólitíska
undirtón sem oft einkenndi
texta þeirra. Nú er sá andi
kominn aftur, þó í minnamæli.
Eftir að hafa hlustað á Góða
íslendinga sitja titillagið, Al-
askavíðirinn, Kramið hjartaog
Dagur eins og nú mest í mér.
Alaskavíðirinn er rokkuð saga
um „gest“ sem kemur í heim-
sókn á ónafngreint heimili,
veltir húsbóndanum úr sessi
og er reyndar byrjaður að nota
hann sem vinnudýr og sendi-
svein í enda lagsins. Texti
millikaflans eransi myndrænn
og skemmtilegur: „Úti fyrir
þýtur vindurinn í gegnum
þvottinn." Og svo lína á eftir
þessari sem kannski á að end-
ursþegla þjóðfélagslega
stöðu heimilisfólksins, hver
veit: „Og alaskavíðirinn svo
ágætlega sprottinn.11
Kramið hjarta er hinsvegar
ballaða plötunnar. Angurvært
saxófónsóló Kristins Svavars-
sonar er nokkuð einkennandi
fyrir þann Ijúfsára anda sem
ríkirí laginu: „Hvergetur lækn-
að kramið hjarta / hver getur
límt saman brotna sál?“ Já,
þegar stórt er sþurt verður oft
lítið um svör (þvílík klisja!!!!).
Kannski er Valgeir þarna að
yrkja um skort á kærleika i
samskiptum fólks, því það er
hálfgerður ástarsorgarsvipur
yfir laginu: „Svo komu flóð og
fjara / færandi vatn með sér /
en nú er enginn til að ösla
sporin / sem eru ekki lengur
hér.“
Dagur eins og nú er lokalag
Góðra íslendinga, einskonar
mini-tónverk. Lag með
skemmtilegri stígandi og
minnir það mig stundum á
verk gömlu meistaranna;
Genesis, Yes, þó sú samliking
sé nú kannski fulllangsótt. Ég
á meira við uppbyggingu lags-
ins en beina tónlistarlega
samsvörun: „Koma tímar
koma ár / koma sorgir gleðitár
/ andartakið fer/og aldrei aftur
/aldrei aftur/aldrei aftur/dag-
ur eins og nú,“
Eitt ervíst: Þaö kemuraldrei
aftur svona plata frá Valgeiri
Guðjónssyni. Mér líkar hún,
ekki bara vegna þess að höf-
undur hennar var i Stuðmönn-
um eða Sþilverki þjóðanna,
heldur vegna þess að þetta er
einfaldlega hin ágætasta
þlata frá góðum íslendingi.
Síðan skein sól
Gotf sólarrokk
„Geta pabbar ekki grátið?"
spyr Helgi Björnsson söngvari
á fyrstu sólóplötu hljómsveit-
arinnar Siðan skein sól, sem
kom út fyrir jólavertíðina.
S.S.S. varstofnuð að mig minn-
ir árið 1986, þvi ég sá þá á sín-
um fyrstu tónleikum þá um
veturinn. Pétur Grétarsson,
jassgeggjari, var á þessum
tíma bakvið settið en hann
hætti og í staðinn kom Ingólf-
ur Siguröarson sem fyllti
skarð Péturs óaðfinnanlega.
Um strengjahljóðfærin sáu
þeir Jakob Magnússon (bassi)
og Eyjólfur Jóhannesson (gít-
ar). Eru þeir enn i sínum hlut-
verkum.
Til að forðast allan misskiln-
ing skal á það bent að umrædd
hljómplata Síðan skein sól er
rokkplata, melódísk og ein-
föld, enda býður hljóðfæra-
skipanin upp á það. Mér finnst
þessi plata sérkennileg fyrir
þá sök að á henni er ekki þetta
brjálaða „rokksánd" sem ein-
kennir svo margar rokkplötur.
