Alþýðublaðið - 05.09.1989, Side 1
Kaup Landsbankans á meirihluta i Samvinnubankanum:
Ríkisendurskoðun
metur samninginn
Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra leitar
eftir áliti Ríkisendur-
skoðunar á samningi um
kaup Landsbankans á
52% hlutafjár í Sam-
vinnubankanum. í sam-
tali við blaðið sagði Jón
að almennt séð væru
kaupin skynsamleg frá
sjónarmiði skipulags
bankanna. Þar með væri
nýjum áfanga náð, með
fækkun bankanna úr sjö
í þrjá, sem þýddi nauð-
synlega hagræðingu til
þess að bankakerfið geti
búið sig undir aukna
samkeppni á markaðn-
um og veitt betri og
ódýrari þjónustu. Jón
sagðist hins vegar ekki
vilja segja endanlega
skoðun sína á málinu
fyrr en bankaráð Lands-
bankans hefði kynnt
honum fjárhagsstærðir.
Lögum samkvæmt þarf
ráðherrann að sam-
þykkja kaup eða yfir-
töku Landsbankans.
Viðskiptaráðherra sagði
að almennt séð væru kaup
Landsbankans í góðu sam-
ræmi við hans stefnu um
skipulag fjármagnsmark-
aðarins. Næstu skref hlytu
að verða breytingar á
skipulagi fjárfestingarlána-
sjóðanna, eins yrðu spari-
sjóðirnir að fara að búa sig
undir að ná fram aukinni
hagræðingu. Jón sagði að
atvinnulífið gengi nú í
gegnum breytingarskeið
og hagræðingin hjá bönk-
unum væri liður í því. „En
þjónustugreinarnar hafa
hingað til verið svolítið á
eftir vöruframleiðslugrein-
unum. Auðvitað er ekki
endalaust hægt að heimta
aukin afköst hjá þeim sem
vinna við sjávarútveg og
iðnað, það verður að gera
betur í banka- og trygging-
arkerfinu og þjónustustarf-
semi yfirleitt."
Eins og fyrr segir vildi
Jón Sigurðsson ekki segja
endanlega skoðun sína á
málinu fyrr en hann hefði
séð frá bankaráði Lands-
bankans hvaða fjárhags-
stærðir verið væri um að
ræða. Hann sagði að aug-
Ijóslega skipti máli fyrir
eigendur Landsbankans,
almenning í landinu, að vel
væri á málinu haldið.
„Bankarnir þurfa að byggja
upp sína eiginfjárstöðu og
þess vegna þarf Lands-
bankinn náttúrlega að hafa
gát á því hvaða verði hann
kaupir þessi bréf.“
Samkvæmt lögum þarf
bankaráðið að leggja fyrir
viðskiptaráðherra til sam-
þykktar áform um yfirtöku
Landsbankans á öðrum
innlánsstofnunum eða
samruna banka. Slíkt form-
legt erindi hafði enn ekki
borist ráðherra í gær, en
honum var kynnt málið á
fyrri stigum. Ennfremur
þarf Landsbankinn laga-
heimild til þess að geta nýtt
atkvæðamagn í samræmi
við ráðgerð kaup á 52 af
hundraði af hlutafjáreign-
inni. I núgildandi lögum
um hlutafélagsbanka er at-
kvæðisréttur eins hluthafa
takmarkaður við einn
fimmta. Viðskiptaráðherra
sagðist vænta að bankaráð-
ið legði málið fyrir hann á
næstunni. Hann mun síðan
leita álits Ríkisendurskoð-
unar á samningnum.
„Þessi breyting minnir á
að það er nauðsynlegt að
breyta ríkisbönkunum,
öðrum eða báðum, í hluta-
félagsbanka. Ég tel rétt að í
upphafi eigi ríkissjóður öll
hlutabréfin í bönkunum, en
síðan verði heimilt að gefa
út ný hlutabréf sem seld
verði almenningi. Þetta er
framtíðarmál," sagði Jón.
Ennfremur sagði við-
skiptaráðherra mjög
óskynsamlegt að breyting í
hlutafélagsform væri gerð í
því skyni að afla ríkissjóði
fjár. „Sala hlutabréfa í ríkis-
bönkunum ætti að vera til
þess að afla þeim aukins
eiginfjár í samræmi við al-
þjóðlegar kröfur um slíkt.
Mun ekki af því veita við
núverandi aðstæður í at-
vinnulífinu."
Jón sagðist hafa tekið eft-
ir því að þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins hefði í tvo
daga fjallað um stefnu
flokksins í efnahags- og at-
vinnumálum. „Það vakti
athygli að þeir fjölluðu alls
ekkert um sjávarútvegs-
eða landbúnaðarmál. Hins
vegar var þeirra niðurstaða
að rétt væri að selja ríkis-
bankana og nota andvirðið
til landbúnaðarmála. Ég lít
á þetta sem skrítlu frekar
en ábyrga tillögu," sagði
Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra.
