Alþýðublaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 19. júlí 1989 7 UTLOND Einu sinni var • • • áður en þær fengu leyfi til að ger- ast kennarar. Hinir háu herrar þeirra tíma sögðu ástæðuna vera þá, „konur skortir hæfileika til að hugsa kerfisbundið og rökrétt"! Þegar Stórþingið samþykkti loksins, á öldinni sem leið að sleppa konum inn í skólana, var það á þeim forsendum að með þvi bættist kennarastéttinni við: „nýr og tiltölulega ódýr vinnukraftur" því auðvitað var launum þeirra haldið í algjöru lágmarki. Svo er fyrir að þaka, skrifar Einar Ness, að það kom að því, að norsk yfirvöld fóru að gera sér ljósa hina miklu þýðingu mennt- unar. Á kreppuárunum voru sett ný skólalög, sem tryggðu öllum börnum í Noregi 9 ára skóla- skyldu — og jafn framt réttindi til 12 ára skólasetu. í bókinni „Det var en gang“, segir Einar Ness frá hlutskipti barna, sem féllu ekki inn í venju- legt mynstur, voru „öðruvisi". Þau sem voru andlega fötluð voru venjulega kölluð fávitar og árum saman voru skólar fyrir þessi börn svo og blind börn og heyrn- arskert kallaðir lavitahæli. Þetta breyttist sem betur fer, með lögum Stórþingsins sem hljóðuðu á þá ■ leið, að allt yrði gert til að auka þekkingu og sálfstæði þessara barna. Ekki fer heimurinn versn- andi á öllum sviðuni. (Arbeiderbladet. Stytt.) INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR Fyrir um það bil 250 árum, þegar Noregur var fátœkt bœnda- samfélag og þjóðin var hvorki frjáls né fullvalda, varþað lög- legt að taka „óhlýðin“ börn af lífi. Norskur skólamaður, Einar Ness hefur í þrjú ár unnið að samantekt um skólamál í Noregi frá árinu 1739, þegar danski konungurinn Kristján sjötti lét það boð út ganga að öll norsk börn ættu að ganga í skóla. í þessu riti gefur að líta ýmislegt sem erfitt er fyrir nútímafólk að skilja eða kyngja. Höfundurinn segir frá því að fram til ársins 1842 var leyfilegt að aflifa börn sem voru með „uppsteit" við sér eldri. „Vond börn“ var leyfilegt að setja í tukthús, til þess að „temja“ þau. Á þessum árum voru 12 ára börn látin vinna 10—12 tíma á hverjum degi utan skólatíma. Sem dæmi rná nefna að helntingur verka- fólks í tóbaksverksmiðjunum voru unglingar og börn innan 15 ára aldurs. Kennarar áttu að slá nemendur með lófunum, ekki með kreppt- um hnefa — eða þá með þar til gerðum renning — ef þeim fannst ástæða til að hegna nemendum á „mildan hátt“... Meðferð á konum, segir Einar Ness vera skammarblett í norskri skólasögu. Það leið langur tími, Þessi mynd er tekin i tigulsteina- verksmiöju i Kristiania i Noregi ca. 1880. Meiri hluti vinnuafls voru konur og börn og börnin þurftu oft að vinna 12—15 tíma dag hvern, utan skólatima. SJÓNVARP Stöð 2 kl. 17.30 Thornwell Bandarísk sjónvarpsmynd, gerð 1981, leikstjóri Harry Moses, aðal- lílutverk Glynn Turman, Vincent Gardenia, Craig Wasson, Howard E. Rollins, Jr. Myndin byggir á sannsögulegum heimildum um líf blökkumannsins Thornwell. Hann gegnir herþjón- ustu í Frakklandi og er þar settur í herfangelsi án þess að gera sér nokkra grein fyrir ástæðunni. í fangelsinu má hann búa við bæði andlegar og líkamlegar misþyrm- ingar, þannig að hann verður aldrei heill eftir. Meðal annars er stíft haldið að honum eiturlyfinu LSD. Sextán árum eftir að hann er Iátinn laus fær hann tækifæri til að lesa þúsund síðna skýrslu um mál sitt og við þann lestur verður honum ljóst að við svo búið má ekki