Alþýðublaðið - 21.12.1988, Qupperneq 14
14
Miðvikudagur 21. desember 1988
SNJÓFLÓf)
FRÆÐSLURIT
ALMANNAVARNIR RÍKISINS
Fræðslu-
bæklingur um
varnir gegn
snjóflóðum
Hinn 20. desember 1974
urðu mikil snjóflóð á Nes-
kaupstað þar sem 12 manns
týndu lifi og gífurlegt eigna-
tjón varð í byggðarlaginu.
Síðan hafa skæð snjóflóð
tekið mannslíf i byggð og
óbyggö og valdið miklu
eignatjóni, s.s. á Patreksfirði
og Ólafsfirði, en á síðari
staðnum sluppu menn naum-
lega.
Almannavarnir ríkisins hafa
allar götur frá áfallinu 1974
staðið fyrir fræðslu um varnir
og varúð gegn snjóflóðum,
t.d. með dreifingu vegg-
spjalda á skíðastaði, nám-
skeiðahaldi fyrir yfirvöld,
björgunarlið og aðra sérhópa
um snjóflóöavarnir, og útgáfu
fræðslurita við slíka kennslu
og leiðbeiningar.
Fræðslu þarf einnig að
bjóða almenningi. Því hefur
stofnunin látið gera fræðslu-
bækling um varnir gegn snjó-
flóðum, sem nú er að fara til
dreifingar og munu almanna-
varnanefndir annast fram-
kvæmd hennar. Er þeim sér-
staklega uppálagt að dreif-
ingin fari fram samtímis í öll-
um snjóflóðabyggðum þann
20. desember nk., en þá eru
14 ár liðin frá harmleiknum á
Neskaupstað.
Þjónusta í
kirkju-
görðunum fyrir
hátíðarnar
Eins og undanfarin ár
munu starfsmenn kirkjugarð-
anna aðstoða fólk, sem kem-
ur til að huga að leiðum ást-
vina sinna.
Á Þorláksmessu og að-
fangadag verða talstöðvabílar
dreifðir um Fossvogsgarð og
munu í samvinnu við skrif-
stofuna leiðbeina fólki eftir
bestu getu. Skrifstofan er op-
in til kl. 16.00 á Þorláks-
messu og til kl. 15.00 á aó-
fangadag.
í Gufunesgarði og Suður-
götugarði verða einnig starfs-
menn til aðstoöar og sérstak-
ar ferðir verða i Gufunesið
með strætisvögnum sem hér
segir:
A aðfangadag verða farnar
tvær ferðir:
Frá Lækjartorgi
kl. 10.30 og ki. 14.00
Frá Hlemmi
kl. 10.35 og kl. 14.05
Frá Grensásstöð
kl. 10.45 og kl. 14.15
Vagnarnir bíða meðan far-
þegar fara í garðinn.
Vinsamlegast athugið að
það auðveldar mjög alla að-
stoð ef gestir í garðana vita
leiðisnúmer. Þeim sem ekki
vita það og eru ekki öruggir
aö rata, viljum við eindregið
benda á að hafa samband
sem fyrát við skrifstofuna,
sími 18166 og fá uppgefið
númer þess leiðis er vitja
skal og hafa það á takteinum
þegar í garðana er komið.
Það auðveldar mjög og
flýtir fyrir allri afgreiðslu.
Tekinn verður upp ein-
stefnuakstur að Fossvogs-
kirkjugaröi og mun lögreglan
gefa leiðbeiningar og stjórna
umferð.
Ráðinn til
stöðlunar í
upplýsinga-
tækni
Þorvaröur Kirl Ólafsson.
Þorvarður Kári Ólafsson
tölvunarfræðingur hefur ný-
lega verið ráðinn sem fyrsti
starfsmaður UT-staðlaráðs
(staðlaráðs á sviði upplýs-
ingatækni). Reiknistofnun
Háskólans leggur honum tll
vinnuaðstöðu í nýju húsi
Tæknigarös. UT-staðlaráð,
sem áður hét Tölvuráð, sam-
ræmir aðgerðir og fram-
kvæmdaaðili varðandi stöðl-
un I upplýsingatækni á ís-
landi. Það heyrir undir
Staðlaráð íslands sem hefur
aðstööu hjá Iðntæknistofnun
íslands. Lögð verður áhersla
á stöðlun hnappaborða,
stafamenja, tæknioröa, upp-
lýsingatækni í fiskiðnaði, við-
skiptagagnaskipta (EDI),
gagnafjarskipta (OSI) og í
hugbúnaðargerð.
