Alþýðublaðið - 14.04.1989, Side 2
2
Föstudagur 14. apríl 1989
MDUBIMB
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson
Auglýsingastjóri: Steen Johansson
Dreifingastjóri: Sigurður Jónsson
Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Siöumúia 12
Áskriftarsíminn er 681866
Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið,
HVERJIR EIGA
ÍSLAND?
r eningum landsmannaermisskipt. Samkvæmt könnun Fé-
lagsvísindastofnunar Háskóla íslands á 5% þjóðarinnar um
2/3 hluta lausafjár í bönkum. Hver um sig á að jafnaði 5 millj-
ónir, sem grípamátil áerfiðum stundum. Væri rýnt nánarof-
an í þennan fimmprósenta hóp er líklegt að við fyndum tugi
eða hundruði einstaklinga sem eiga á lausu tugi milljóna
króna. Þetta eru lausapeningarnir í velferðarþjóðfélaginu.
Þegar kemur að föstum fjármunum er ójöfnuðurinn miklu
meira áberandi. Fyrsta skal telja væna húsameistara sem
hafa í áratugi haft einkaleyfi til að byggja heilu blokkirnar í
Reykjavík, án þess að greiðatúskilding fyrir. Aðeins lítilræði
í kosningasjóð Sjálfstæðisflokksins hefur verið nægur að-
gangseyrir að byggingarlóðum í höfuðborginni. Fyrir fáein-
um árum hóf borgin reyndarað leitatilboða í lóðirsem mætti
byggja á. Þá kom í Ijós að grundir sem áður hafa verið falar
fyrir aögöngumiða að Sjálfstæðisflokknum reynast nú vera
tug milljóna virði. Lóð Völundar við Skúlagötu sem nú er ver-
ið að byggja á var byggingarfyrirtæki t.d. tilbúið að greiða á
áttunda tug milljóna króna fyrir.
Hér er aðeins bent á örlitið brot af þeirrri misskiptingu sem
rikir ( okkar þjóðfélagi. Ofboðslegir hagsmunir eru í húfi,
sem aldrei verða kannaöir til fulls. Til þess eru (tök þeirra
sem maka krókinn í tveimur stærstu stjórnmálaflokkum
þjóðarinnar allt of miklir. Stærsta einkaleyfisfyrirtæki þjóð-
arinnar er t.d. staðsett í hjarta þessara tveggja spilltustu
flokkaþjóðarinnar. íslenskir Aðalverktakarsem hafa mjólkað
framkvæmdir á hernámssvæöinu á Miðnesheiði í gegnum
íslensk stjórnvöld eru í eigu stærstu eignamanna og fyrir-
tækja Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Bandaríkja-
menn og Nató hafa borgað reikningana sem flokksbræðurn-
ir á íslandi hafa getað lagt fram umyrðalaust. En samkvæmt
nýlegum bandarískum skýrslum eru íslenskir Aðalverktakar
eitthvert mesta okurfyrirtæki á byggðu bóli. Fyrir nokkrum
árum kvörtuðu bandaríks yfirvöld yfir því að framkvæmdir
verktaka á íslandi væru 150% dýrari en framkvæmdir sömu
gerðarfyrirbandarísk hernaðaryfirvöld áöðrum hersvæóum.
w
I fyrra námu verktök íslenskra Aðalverktaka 3-4 milljöröum
króna. Séu upplýsingar bandariskrar rannóknaraðila hersins
réttar, virðist því sem 1,5-2 milljörðum króna sé stungiö í vasa
einhverra velútilátinna flokksgæöinga án þess að á móti
komi nokkuð framlag. Hreinn gróði uppá 1,5-2 milljaröa. Fjöl-
mörg dæmi hafa verið dregin fram til að sýna þennan mun.
Hvl ætti ekki spilling að þrlfast I skjóli svona gríðarlega öfl-
ugs aðila sem nærist á íslensku efnahagskerfi og slær takt-
inn I tveimur stærstu stjórnmálaflokkum landsins.
Svo vill til að tveir af ráðherrum núverandi ríkisstjórnar, Jón
Baidvin og Ólafur Ragnar hafa báðir lagt til á þingi (meðan
þeir voru óbreyttir þingmenn) að starfsemi íslenskra Aðal-
verktaka verði könnuð. Það er líka löngu tímabært. Þá sam-
þykkti Alþingi íslendinga I fyrra þingsályktunartillögu Har-
aldar Ólafssonar fyrrum þingmanns Framsóknarflokksins
um að kannavöld I íslensku þjóðfélagi.Og fyrir Alþingi liggur
aö ákveðaaðgang að mestu auðæfum okkar, fiskimiðunum.