Þá gæti eflaust einhver spurt
sem svo: „Hvernig getur þetta
þá verið rokkplata?" Svarið
felst í lagasmíðum þeirra fé-
laga sem þó ekki allar geta tal-
ist rokk. Til dæmis eru lögin
Svo marga daga, Dagdraumar
og Glugginn rólyndislegar
lagasmíðar, sú siðastnefnda
listilega krydduð með strengja-
hljóðfærum sem meðlimir úr
Sinfóníunni leika á. En rest er
rokk og ról með einföldum en
innihaldsmiklum textum sem
fjalla um allt frá Ijóshærðum
gæjum sem þröngva sér inn á
kaffihús (Ljóshærður gæi),
ráðhúsbygginguna í Tjörninni
(1+1)til sjálfvirkrasímsvaraog
þersónulegra samskipta
(Beint frá hjartanu). Mér finnst
þessi plata vinna á við hverja
hlustun og kemur því senni-
lega til með að sitja framar-
lega í plötubunkanum hjá þér,
þ.e. ef þú lesandi góður, kaupir
gripinn. Þeim peningum væri
hægt að eyða á vitlausari hátt.
En ég legg til að næsta plata
Síðan skein sól verði tónleika-
plataþví hljómsveitin erennþá
magnaðri á sviði. __
Geiri Sœm
Hunangsplata
í fyrra sendi Geiri Sæm frá
sér sína fyrstu sólóplötu. Fíll-
inn hét hún og af henni varð
lagið Rauðurbíll geysivinsælt.
Minna vinsælt varð Hasarinn
en engu að síður var það gott
lag. Geiri lætur ekki deigan
síga og nú er hann kominn á
kreik, ásamt hljómsveit sinni,
Hunangstunglinu, með nýja
plötu sem hann kýs að kalla
þvi óvenjulega nafni, Er ást (
tunglinu? (ekki þó skemmti-
staðnum??!!). Þegar hefur lag-
ið Froðan náð eyrum almenn-
ings og í laginu gerir Geiri að
umtalsefni kröfuhörkuna sem
okkur er svo töm, við viljum
þetta við viljum hitt, verður
bókstaflega að fá allt, helst í
gær:
„Hann langar í sanseraðan
sportbíl / og hann verður dús /
þráir heimska Ijósku / sportbíl
og risastórt hús“ (Froðan). En
mér finnst þetta lag ekki það
besta á plötunni. Af lagasmíð-
um Geirafinnast mértitillagið,
Er ást í tunglinu? og Þú brýtur
mig í spað sem Kristinn R. Þór-
isson semurásamt Geira bera
af. Síðara lagið er um ástar-
samband sem er í molum, al-
veg þrælgóð lagasmíð. Gítar-
leikari Hunangstunglsins,
Kristján Edelstein, á sinn þátt
í hrifningu minni yfir þessu
lagi, spilar dúnmjúkt og yfir-
vegar á hljóðfærið, mjög góð-
urog „teknískur" gltarleikari.
Hljómborðsleikarinn, Þor-
valdur Þorvaldsson semur
einnig alls fimm lög á E.Á.Í.T?,
meðal annarra Froðuna áður-
nefndu. Af lögum hans höfðar
Boxarinn mest til mín, dulítið
þung í því undiraldan, drunga-
legt á köflum, en jafnframt
heillandi. Geiri syngur það á
tilfinningaþrunginn hátt og
gerir það vel. Lögin Samba og
Fjölskylduvindar eru einnig
mjög áheyrileg. Meðlimir Hun-
angstunglsins eru, auk Geira,
Kristjáns og Þorvaldar, Þor-
steinn Gunnarsson trommu-
leikari og Skúli Sverrisson,
lærður jassbassaleikari úr
bandarískum tónlistarhá-
skóla. Þetta eru allt saman
mjög góðir hljóðfæraleikarar
sem leggja mikið í tónlistar-
sköpun sína. Árangurinn læt-
ur ekki á sér standa og get ég
að fullu mælt með Er ást í
tunglinu?
GUNNAR h.
ÁRSÆLSSON
^BaukriGcht
JÓLATILBOÐ
Þvottavél,
WA 8310 WS
Kr. 47.405 stgr.
Uppþvottavél,
GSF 1142 WS
Kr. 43.985 stgr.
' f •
Eldhúsvifta,
DFG 1360 WS
Kr. 9.215 stgr,
Eldavél,
DFG 1360 WS
Kr. 37.810 stgr.
Kæli-/frystiskápur, kvc 2411
H: 140 cm B: 55 cm D: 59 cm
Kr. 35.720 stgr.
SjhFuÍÍ 3
^SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI68 55 50
ÁRMÚLA3 SÍMI687910 - 681266