UT-staðlaráð skipa: Oddur
Benediktsson prófessor, fyrir
Háskóla íslands (formaður),
Þorvarður Jónsson fyrir Póst
og síma (varaformaður), Gísli
Már Gfslason fyrir Verslunar-
ráð íslands, Arnþór Þórðar-
son fyrir Félag íslenskra iðn-
rekenda, Helgi Jónsson fyrir
Skýrslutæknifélag íslands og
Jóhannes Þorsteinsson fyrir
Staðlaráð íslands.
Þorvarður Kári lauk BS-
prófi í tölvunarfræði frá Há-
skóla íslands, árið 1981.
Hann hefurstarfað hjá
Skýrsluvélum ríkisins og
Reykjavíkurborgar og Krist-
jáni O. Skagfjörð hf. Síðast-
liðin 5 ár starfaói hann að
tölvuvæðingu hjáTeli AB í
Svíþjóð.
Þorvarður Kári Ólafsson er
FÉLAGSRÁÐGJAFI
Umsóknarfrestur um stöðu félagsráðgjafa hjá
Fangelsismálastofnun ríkisinserframlengdurtil 29.
desember 1988.
Umsóknir sendist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 19. desember 1988
HAPPDRÆTTI
ALÞÝÐUFLOKKSINS
Dregið hefurverið i happdrætti Alþýðuflokksins.
Upp komu þessi númer:
2120 7954
2224 8279
3397 12518
4270 13937
6697
Vinninga skal vitja á skrifstofu Alþýðuflokksins.
Alþýðuflokkurinn.
31 árs, kvæntur Erlu Stefáns-
dóttur matvælafræðingi og
eiga þau tvo syni.
Stúdentaráð
vill stokka upp
dagvistun
Stúdentaráð Háskóla ís-
lands skorar á Reykjavíkur-
borg og stjórnvöld að taka
höndum saman við að stokka
upp dagvistarkerfið. Stúd-
entaráö hvetur eindregið til
þess að tekið verði upp eitt
kerfi í dagvistun og varpað
verði fyrir róða hinni stífu
skiptingu í leikskólavistun og
dagheimilisvistun. Það er
orðið löngu tímabært að taka
upp eitt kerfi, með sveigjan-
legum vistunartíma.
Stúdentaráð hvetur borgar-
yfirvöld til þess að miða sína
dagvistaruppbyggingu við
slíkt kerfi og Stúdentaráð
hvetur menntamálaráðherra
til að endurskoða núverandi
lög og reglur um dagvistun,
þannig að þessi uppstokkun
verði auðveldari.
Eins og staðan er í dag,
eru margir stúdentar á bið-
listum eftir því að komast að
í dagvistarkerfinu. Orsakir
þessa vanda eru margþættar.
Að mati Stúdentaráös myndi
uppstokkunin auðvelda upp-
byggingu dagvistarkerfisins
og flýta lausn þess vanda
sem stúdentar eiga við að
etja.
Geti fleiri stúdentar notað
þjónustu dagvistunarkerfis-
ins í breyttri mynd en i núver-
andi heilsdagsvistun eða
leikskólavistun, er það heppi-
legri kostur. Stúdentaráð tel-
ur einnig að með þessu kerfi
yrði auðveldara að hverfa al-
farið frá 3 ára hámarksregl-
unni, sem nú er í gildi.
íslensk
knattspyrna
1988
íslensk knattspyrna 1988
er áttunda bókin í þessum
bókaflokki, sem hóf göngu
sína árið 1981. Eins og nafnið
gefur til kynna er hér um að
ræða árbók knattspyrnunnar
og í hepni rakinn gangur
mála í íslandsmóti, bikar-
keppni, landsleikjum og Evr-
ópuleikjum á árinu 1988, auk
annarra þátta sem viðkoma
íslenskri knattspyrnu.