*
A þessi mál erhérdrepiö, þarsem þaö virðist ákaflegatíma-
bært á tlmum efnahagslegs ójafnvægis og deilna um kaup
og kjör að kanna innviöi efnahagskerfis okkar, svo að ein-
hvern botn megi fá I skiptingu auös og valda. Hverjir eiga ís-
land? Það er upplagt fyrir formenn tveggja helstu launþega-
flokka landsins að sameinast um að leita svara viö þessari
spurningu.
■■ w
ONWUB SJOHflRMIÐ
Ríkið og sparifé landsmanna
Ríkissjóður hefur nú hafið stórsókn á lánabréfamarkaðnum með fimmþúsund krónu konuna i broddi fyiking-
ar. Lækkandi bankavextir, og óöryggi á gráa markaðnum eftir gjaldþrot Ávöxtunar hefur breytt hugarfari al-
mennings sem litur meir til öruggrar ávöxtunar á sparifé en skyndigróða. Rikissjóður er því kominn i verulega
samkeppni við banka og verðbréfafyrirtæki um sparifé landsmanna. (Teikning: Nils Jakob og IM)
DAGATAL
Borgarastyrjöld og minnisleysi
Þið verðið að afsaka, kæru les-
endur, en ég er enn með hugann
við Albert.
Nú er hann kominn til Parísar
og án hundsins. Lucy varð aldrei
senditík. Draumur hinnar öldr-
uðu tíkur rættist ekki. Við skulum
bara vona að Albert verði henni
trúr og fari ekki í hundana í Paris.
En ég ætlaði nú eiginlega að
skrifa pistil dagsins um þú sem
heima sitja þegar Albert er farinn
til Frakklands.
Sem sagt Borgaraflokkinn.
Mér skilst að sonur Alberts og
skíðamaðurinn Hreggviður séu
búnir að kljúfa Borgaraflokkinn.
Ég spurði mig nú fyrst hvort það
væri hægt, en svo mundi ég að vís-
indamenn hafa klofið atóm. Við
það leystist heilmikil orka úr læð-
ingi, svonefnd kjarnorka og jók
hættuna á kjarnorkustyrjöld.
Klofningur Borgaraflokksins
er alveg eins. Litli kjarninn er
klofinn og við það myndast
óhemjumikil orka. Og kannski
styrjöld. Borgarastyrjöld.
Mér hefur skilist að tvímenning-
arnir umræddu séu búnir að
stofna eigin þingflokk. Ég fór nú
að velta fyrir mér þrengslum Al-
þingis þegar nýr þingflokkur er
tekinn til starfa. Hvar eiga þeir nú
að komast fyrir? Hins vegar er
það góða í þessu að þingflokkur-
inn er bara tveir menn og geta þess
vegna bara komist fyrir á salern-
inu á Alþingi. Eða kústaskápn-
um. Þannig yrði þingflokkurinn
nýi mjög samheldinn. Stæði þétt
saman.
En hvað skyldi nýi þingflokk-
urinn kalla sig? Smáborgara-
flokkinn? Kannski eru þeir Ingi
Björn og Hreggviður komnir í svo
mikinn ham að þeir vilja kalla sig
Hamborgara. Og með stuðningi
Alberts frá París, hljóta þeir að
heita Hamborgarar með frönsk-
um.
Annars heyrði ég brandara á dög-
unum. Sagan gerðist í munnlegu
prófi í íslandssögu í framhalds-
skóla einum á höfuðborgarsvæð-
inu.
— Hver var fyrsti landnáms-
maður íslands? spurði prófdóm-
arinn.
„Ég man það ekki,“ svaraði
nemandinn.
— Hvaða ár var Snorri Sturlu-
son veginn?
„Ég man það ekki.“
— Hvenær voru Jón Arason
biskup og synir hans hálshöggn-
ir?
„Ég man það ekki.“
— Hverjir voru Fjölnismenn?
„Ég man það ekki.“
— Hvaða ár varð ísland full-
valda ríki?
„Ég man það ekki.“
Nú var prófdómaranum öllum
lokið og hann spurði nemandann
byrstur á svip: „Hvað ætlar þú
eiginlega að verða þegar þú hefur
lokið námi, góði minn!!?
Nemandinn svaraði: „Forsætis-
ráðherra!“
í tilefni af þessu: Þeir segja að
embættismennirnir í forsætis-
ráðuneytinu hafi sérstakt heiti nú-
orðið yfir auðar arkir: Minnis-
punktar frá forsætisráðherra.
Og ég get ekki stillt mig um að
segja einn annan sem ég heyrði á
götuhorni í gær: Vitið þið hver
verður metsölubók á næstu jól-
um? Svar: Endurminningar for-
sætisráðherra.
Bókin verður svo hentug sem
rissblokk.