Eftir því sem Alþýðublað-
ið kemst næst keypti
Landsbankinn 52% hlut í
Samvinnubankanum fyrir
tæpar 900 milljónir króna.
Viðskiptin virðast m.a.
draga dám af því að Sam-
bandið er stærsti viðskipta-
vinur bankans, bæði fyrir
og eftir sameininguna. Það
kann því að hafa haft áhrif
á verðið og valda mismun-
andi túlkun á því hvort og
hversu mikið Landsbank-
inn gaf eftir af skuldum
með samningnum. En þó
virðist margt óljóst um
kaupverðið og greiðsluskil-
mála.
Ríkisstjórnin:
Borgaraflokkurinn
staðfesti inngöngu
Erlendur Einarsson um kaup
Landsbanka á Samvinnubanka:
Samvinnuhreyfingin
missir visst f jar-
hagslegt sjálfstæði
„Mér finnst þetta dapur-
legar fréttir. Með þessu
hefur samvinnuhreyfingin
misst visst fjárhagslegt
sjálfstæði,“ sagði Erlend-
ur Einarsson, fyrrverandi
forstjóri Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga
og fyrrum formaður
bankaráðs Samvinnu-
bankans þegar Alþýðu-
blaðið innti hann álits á
kaupum Landsbankans á
meirihluta í Samvinnu-
bankanum.
Erlendur átti stóran þátt í
stofnun Samvinnubankans á
sínum tima og var þar í for-
ystu frá upphafi. Hann var
fyrst formaður Samvinnu-
sparisjóðsins og síðan for-
maður bankaráðsins þegar
bankinn tók til starfa í fram-
haldi af Samvinnusparisjóðn-
um, árið 1963. Erlendur
gegndi formennsku í banka-
ráðinu þar til fyrir tveinmur
árum er Guðjón. B. Ólafsson
núverandi forstjóri SÍS tók
við.
„Þess vegna þykir mér sárt
að búið sé að selja hann. Sam-
vinnubankinn var mjög þýð-
ingarmikil stofnun fyrir sam-
vinnuhreyfinguna, jók mikið
fjárhagslegt sjálfstæði henn-
ar,“ sagði Erlendur Einarsson.
Aðalstjórn Borgara-
flokksins samþykkti á
fundi sínum á laugardag-'
inn að flokkurinn skyldi
ganga til liðs við núver-
andi ríkisstjórn. Inngang-
an var samþykkt með öll-
um greiddum atkvæðum
nema einu. Ráðherraefni
flokksins, valin í leynilegri
kosningu, eru þeir Óli Þ.
Guðbjartsson sem verður
dóms- og kirkjumálaráð-
herra og Júlíus Sólnes sem
verður umhverfismálaráð-
herra.
Þeir tveir sem hér að ofan
eru nefndir fengu hvor um sig
13 atkvæði til ráðherradóms
en þeir Guðmundur Ágústs-
son og Ásgeir Hannes Eiríks-
son fengu hvor um sig 5 at-
kvæði. Júlíus verður ráðu-
neytislausi ráðherrann fram
að áramótum þar til hann
tekur formlega til starfa sem
umhverfismálaráðherra.
í vikunni verða fundir í
stofnunum stjórnarflokk-
anna þar sem endanlega
verður samþykkt innganga
Borgaraflokksins í ríkis-
stjórnina og gera má ráð fyrir
því að nýtt ráðuneyti Stein-
gríms Hermannssonar geti
tekið við á formlegan hátt um
næstu helgi eða strax eftir
helgina.
Ljóst er að við þessar mála-
lyktir vænkast verulega hag-
ur ríkisstjórnarinnar varð-
andi þingstörfin, þar sem hún
hefur nú meirihluta í báðum
deildum þingsins og á því
auðveldara með að koma
málum sínum fram. Sjá nán-
ar um það á bls. 3
Borgarleikhúsið afhent
Á sunnudaginn fékk Leikfélag Reykjavíkur formlega afhent Borgarleikhúsið. Borgarstjór-
inn, Davíð Oddsson, afhenti féiaginu leikhúsið við formlega athöfn að viðstöddu fjölmenni.
Af þessu tilefni fór leikfélagsfólk i skrúðgöngu fró Iðnó að Borgarleikhúsinu en athöfnin við
Iðnó hófst á því að rifið var af húsinu merki leikfélagsins sem leikararnir sjást hér hampa.
Þetta var sennilega allra allra síðasta uppfærslan af hálfu félagsins í Iðnó.