í bókinni er m.a. fjórði kafl-
inn í sögu (slenskrar knatt-
spyrnu. Árið 1985 var hún rak-
in frá upphafi til ársins 1934,
áriö 1986 voru tekin fyrir árin
1935-1946, I síðustu bók 1947-
1954 og að þessu sinni er
sagt frá tfmabilinu 1955-1962.
Aö vanda eru f bókinni lit-
myndir af meisturum I öllum
deildum og flokkum íslands-
mótsins, 16 að tölu, og einn-
ig heilsíðulitmyndir af átta
einstaklingum, auk þess nl-
unda sem er á bókarkápu.
Hún er einnig prýdd miklum
fjölda svart/hvítra mynda.
Bókina skrifar Víðir Sig-
urðsson íþróttafréttamaður
og útgefandi er Skjaldborg.
Hún er 160 blaðsíður ( stóru
broti. Þess má geta að allar
fyrri bækurnar fást enn hjá
Skjaldborg og víða I bóka-
verslunum.
Víðir Sigurðsson skrifaði bókina
íslensk knattspyrna 1988.
A-mynd/Magnús Reynir.
Eltt andartak í
umferðinni getur kostað
margar andvðkunætur.
UMFERÐAR
RAÐ
□ 1 2 3 n 4
5 □ \
6 □ 7
5 9
10 □ 11
□ 12 .
13 □ □
Lárétt: 1 handfang, 5 högg,£
ílát, 7 kusk, 8 báturinn, 10
snemma, 11 espi, 12 mikið, 13
gerlegt.
Lóðrétt: 1 raftur, 2 viðarbútar, 3
til, 4 skaðinn, 5 kind, 7 veikt, 9
nemi, 12 pípa.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 sposk, 5 veik, 6 öfl, 7
ha, 8 naskir, 10 dr, 11 ört, 12
æsta, 13 rafta.
Lóðrétt: 1 sefar, 2 pils, 3 ok, 4
kvarta, 5 vöndur, 7 hirta, 9 köst,
12 æf.
• Gengið
Gengisskráning 242 - 19. des. 1988
Kaup Sala
Bandarikjadollar 45,700 45,820
Sterlingspund 83,471 83,690
Kanadadollar 38,018 38,118
Dönsk króna 6,7379 6,7556
Norsk króna 7,0194 7,0379
Sænsk króna 7,5103 7,5300
Finnskt mark 11,0520 11,0810
Franskur franki 7,6249 7,6449
Belgiskur franki 1,2419 1,2452
Svissn. franki 30,9243 31,0055
Holl. gyllini 23,0837 23,1443
Vesturþýskt mark 26,0510 26,1194
Itölsk Ifra 0,03534 0,03543
Austurr. sch. 3,7015 3,7112
Portúg. escudo 0,3136 0,3144
Spánskur peseti 0,4029 0,4039
Japanskt yen 0,36864 0,36961
írskt pund 69,663 69,846
SDR 61,9290 62,0916
ECU - Evrópumynt 54,1294 54,2715
• Ljósvakapunktar
• RUV
20.40 ísland fer létt með Sví-
ana i handknattleik í höllinni.
Siðari leikur við „erkifénd-
urna“ Svía.
22.05 Leitin að eldinum.
Frönsk/Kanadísk mynd frá
1981. Spennandi, djörf og fal-
leg í senn.
• Stöð 2
23.00 Öndvegis vestri með
Marlon Brando. .Sá er líka leik-
stjóri þessarar myndar sem
gerð var árið 1961. Þriggja
stjörnu mynd.
• Rás 1
13.05 Félagsráögjafar og sál-
fræðingar svara spurningum
hlustenda í dagsins önn. Rætt
verður um samskipti foreldra
og barna.
23.10 Djassþáttur Jóns Múlaer
ómissandi.
• Rás 2
22.07 Anna Björk rólar sér.
• Bylgjan
18.00 Hallgrimur sinnir kverúl-
öntum.
• RÓT
24.00 Hausaskak þungarokk-
arans.