una. Hann ræður sér lögfræðing og ætlar að sækja herinn til saka fyrir meðferð- ina. Saga þessa hermanns var fyrst gerð sem 60 mínútna heimildar- mynd en síðar kom þessi leikfærða gerð hennar. Myndin þykir ofar meðallagi. Sjónvarpiö kl. 21.35 Hún setti svip á bæinn (Jessica) Frönsk/ítölsk/bandarísk bíómynd, gerð 1962, leikstjóri Jean Negul- esco, aðalhlutverk Angie Dickin- son, Maurice Chevalier o.fl. Myndin er í léttum dúr eins og menn segja gjarna og eiga þá vænt- anlega við að myndin sé pínu fynd- in en ekki drep. Segir annars af fag- urri konu sem er búsett í litlu þorpi á Ítalíu ásamt eiginmanni sínum. Hann deyr og hún ákveður að verða um kyrrt. Hún er sem fyrr segir fög- ur, auðvitað Ijóshærð, og allir ítal- arnir, dökkir á brún og brá girnast konu þessa ákaflega. Það veldur ítölsku konunum leiðindum og þær ákveða að eiga ekki fleiri börn, rétt eins og í Lýsitrötu um árið, og ná sér þannig niður á mönnum sínum — og konunni ljóshærðu því hún er ljósmóðir. Konan fagra er hinsveg- ar barnlaus og vill gera eitthvað í því. Maurice Chevalier leikur þorpsprestinn og ekki verður séð í fljótheitum hvernig hann kemur við þessa sögu. En það er annað mál. Myndin lendir nokkuð fyrir ofan miðju á smásmugulegum skala kvikmyndagagnrýnenda. Stöö 2 kl. 21.40 Bjargvætturinn (Equalizer) Bandarísku spennumyndaflokkur um mann sem hefur að atvinnu að hjálpa fólki sem á í erfiðleikum með alls kyns glæpalýð. Þetta er hálfgert ofurmenni, eða á að minnsta kosti að vera það, en reynd- ar þjást handritshöfundarnir af hugmyndafátækt og aðalleikarinn af heilsuleysi, svo hann getur eigin- lega ekki beitt sér sem skyldi sem verður að teljast afar vafasamt fyrir mann sem á að leiku hetju af þess- ari gerð. Stöö 2 kl. 23.10 Æskuminningar (Brighton Beach Memoirs) Bandarísk bíómynd, gerð 1986, leikstjóri Gene Saks, aðalhlutverk Blythe Danner, Bob Dishy, Brian Dillinger, Lisa Waltz■ Myndin byggir á æskuminningum hins fræga leikrita- og handritahöf- undar Neil Simon og lýsir myndin tveimur fjölskyldunt sem búa undir sama þaki í Brooklyn, New York, árið 1937. Myndin er gerð eftir sam- nefndu leikriti Simons, sem lengi gekk og var vinsælt í Bandaríkjun- um. Myndin þykir standa ofar með- allagi þrátt fyrir að hún sé ekki jafn fáguð og leikritið og hlutverkaskip- anin vakti nokkra furðu þeirra sem um myndina hafa fjallað. Annars á þetta að vera þokkaleg skemmtan, lágvær húmor blandast hversdags- málum venjulegs fólks á oft ágætan hátt hjá Neil Simon og þarna er væntanlega engin undantekning á. £jÍlSTÖÐ 2 17.50 Sumar- . glugginn. Endur- sýning. 16.45 Santa Barbara. 17.30 Thornwell. Sannsöguleg kvik- mynd. 1800 18.45 Táknmáls- (réttir. 18.55 Poppkorn. 1900 19.20 Svarta naðran (10). 19.50 Tommi og Jenni. 20.30 Grænir fingur (13). 20.45 Sveppir. Ný, þýsk heimildamynd um sveppi. 21.30 Steinsteypu- viðgerðir og varnir (3). Hreinsun stein- steypu með há- þrýstiþvotti. 21.35 Hún setti svip á bæinn ((Jessica). Frönsk-itölsk- bandarisk mynd i léttum dúr frá árinu 1962. 19.19 19:19. 20.00 Sögur úr Andabæ. 20.30 Stöðin á staðnum. í kvötd heimsækjum vió Isafjörð. 20.45 Falcon Crest. 21.40 Bjargvættur- inn. 22.30 Tiska. 2300 23.00 Ellefufréttir. 23.10 Hún setti svip á bæinn, framh. 23.35 Oagskrárlok. 23.00 Sögur að handan. 23.25 Æskuminn- ingar (Brighton Beach Memoirs). Sjá umsögn. 01.10 Dagskrárlok.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.