Alþýðublaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 8
MÞYBineUÐIÐ mm mm Miövikudagur 19. júlí 1989 Borgarráð gerði engar meiriháttar athugasemdir við kaupin á Broadway. En minnihlutinn gagnrýndi að vanda vinnubrögð borgarstjórans. A — mynd / Ari. Borgin keypti Broadway á 118 milljónir Reykjavíkurborj{ hefur gengið frá kaupum á veit- ingahúsinu Broadway, í eigu Olafs Laul'dal. Samningur var gerður með fyrirvara um samþykki borgarráðs og ráð- ið samþykkti kaupin á fundi sínum í gær. Kaupverðið er nálægt 118 milljónum króna, en matsverð liússins liggur einhyersstaðar nærri 170 milljónum. Borgin greið- ir (æpar 18 inilljónir út, ineð því að greiða fastcignagjöld seljanda að upphæð 4 millj- ónir og liann fær að auki þrjár lóðir í miðhorginni, samtals að verðmæ'ti 13.5 milijónir króna. Kftirstöðvar greiðast á 12 árum. fá unglingahús í miðbænum, kaupin á Broadway breyttu engu um það. Albióðleg nútímalist á Kjarvalsstöðum: Verkin tryggð fyrir 300 milljónir króna Á laugardaginn, síðdegis, verður opnuð á Kjarvalss- stöðum sýning á alþjóðlegri nútímalist. Alls verða á þriðja tug verka eftir jafn marga sýnendur á sýning- unni og listamennirnir eiga það sammerkt að vera með þeim allra frægustu í nútíma- listinni í dag. Þarna verða Andy Warhol, Richard Long, Donald Judd, Sigmar Polke, Mario Mertz, Frank Stella og eru þá aðeins örfáir nefndir. Sýningin kemur frá Epinal safninu í Frakklandi sem er eitt hið fremsta á sviði nútímalistarinnar í Evrópu í dag. A sýningunni er leitast við að gefa hugmynd um þróun listarinnar frá og með popp-listinni bæði vestan hafs og austan og þarna eru verk sem margfræg hafa orð- ið i menningarsögu síðustu áratuga, t.d. má nefna mynd Warhols af Campell-súpu- dósunum sem sennilegast er almenniningi best kunn. Það er sem fyrr segir Epin- al safnið i Frakklandi sem stendur að sýningunni í sam- vinnu við Kjarvalsstaði, en sýningin er hingað komin eftir að fimm franskir safn- stjórar fóru mikla ferð um Norðurlöndin og kynntust norrænni list og kynntu um leið það sem þeir höfðu upp á bjóða. Að sögn Gunnars Kvaran forstöðumanns Kjar- valsstaða er tryggningarupp- hæð sýningarinnar um 300 milljónir. Það má með sanni segja að Kjarvalsstaðir skarti að mörgu leyti sínu fegursta frá og með laugardeginum, því þar hangir enn uppi hin stór- Bernard Huin, forstöðumaður Epinal listasafnsins og Gunnar B. Kvaran, forstöðumaður Kjarvalsstaða, virða fyr- ir sér mynd eftir Helmut Newton sem verið var að setja upp í sýningarsölum Kjarvalsstaða í gær.A—mynd / Ari. brotna Ijósmyndasýning salnum. Sýningin á nútíma- Yosuf Karsh og að auki upp- listaverkunum stendur hins- stillingar Kjarvals í Kjarvals- vegar í mánuð, til 20. ágúst. Guðrún Helgadóttir áfram um að Alþingi kaupi Hótel Borg: Vandalaust að komast að góðum samningum Bjarni P. Magnússon, borgarfulltrúi Alþýðu- flokksins, sagði að borgin hefði gert góð kaup og menn væru í sjálfu sér sáttir við þau. Hann sagði hinsvegar að minnihlutinn hefði látið bóka að með þessu teldi hann ekki að verið væri að leysa skort á félagsaðstöðu fyrir nemendur í Seljaskóla. Bjarni sagði einnig að minni- hlutinn hefði gagnrýnt málsT meðferðina af hálfu borgar- stjóra, málið hefði verið lítt og illa kynnt fyrir minnihlut- anum. Hann nefndi einnig að minnihlutinn vildi áfram Ákvörðun tekin þegar þing kemur saman Frain hefur komið í frétt- um art eigendur Hótel Borgar hafa ákvcrtið að framlengja ekki leigusamning um rekst- ur hótelsins, en Ólafur Lauf- dal hefur haft þart á leigu og rennur samningur hans út 1. september. Gurtrún Helga- dóttir, forseti sameinarts þings, sagði í virttali virt Al- þýrtublaðirt í gær art haldin hefrti verið fundur mert eig- endunum og á honum ákveð- irt art vinna áfram art málinu. Eigendurnireru áfram um art selja og Gurtrún staðfesti að Alþingi liefði enn mikinn áhuga á art kaupa liúsið und- ir starfsemi sína. Guðrún sagrti þart vandalaust art komast art górtuin samning- um virt eigendur. „Það er vilji forseta þings- ins að kaupa Hótel Borg, það ferekki milli mála. Og reynd- ar líka meirihluta fjárveit- inganefndar og þingsins en það verður ekki tekin nein ákvörðun fyrr en þing kemur saman.“ Guðrún sagði að Alþingi hefði farið fram á að leigusamningur um hótel- rekstur yrði ekki framlengd- ur til langs tima en jafnframt að það væri Alþingi að meinalausu að húsið yrði í rekstri til áramóta. Sem fyrr segir hafa eigendur Hótels Borgar ákveðið að fram- lengja ekki leigusamninginn og Guðrún sagði af því tilefni að það væri því ekki Alþingi sem væri að leggja niður hót- elreksturinn, hann væri af- lagður. „Ég hef ekki eyðilagt hjarta borgarinnar, það hafa aðrir gert og það er einfalt með Hótel Borg að fólk vill ekki leigja sér hótelherbergi lengur sem hvorki hefur kló- sett né bað. Þetta hentar ekki nútíma hótelrekstri." Guð- rún sagði ennfremur að varð- andi veitmgareksturinn þá hefði enginn sagt að hann þyrfti nauðsynlega að leggj- ast af. „Það eru óskiljanleg rök að halda því fram að þó Alþingi yfirtaki húsið dragi það úr lífi í miðbænum, eina lífið við Austurvöll er Al- þingishúsið. Nema menn eigi við hádegisbarinn en ég verð víst að hryggja menn með því að hann verður lagður af.“ Guðrún sagði aðspurð að hún sæi ekki að þjóðfélagið hefði nein efni á þvi að byggja þinghús í augnablik- Hádegisbarinn á Borginni verður aflagður, segir Guð- rún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings. A—mynd / Ari. inu, tii þess væri heldur engín fjárveiting, en áætlun hljóð- ar upp á 4 milljarða. „Ég hef hinsvegar ekkert á móti því að þarna verði byggt síðar. En um leið skuldum við borgarbúum að byggja ekki þarna hús sem engin veit hvernig fer saman við ráð- húsið. Það er ekki gert ráð fyrir ráðhúsinu þegar þing- húsið er teiknað. Þetta verð- ur að skoða og ég vil benda á stórslys í arkitektúr eins og t.d. Landsbókasafnið og Þjóðleikhúsið, hvort um sig fagurt hús en fáránleg sam- an. Ég kæri mig ekki um að eiga þátt í slíku. “

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.